Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 58. tbl. 69. árg. ÞKIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982____________________________PrentsmiAja Morgunblaðsins. Vinstra áfall í Frakklandi Pirb, 15. marz. Al*. VINSTRI og hægri rifust í dag um út- reikning prósenta eftir kosningar til héraðaþinga í Krakklandi í gær. En vinstriflokkunum hefur ekki tekizt að halda stuðningi meirihlutans sem fylgdi þeim í þingkosningunum í fyrra. Skv. opinberum tölum fengu hægrimenn 49,92% atkvæða í fyrri umferðinni, vinstrimenn 49,59% en umhverfisverndunarmenn afgang- inn. Kosið verður aftur þar sem eng- inn frambjóðandi hlaut 50% eða meira næsta sunnudag. Sprengju- herferð Belfa.st, 15. marz. Al*. ELLEFU ára drengur beið bana og a.m.k. 15 slösuðust í sprengjuher- ferð á Norður-írlandi í kvöld — þeirra á meðal William (’raig, fyrr um innanríkisráðherra Norður Irlands. Craig, sem var um skeið einn helzti leiðtogi mótmælenda á Norður-Irlandi og innanríkisráð- herra í heimastjórninni 1963—64, slasaðist ekki alvarlega. Mikið tjón varð í árásunum, sem voru allar gerðar um sama leyti, í Belfast og fjórum öðrum bæjum. Árásirnar virðast verk Provisional-arms írska lýðveld- ishersins. Alvarlegasta árásin var gerð í Banbridge, 32 km suður af Belfast, þar sem drengurinn beið bana og um 12 slösuðust, nokkrir þeirra alvarlega, af völdum bílasprengju sem sprakk nálægt fjölförnu verzlunarhverfi. Þetta er fyrsta sprengjuher- ferðin í fimm mánuði og varað hefur verið við sprengjuárásum annars staðar. Allar sprengjurnar nema ein voru bílasprengjur. Dag- ur heilags Patreks er eftir tvo daga. Hægrimenn sökuðu Gaston Deff- erre innanríkisráðherra um að rang- túlka úrslitin með því að telja til vinstrisinna þá óháðu frambjóðend- ur, sem voru ekki aðilar að opinberu bandalagi vinstrisinna. Eitt sér fékk vinstrabandalagið 47,5%. Báðir aðilar töldu héraðakosn- ingarnar eins konar þjóðaratkvæði um vinsældir stjórnarinnar. I síð- ustu héraðakosningum 1976 fengu vinstrimenn 52,5% atkvæða, en 55% í þingkosningunum í fyrra. Iæ Monde segir að vinstrimönnum hafi ekki tekizt að gera fyrri vinstri- sveiflu kjósenda varanlega. Gera verði ráð fyrir að fyrri sigrarnir hafi stafað af því að kjósendur hafi viljað hafna gamla meirihlutanum, sem sé enn í ónáð. Völd héraðastjórna hafa aukizt í Frakklandi vegna valddreifingar. Alexander Haig, utanríkisráðherra, ræðir við mexíkanskan embættisbróður sinn, Jorge Castaneda, í New York. Haig ræðir nú við utanríkisráðherra ýmissa ríkja við Karíbahaf um áætlun Ronald Reagans forseta um málefni svæðisins. Áætlun Reagans studd á utanríkísráðherrafundi New Vork, 15. marz. AP. ALEXANDER HAIG utanríkis- ráðherra tryggði í dag stuðning utanríkisráðherra Mexíkó, Ven- ezúela, Kólombíu og Kanada við Karíbahafsáætlun Ronald Reag- ans forseta. Ráðherrarnir sögðu að áætlunin gæti orðið mikilvægur skerfur til framfara á svæðinu og kváðust vona að henni yrði fljót- lega hrundið í framkvæmd. Karíbahafs-viðræðurnar hófust í gær eftir fund Haigs og utanríkis- ráðherra Mexíkó, Jorge Castaneda um málamiðlunaráætlun Mexíkó til lausnar stjórnmálaumrótinu í Mið- Ameríku. Castaneda sagði á eftir að hann teldi að fyrir lægi skynsamleg- ur grundvöllur til samninga- viðræðna um friðsamlega lausn. í lokatilkynningu er lögð áherzla á alvarlegan þjóðfélags- og efna- hagsvanda á Karíbahafssvæðinu og í Mið-Ameríku og sagt að bezt yrði að leysa vandamálin án hernaðar- legra umþenkinga eða pólitískra skilyrða. Ráðherrarnir halda annan fund í Caracas í ágúst. Reynt verður að auka þátttöku í áætluninni með því að reyna að efna til fundar með öðr- um hlutaðeigandi ríkjum og alþjóð- legum efnahagssamtökum. Rússar hafa komið fyrir 300 flaugum Washington, 15. marz. AP. RÚSSAR hafa nú komið fyrir 300 SS-20 meóaldrægum eldflaugum alls búnum 900 kjarnaoddum, sem hægt er að miða á VesturEvrópu að sögn háttsetts starfsmanns handaríska utanríkisráðuneytisins í dag. Auk þess hefur bandaríska leyniþjónustan uppgötvað, að ver- ið er að koma upp fimm SS-20 stöðvum í viðbót í Sovétríkjunum. Þó sagði starfsmaðurinn að Bandaríkjastjórn teldi afstöðu Rússa einlæga og málefnalega í viðræðum þeim í Genf, er miða að því að fækka eða útrýma meðal- drægum kjarnorkuvopnum. Hann kvað þetta satt, þótt smíði nokkurra hinna fimm nýju SS-20 stöðva hefði hafizt eftir að viðræð- urnar hófust í haust. Hann kvað Bandaríkjastjórn ekki telja að viðræðurnar væru komnar í sjálfheldu eða ógöngur þótt tveggja mánaða hlé hefði ver- ið gert á þeim, heldur teldi hann að báðum aðilum gæfist tækifæri til að kanna rækilega þær hug- myndir, sem hefðu komið fram til þessa. Hann kvað nokkuð uppörvandi að fulltrúar Rússa hefðu spurt margra spurninga um einstök at- riði í bandarísku tillögunum. Haig gerði í fyrsta skipti í dag grein fyrir nokkrum tillögum sem Bandaríkjastjórn lagði fyrir stjórn Nicaragua í fyrra um lausn á deilu- málum landanna. í þeim er gert ráð fyrir gagnkvæmum tilslökunum, en Nicaragua hefur sýnt lítinn áhuga á þeim. Þó segir Castaneda að Mexíkó- stjórn muni bera málið upp við full- trúa Nicaragua og Kúbu einhvern næstu daga í von um jákvæðari af- stöðu. „Við erum vongóðir um að þróun samningaumleitana kunni að vera hafin á Karibahafi," sagði hann. Tillögur Haigs voru m.a. þessar: Báðir aðilar heiti að virða ákvæði stofnskrár Samtaka Ameríkuríkja (OAS) um engin afskipti af innan- ríkismálum annarra ríkja. Banda- ríkin lofi að hefta starfsemi útlaga í Bandaríkjunum. Viðræður verði hafnar um takmörkun á kaupum þungra árásarvopna í Mið-Ameríku og beitingu erlendra hernaðarráðu- nauta. Bandaríkjaþing verði beðið að samþykkja að Nicaragua fái aft- ur efnahagsaðstoð. Niearagua hætti stuðningi við uppreisnarmenn í E1 Salvador. Haig sagði fréttamönnum að í viðræðunum við Castaneda hefði ágreiningur þeirra um áætlun Mex- íkó minnkað og hann væri ánægður með viðræðurnar. Mexíkó vill draga úr ágreiningi Bandaríkjanna og Kúbu og Nicaragua og stingur upp á leiðum til að binda endi á deilurnar í El Salvador. Haig tók tillögunum fálega í fyrstu. Reagan forseti sagði aðspurður um tillögur Mexíkó: „Við erum þeim mjög þakklátir fyrir þá hjálp sem þeir veita með tillögunum. Þeir semja ekki fyrir okkar hönd. Þeir reyna að opna nýjar leiðir." Evans hættur Ijondon, 15. marz. AP. ÚTGÁFUSTJÓRN The Times sagði í tilkynningu í kvöld að Harold Evans hefði beðizt lausn- ar sem ritstjóri, að fram- kvæmdastjórn Times-blaðanna hefði samþykkt lausnarbeiðnina og afsögnin tæki þegar gildi. Hvað lækkar gullið mikið? Ijondon, 15. marz. AP. IIVAÐ á gullid eftir ad lækka mik- ið? Um þetta var spurt á evrópskum peningamörkuóum í dag þegar verd- ió á gullúnsunni lækkaói enn um 10 dollara. Veró á gulli hefur ekki verid eins lágt síóan 23. ágúst 1979 þegar únsan seldist á 309 dollara. I Zúrich var únsan seld á 312,50 dollara í dag. Það er nákvæmlega 10 dollara lækkun síðan á föstu- daginn. í London seldist gullið á 313,00 dollara miðað við 323,375 dollara á föstudaginn. Staða dollars versnaði nokkuð. Pund hækkaði í 1,8050 dollara úr 1,7985, mörk lækkuðu úr 2,3760 í 2,3725. Alls hefur gull lækkað um 40 dollara á tveimur vikum og vax- andi taugaóstyrks gætir á mark- aðnum. Þáð sem menn velta fyrir sér er hvort gullið muni lækka niður fyrir 300 dollara únsan. En eins og sagt var í Zúrich í dag, „um það veit enginn fyrir víst“. Tvennt veldur lækkun gull- verðsins: háir vextir og gullsala Suður-Afríkumanna og Rússa, sem hafa þörf fyrir erlendan gjaldeyri. Silfur lækkaði í London í 6,955 dollara únsan úr 7,055 á föstudag- inn. Kona Walesa sendir Jaruzelski áskorun \ arsjá, 15. marz. AP. KONA Lech Walesa hefur beðið Jar uzelski hershöfðingja að leyfa manni sínum að maúa við skírn dóttur þeirra, en hann gaf tvírætt svar. „Ég fékk svar sem var hvorki já né nei,“ sagði Danuta Walesa í samtali í dag. „Svo að ég ætla að láta skíra dóttur mína í Gdansk 21. marz eins og ég hafði ráðgert.“ Áskorunin kom fram í bréfi, sem milligöngumaður afhenti starfs- fólki Stanislaw Ciciosek verka- lýðsmálaráðherra á föstudaginn. Ríkisstjórnin mun hafa svarað skriflega samdægurs. Jozef Glemp erkibiskup birti í gær áhrifamikla áskorun um að Walesa yrði látinn laus til að stuðla að „samkomulagi og þjóðar- sáttum". Áskorun hans kom fram á samkomu sem 20.000 manns sóttu í Ursus, útborg Varsjár. Glemp sagði viðstöddum að svo margir hefðu ekki komið saman í Póllandi siðan herlög voru sett. Vatikanið sagði í dag að Glemp hefði viðhaft ummæli sín „ein- göngu í mannúðarskyni“. Erkibisk- upinn hvatti einnig til þess að þeirri stefnu yrði hætt að hafa menn í haldi. Sameiginlegar heræfingar halda áfram í Norðvestur-Póllandi með þátttöku hersveita frá Póllandi, Sovétríkjunum og Austur-Þýzka- landi. Pólska fréttastofan segir að hermenn úr æfingaliðinu hefi átt með sér „vináttufundi" síðan æf- ingarnar hófust á laugardaginn. Pólskur hershöfðingi, Eugeniusz Molcwyk, stjórnar æfingunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.