Morgunblaðið - 03.07.1982, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
LANDSMÓT ’82
Hér er spennan og keppnisgleðin í fyrirrúmi. Myndin er tekin á Skógarhólum 78. Hestar og knapar eru frí vinstri talið Ágúst Oddsson á Flaum, Erling
Sigurðsson á Storm, Reynir Aðalsteinsson á Trausta og Eyjólfur ísólfsson á Hofstaða-Jarp.
Falla íslandsmetin
á Vindheimamelum?
Sá þáttur Landsmóts sem telja má
vekja mesta spennu fjölmargra eru
kappreiðarnar. Til leiks ma ta nú
eins og alltaf áður fremstu hlaupa-
hross landsins. Er hér um að ræða
nokkurs konar uppgjör milli hrossa
sem sjaldan eða aldrei mætast i
keppni vegna fjarlægðar og mikils
flutningskostnaðar. Á Landsmóti
setja menn ekki fyrir sig fjarlægð-
irnar og mæta með hesta sína til að
reyna ágæti þeirra.
Ekki er nein goðgá að ætla að ný
íslandsmet kunni að líta dagsins
ljós, en þess ber þó að gæta að
veður og vindar hafa þar mikið að
segja.
Ef litið er á einstakar greinar
kappreiða, þá er það skeiðið sem
mestum vinsældum á að fagna og
þá sér í lagi 250 metrarnir. Þar
eru skráðir til leiks flestu fljót-
ustu vekringar landsins. Þó vant-
ar tvo af þeim fljótustu, þá Skjóna
og Fannar. Fannar mun þó mæta
til leiks sem gæðingur. Villingur
hefur náð bestum tíma í ár, eða
22,3 sek. og er hann jafnframt sá
eini sem hefur náð tíma undir 23,0
sek. Aðrir kunnir hestar sem til
leiks eru skráðir eru m.a. Þór,
Börkur, Snarfari og Lyftingu. Alls
eru 27 hross skráð til leiks í þess-
ari grein. I 150 metra skeiðinu er
keppt eftir nýjum reglum sem
samþykktar voru á síðasta
LH-þingi sem mælir fyrir um að
150 m skeið sé ætlað hrossum 5—7
vetra. Á þeim kappreiðum sem
haldnar hafa verið á þessu ári eru
einkum þrjú nöfn sem koma upp í
huga manns fyrir góða frammi-
stööu en það eru Freisting, Fjölnir
og Torfi. í stökkgreinum má segja
að sé valinn hestur uhverju rúmi
ef þannig má að orði komast. í 250
m unghrossahlaupi ber hæst, það
sem af er þessu keppnistímabili,
Hyllingu, sem hefur verið sigur-
sæl. Skúli hefur fylgt Hyllingu
fast á eftir og virðist eiga alla
möguleika á að ná langt. Einnig er
vert að minnast á hryssu, Brynju
að nafni, sem hefur náð besta tíma
sumarsins fram til þessa. í 350
metra stökkinu eru mörg þekkt
nöfn sem vert er að minnast á svo
sem eins og Mannsi og Túrbína
sem virðast hvað sterkust um
þessar mundir. Tvistur er náði
bestum tíma á þessari vegalengd í
fyrra mætir nú til leiks og verða
þetta hans fyrstu kappreiðar á ár-
inu.
Loka, sem hefur verið frá
keppni um árabil, mætir nú á nýj-
an leik og þrátt fyrir keppnis-
reynslu og góð afrek má segja að
hún sé óþekkt stærð eftir svo
langa hvíld. Islandsmethafinn í
400 metra stökki, Örvar, verður
með í baráttunni, skyldi enginn
vanmeta hann þótt ekki hafi hon-
um tekist að bera sigurorð af þeim
Nös frá Urriðavatni setur nýtt fslandsmet á Vindheimamelum 74, knapi er
Jón Ólafsson, önnur er Loka frá Útgörðum, knapi Sigurbjörn Bárðarson.
Þriðji er Öðinn frá Hvarfi, knapi Jóhann Tómasson. Fjórði er Sörli frá
Laugarvatni, knapi Gylfi Þorkelsson, og fimmti er svo Muggur frá Rauðalæk
en ekki berura við kennsl á knapann.
Mannsa og Túrbínu ennþá. Önnur
sem líkleg eru til að blanda sér í
baráttuna eru Gjálp, Óli og
Skessa. í þessari grein eru 21
hross skráð til keppni. Alls eru 10
hross skráð í 800 metrana og eru
það allt þekkt hlaupahross. Má
þar nefna hesta eins og Cesar,
Reyk, Þrótt, Don og tveir Mórar
verða með í leiknum. Ekki er
ósennilegt að hart verði barist og
óvarlegt að vera með einhverja
spádóma því allt eru þetta sterkir
hlauparar.
Að síðustu er það svo brokkið en
það verða aðeins 300 metrar í stað
800 metra eins og áður hefur ver-
ið. Er hér um að ræða nýja keppn-
isgrein. Meðal 20 hesta sem skráð-
ir eru eru tveir fljótustu brokkar-
ar undanfarinna ára, Funi frá
Búðardal, margfaldur methafi, og
Léttir frá Stóru-Lág, núverandi
methafi í bæði 1500 og 800 metra
brokki. Oft hefur gengið illa að
hemja Létti á hlaupabrautinni en
þegar það hefur tekist þarf ekki að
spyrja að leikslokum. Ekki er
ósennilegt að í þessari nýju keppn-
isgrein verði sett íslandsmet.
Af framanskráðu má ætla að
engum þurfi að leiðast á meðan á
kappreiðum stendur. Þegar 102
bestu hlaupahross mæta til leiks á
bestu hlaupabraut landsins vakn-
ar spurningin: „Hversu mörg fs-
landsmet standa óhögguð eftir
Landsmótskappreiðar?"
VK
íslandsmetið í 250 metra skeiði á
Skjóni frá Móeiðarhvoli, sett á
Vindheimamelum 79, 21,6 sek. Nú
verður Skjóni fjarri góðu gamni en
spurningin er hvort metið standi
óhaggað eftir landsmót. Myndin hér
að ofan er tekin á kappreiðum hjá
Fák og knapi er sá kunni skeiðreið-
armaður Aðalsteinn Aðalsteinsson.
1
Fjölbreytt blað
um hesta
og hestamennsku
Askrif t ?>
Eitt símtal,
-eda miðanní póst.
Þannig verður þú áskrifandi að Eiðfaxa: Hringir í síma
(91)85316. eða (91)85111 Þú getur líka fyllt út hjálagðan
miða og sent okkur. Síðan sjáum við um að þú fáir blaðið
sent um hæl. Flóknara er það ekki.
Eiðfaxi er mánaðarrit um hesta og hestamennsku.
Vandað blað að frágangi, prýtt fjölda mynda.
v- - -----------------------:>€-
E
Pósthólf /P.O.Box 887. Lágmúla 5.105. Reykjavik lceland
Sími/Phone 91-85316.
Eg undirritaður/undirrituð oska að gerast askrifandi að Eiðfaxa
Það »em til ar
bloðum frá upphafi.
frá aramotum 81/82
fra og með
næsta tolublaði.
PÓSINUMEB iXISISIOil
Eidfaxi hóf gongu sina 1977 og hefur komið út mánaðariega sidan
Hvert eintak af eldri blodum kostar nú 30 kr.
Sidari hlvti 1962, júli - desember kostar 180 kr
Klæðaburður sífellt batnandi
Á SÍÐUSTU árum hafa orðið mikl-
ar breytingar á klæðnaði knapa á
hestamótum og hafa þær tvímæla-
laust verið til batnaðar. Á lands-
mótinu 1974 má segja að hafi orðið
þáttaskil hvað þetta varðar. Félag-
ar i Félagi tamningamanna riðu á
vaðið í þessum efnum með bláu
jökkunum og hvítu buxunum
margumtöluðu. Síðan þetta var
hafa hestamannafélögin hvert af
öðru fengið sinn ákveðna félags-
búning. Og á landsmótinu 1978
settu þessir búningar mjög
skemmtilegan svip á hópreiðina.
Hvert félag með sinn búning og
félagsmerki.
Þrátt fyrir þessar framfarir í
klæðnaði er rétt að minna knapa
á komandi landsmóti á að spara
ekki betri fötin þó ekki séu þeir
alltaf í sínum félagsbúningi. Er í
þessu sambandi rétt að minna á
að mikill fjöldi ljósmyndara
verður á mótinu, bæði frá fjöl-
miðlum og svo einnig þeir sem
kallast áhugaljósmyndarar.
Margar myndir verða birtar frá
landsmótinu bæði þérlendis og
erlendis og er því mikið atriði að
knapar séu ávallt við því búnir
að verið sé að taka myndir af
þeim. Fátt er eins leiðinlegt og
þegar góð mynd næst af hesti og
knapinn kannski klæddur líkt og
verið sé að leggja í haustleitir
eða eitthvað í |>eim dúr. Einnig
er ein hugmynd sem vert er að
minnast á en það er að þegar
gæðingar verða dæmdir og sýnd-
ir að knapar séu í félagsbúningi
þess félags sem hesturinn er frá.
Má í þessu sambandi minna á
sýningu Eyjólfs ísólfssonar á
hestinum Hlyn frá Akureyri, en
þá var Eyjólfur í búningi þeirra
Léttismanna en Hlynur var full-
trúi Léttis í B-flokki gæðinga. Er
þessari hugmynd hér með komið
á framfæri.
VK
Á Skógarhólum 1978 mættu félögin hvert í sínum félagsbúningi og er það í fyrsta skipti á landsmóti sem slíkt er gert.
Eins og sjá má á fánanum eru það Léttismenn sem þarna eru á ferð.