Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
33
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
; vinnuvélar
m ^ aAI.
Scania 111 ’80 til sölu
2ja drifa, frambyggöur, kojuhús,
sindrapallur 5,40 m. Ekinn 50
þús. km. Skipti möguleg. Simi
95-5514 og 84449. Til sýnis við
Krafl hf., Vagnhöföa 3.
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu
Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu
17, sími 16233, Þorleifur Guö-
mundsson, heima 12469.
IOOF-OB-IP= 1343168V4 =
FERÐAFÉLAC
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
□ Helgafell 59821637 — IV/V
□ Edda 59823167 — 1 Frl.
IOOF Rb. 4 = 1313168% — 90
Aöalfundur Feröafélags
íslands
veröur haldinn þriöjudaginn 16
marz, kl. 20.30 aö Hótel Heklu,
Rauöararstig 18. Venjuleg aöal-
fundarstörf. Félagar þurfa aö
sýna skirteini 1981 viö inngang-
inn. Aö loknum fundarstörfum
sýnir Oddur Sigurösson vetr-
armyndir frá íslandi teknar úr
flugvél. Feröafélag íslands
Kristníboössambandiö
Samkoma i kvöld kl. 20.30 aö
Amtmannsstig 2b. Lesiö veröur
úr bréfum frá kristniboöunum.
Einsöngur Johanna Möller.
Raeöumaöur Margrét Hró-
bjartsdottir. Allir velkomnir.
AD KFUK
Fundur fellur inn i kristniboös-
viku StK sem haldinn er aö
Amtmannsstig 2b. 14.-21.
mars.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30.
Ræöumaöur Óskar Gislason frá
Vestmannaeyjum.
radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
__________tilkynningar____________|
P^| Áskorun til gjaldenda
^ fasteignagjalda í
Garðabæ
Hér með er skorað á þá, sem eigi hafa greitt
fyrri hluta fasteignagjalda ársins 1982 til
bæjarsjóðs Garöabæjar, að gera full skil á
þeim fasteignagjöldum, sem nú þegar eru
fallin í gjalddaga, innan 30 daga frá birtingu
þessarar áskorunar. Óskað verður nauðung-
aruppboðs samkvæmt lögum nr. 49/1951,
um sölu lögveða, án undangengis lögtaks á
fasteignum hjá þeim sem eigi hafa lokið
greiðslu gjaldanna fyrir 10. apríl nk.
Innheimtustjóri.
Fornbókaverslun
til sölu. Þeir sem kynnu að hafa áhuga eru
beðnir að leggja inn nafn og heimilisfang á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „F — 8486.“
húsnæöi óskast
Verzlunarhúsnæði óskast
Verzlunarhúsnæði óskast við Laugaveginn
eða í miðbænum.
Tilboð merkt: „V — 8495“ sendist Mbl. fyrir
25. marz.
þjónusta
Kælitækniþjónustan Reykjavík-
urvegi 62, Hafnarfirði sími 54860
Önnumst alls konar nýsmíöi. Tök-
um að okkur viögerðir á: kæli-
skápum, frystikistum og öörum
kælitækjum.
Fljót og góð þjónusta — Sækj
um — Sendum.
tilboö — útboö
f|f ÚTBO0
Tilboö óskast í Ductile Iron-vatnspipur fyrir Vatnsveitu Reykjavíkur.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri aö Fríkirkjuvegi 3. Tilboðin
veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 20. april nk. kl. 11.00 f.h.
Frá Grunnskólum
Hafnarfjarðar
Dagana 15. —19. marz nk. fer fram á
fræðsluskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu
4, skráning skólaskyldra barna og unglinga
er flytjast milli skólahverfa bæjarins næsta
skólaár. Ef væntanlegur flutningur verður
ekki tilkynntur ofangreinda daga er óvíst
með skólavist í því hverfi sem nemandinn
verður búsettur í. Sömu daga verða skráöir
grunnskólanemendur sem flytjast til Hafnar-
fjarðar fyrir næsta skólaár. Sími fræðsluskrif-
stofunnar er 53444.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjaröar.
[~fundir — mannfagnaöir |
Árshátíð Sjálfsbjargar
í Reykjavík
Árshátíð félagsins verður haldinn laugardag-
inn 27. marz aö Ártúni, Vagnhöfða 11.
Borðhald hefst kl. 19.30. Skemmtiatriði og
dans. Borða- og miðapantanir á skrifstofu
félagsins, Hátúni 12, sími 17868.
^EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi B — Simi 25800
Útboð
Sjóefnavinnslan hf., óskar eftir tilboðum í
jarðvinnu vegna byrjunaráfanga sjóefna-
vinnslu, á Reykjanesi. Verkinu skal lokið 3.
maí 1982. Útboösgögn verða afhent hjá
Hönnun hf., Höfðabakka 9, Reykjavík og á
skrifstofu Sjóefnavinnslunnar hf., Vatnsnes-
vegi 14, Reykjavík, frá 16. mars kl. 13.00.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Sjóefna-
vinnslunnar hf., kl. 14.00 þriðjudaginn 23.
mars 1982.
Fyrir þá bjóðendur sem hafa áhuga á því aö
skoða byggingarsvæðið, verður efnt til skoð-
unarferðar, farið verður frá Steypustöö Suö-
urnesja, Ytri-Njarövík, fimmtudaginn 18.
mars kl. 14.00. Sjóefnavinnslan hf.
Fréttabréf úr Breiðuvíkurhreppi
7. marz.
Tíðarfar
Febrúarmánuður mátti teljast
góður, 13 daga mánaðarins var
hiti um og yfir frostmarki, en
mest frost í mánuðinum var 8—9
stig. Fremur stormasamt var og
voru 7 hvassviðrisdagar, en hæg-
viðrisdagar 5. Snjólétt var í mán-
uðinum, eftir miðjan mánuö þíddi
mikið og leysti þá upp bæði snjó
og svell, og nú er snjólaust að
kalla á láglendi og svell horfin að
heita má en klaki mun vera tals-
vert mikill í jörðu. Bændur vona
að ekki verði að nýju kal í vor.
Landbúnaður
Nú eru blikur á lofti í landbún-
aði sem og ýmsum öðrum at-
vinnuvegum þjóðarinnar, sem
vonandí tekst að yfirstíga. Nú
ríður á miklu fyrir bændur að vel
vori, því heybirgðir bænda eru
víða knappar, og því mikið gefið
af fóðurbæti. Hvanneyrarveikin í
sauðfé er nú í rénun. A einum bæ
hafa drepist 12 kindur, eða 10%
af fjárstofninum.
Samgöngur
Það sem af er þessum vetri hef-
ur einu sinni verið hreinsaður
snjór af útnesvegi, en vegurinn
frá Malarrifi að Hellissandi hef-
ur verið lokaður í um 3 vikur og
er ástæðan sú, að um miðjan
febrúar urðu mikil vatnsflóð, sem
ollu víða skemmdum á vegum og
skriðuföllum og rann þá víða úr
áðurnefndum vegarkafla, svo
mikið að hann skarst í sundur og
varð þar af leiðandi ófær, en ekki
hefur verið gert við skemmdirnar
fyrr en nú.
Þetta hefur valdið fólki hér
miklum óþægindum. Hrafninn
virðist ekki hafa átt í erfiðleikum
með að ferðast, hann hefur komið
hér saman í stórhópum oft í vet-
ur, og síst færri en í haustþingum
og man ég ekki svo mikil hrafna-
þing, kannski hefur hann þurft að
ræða einhver stór vandamál inn-
an síns flokks.
Félagslíf
Ekkert hefur verið komið sam-
an til skemintana í félagsheimil-
inu á Arnarstapa í vetur. Kvenfé-
lagið hafði ekki jólatrésskemmt-
un fyrir börn að þessu sinni, fé-
lagsheimilið er ekki í því standi
að hægt sé að koma þar saman,
en verið er að byggja við það og
er viðbyggingin nú að komast
undir þak.
Þorrablót var haldið að venju
nú á vegum Breiðvíkinga að
Lýsuhóli í Staðarsveit. Staðar-
sveitungar lánuðu okkur félags-
heimilið og var þetta í þriðja
skiptið sem þeir lána okkur húsið
fyrir þorrablót.
Þeir eiga miklar þakkir skildar
fyrir hvað þeir hafa lánað okkur
húsið af mikilli alúð og fórnfýsi,
þeir hafa verið boðnir og búnir að
hjálpa til við undirbúning þorra-
blótanna, og leigan fyrir húsið
svo lítil sem frekast er unnt, að-
eins kannski fyrir kostnaði.
Fyrir hönd okkar Breiðvíkinga
vil ég þakka Staðarsveitungum
innilega þann sóma og velvild
sem þeir hafa sýnt okkur í þessu
tilliti.
Þorrablótið hófst að venju með
borðhaldi og var á borðum margs
konar þorramatur. Þegar að lok-
inni máltíð, fóru fram heima-
tilbúin skemmtiatriði, fyrst fór
fram söngur, samkór sveitanna
sunnanfjalls söng nokkur lög
undir stjórn Maríu frá Hrísdal í
Miklaholtshreppi. Söngnum var
ákaft fagnað af áheyrendum,
eftir sönginn fóru fram stuttir
leikþættir og var gerður góður
rómur að öllum skemmtiatriðun-
um. Að þessu loknu var stiginn
fjörugur dans langt fram á nótt,
en fyrir dansinum lék hljómsveit
frá Grundarfirði.
Þorrablótið fór mjög vel fram
og var öllum til sóma.
Þá vil ég að endingu þakka
Maríu, ásamt samkórnum, inni-
lega fórnfýsi og þann ljúfa söng
sem hann lét okkur í té án endur-
gjalds.
Ljúfur ómur loftið klýfur,
lyftir sál um himingeim.
Finnbogi G. Lárusson.
„Súper-löggan“ í
Austurbæjarbíói
Austurba'jarbíó frumsynir í dag mynd
sem kölluð er „Súperlöggan" og er
sögð sprenghlægiieg mynd frá Trans-
rinema á Ítalíu. Með aðalhlutverk fara
m.a. Terence ilill, K.rnest Borgnine og
Joanne Dru.
Myndin greinir frá Dave Speed,
lögreglumanni í Florída í Bandaríkj-
unum, sem er ekkert gáfnaljós í lög-
regluskólanum en fullur áhuga.
Skyndileg breyting verður til þess að
hann er hverjum lögreglumanni
snjallari, en er síðar ákærður fyrir
að verða yfirmanni sínum að bana
og vandast þá málið um stund. Tón-
list í myndinni er eftir La Bionda og
flutt af „The Oceans".