Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Sími á rilstjórn og skrifstofu:
10100
JHt>vj5xtnI>Int«ií>
I»RIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
Þingflokkur Framsóknar um Helguvíkurmálið:
Samhljóða stuðningur við
stefiiu utanríkisráðherra
Mun standa að framhaldi málsins í sam-
ræmi við það“ segir Ólafur Jóhannesson
Á ÞINGFLOKKSFUNDI Framsóknarflokksins í gær var samhljóða sam-
þykkt fyllsta stuðningsyfirlýsing vió stefnu utanríkisráðherra Ólafs Jóhann-
essonar í Helguvíkurmálinu. Að sögn Páls Péturssonar, formanns_ þing-
flokksins, stendur þingflokkurinn óskiptur að baki Ólafi í málinu. Ólafur
sagði í lok fundarins í gær, að hann væri hæstánægður um þessa niðurstöðu
og myndi hann standa að framhaldi málsins í samræmi við það. l»á var á
fjölmennum fulltrúaráðsfundi framsóknarfélaganna í Reykjavík í gærkvöldi
samþykkt svipuð stuðningsyfirlýsing við Ólaf. Hátt í 200 manns sátu fundinn
og var tillagan samþykkt með langvinnu lófataki, samkvæmt heimildum
Mbl.
Frá undirritun samn-
inganna um Blöndu-
virkjun, en hún fór
fram í Ráðherra-
bústaðnum við
Tjarnargötu, Reykja-
vík, kl. 18 í gær.
Utanríkisráðuneytið gaf í gaer
út reglugerð um skipulagsmál á
varnarsvæðunum. „Reglugerðin er
sett til þess, að það liggi ljóst
fyrir, að utanríkisráðuneytið fer
með þessi mál á varnarsvæðun-
um,“ sagði Hörður Helgason ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins, þegar Morgunblaðið spurði
hann um tilefni þessarar reglu-
gerðar.
Er Mbl. ræddi við forsvarsmann
Almennu verkfræðistofunnar hf.
og fulltrúa varnarmáladeildar síð-
degis í gær og spurðist fyrir um
hvort einhver breyting hefði orðið
á stöðu mála, hvað varðar stöðvun
framkvæmda, fengust þau svör, að
beðið væri nú skriflegrar yfirlýs
ingar frá orkumálastjóra, Jakobi
Björnssyni, en hann hefði ein-
göngu tilkynnt forstjóra Almennu
verkfræðistofunnar um stöðvun-
ina símleiðis.
Orkumálastjóri sagði í viðtali við
Mbl. að iðnaðarráðherra hefði
haft símasamband við sig á
fimmtudag eða föstudag og beðið
sig að sjá til þess, að ekki kæmi til
framkvæmda við jarðboranir þar
til nánar yrði tilkynnt um heimild
til þessa. Jakob sagðist líta á mál-
ið, enn sem komið væri, þannig að
því væri frestað.
Helgi Ágústsson í varnarmála-
deild utanrikisráðuneytisins
sagði, að í könnun væri að fá
bandarískt fyrirtæki til verksins
og væru viðræður hafnar við ákveð-
ið fyrirtæki. Það hefði tilkynnt.
að það gæti verið komið með öll
tæki og búnað til landsins strax í
þessari viku.
Sjá nánar „l'tanríkisráðuneyt-
ið treystir forræði sitt á varn-
arsvæðinu" á bls. 2.
Samningar um Blönduvirkjun undirritaðir með fyrirvara f gær:
Ráðherrar Framsóknar hafa
ekki þingflokksheimild
segir Páll Pétursson um endanlega afgreiðslu málsins
„ÞAÐ ER margt sem Hjörleifur
Guttormsson gerir kjánalegt þessa
dagana, og ég veit að það var ekki
samþykkt á ríkisstjórnarfundi í
morgun að gengið yrði frá þessum
samningum,** sagði Páll Pétursson,
formaður þingflokks Framsóknar
flokksins, síðdegis í gær, er hann í
hléi frá þingflokksfundi frétti af
undirritun iðnaðarráðherra á samn-
ingi um virkjun Blöndu, sem fram
fór í Ráðherrabústaðnum kl. 18 í
gær. Páli kom fréttin mjög á óvart,
en við undirritun samninganna lýsti
iðnaðarráðherra því yfir, að þeir
væru undirritaðir með fyrirvara um
samþykki rfkisstjórnarinnar.
Þá sagði hann einnig að ráð-
herrar Framsóknarflokksins
hefðu á sérstökum ríkisstjórnar-
fundi, sem haldinn var um málið í
gærmorgun, óskað eftir að fá fyrst
að ræða málið innan þingflokks
síns. Ekki hafði verið minnst einu
orði á samningsundirritunina í
þingflokki Framsóknarflokksins
að sögn Páls í gær, þegar undirrit-
unin átti sér stað.
Samningurinn um virkjun
Blöndu var undirritaður af Raf-
magnsveitum ríkisins sem virkj-
unaraðila og fimm hreppsnefnd-
um af þeim sex sem hagsmuna
eiga að gæta. Sá sjötti, sem ekki
tók þátt í undirritun samningsins,
er Bólstaðarhlíðarhreppur. Jón
Tryggvason hreppstjóri segir m.a.
í viðtali við Mbl. í tilefni þessa, að
hann telji litlar líkur á að hrepp-
urinn verði aðili að samningnum
síðar. Forsenda samningsins er
meðal annars sú, að Blönduvirkj-
„Baráttan verður
hörð og ströng“
- segir Davíð Oddsson borgarstjóraefni sjálfstæðismanna
— É(f GERI mér grein fyrir, að á
mér hvílir mikil ábyrgð, sem ég
mun gera mitt besta til að rísa
undir. Baráttan, sem framundan
er, verður hörð og ströng. Það er
mikið í húfi. I kosningunum í vor
gefst fyrsta tækifærið til að létta af
hluta af því ofurvaldi, sem Alþýðu-
bandalagið hefur í íslensku þjóð-
lífi, sagði l)avíð Oddsson, borgar-
fulltrúi, í samtali við Morgunblað-
ið í gær, en á sunnudaginn kaus
borgarstjórnarflokkur sjálfstæð-
ismanna hann einróma borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum í vor. Albert (>uð-
mundsson mælti á fundinum fyrir
tillögu sinni og Markúsar Arnar
Antonssonar um að Davíð
Oddsson yrði kjörinn borgarstjóra-
efni.
— Ég er mjög þakklátur fé-
lögum mínum í borgarstjórnar-
flokknum fyrir hinn eindregna
stuðning, sem þeir hafa sýnt
mér, sagði Davíð Oddsson. í hópi
frambjóðenda Sjálfstæðisflokks-
ins ríkir mikill einhugur og bar-
áttuvilji. Við höfum unnið ötul-
lega að málefnaundirbúningi
undanfarið.
— Nú hélt borgarstjórnar-
flokkurinn stefnuskrárráðstefnu
um helgina, hvaða mál bar þar
hæst?
— Jú, við ræddum ítarlega
hina ýmsu málaflokka og mótuð-
um okkur stefnu, sem við mun-
um kynna kjósendum á næstu
vikum, sagði Davíð Oddsson.
Snúa verður við blaðinu í rekstri
borgarinnar, áður en það er um
seinan. Ef Sjálfstæðisflokkurinn
fær ekki afl í kosningunum til að
breyta um stefnu í skipulags-
málum borgarinnar og hverfa til
dæmis frá Rauðavatnsskipulag-
inu, þá verða þau mistök aldrei
leiðrétt eða borgarbúum forðað
frá því skipulagsslysi. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur einsett sér að
lækka fasteignagjöld á íbúðar-
húsnæði verulega. Gera verður
átak í málefnum aldraðra og
húsnæðismálum.
— Spyrni borgarbúar ekki
duglega við fótum og dragi úr
Davíð Oddsson
ofurvaldi Alþýðubandalagsins
og fylgifiska þess í borgarstjórn,
þarf enginn að fara í grafgötur
um það, að Sigurjón Pétursson
og félagar munu fljótlega eftir
kosningar draga leigunámshug-
myndirnar frá síðasta sumri úr
pússi sínu, svo að aðeins eitt
dæmi sé nefnt, sagði Davíð
Oddsson að lokum.
un verði næsta meiriháttar vatns-
aflsvirkjun í landskerfinu.
Hjörleifur Guttormsson sagði
við undirritunina, að þó samning-
urinn væri undirritaður með
fyrirvara um samþykki ríkis-
stjórnarinnar, efaðist hann ekki
um að það fengist í þessari viku og
jafnvel á ríkisstjórnarfundi í dag.
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks F'ramsóknarflokksins, var
ekki sammála iðnaðarráðherra
hvað þetta snerti. Hann sagði í lok
þingflokksfundarins í gær, að
ráðherrar Framsóknarflokksins
hefðu engar heimildir fengið til að
ganga frá máli þessu og slík
vinnubrögð að ráðherrar sam-
þykktu stórmál sem þetta í ríkis-
stjórn án samþykktar þingflokks
þekktust ekki í Framsóknar-
flokknum. Steingrímur Her-
mannsson, ráðherra og formaður
F'ramsóknarflokksins, sagði aftur
á móti í lok þingflokksfundarins:
„Við gátum ekki rætt þetta mikið.
Ég hef sem aðili í ráðherranefnd-
inni lýst því yfir að ég er sam-
þykkur þessari lausn mála.“
Steingrímur var þá spurður hvort
hann myndi ganga frá málinu í
ríkisstjórninni, án þess að bíða
samþykktar þingflokksins. Hann
svaraði: „Ég vil ræða það við sam-
ráðherra mína áður.“
Sjá nánar fréttir og viðtöl á
miðopnu.
Eru stjórnar-
slit framundan?
NOKKUD var hcitt í sunium þing
mönnum Kram.sóknarDokksins í gær
vcgna stöðu mála í ríkisstjórninni, svo
scm ummæli formanns þingfiokksins
hcr í blaðinu í dag bcra vott um. Þá
voru þingmcnn Alþýðubandalagsins
margir hvcrjir, sem Mbl. ræddi við í
gær, ekki bjartsýnir á að stjórnar
samstarfið yrði langlíft að óbreyttum
aðstæðum.