Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
Sovézkar vígvélar í Kabul.
Innbyrðis sundr-
ung í Kabul-stjórn
Flokksþing Þjóðarflokksins sett í gær
Islamabad, l'akistan. 15. marz. AP.
STJOKNIN í Kabul, sem styðst við innrásarlið Sovétríkjanna, er nú
nánast óstarflia'f vegna innbyrðis sundrungar um hverjir eigi að vera í
hvaða valdastöðum, að því er vestrænir diplómatar í Islamabad í Pak-
istan greindu frá í dag. Viðkomandi óskuðu eftir að vera ekki nafn-
greindir, en þeir sögðu að ágreiningurinn hefði fyrst komið í Ijós þegar
l'jóðarflokkurinn, sem fer með stjórn landsins, hélt fyrsta þing sitt á
sunnudaginn í þeim tilgangi að kjósa 51 manns forsætisráð.
Sovétmenn, sem hafa verið í
Afganistan síðan í desember
1979, hafa fram til þessa getað
haldið flokknum saman, en þeim
hefur ekki tekizt að koma í veg
fyrir innbyrðis valdastreitu, að
því er heimildir AP-fréttastof-
unnar sögðu.
Flokkurinn náði völdum í Afg-
anistan í apríllok 1978 og skipt-
ist einkum í tvær fylkingar,
Parcham sem nýtur stuðnings
Karmals forseta og Khalq-
arminn sem afganski herinn
hneigist til stuðnings við.
Utvarpið í Kabul sagði frá því
á mánudag að 836 fulltrúar frá
öllum héruðum landins væru
komnir til höfuðborgarinnar að
sitja flokksþingið, en fundar-
staðnum var haldið leyndum
fram á síðustu stundu af ótta við
árásir skæruliða.
í setningarræðu sinni fjaliaði
Karmal forseti í löngu máli um
þá miklu blessun og björgun sem
fylgt hefði í kjölfar byltingar-
innar 1978. Útvarpið vitnaði í
ræðu hans og sagði að „ríkis-
stjórn hans væri staðráðin í að
tryKfíja lýðræðislegt stjórnarfar
og efnahagslegar framfarir til
handa allri afgönsku þjóðinni".
Hins vegar sagði forsetinn að
„heimsvaldasinnar væru að
reyna að skemma uppbygg-
ingarstarfið og hefðu hafið stríð
á hendur ríkisstjórninni“, en
hann bætti því við að stjórnvöld
væru sannfærð um að þau
myndu vinna bug á undirróðurs-
iðju heimsvaldasinna sem
stefndu að því að stöðva fram-
gang byltingarinnar. Hann sagði
að frelsi Afganistan og fullveldi
yrði ekki hvað sízt tryggt með
sterkum tengslum við Sovétrík-
in, og þau tengsl væru horn-
steinn í utanríkisstefnu hans.
Sovétríkin hafa nú um það bil 90
þúsund manna lið í Afganistan.
Khomeini hvetur Hussein
til að fremja sjálfsmorð
Boirút, 15. marz. Al*.
AYATOLLAH Ruhollah Khorn-
eini erkiklerkur hvatti Saddam
Hussein forseta íraks í dag til
að fremja sjálfsmorð, það væri
eina leið hans út úr þeim ógöng-
um sem hann hefði komið sér í
með því að hrinda af stríði við
Iran.
„I»ú átt ekki um neitt annað
að velja. Ef þig skortir ekki
hugrekkið, þá ættir þú að fyrir-
fara þér, rétt eins og Hitler
gerði,“ sagði Khomeini styrkri
röddu í ávarpi, sem útvarpað var
í íran. í ræðu sinni aftók Khom-
eini með öllu að verða við áskor
unum íraka um að löndin sett-
ust að samningahorðinu.
Opinber fréttastofa í Teheran
skýrði frá því í dag, að hryðju-
verkamenn hefðu ráðið Mohamm-
ad Salem Hosni, háttsettan klerk,
Buckley
í Bonn
Bonn, 15. marz. Al\
JAMES L. Buckley varautanrík-
isráðherra Bandaríkjanna ræddi
í dag við vesturþýzka embætt-
ismenn um sameiginlega stefnu
gagnvart Rússum í viðskipta-
málum.
Ræddu Buckley og aðrir banda-
rískir embættismenn við Werner
Lautenschlager deildarstjóra
efnahagsmála í utanríkisráðu-
neytinu í Bonn, og síðar við
Hans-Dietrich Genscher utanrík-
isráðherra.
Buckley lét í ljós ánægju að
loknum fundunum og sagði við-
ræðuaðila sammála um áframhald
á viðræðum sínum og samstarfi.
Heldur bandaríska viðræðunefnd-
in til Lundúna, Brússel og Róma-
borgar áður en hún snýr heim á
leið á föstudag.
Það sem helzt er verið að ná
samstöðu um í þessum viðræðum
er sameiginleg stefna vestrænna
ríkja gagnvart austantjaldsríkj-
um í lánamálum.
af dögum og tvo aðstoðarmenn
hans. Hefði sprengju verið varpað
á bifreið Hosni í Teheran í gær,
sunnudag. Komust tilræðismenn-
irnir undan.
Blaðið Sunday Times í Lundún-
um sagði í gær, að Khomeini hefði
fyrirskipað takmarkaða syndafyr-
irgefningu, og hefðu rúmlega fjög-
London, 15. marz. Al\
HAROLD Evans ritstjóri Times
sagðist enn stýra skrifum blaðs-
ins, þrátt fyrir tilraunir Ruperts
Murdoch útgefanda til að setja
hann af.
„Ég hef alls ekki sagt upp störf-
um, og hér ræð ég ríkjum," sagði
Evans við biaðamenn er hann
mætti til vinnu í morgun. Hann
NTJORN Burma fyrirskipaði að
eyðilagðir skyldu 336 hektarar
ópíumckra í austurhluta lands-
ins. Sömuleiðis náði lögreglan
981 kg af hráu ópíum og 14 kíl-
óum af hcróíni og nokkru af
maríhuana.
Sagði frá þessu í skýrslu
sem var lögð fyrir þing Burma
í dag. Burma hefur verið eitt
helzta framleiðsluland ólög-
legs ópíums, en úr því er m.a.
ur þúsund pólitískir fangar verið
látnir lausir af því tilefni í íran.
Þá yrði tvö þúsund til viðbótar
sleppt úr haldi áður en nýjár Ir-
ana hefst 21. marz næstkomandi.
Fregnin er skrifuð af Amir Tah-
eri, sérfræðingi blaðsins í málefn-
um íran, en hann hefur aðsetur í
París.
sagðist búa við sama óöryggi í at-
vinnumálum og aðrir ritstjórar
hefðu jafnan staðið frammi fyrir.
Ljóst þykir að Evans verði að
hypja sig innan tíðar, en eina von
hans er, að einhver sexmenning-
anna, er fjalla um ráðningar rit-
stjóra blaðsins, haldi yfir sér hlífi-
skildi og beiti neitunarvaldi til
þess að Evans fái setið áfram.
unnið heróín. Upp á síðkastið
hafa stjórnvöld hert mjög á
eftirliti með framleiðslu á
þessum eiturefnum. í sömu
skýrslu segir að strandgæzla
Burma hafi tekið fjórtán tog-
ara frá Thailandi og 45 burm-
ísk skip, sem hafi komið inn í
landhelgi eða inn í hafnir
landsins til að ná 1 eiturlyf
sem átti að smygla til Vestur-
landa.
Evans ritstjóri Times:
„Hér ræð
ég ríkjum“
Burma herðir eftir-
lit með ópíumrækt
Kangoon, Burma, 15. marz. Al\
Dagblað alþýðunnar kvartar
enn undan spillingu í Kfna
l'eking, 15. marz. Al\
Fjöldaganga í Peking.
Veður
víöa um heim
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavík 1 mistur
Amsterdam 10 skýjaó
Aþena 15 rigning
Barcelona vantar
Berlin 11 heióríkt
BrUssel 9 heiðskirt
Chicago 10 skýjaó
Dyftinni 9 heióríkt
Feneyjar 10 heiöríkt •
Frankfurt 9 heióríkt
Færeyjar 4 rigning
Genf 7 heiðríkt
Helsinki 4 skýjaó
Hong Kong 25 heióríkt
Jerúsalem 11 skýjaó
Jóhannesarborg 27 heiðríkt
Kaupmannahöfn 5 rigning
Kairó 22 skýjað
Las Palmas 20 tóttskýjað
Lissabon 20 lóttskýjaó
London 9 rigning
Los Angeles 18 rigning
Madrid 16 heiðrikt
Malaga vantar
Mallorca vamtar
Mexíkóborg 28 heióríkt
Míami 27 heióríkt
Moskva 2 skýjaö
New York 14 heióríkt
Nýja Delhi 26 heiórikt
Osló 3 skýjað
Paris 13 heióríkt
Perth 24 heiðríkt
Ríó de Janeíró 29 skýjað
Rómaborg 13 heióríkt
San Francísco 14 rígning
Stokkhólmur 3 snjókoma
Sydney 25 skýjaó
DAGBLAÐ alþýðunnar í Peking
birti í dag áksakanir um spillingu
innan æðstu raða kommúnista-
flokksins og sagði að flokkurinn
stæði nú andspænis alvarlegustu
ógnun sem hann hefði orðið fyrir
„af hálfu úrkynjaðra kapitaliskra
kenninga" og vegna þjónkunar við
erlenda lifnaðarháttu.
Blaðið sagði að væri fjármála-
spilling, sem nokkrir háttsettir
flokksmenn ættu aðild að, látin
óátalin gæti það „valdið hruni
sósíaliskra hugsjóna og þeirra
ávaxta sem byltingin hefði borið
vegna áratuga langrar baráttu
flokksins og margra dyggra
manna".
Kínversk stjórnvöld hafa fyrir
nokkru gert átak til að koma í
veg fyrir smygl, mútur, fjár-
málabrask og alls konar fjársvik
og hefur verjð hótað, að þeir sem
verði uppvísir að slíkum glæpum
skuli líflátnir.
Fram til þessa hafa þeir emb-
ættismenn sem grunaðir hafa
verið um slíkt ekki verið hærra
settir en svo að þeir hafa setið í
héraðsstjórnum margra fylkja
en látið hefur verið að því liggja
nú upp á síðkastið, að háttsettir
flokksmenn kunni að verða að
svara til saka.
Dagblað alþýðunnar sagði, að
ekkert ógnaði kínversku sólíal-
isku samfélagi jafn alvarlega og
brotalamir í innra starfi flokks-
ins og úrkynjun, sem fylgdi því
að flaðra upp um allt sem útlent
væri.
Itrekaði blaðið margsinnis að
slíkt mætti ekki láta óátalið
enda væri það svo alvarleg
ógnun við hið farsæla hugsjóna-
starf sem unnið hefði verið, að
þá gæti aðeins á einn veg farið. í
grein blaðsins sagði, að þeir fjár-
glæpir sem hér væri átt við,
væru langtum djúpstæðari ogal-
varlegri en á árunum 1951 og
1952, þegar mikið átak var gert
gegn skriffinsku og eyðslu og al-
mennri spillingu, svo sem
skattsvikum, stuldi á verðmæt-
um í eigu ríkisins o.fl.
Þá sagði í blaðinu, að Kínverj-
ar yrðu að vera vel á verði í því
að gæta menningararfleifðar
sinnar og allt sem unnið væri í
landinu, hvort sem væri á sviði
efnahagsmála, menningarmála
eða atvinnumála skyldi taka mið
af þeim hugsjónum sem sósíal-
iskt Kína væri grundvallað á.
Hins vegar myndu Kínverjar
leggja sig fram um að halda góð-
um samskiptum við þau lönd
sem þeir teldu sér ávinning í og
stefnt yrði að því að taka al-
mennt upp sveigjanlegri efna-
hagsstefnu.
I greininni var lítillega vikið
að menningarbyltingunni og hún
hörmuð og sagt hún hefði leitt
til innbyrðis deila, efnahags-
kreppu og hún hefði stórlega
skaðað flokkinn. Því sér nú
mikilvægara að menn leggi sig
alla fram til að bæta þann mikla
skaða sem menningarbyltingin
svokallaða hafi valdið og muni
verða fylgzt grannt með starfi
hvers og eins í því tilliti.