Morgunblaðið - 03.07.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
3
Stúdentaráð hafnar kröf-
um um einhliða afvopnun
Á FUNDI StúdenUráds Háskóla ís-
lands sl. fimmtudag, 1. júlí, kom til
talsverðra deilna vegna ályktunar
um friðarmál. Vaka, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, og Félag umbóta-
sinnaðra stúdenta stóðu saman að
tillögu, þar sem hafnað var hug-
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti í gær á fundi sínum að Ólafi
Nilssyni endurskoðanda yrði falið að
gera úttekt á fjárhagsstöðu Reykja-
víkurborgar.
Á fundi borgarstjórnar 3. júní
sl. var samþykkt samhljóða tillaga
borgarfulltrúa Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks um að gerð skyldi úttekt á
fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar
myndum um einhliða afvopnun und-
ir slagorðinu: fsland úr NÁTO! Her-
inn burt!
Á stúdentaráðsfundinum var
eftirfarandi ályktun samþykkt:
„SHÍ lýsir yfir stuðningi við þá
aðila og hreyfingar er berjast af
með sama hætti og gert var
sumarið 1978.
Samþykkt var að reynt yrði að
fá sömu aðila til að framkvæma
úttektina nú og 1978, og þeim falið
að kanna sömu atriði og þá. Af
þessum sökum var leitað til Ólafs
Nilssonar, og hefur hann fallist á
að gera úttekt á fjárhagsstöðu
borgarinnar.
einlægni fyrir friðvænlegri heimi.
SHI væntir þess, að stórveldin
komi sér saman um gagnkvæma
afvopnun og er fyrsta skrefið
frysting kjarnorkuherafla og síðar
eyðing hans.
SHÍ varar við þeirri hugmynd
að einhliða afvopnun verði til þess
að skapa frið í heimi hér.
SHÍ hvetur ólík öfl til samstöðu
um varðveislu friðar."
Talsmenn Vöku og umbótasinna
á fundi Stúdentaráðs bentu á það í
umræðum um ofangreinda tillögu,
að umræður um frið væru ekki
einkamál ákveðinna afla og það
væri rangt að reyna að nota
boðskapinn um frið í þágu ákveð-
inna fylkinga. Umræðurnar yrðu
að vera á sem breiðustum grunni
og miða að því, að almenn sam-
staða næðist, því þá fyrst væri ár-
angur vís.
Ólafi Nilssyni falin úttekt á fjár-
hagsstöðu Reykjavíkurborgar
Skattskrá Reykjaneskjördæmis 1981 komin út:
Skattkóngurinn með
tæplega 1,5 millj. kr.
íslenzkir aðalverktakar hæstir lögaðila með 8,6 millj. kr.
SKATTSKRÁ Reykjanesskjördæmis fyrir árið 1981 er komin út. Samtals álögð gjöld á einstaklinga námu 495
milljónum 228 þúsundum og 770 krónum, en heildarálögur á lögaðila, þ. e. fyrirtæki, félög og sjálfstæðar lögpersónur
námu 89 milljónum 444 þúsundum og 454 krónum. Hæsti skattgreiðandi í hópi einstaklinga er Hörður A. Guð-
mundsson Hafnarfirði með samtals 1 milljón 464 þúsund og 621 krónu, í öðru sæti er Páll Hreinn Pálsson Garðabæ
með 880 þúsund, 348 krónur. Hæstir skattgreiðendur lögaðila eru: Islenzkir aðalverktakar með 8 milljónir 620
þúsund 556 krónur. Í öðru sæti er Álafoss með 2 milljónir 911 þúsundir og 245 krónur.
Efstu 10 einstaklingarnir í Reykjanesumdæmi eru eftirtaldir:
Samt. kr.
1. Hörður Guðmundsson Hafnarfirði ......................... 1.464.621
2. Páll Hreinn Pálsson Garðabæ ............................ 880.348
3. Ólafur Björgúlfsson tannl. Seltjarnarn.................. 809.738
4. Guðbergur Ingólfsson fiskv. Gerðahreppi ................ 728.594
5. Benedikt Sigurðsson Keflavík ........................... 545.327
6. Hreggviður Hermannsson læknir Keflavík ................. 464.029
7. Karl Sigurður Njálsson Gerðahreppi ..................... 399.289
8. Jón Skaftason yfirborgarf. Kópavogi ................... 386.852
9. Örn Kærnested Mosfellshreppi ........................... 376.743
10. Gunnlaugur Sigurðsson Kópavogi ......................... 318.457
Sjö efstu greiðendur lögaðila eru eftirtalin fyrirtæki: Samt. kr.
1. íslenzkir aðalverktakar --------------------------------- 8.620.556
2. Álafoss-------------------------------------------.......-2.911.245
3. íslenzka álfélagið, ÍSAL -------------------------------- 2.013.654
4. Byggingarvöruverzlun Kópavogs ___________________________ 1.292.476
5. Stálvík hf. Garðabæ ..................................... 1.166.357
6. Keflavík hf. ____________________________________________ 1.037.086
7. Miðnes hf. ______________________________________________ 1.031.324
Að sögn Sigmundar Stefánsson-
ar skrifstofustjóra Skattstjóra-
embættis Reykjaness hafa orðið
litlar breytingar hvað varðar
heildarálagningarupphæðir frá
því að álagingarskráin kom út, en
mikið hefur verið um breytingar,
þó þær hafi ekki breytt heildar-
niðurstöðutölum.
Sigmundur sagði að heildar-
álagning á einstaklinga skiptist
þannig í stærstum dráttum:
Tekjuskattur: 246.132.086 kr.,
eignarskattur: 15.623.353 kr., út-
svar: 196.411.895 kr., aðstöðugjöld:
4.563.612 kr. Auk þessa eru um 20
aðrir smærri liðir.
Heildarálagning á lögaðila
skiptist aftur á móti þannig hvað
varðar stærstu liðina: Tekjuskatt-
ur: 22.488.883 kr., eignarskattur:
9.797.345 kr., aðstöðugjald:
20.155.980 kr. Þá gat Sigmundur
þess í tilefni af efstu lögaðilunum,
að skattar ÍSAL væru eingöngu
launatengd gjöld, því ÍSAL borgar
ekki tekjuskatt og aðstöðugjald.
Þess í stað greiðir fyrirtækið sam-
kvæmt lögum sérstakt fram-
leiðslugjald, sem skiptist milli
ríkis og Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Sjón við uppsetningu sýningarinnar. Morgunbiaðið/Emiiía.
Ég lít á mig sem
skáld sem teiknar
SÝNING á myndverkum eftir Jóhann Hjálmarsson rithöfund undir
heitinu „Hjartað á skemmtigöngu“, verður opnuð í dag í Skruggubúð
að Suðurgötu 3A. Við slógum á þráðinn til Jóhanns, til að fræðast nánar
um sýninguna. „Það er Medúsuhópurinn, sem stendur fyrir þessari
sýningu. Þetta eru ungir súrrealistar, og það er einungis áhugi þessara
ungu manna sem veldur því að myndirnar eru sýndar. Þeir sáu þær og
óskuðu eftir að sýna þær,“ sagði Jóhann.
„Ég lít ekki á mig sem mynd-
listarmann, heldur skáld sem
teiknar. Tengslin eru nánari við
Ijóðagerðina, heldur en við
myndlistina. Annars hafa marg-
ir myndlistarmenn haft gaman
af þessum myndum t.d. Dieter
Roth og Alfreð Flóki.
Það er lítið um sýninguna að
segja. Þetta eru myndir sem eru
gerðar 1%1—1962 og hafa ekki
áður verið sýndar. En nokkrar
þeirra hafa komið út í bók, sem
heitir Rissa og Dieter Roth gaf
út 1963. Þá voru nokkrar teikn-
ingar eftir mig í ljóðabók minni
Fljúgandi næturlest, sem út kom
1961.
Ég hafði ekki hugsað mér að
sýna þetta, heldur eru það þessir
ungu menn sem valda því að
gamlir hlutir eru þarna dregnir
fram,“ sagði Jóhann Hjálmars-
son að lokum.
Sjón, einn af meðlimum Med-
úsuhópsins, sagði okkur þegar
við höfðum samband við hann,
að þeir stæðu fyrir þessari sýn-
ingu. Þeir hefðu séð þessar
myndir í möppum hjá Jóhanni,
orðið hrifin og viljað sýna þær.
Þeir viðurkenndu Jóhann sem
einn af frumkvöðlum súrreal-
ismans hér á landi, því bæru
vitni m.a. tvær bækur sem hann
gaf út á þessum tíma, upp úr
1960.
Sýningin stendur til 23. júli og
verður opin 15—21 um helgar, en
virka daga frá 17 til 21.
Tvær vísitölur?
VERÐBÓTAVÍSITALA þeirra, sem fá greidd laun samkvæmt samn-
ingum ASÍ og VSÍ, verður skert um 2,9% 1. september eins og skýrt
hefur verið frá. Það vekur því upp spurninguna hvernig veröi háttað
vísitöluútreikningi annarra starfshópa, þ.e. hvort greitt verður eftir
tveimur mismunandi vísitölum.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
liggur ekkert loforð fyrir um það
frá stjórnvöldum, að sett verði lög
til að tryggja það, að allir laun-
þegar sitji við sama borð 1. sept-
ember nk. Má í því sambandi
benda á, að forystumenn BSRB
hafa þegar lýst því yfir, að þeir
telji fráleitt fyrir bandalagið, að
samþykkja 2,9% vísitöluskerð-
ingu. í sama streng hafa BHM-
menn tekið, svo og flugmenn, sem
sitja við samningaborðið um þess-
ar mundir.
INNLENT
Söngferðalag Pólýfónkórsins á Spáni:
Fyrstu tónleikarn-
ir mjög vel sóttir
Malaga Frá biadamanni Morgunblartsin.s.
PÓLÝFÓNKÓRINN hélt sína
fyrstu tónleika hér á Spáni í
gærkvöldi, í borginni Malaga við
Gíbraltarsund. Voru þeir geysilega
vel sóttir, en talið er að 6—800
manns hafi hlýtt á kórinn og var
hann, stjórnandi hans, Ingólfur
Guðbrandsson og 53 manna hljóm-
sveit, sem honum fylgir, klappaðir
upp hvað eftir annað að tónleikun-
um loknum. Var aðsókn á þessa
tónleika heldur meiri en menn
bjuggust við, þar sem nú stendur
yfir heimsmeistarakeppni í fót-
bolta hér á Spáni og kepptu Spán-
verjar við V-Þjóðverja sama kvöld-
ið og tónleikarnir voru haldnir,
auk þess sem Argentína og Bras-
ilía léku fyrr um daginn.
Pólýfónkórinn kom til Spánar
í gærdag og mun á 5 daga söng-
ferðalagi sínu, halda tónleika i
alls 5 borgum á Spáni. Auk Mal-
aga eru það borgirnar Marbella.
Nerja, Granada og Sevilla. I
kórnum eru alls 90 manns og
með hljómsveitinni eru það alls
um 140 manns, sem taka þátt í
söngförinni, sem farin var í til-
efni af 25 ára afmæli kórsins.
í ferð með kórnum eru ein-
söngvararnir Jón Þorsteinsson,
Kristinn Sigmundsson og Nancy
Argenta frá Kanada. Einnig
taka einleikararnir María Ing-
ólfsdóttir og Þórhallur Birgisson
þátt í söngförinni.
Þessir fyrstu tónleikar Pólý-
fónkórsins á Spáni voru haldnir
í gríðarstórri Dómkirkjunni í
Malaga og voru eins og áður
sagði mjög vel sóttir og mynduð-
ust fljótlega biðraðir við inn-
göngudyr kirkjunnar.
Blöð hér í Malaga, hafa mikið
skrifað um heimsókn Pólýfón-
kórsins til Spánar. Hafa birst
viðtöl við Ingólf Guðbrandsson,
stjórnanda kórsins í stærstu
blöðum í borginni og heilu
opnurnar hafa verið lagðar und-
ir greinar um kórinn.
Næstu tónleikar Pólýfónkórs-
ins verða haldnir í borginni
Marbella á morgun. Áður hefur
verið greint frá efnisskrá kórs-
ins, sem er mjög fjölbreytt, sam-
bland af íslenskum og erlendum
verkum.