Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 29 IMtogtiiiWfifeft Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakiö. Davíð Oddsson borgarstjóraefni Að tillögu Alberts Guðmundssonar og Markúsar Arnar Antonsson- ar hefur borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna einróma sam- þykkt, að Davíð Oddsson, borgarfulltrúi, verði borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins við kosningaráar í Reykjavík í vor. Þessi sam- hljóða ákvörðun staðfestir þann einhug til sóknarsigurs, sem ríkir meðal sjálfstæðismanna í Reykjavík. Akvörðunin kemur hins vegar ekki á óvart. Síðan sumarið 1980, þegar Birgir ísl. Gunnarsson, fyrr- verandi borgarstjóri, ákvað að draga sig í hlé innan borgarstjórnar- innar, hefur Davið Oddsson haft þar forystu fyrir sjálfstæðismönnum. Um 6000 þátttakendur í prófkjöri sjálfstæðismanna vottuðu Davíð traust nú í vetur, en hann hlaut þá mest fylgi frambjóðenda. Davíð Oddsson er einarður baráttumaður og hefur aflað sér trausts og stað- góðrar þekkingar á málefnum Reykjavíkur í þau tæpu átta ár, sem hann hefur setið í borgarstjórninni, nú síðast sem borgarráðsmaður. Vinstri meirihlutinn í Reykjavík getur ekki boðið kjósendum, að þeir ákveði beint með atkvæði sínu, hver verði borgarstjóri að kosningum Ioknum. Hjá vinstri mönnum gildir í því efni eins og öðrum sú regla, sem þeim er kærust í stjórnmálum, að allar meiriháttar ákvarðanir séu teknar á bak við luktar dyr á grundvelli pólitískra hrossakaupa. Að mati vinstri manna á borgarstjórinn ekki að styðjast við umboð frá borgarbúum heldur á hann að vera starfsmaður flokksbrodda, eins konar hlutlaus samnefnari glundroðans. Ekki er ástæða til að sneiða að þeim manni, sem gegnt hefur þessu erfiða hlutverki í tæp fjögur ár. Af illri nauðsyn fær hann að vera í friði fyrir opinberum árásum frá húsbændum sínum í vinstri meiri- hlutanum. Hins vegar eru vinstri menn í borgarstjórn þegar teknir til við þá iðju, sem þeim þykir jafnan heilladrýgst, að skella skuldinni á aðra og þá helst embættismenn. Vinstri meirihlutinn er síður en svo ánægður með þá skipan, sem ríkt hefur síðan hann fékk völdin. Flokksbroddum vinstri flokkanna og þá sérstaklega Alþýðubandalags- ins finnst sem þeir hafi ekki nóg völd. Alþýðubandalagsmenn leggja til að borgarstjórum verði fjölgað um 7, hvorki meira né minna, og framsóknarmenn vilja, að þeir verði að minnsta kosti tveir. Líklega á það eftir að skýrast betur í kosningabaráttunni nú en áður, hve einkennilegt það er, að kjósendur hafi ekki tækifæri til að ráða því alfarið með atkvæði sínu, hver skipar sæti borgarstjóra. Annars vegar munu sjálfstæðismenn sækja sameinaðir fram undir forystu Davíðs Oddssonar, hins vegar mun sundurlyndisfjandinn setja svip sinn á baráttu vinstri manna og þeir nota embættismenn sem blóraböggul, án þess að embættismönnunum gefist færi á að bera hönd fyrir höfuð sér eða segja, hvað þeir telja Reykvíkingum og borginni þeirra fyrir bestu. Valdníðsla OÓlafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, hefur lýst því yfir, að Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, hafi gerst sekur um valdníðslu, þegar hann gaf fyrirmæli um, að Orkustofnun hætti sam- vinnu við Almennu verkfræðistofuna um rannsoknir á jarðvegi við Helguvík, þar sem ákveðið hefur verið að reisa nýja eldsneytisgeyma varnarliðsins. „Þessi ákvörðun iðnaðarráðherra er valdníðsla, því það heitir valdníðsla á lagamáli þegar yfirvöld beita valdi sínu í annarleg- um tilgangi, í tilgangi sem þeim er ekki ætlað að fjalla um,“ sagði Ólafur Jóhannesson hér í blaðinu á sunnudag. Þetta er svo sannarlega alvarleg ásökun, ekki síst þegar haft er í huga, að Ólafur Jóhannesson hefur, sem fyrrverandi prófessor í stjómlagafræði við Háskóla íslands og höfundur fræðirita um stjórn- skipunar- og stjórnarfarsrétt, traustari forsendur en flestir aðrir ís- lendingar til að meta embættisgjörð iðnaðarráðherra frá lögfræðilegu sjónarmiði. Eins og segir í riti ólafs Jóhannessonar, Stjórnarfarsrétt- ur, leiðir valdníðsla ekki til þess, að embættisverk sé markleysa. Valdníðsla getur hins vegar leitt til ógildingar stjórnarathafnar og því þarf að sanna ógildingarannmarka með dómi eða úrskurði æðra stjórnvalds. Nú fer iðnaðarráðherra með æðsta vald yfir borum Orkustofnunar, og því er ekki líklegt, að á fundi ríkisstjórnarinnar verði hann sviptur borvaldinu, þótt hann hafi beitt því í annarlegum tilgangi. Ólafur Jóhannesson segir hins vegar í riti sínu um stjórnar- farsrétt, að ætla verði, „að íslenskir dómstólar teldu sér heimilt að fella úr gildi ákvörðun, þegar valdníðsla hefur átt sér stað, enda þótt stjórnarathöfn væri eigi áfátt að öðru leyti." Hefur utanríkisráðherra, Ólafur Jóhannesson, lýst því yfir, að hann fyrir sitt leyti telji sjálfsagt að Almenna verkfræðistofan fari í mál við Orkustofnun „fyrir tilefn- islaust og fyrirvaralaust samningsrof". En auðvitað hefur afskiptasemi iðnaðarráðherra af borum Orku- stofnunar aðra hlið en hina lögfræðilegu. Margt ef einstætt við þessi afskipti, meðal annars það, að ráðherra saki starfsbróður sinn í ríkis- stjórn um valdníðslu. Á sínum tíma lagði forsætisráðherra mikið á sig fyrir virðingu Alþingis. Ætlar hann ekkert að gera til að vernda i'irAimri »*ílfio<’liÁ».«o»«'n««»9 Kjaradeil- unni vísað til sáttasemjara ASÍ og VSÍ vísuðu í gær samninga- viðræðum til meðferðar cmbættis sáttasemjara ríkisins. Talsmenn ASÍ telja reyndar, að málið hafi verið hjá cmbættinu síðan í samningalotunni síðastliðið haust, en þá hafi samn- ingaviðræðum aðeins verið frestað með skammtímasamningi. Búist er við fundi með sáttasemjara síðar í vikunni. Á fundinum í gær lagði ASI fram sömu kröfur sínar, sem eru þær sömu og síðastliðið haust. Á fundinum hafnaði VSI kauphækk- unarkröfum og tilkynnti að gagn- kröfur VSI kæmu fram er viðkom- andi undirnefndir hefðu verið skipaðar. Aðalfundur Vinnuveit- endasambandsins verður haldinn 24. marz og verður frekari afstaða mótuð þá. Því má búast við að þessar samningaviðræður fari ekki af stað af alvöru fyrr en und- ir mánaðamót. (Ljósm. RAX.) Við upphaf samningaviðræðna þáði samninganefnd ASÍ kaffi ( fundarsal VSÍ að Garðastræti 41, frá vinstri Guðríður Elíasdóttir formaður Verkakvennafélagsins Framtfðarinnar í Hafnarfirði, Karl Steinar Guðnason varaformaður Verkamannasambands íslands, Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, Barði Friðriksson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, Þorsteinn Pálsson fram- kvæmdastjóri VSÍ, Páll Sigurjónsson formaður VSÍ og Gunnar J. Friðriksson forstjóri Friggjar og stjórnarmaður í VSÍ. Utanrfkisráðherra í skýrslu til Alþingis: Utanríkisviðskiptamál í hendur utanríkisráðuneytis — I»að er einróma álit þeirra starfsmanna utanríksþjónustunnar, sem mest hafa hugleitt þessi mál, að virk og sveigjanleg utanríkisþjón- usta verði best tryggð með því að allir mcginþættir utanríkismála, þar á meðal utanríkisviðskiptamál, séu í höndum utanríkisþjónustunnar bæði erlendis og hér heima, segir í skýrslu utanríkisráðherra, Ólafs Jó- hanncssonar, um utanríkismál, sem lögð var fram á Alþingi mánudaginn 15. mars. Fjallað er um verkaskiptingu milli viðskiptaráðuneytisins og utanríkis- ráðuneytisins í lok skýrslunnar og þar segir: „Seint á árinu 1978 var stofnað til embættis sérstaks viðskipta- fulltrúa við sendiráðið í París. Viðskiptafulltrúinn starfaði þar í 3 ár og vann mikilsvert starf að söfnun upplýsinga um markaðs- mál í Frakklandi og nálægum löndum, auk þess að efla sam- bandið milli íslenskra útflytjenda og innflytjenda í þessum löndum og aðstoða við íslenskar vörusýn- ingar. Þessi viðskiptafulltrúi flutti aftur til íslands um sl. áramót og hef ég nú ákveðið að senda í hans stað viðskiptafulltrúa til London, sem starfa mun við sendiráðið þar og hafa m.a. það hlutverk að leita nýrra markaða í Bretlandi og fleiri löndum, auk þess að vinna að því að efla og treysta skreiðar- markaðinn í Nígeríu, en hags- muna íslands þar í landi er gætt af sendiráðinu í London. Þótt ýmis sendiráð okkar starfi mjög mikið að viðskiptamálum, eins og nánar er rakið í upphafi kaflans um utanríkisviðskiptin, þá háir starfsmannaskortur oft veru- lega, því að starfssviðið er æði víð- tækt. Þá er og umhugsunarefni sú skipting starfa milli utanríkis- ráðuneytis annars vegar og viðskiptaráðuneytis hins vegar, sem gilt hefur um langt skeið. Hérlendis eru utanrikisviðskipta- mál lögð undir viðskiptaráðu- neytið. Nánar tiltekið er hér um að ræða útflutningsverslun, undir- búning og framkvæmd viðskipta- samninga, skipti íslands við al- þjóðleg efnahags- og viðskipta- samtök og fjármalastofnanir og loks vörusýningar erlendis. Starfsmenn utanríkisþjónust- unnar starfa ýmist í sendiráðum okkar erlendis eða í utanríkis- ráðuneytinu hér heima. Erlendis er það eitt af höfuðhlutverkum þeirra að vinna einmitt að þeim störfum, sem í Reykjavík falla undir viðskiptaráðuneytið. Gott samstarf hefur að vísu ríkt milli ráðuneytanna tveggja um þessi Páll Pétursson um Blönduvirkjunarsamningana: Margt sem Hjörleifur gerir kjánalegt þessa dagana - Annars hefur hann áður virkjað á þennan hátt, - Bessa- staðaárvirkjun, þegar ríkisstjórn Ólafs fór frá „VID erum að ræða Helguvíkur málin og hér ríkir mikill einhugur að baki utanríkisráðherra,** sagði Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, er hann vék stundarkorn af þingflokksfundi í gær. Ilann var þá spurður álits á undirritun Blönduvirkjunarsamn- inga, sem átti sér stað á sama tíma í Káðherrabústaðnum. Páli virtist koma sú frétt á óvart og hann sagði m.a.: „Það er margt sem Hjörleifur Guttormsson gerir kjánalegt þessa dagana. Eg veit að það var ekki sam- þykkt á ríkisstjórnarfundi i morg- un að standa þannig að málum, eins og hann er að gera. — Annars hefur Hjörleifur áður virkjað á þennan hátt. Það var þegar hann gaf út virkjanaleyfi á Bessastaða- árvirkjun sama daginn eða daginn eftir að ríkisstjórn Ólafs Jóhann- essonar fór frá. Það lenti síðan á r>---- v:-----: ------: „» v_____i._ það verk hans út af pappírunum. Hann er kannske að undirbúa eitthvað svipað núna.“ Páll sagði einnig, að eflaust væri rétt að geta þess að „þetta óðagot Hjörleifs" eins og hann orðaði það, stafaði ef til vill af því að stjórn Landssamtaka um nátt- úruvernd væru á leið til fundar við hann og þingmenn. „Þetta sýnir hver garpur Hjörleifur er. Hann hefur ekki haft kjark til að mæta þeim mönnum." Er Mbl. ræddi við Pál á ný í lok þingflokksfundarins sagði hann, að lítill tími hefði gefist til um- ræðna um málið. Hann sagði einn- ig: „Ráðherrar fengu engar heim- ildir til að ganga frá máli þessu á ríkisstjórnarfundi." Aðspurður um hvort hann teldi að þeir myndu ganga frá því samt sem áður sagði hann: „Svoleiðis vinnu- brögð þekkjast ekki innan Fram- • » <•»»»• u Páll Pétursson formaður þingflokks n '» . . n • i mál og viðskiptaráðuneytið hefur dagleg samskipti við sendiráð okkar vegna viðskiptamála. Á hinn bóginn eru ýmsir annmarkar á þessari tilhögun. Starfsmenn utanríkisþjónustunnar fá ekki þau kynni af viðskiptamálunum hér heima, sem þeir fá af öðrum mála- flokkum utanríkisþjónustunnar, en einmitt þau kynni eru afar nauðsynleg til að starfskraftar þeirra nýtist sem best úti í sendi- ráðunum. Ennfremur skortir per- sónuleg tengsl við samtök og full- trúa útflutningsins og breytir stutt kynnisdvöl starfsmanna utanríkisþjónustunnar í við- skiptaráðuneytinu þar litlu um. í nágrannaríkjum okkar er það ýmist að utanríkisviðskiptin séu hjá viðskiptaráðuneyti, utanrík- isráðuneyti eða samstarfsstofnun beggja ráðuneyta. Þessi ríki^eiga það þó öll sameiginlegt að hafa á að skipa í flestum borgum marg- falt fjölmennara starfsliði en við getum nokkurn tíma haft ráð á. Þau geta þá líka leyft sér að hafa sérstaka viðskiptafulltrúa eða jafnvel heilar viðskiptadeildir í sendiráðum sínum og sett í þau störf sérþjálfaða menn úr viðskiptaráðuneytum sínum eða viðskiptadeildum utanríkisráðu- neytanna. Þegar slíkir möguleikar eru fyrir hendi skiptir heildar- stjórn allra þátta utanríkismála undir einu ráðuneyti engu megin- máli. Lítið land eins og Island, sem hefur sendiráð í fáum löndum og aðeins 2—3 embættismenn í hverju sendiráði til að gæta hinna fjölbreytilegustu hagsmuna, hlýt- ur hins vegar að verða að hafa hagkvæmnissjónarmiðið að leið- arljósi. Það er einróma álit þeirra starfsmanna utanríkisþjónust- unnar, sem mest hafa hugleitt þessi mál, að virk og sveigjanleg utanríkisþjónusta verði best tryggð með því að allir megin- þættir utanríkismála, þar á meðal utanríkisviðskiptamál, séu i hönd- um utanríkisþjónustunnar bæði erlendis og hér heima. Utanríkisviðskiptin eru slíkt stórmál fyrir Islendinga að öllu skiptir, hvernig til tekst um fram- kvæmd þeirra. Eg varpa því fram þessum hugleiðingum hér í lok skýrslu minnar til þess að koma af stað umræðum um framtíðar- skipulag þessara mála.“ Hjörleifur Guttormsson: Tel að það skipti ekki sköpum þó Bólstaðarhlíðarhreppur sé ekki aðili SAMNINGIIK um virkjun Blöndu var í gær undirritaður af Raf- magnsvcitum ríkisins sem virkjun- araðila og fimm hreppsnefndum, sem hagsmuna eiga að gæta í hér aði. Forsenda samningsins er með- al annars sú, að Blönduvirkjun verði næsta meiriháttar vatnsafls- virkjun í landskerfinu samkvæmt þingsályktunartillögu ríkisstjórn- arinnar, sem nú bíður afgrciðslu. Alls eiga 6 hreppar hagsmuna að gæta hvað virkjunina varðar, en einn þeirra, Bólstaðarhlíðarhrcpp- ur, hefur ekki samþykkt samning- inn. Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um staðfestingu rík- isstjórnarinnar. Vegna þessa gaf iðnaðarráðuneytið út fréttatilkynn- ingu og birtist hún í heild hér á síðunni. Hjörleifur Guttormsson, iðn- aðarráðherra, kynnti samkomu- lagið og sagði meðal annars, að þó samningurinn væri undirrit- aður með fyrirvara um sam- þykki ríkisstjórnarinnar, efaðist hann ekki um að það fengist í þessari viku. Þá sagðist hann sakna þess að Bólstaðarhlíðar- hreppur væri ekki aðili að þess- um samningi og sagöi að hreppnum yrði nú boðin aðild að honum í framhaldi undirritunar samkomulagsins. Aðspurður um það, hvað við tæki ef Bólstað- arhlíðarhreppur hafnaði aðild að samkomulaginu, sagði Hjörleif- ur, að hann teldi það ekki skipta sköpum þó hreppurinn væri ekki aðili að samkomulaginu, hann ætti aðeins Viehluta heiðar- landsins, sem um væri að ræða. Það væri hægt að fara fleiri en eina leið í málinu, samkvæmt vatnalögum væri hreppnum heimilt að óska mats og eða dóms um bætur og þá væri eign- arnámsleiðin einnig fær, en hann vonaðist til að ekki þyrfti að beita henni. Þá tók Hjörleifur það fram að hið stranga samn- ingaþóf hefði ekki á nokkurn hátt tafið pndirbúning virkjun- arinnar. Jón ísberg, sýslumaður, Blönduósi: Vona að þetta verdi Norður- landi og allri þjóðinni til góðs „ÉG er mjög ánægður með það að nú skuli vera lokið 6 ára samn- ingapuði og ég vona að það spor, sem stigið hefur verið með undir ritun virkjunarsamninganna verði Norðurlandi og landinu öllu til gæfu. Þá vona ég að framkvæmdir gangi slysalaust fyrir sig,“ sagði Jón ísberg, sýslumaður á Blöndu- ósi, einn þeirra sem undirrituðu samninginn fyrir hönd heima- manna, er Morgunblaðið ræddi við hann. „Þetta er mikið framfaraspor fyrir sýsluna og ánægjulegt að stjórnvöld hafi þá trú á sýslunni, að hér geti eitthvað þrifizt. Fólksfjölgun hér hefur nánast engin verið lengi og nú er sami mannfjöldi í Húnavatnssýslum og 1850. Hvað varðar afstöðu Bólstaðarhlíðarhrepps, held ég að það hafi ekki úrslita áhrif um framgang málsins. Eg held að aðilar þar hljóti að telja sér hag að því að verða aðilar að samn- ingnum eins og þeim verður nú boðið, en þó verður að reyna á það hver niðurstaðan í því máli verður," sagði Jón. Þá kom það einnig fram við undirritun samningsins að fram- kvæmdir samkvæmt útboði myndu væntanlega hefjast á næsta ári, en í sumar yrði hafin undirbúningsvinna og gerð út- boðsgagna og virkjunin gæti væntanlega tekið til starfa 1987 eða 1988. Þá kom það fram í máli Kristjáns Jónssonar, raf- magnsveitustjóra, að lauslega áætlað næmu bætur til landeig- enda vegna virkjunarinnar 47 til 50 milljónum króna. Jón Tryggvason, hreppstjóri í Bólstaðarhlíðarhreppi: Tel ekki líkur á því að hreppurinn gerist aðili að þessum samningi „VIÐ í Bólstaðarhlíðarhreppi höf- um ætíð verið á móti þessum samn- ingsdrögum og getum ekki fallizt á virkjunarkost I. Það eru land- verndarsjónarmið sem ráða því fyrst og fremst, og við teljum að með þessu sé allt of langt gengið," sagði Jón Tryggvason, hreppstjóri í Bólstaðarhlíðarhreppi, er Mbl. ræddi við hann. „Þess vegna tel ég engar líkur á því að við þiggjum aðild að þeim samningi, sem nú hefur verið undirritaður og persónulega er ég á móti því að svo verði. Það er ýmislegt sem getur komið til vegna þessarar afstöðu okkar og ég hræðist ekki eignarnám þar sem ég efast ekki um það að eðli- legar bætur fáist, þetta hefur aldrei verið peningaspursmál. Hins vegar tel ég að með núver- andi samningi sé nánast verið að semja yfir sig eignarnáni, það er gengið svo langt í honum og óljóst hvort eignarréttur okkar verður virtur," sagði Jón. Samningar um virkjun Blöndu undirritaðir eftir 7 ára þóf - einn hreppur af 6 er ekki aðili að samningunum MBL. BAKNT í gær eftirfarandi frétta- tilkynning frá iðnaðarráðuncytinu. I dag var undirritaður samningur milli Kafmagnsveitna ríkisins sem virkjunaraðila og fimm hrepps- nefnda varðandi Blöndu, og er for- senda hans m.a. að Blönduvirkjun verði næsta meiri háttar vatnsafls- virkjun i landskerfinu. Hrepparnir fimm, sem aðild eiga að samningnum, eru Blönduóss- hreppur, Torfalækjarhreppur og Svínavatnshreppur vestan Blöndu og Lýtingsstaðahreppur og Seyluhrepp- ur austan Blöndu. Undirrituðu samninganefndarmenn hreppanna samninginn fyrir þeirra hönd, en af hálfu virkjunaraðila Kristján Jóns- son rafmagnsveitustjóri. Eini hreppurinn á virkjunarsvæð- inu, sem ekki á aðild að samningn- um, er Bólstaðarhlíðarhreppur, þar eð hreppsnefndin hefur enn ekki á hann fallist. Samningsaðilar eru þó sammála um að bjóða Bólstaðarhlíð- arhreppi aðild að samningnum. Samningurinn felur í sér að virkj- að verður samkvæmt svokallaðri virkjunartillögu I, þar sem áin verð- ur stífluð við Reftjarnarbungu. Gert er ráð fyrir 400 G1 hámarksmiðlun, en með ýmsum hætti verður leitast við að taka tillit til gróðurverndar og landverndarsjónarmiða við bygg- ingu og rekstur virkjunarinnar. Þá skuldhindur virkjunaraðili sig með samningnum að kosta upp- græðslu lands í stað þess gróður- lendis sem tapast og/eða spillist vegna virkjunarframkvæmda, sem svarar til allt að 3000 hekturum. I samningnum eru ennfremur ákvæði um lagningu vega og brúa á afréttarsvæðinu og uppsetningu nauðsynlegra girðinga á kostnað virkjunaraðila. Þá eru ákvæði um bætur fyrir land sem fer undir vatn, svo og tjón á veiði og annað tjón sem verða kann vegna virkjunarinnar. Stofnuð verður samráðsnefnd virkjunaraðila og heimamanna sem fjalla skal um mál sem snerta hags- muni beggja. Sérstök matsnefnd skal sem gerð- ardómur m.a. fjalla um mat á bótum og um ágreiningsmál sem upp kunna að koma og ekki verða leyst með samkomulagi í samráðsnefnd. Viðræður vegna Blönduvirkjunar hafa staðið yfir með hléum allt frá árinu 1975, nú síðast viðstöðulaust frá því sumarið 1980 og fjölmargir fundir verið haldnir um málið milli aðila. Hinn 7. desember 1980 var haldinn kynningarfundur í Húnaveri að viðstöddum iðnaðarráðherra. í framhaldi af þeim fundi tilnefndu þær sex hreppsnefndir, sem hlut eiga-að máli, tvo menn hvor í samn- inganefnd og skipuðu hana eftirtald- ir: Fyrir Blönduósshrepp: Hilmar Kristjánsson og Jón Isberg, fyrir Torfalækjarhrepp:, Torfi Jónsson, Torfalæk, og Erlendur Eysteinsson, Stóru-Giljá, fyrir Svínavatnshrepp: Sigurjón Lárusson, Tindum, og Ing- var Þorleifsson, Sólheimum, fyrir Lýtingsstaðahrepp: Sigurður Sig- urðsson, Brúnastöðum, og Marinó Sigurðsson, Alfgeirsvöllum, fyrir Seyluhrepp: Sigurpáll Árnason, Lundi, og Jónas Haraldsson, Völlum, fyrir Bólstaðarhlíðarhrepp: Jón Tryggvason, Ártúnum, og Pétur Sig- urðsson, Skeggsstöðum. Af hálfu iðnaðarráðuneytis og virkjunaraðila var skipuð viðræðu- nefnd sem í áttu sæti: Tryggvi Sigur- bjarnarson, verkfræðingur, for- maður, Jakob Björnsson, orkumála- stjóri, Jóhannes Nordal, stjórnar- formaður Landsvirkjunar, Kristján Jónsson, rafmagnsveitustjóri, Guð- jón Guðmundsson, rekstrarstjóri, og Sigurður Eymundsson, rafveitu- stjóri. Til aðstoðar samninganefndum störfuðu sem lögfræðingar: Fyrir heimamenn: Jón Steinar Gunn- laugsson og Guðmundur Pétursson, fyrir virkjunaraðila: Hjörtur Torfa- son. Fyrstu drög að heildarsamkomu- lagi milli aðila um virkjun Blöndu voru gerð í september sl. og síðan kynnt rækilega í hlutaðeigandi hreppum. Með bréfi dags. 30. nóv- ember 1981 kynnti ráðuneytið þá af- stöðu ríkisstjórnarinnar, að Blöndu- virkjun skuli verða næsta meirihátt- ar virkjun í landskerfinu, ef sam- komulag næðist við heimamenn um virkjunartilhögun I. Skömmu fyrir jól 1981 bárust svör hreppsnefnd- anna. Hreppsnefndir Torfalækjar- og Blönduósshrepps lýstu sig fylgj- andi samningsdrögunum, hrepps- nefnd Bólstaðarhlíðarhrepps lýsti sig andvíga virkjunarleið I, en hinar þrjár hreppsnefndirnar lýstu sig að meirihluta reiðubúnar til frekari viðræðna um Blönduvirkjun, en gerðu athugasemdir við samnings- drögin á mismunandi forsendum. Ákvað ráðuneytið að verða við til mælum um frekari viðræður, sem hófust snemma í janúar og hafa margir samningafundir verið haldn- ir síðan. Hafa ýmis atriði í upphaf legum samningsdrögum verið endur- skoðuð á grundvelli virkjunartilhög unar I. Hefur í ýmsum atriðum verið gtngið til móts við sjónarmið heima- manna um að hlífa sem verða má landi og gróðri, en þó án teljandi kostnaðarauka eða hættu á á óhag ræði við rekstur virkjunarinnar. Að breytingum gerðum bættist hreppsnefnd Svínavatnshrepps að meirihluta til í hóp þeirra sem féll- ust á samningsdrögin í síðustu viku, einnig hreppsnefndir Seyluhrepps og Lýtingsstaðahrepps eftir að tillit hafði verið tekið til vissra óska um breytingar. Á ríkisstjórnarfundi í dag kynnti iðnaðarráðherra fyrirliggjandi samningsdrög. Sérstök ráðherra nefnd, skipuð iðnaðarráðherra, land búnaðarráðherra og sjávarút vegsráðherra, hefur ásamt fjármála- ráðherra fylgst með gangi samn- ingsmála frá því í fyrravor, og var hún einhuga um að frá fyrirliggj- andi samningi yrði gengið. Með samningi þessum er stigið ákvarðandi skref varðandi Blöndu virkjun og á grundvelli þess verður unnið áfram að undirbúningi fram kvæmda, jafnframt því sem Ból- staðahlíðarhreppi verður gefinn kostur á að gerast aðili að samn- ingnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.