Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
Stjérn SUS;
ítrekar stuðning
sinn við lækkun kosn-
ingaaldurs í 18 ár
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftir
farandi ályktun Samhands ungra
sjálfstæðismanna, sem samþykkt var á
fundi stjórnar þess hinn 11. þessa mán-
aðar:
MIÐVANGUR HF.
Einstaklingsíbúö ca. 35 fm á 5.
hæð í lyftublokk. Suðursvalir.
DALSEL
2ja herb. stór ca. 80 fm íbúð á
3ju hæö m/bílskýli. I skiptum
fyrir 4ra herb. íbúð.
LANGABREKKA KÓP.
3ja herb. ca. 90 fm mjög góð
íbúð á neðri hæð í tvíbýli.
Samþ. teikn. af stórum bílskúr.
Stór og góð lóð.
MOSGERÐI
3ja herb. ca. 65 fm risíbúö í tví-
býli. Mikið endurnýjuð, m.a.
nýtt eldhús.
HAMRABORG — KÓP.
3ja herb. ca. 96 fm íbúð á 2.
hæð. Suöursvalir. Þvottur á
hæðinni. Æskileg skipti á minni
3ja herb. í Reykjavík.
HRAUNBÆR
3ja herb. ca. 95 fm mjög góð
íbúð á 2. hæð í skiptum fyrir
stærri í sama hverfi.
HÓFGERÐI — KÓP.
3ja herb. ca. 75 fm kjallaraíbúð
með sérinngangi. Nýir gluggar
og gier.
SUÐURBRAUT — HF.
3ja herb. ca. 90 fm mjög góð
íbúð með bílskúr. Æskileg skipti
á eign nálægt St. Jósepsspítala.
LAUFVANGUR — HF.
3ja herb. ca. 90 fm íbúð á 3ju
hæð. Þvottur og búr innaf eld-
húsi. Laus nú þegar.
FURUGRUND KÓP.
4ra herb. ca. 100 fm ný íbúö á
1. hæð í 6 hæða blokk. Fullbúiö
bílskýli.
GNOÐARVOGUR
4ra herb. ca. 110 fm íbúð á 3ju
hæð með bílskúr í skiptum fyrir
sérhæð eða raöhús með 3—4
svefnherb. í Heima- eða Voga-
hverfi.
HAMARSBRAUT HF.
4ra herb. samtals um 130 fm
íbúð á 1. og 2. hæð í eldra húsi.
Allt nýstandsett frá grunni.
Laus nú þegar. Bein sala.
TÓMASARHAGI
4ra herb. ca. 115 fm góð íbúð á
jaröhæö í þríbýli. Æskileg skipti
á stærri eign á svipuðum
slóðum.
FELLSMÚLI
5 herb. ca. 130 fm íbúð á 4.
hæð í fjölbýli. Skipti á 3ja herb.
íbúð með bílskúr í Reykjavík
eða Kópavogi.
MIÐBRAUT — SELTJN.
130 fm efri sérhæð með bíl-
skúrsrétti. Fæst í skiptum fyrir
minni eign á Högum, Melum
eða Hlíðum.
HVERFISGATA —
PARHÚS
4ra—5 herb. parhús á 2
hæðum, alls ca. 90 fm Eign-
lóð. Endurnýjaö, m.a. ný
eldhúsinnrétting. Hagstætt
verð.
ÁLFHEIMAR
5 herb. ca. 110 fm íbúð á 2.
hæð með aukaherb. í kjallara.
Bílskúrsréttur. Fæst i skiptum
fyrir minni eign með bílskúr á
svipuðum slóðum.
KÓPAVOGSBRAUT
4ra—5 herb. ca. 125 fm parhús
á 2 hæðum með nýlegum stór-
um bílskúr. Þarfnast stand-
setningar að utan.
LYNGÁS — EINBÝLI
6 herb. ca. 190 fm glæsilegt
einbýlishús á einni hæð á besta
staö í Garöabæ. Akveðin sala.
MARKADSPjÓNUSTAN
INGÓLFSSTRÆTI 4 . SIMI 26911
Róbert Arni Hreiðersson hdl.
Stjórn Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna ítrekar stuðning sinn við
lækkun almenns kosningaaldurs í 18
ár, en ályktanir í þá átt hafa verið
samþykktar bæði á þingum SUS og
landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnin telur hins vegar að tillaga
sú sem nú liggur fyrir Alþingi og er
flutt af varaþingmanni Alþýðu-
flokksins, sem horfinn er af þingi, og
formanni þingflokks Alþýðubanda-
lagsins, sé ófullnægjandi, þar sem
með samþykkt hennar myndu ólíkar
reglur gilda um kosningaaldur til
sveitarstjórna og Alþingis.
Að auki er sá annmarki á tillög-
unni, að kjörgengi hinna nýju kjós-
enda á aldrinum 18—20 ára mundi
ekki fylgja kosningaréttinum sakir
þess hve skammt er til kosninganna í
vor.
Flutningur þessarar tillögu er því
sýndarmennskan einber og jaðrar við
að vera óþinglegur, sé tekið tillit til
þess með hvaða hætti tiliagan er lögð
fram.
Stjórn SUS telur að flutningur
umræddrar tillögu sýni þó, svo ekki
verði um villzt, ráðleysi og sleifarlag
Stjórnarskrárnefndar, sem hefur
ekki enn treyst sér, eftir magra ára
setu, til þess að birta tillögur um
nauðsynlegar breytingar á kjör-
dæmaskipan, ákvæðum um kosn-
ingarétt og öðrum mikilvægum þátt-
um stjórnarskrárinnar.
Stjórn SUS bendir á hversu furðu-
legur þáttur formanns þingflokks Al-
þýðubandalagsins er í þessu máli, en
formaðurinn á sæti í Stjórnar-
skrárnefnd. Er sú framkoma með
endemum af einum helzta ráðamanni
í stjórnarliðinu að fara með þessum
hætti á bak við Stjórnarskrárnefnd,
sem hann á sjálfur sæti í.
85009
85988
2ja herb. — Hrafnhólar
meö bílskúr
Sérlega vönduð 2ja herb. íbúð
á 2. hæð í 3ja hæða húsi. Bíl-
skúr.
Hraunbær
3ja herb. snotur íbúð á 2. hæð.
Engjasel
3ja herb. sérlega rúmgóð íbúð á
3. hæð. Sér þvottahús í íbúð-
inni.
Maríubakki
4ra herb. vönduð íbúð á efstu
hæð. Þvottahús inn af eldhúsi.
Mikið útsýni. Sér herb. og sér
geymsla í kjallara. Laus i sept.
Hólahverfi — 4ra herb.
með tvöföldum bílskúr
4ra herb. íbúö á 2. hæö i 3ja
hæöa húsi. Laus í júní. Tvö-
faldur bílskúr á jarðhæð.
Vantar í Mosfellssveit í
skiptum fyrir stóra íbúö
í Seljahverfi
Sérstakleg vönduð íbúð á 2
hæðum í Seljahverfi til sölu í
skiptum fyrir raðhús eða einbýl-
ishús í Mosfellssveit. Garða-
bær kemur til greina.
Vantar lóöir í Reykjavík,
Garðabæ og Kópavogi
Einbýlishúsalóðir, parhúsalóð-
ir og lóðir fyrir sérhæðir.
Hef kaupanda að 3ja herb. í
Fossvogi. Staðgreiðsla fyrir
réttu eignina.
Kjöreignr
Dan V.S. Wiium lögfræöingur.
Ólafur Guðmundsson
sölumaður
Ármúla 21, símar 85009, 85988.
TJþ | \l I.I.VSIM.XSIMISN EH: | . Z248D JHvTötinbtnbib
Við opnun íslandskynningar að Aerogolf Sheraton Hotel I Luxemborg 4. marz. Aðstandendur kynningarinnar
ásamt nokkrum gestum. Fyrir miðju eru borgarstjórinn I Luxemborg, Lydie Pilifer, ásamt Hinrik Sv. Björns-
syni, sendiherra, og Einari Aakrann, yfírmanni Flugleiða I Luxemborg.
íslandskynnng í Luxemborg
Þessa dagana stendur yfir marg-
þætt íslandskynning í Luxemborg.
Kynningin hófst 4. mars og lýkur
2I. mars. Að íslandskynningunni
standa Flugleiðir, Ferðamálaráð,
IJtflutningsmiðstöð iðnaðarins og
Ferðaskrifstofa ríkisins, en undir
búningur hefur verið í höndum
ofangreindra aðila hér heima og
Flugleiða í Luxemborg. Auk þess
hefur fslendingafélagið í Luxem-
borg veitt mikilsverða aðstoð við
framkvæmd íslandskynningarinn-
ar. Vcitingahúsið Cockpit Inn og
Aerogolf Sheraton Hotel hafa tek-
ið virkan þátt í starfínu.
íslandskynningin í Luxemborg
var sett að Hótel Aerogolf að
kvöldi 4. mars, en þar flutti
sendiherra íslands, hr. Hinrik
Sv. Björnsson ræðu. Sýningar-
stúlkur frá íslandi og íslenskar
sýningarstúlkur frá Luxemborg
sýndu íslenskan tískufatnað,
sýnd var ný kvikmynd frá Is-
landi. Hljómsveitin Mezzoforte
lék við góðar undirtektir. Við
opnunina voru nokkuð á annað
hundrað manns, þar á meðal
nýkjörinn borgarstjóri Luxem-
borgar, ungfrú Lydie Poiifer. Við
opnunina tók hún til máls utan
dagskrár og fagnaði Islands-
kynningunni. Einnig var sam-
gönguráðherra Luxemborgar
meðal gesta.
Þann 4. og 5. mars voru settar
upp íslandsskreytingar á
Avenue de la Gare en um 80
verslanir tóku þátt í henni. Þar
eru m.a. afhentir happdrættis-
miðar en meðal vinninga er ferð
tii Islands, bankabækur með
nokkurri upphæð gefnar af
Banque Generale í Luxemborg
og fleiri góðir vinningar.
Sama dag opnaði Jónas Guð-
mundsson listmálari sýningu í
Cercle Municipal, ráðhúsi borg-
arinnar og sýnir þar 22 olíulita-
og vatnslitamyndir til 20. mars.
Hljómsveitin Mezzoforte, sem
fór til Luxemborgar á vegum Is-
landskynningarinnar, lék í Rad-
ío Luxemborg 5. mars og viðtöl
voru við hljómsveitarmenn og
fieiri. Alls stóð dagskráin, sem
var í beinni útsendingu á ensku,
í 47 mínútur.
Önnur sýning var svo að
kvöldi 5. mars og nú að Cockpit
Inn og þar lék hljómsveitin
Mezzoforte við mikinn fögnuð
áhorfenda. Um kvöldið byrjaði
íslensk kvikmyndakynning með
sýningu á Utlaganum í kvik-
myndahúsinu Vox. Laugar-
dagsmorgun 7. mars fór Valgeir
Sigurðsson veitingamaður í
Cockpit Inn, að járnbrautarstöð
borgarinnar með 140 kg lúðu,
sem send hafði verið frá Islandi
með Flugleiðavél daginn áður.
Islenskar sýningarstúlkur sýndu
tískufatnað í anddyri Hótel El-
dorado sem er þar hjá og þar
sem veðrið var gott þann dag
gengu þær í sýningarfatnaði um
járnbrautartorgið og vakti sýn-
ingin mikla athygli. Þennan dag
var í Radío Luxemborg tekinn
upp sjónvarpsþáttur með
hljómsveitinni Mezzoforte sem
svo var útvarpað daginn eftir.
Um kvöldið var tískusýning að
Hótel Aerogolf Sheraton og
hljómsveitin Mezzoforte lék.
Mánudaginn 8. mars var
opnuð sýning á íslenskum
listiðnaði í aðaisal Banque Gen-
arale. Þann 12. mars verður
kvikmyndin Land og synir sýnd í
kvikmyndahúsinu Vox, en dag-
inn eftir verður barnahátíð og
blöðrukeppni á Parísartorginu.
Börnin fá blöðrur með merki
Flugleiða, merkja þær og láta
síðan svífa. Sú blaðra sem finnst
fjærst torginu færir eiganda sín-
um fyrstu verðlaun, en mörg
verðlaun eru í þessari keppni. A
Parísartorginu verður einnig
kynntur íslenskur matur. Hinn
16. mars verður íslandskynning
með landkynningarkvikmyndum
í ráðhúsi borgarinnar og hinn 19.
mars verður kvikmyndin Óðal
feðranna frumsýnd í kvik-
myndahúsinu Vox.
íslenskir fánar blakta víða um
Luxemborg í tilefni þessarar
kynningar og sérstaka hrifningu
vakti að stærsti íslenski fáni
sem til er, að sögn 70 m1 blaktir
yfir aðaltorgi Luxemborgar.
Þessi fáni er eign íslendingafé-
lagsins í Luxemborg.
Margir íslendingar hafa á
undanförnum árum lagt leið
sína til Luxemborgar, en þar búa
einnig fjölmargir landar. Við
opnun íslandskynningarinnar
varð mikiis áhuga vart meðal
Luxemborgara að heimsækja Is-
land, og er ekki ofsögum sagt að
þessar tvær smáþjóðir eiga sam-
eiginlegra hagsmuna að gæta
þótt önnur byggi eyju í miðju
Atlantshafi, en hin sé umkringd
stórþjóðum í hjarta Evrópu.
(Frá kynningardeild Flugleida.)
Á íslandskynningu í Cockpit Inn lék hljómsveitin Mezzoforte og sýnd voru ísl. tískuRit. Hér er Ásdís Loftsdóttir
meðal gesta staðarins þetta kvöld.