Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 45 - VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MANUDEGI TIL FÖSTUDAGS ^utuí^Maut *wt,umá.witr‘i.v>- Hugleiding um fréttamat erlendra frétta í ríkisútvarpi Kæri Velvakandi. Miðvikudaginn 3. þ.m. var lesin mikil langloka um negraríkið sem áður hét Rhodesia. Það er orðin hrein plága hér hjá okkur, að þurfa að hlusta á þessi ósköp í svo til hverjum einasta fréttatíma. Það eru tíundaðir fundir sem ein- hver Múgabe heldur með mönnum sínum og það er verið að fjargviðr- ast í útvarpi íslendinga, norður á 64 gráðu Dumbshafsins, hvort ein- hver Enkómó hafi falið einhver vopn í hlöðu, suður á hinum enda hnattarins. Svo eru tíunduð nöfn allskonar flokka og man.na, sem íslendingum kemur akkúrat ekk- ert við hvort til eru eða til ekki. Maður hélt að útvarpið hlyti að geta fundið eitthvert nýtt efni til uppfyllingar á tíma, en vitanlega eru þetta uppfyllingar og ekkert annað. Fréttir frá Suður-Ameríku heyrast sjaldan. Skyldi nokkur hafa falið vopn í hlöðu þar? Fréttaflutningur Ríkisútvarps- ins er orðinn ansi útþynntur og leiðigjarn þegar tíndar eru til aðr- ar eins „fréttir" og við fáum frá Enkómó og Múgabe. En nú langar mig til þess að spyrja fréttamenn Ríkisútvarps: Af hverju farið þið svona illa með Músóreva biskup? Hann sem átti næstum alla frétta- tíma í fyrra og var nefndur einn daginn 14 sinnum. Lofið okkur af hafa frið fyrir Enkómó, Múgabe og helst Músór- eva líka Ijmgþreyttur. Gæti Ríkisút- varpið ekki gert skákíþrótt- inni hærra undir höfði Olafur Þorsteinsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Samkvæmt prentaðri dag- skrá sjónvarpsins frá 8. til 15. þ.m. eru 475 mínútur áætlaðar í íþróttir og venjulega er þul- urinn heldur lengur en skemur með þessa dagskrá. Það eru 8 klukkutímar. Skákíþróttin er hins vegar aldrei sýnd nema þegar skákmót með erlendum skákmeisturum eru háð hér og þá fær sú íþrótt ekki nema 15 mínútur, og ekki daglega með- an mótið stendur yfir. Eg spyr því dagskrárstjóra sjónvarps- ins: Hví er alveg gengið fram- hjá þessari íþrótt? Við höfum á að skipa ágætum skákskýr- endum, en einn þeirra sagði í skákþætti í vetur að hann gæti því miður ekki skýrt skákina betur þar sem hann fengi svo lítinn tíma. Of stutt messa - Fellið niður Morgunvöku Laugarnesbúi hringdi: „Ég fór í Laugarneskirkju sunnudaginn 7. þ.m. en þá var þar messa sem tileinkuð var degi aldr- aðra,“ sagði hann. „Það sem þarna var flutt þótti ágætt í alla staði nema athöfnin var að mínu mati og margra ann- arra allt of stutt. Nú er Laug- arnes-kórinn alveg sérstak- lega góður kór en þarna söng hann ekki nema 3 sálma — það hefði vel mátt lengja guðs- þjónustuna með því að láta kórinn syngja fleiri sálma en það olli kirkjugestum von- brigðum hversu lítið hann söng. Mig langar einnig til að víkja að öðru. Maður er orðinn voðalega þreyttur á þessum Morgunvökuþætti á morgn- ana. Það hefur verið skrifað eitthvað um þennan þátt í Velvakanda og m.a. spurt hvað hann kostaði, en því hafa þeir hjá útvarpinu ekki ennþá svarað. Mér og mörgum öðrum sem ég þekki, finnst að í stað- inn fyrir þennan þátt væri skemmtilegra að hafa létta músík og létt rabb.“ Þessir hringdu . . . blaðs, þar sem frændurnir fá fréttir hver um annan. Upphaflega var blaðið gefið út í 200 eintökum, en hugmyndin er að stækka það. Brá fingrinum upp í sig R ENGIN leið fær til að losna við sóðaskap í mjólkur- og brauðbúðunum? I gær kom ég inn í brauðbúð og bað um heilhveiti- brauð. Afgreiðslustúlkan brá fingrinum á tungu sér og bleytti hann til að henni veittist auðveld- ara að ná pappírssneplinum, sem átti að fara utan um miðju brauðsins. Þótt ungar stúlkur séu snotrar og geðslegar, og hversu vel sem þær eru málaðar, þá er þetta samt óþægilegt fyrir viðskiptamanninn. Námskeið eða leiðbeiningar IMORGUN horfði ég svo á unga og vel málaða snót í mjólkurbúð halda niðursuðuglasi yfir mjólk- urbrúsa og hella glasið svo fullt, að niður rann í mjólkurbrúsann. Slíkt er vitaskuld argasti subbu- háttur og á ekki að koma fyrir. Er ekki hægt að krefjast þess, að þessar afgreiðslustúlkur sæki einhver námskeið, þar sem þeim er kennt hið nauðsynlegasta áður en þær fá þetta afgreiðslustarf í mjólkur- og brauðbúðunum? Að minnsta kosti mætti láta prenta hinar sjálfsögðustu þrifnaðarregl- ur og fá stúlkunum í hendur, svo að þær lærðu þvílíkar reglur. Reykjavík, 5. marz 1952. Viðskiptamaður. /VÝMM FRÁ ÚUT í* Kornakúnst Mómapottar I og vasar I bíómQuol' SENDIBILAR Viö getum nú boöiö þessa frábæru Dodge B—250 sendibíla á ótrúlega hagstæöu veröi: Af útbúnaöi má nefna: 6 cyl. vél vökvastýri sjálfskiptingu rennihurö á hliö aflbremsur styrktur undirvagn diskabremsur að framan buröargeta 1,5 tonn Dodge er eitthvert þekktasta nafn í heimi í sendi- og atvinnu- bílum. Dodge hefur áratuga langa reynslu á íslandi. Beriö sam- an verö og gæöi viö aðrar tegundir og þiö komist aö raun um aö enginn leikur á Dodge í þeim efnum. Dodge B—250 er smíöaöur til aö endast. Verö kr. 233.352 miðað við gengi pr. 08.03. 1982. * * Hafiö samband strax í dag. W Wfökull hff. Ármúla 36 - 84366

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.