Morgunblaðið - 03.07.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
5
; — i.
Gamla rjómabúid hjá Baugs-
stöðum til sýnis í sumar
EINS og undanfarin sumur verður gamla rjómabúið hjá Baugsstöð-
um, austanvið Stokkseyri, opið almenningi til skoðunar á laugar-
dögum og sunnudögum í júlí- og ágústmánuði milli kl. 13 og 18.
10 manna hópar og fleiri, geta fengið að skoða búið á öðrum
tímum, ef haft er samband við gæslumanninn, Skúla Jónsson, í
síma 1360 á Selfossi með góðum fyrirvara.
Vatnshjólið og vélarnar munu snúast í sumar — og minna á
löngu liðinn tíma, þegar vélvæðing var að hefjast í íslenskum
landbúnaði.
Mest aðsókn að Gosa í Þjóð-
leikhúsinu síðastiiðinn vetur
LKIKAKI l>jóðleikhússins lauk með síð-
ustu sýningu á Meyjaskenimunni laug-
ardaginn 26. júní sl. Hefjast æfingar að
nýju um mánaðamótin ágúst-september,
en fyrsta frumsyningin á nýju leikári
verður um miðjan september á Litla
sviðinu. Kvrsta frumsýningin á Stóra
sviöinu verður upp úr 20. september.
Mesta aðsókn í vetur hlaut barna-
leikritið Gosi með 17.908 sýningar-
gesti á 40 sýningum, þá koma Amade-
us með 12.468 sýningargesti á 32 sýn-
ingum, en bæði þessi leikrit verða
sýnd nokkrum sinnum til viðbótar á
hausti komanda. Næst þessum verk-
efnum í aðsókn koma svo Dans á rós-
um og Hús skáldsins með rösklega 10
þúsund sýningargesti hvor sýning. —
Sú sýning sem oftast var sýnd í vetur
var hinsvegar farandsýningin Upp-
gjörið, sem sett var upp af tilefni Al-
þjóðaárs fatlaðra. Uppgjörið var sýnt
alls 72 sinnum víðsvegar í Reykjavík
og nágrenni, þar af 4 sinnum á Litla
sviðinu. Áhorfendur á þessari sýningu
urðu alls 7.558, eða tæplega 105 til
jafnaðar á sýningu.
Verkefni leikársins á liðnum vetri
voru 18 talsins og skiptast þannig að
verkefni á Stóra sviðinu voru 11 tals-
ins, en á Litla sviðinu 2, farandsýning
var 1 og gestaleikir 4, 3 á Stóra svið-
inu og 1 á Litla sviðinu. — Á árinu
voru frumsýningar á 4 nýjum íslensk-
um verkum, þar af er ein ópera, og
sýningar á verkum frá Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Frakklandi, Þýska-
landi, Austurríki, Ungverjalandi, ít-
aliu og Finnlandi.
Samtals komu 101.608 sýningar-
gestir á sýningar í leikhúsinu eða á
vegum þess. Er þá ótalin heimsókn
Rajatabla-leikhópsins frá Venesúela
scm sýndi fjórum sinnum í leikhúsinu
á vegum Listahátíðar, og sömuleiðis
er ótalin dagskrá sú sem Þjóðleikhús-
ið stóð að á áttræðisafmæli Halldórs
Laxness í aprítmánuði ásamt Rithöf-
undasambandinu og Bandalagi ís-
lenskra listamanna og flutt var einu
sinni fyrir troðfullu húsi áhorfenda.
Islenski dansflokkurinn var með
tvær uppfærslur á árinu, sýningu á
Póstur og sími:
Erlendar skuldir 72 millj. um áramót —
Greiðslur vegna vanskilaorlofs 10 millj.
ERLENDAR skuldir Pósts og síma
um sl. áramót voru rúmlega 72 millj-
ónir kr. eða um 15—16% af heildar-
árstekjum stofnunarinnar. I>á varð
Póstgíróstofan að greiða um 10
millj. kr. í vanskilaorlof vegna síð-
asta orlofsárs.
Upplýsingar þessar koma fram í
júníhefti Póst- og símafrétta, sem
Pétur Sigurdsson, forseti
Alþýðusambands
Vestfjarða:
Samningur-
inn bætir
ekki kjör
hinna lægst
launuðu
„ÞAÐ ER með þessa nýgerðu samn-
inga eins og reyndar þá samninga
aðra, sem núverandi forysta Alþýöu-
sambands íslands hefur undirritað, að
þeir bæta í engu kjör hinna lægst
launuðu og því hlýt ég að vera
óánægður með þá,“ sagði Pétur Sig-
urðsson, forseti Alþýðusambands
Vestfjarða, í samtali við Mbl., er hann
var inntur álits á nýgerðum kjara-
samningi milli ASÍ og VSÍ, en ASV á
ekki aöild aö honum.
— Annars hef ég ekki skoðaö
þennan samning niður í kjölinn og vil
því ekki tjá mig um hann efnislega að
öðru leyti, sagði Pétur Nigurðsson
ennfremur.
Aðspurður um 2,9% vísitölu-
skerðingu 1. september nk., sagði
Pétur Sigurðsson, að samningur um
slíkt væri fráleitur að sínu mati. —
Það hefur verið helzta baráttumál
verkalýðshreyfingarinnar í gegnum
tíðina, að tryggja fullar verðbætur á
laun og þetta samrýmist því auðvit-
að ekki.
Pétur Sigurðsson sagði ennfrem-
ur, að allar samningaviðræður
hefðu legið niðri meðan viðræður
ASÍ og VSÍ hafa farið fram. —
Menn voru sammála um að sjá hvað
kæmi út úr þeim og fara svo af stað.
Ég reikna því með því, að við förum
að talast við um eða eftir helgina,
en hvað út úr því kemur er auðvitað
ógerlegt að segja. Ég verð hins veg-
ar að segja, að ég er ekkert sérstak-
lega bjartsýnn á þessar viðræður,
sagði Pétur Sigurðsson, forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða að síð-
ustu.
gefið er út af Póst- og símamála-
stofnuninni. I tilefni af erlendu
skuldunum segir: „Sú var tíðin að
stofnunin fékk að standa fjár-
hagslega á eigin fótum og gat fjár-
magnað rekstur og framkvæmdir
af eigin tekjum að viðbættum
vörukaupalánum til skamms tíma.
Nú er þetta á annan veg. Erlendar
skuldir Pósts og síma um sl. ára-
mót voru rúmlega 72 millj. kr. eða
um 15—16% af heildarárstekjum
stofnunarinnar. Greiðsluþunginn
vegna erlendra lána er því orðinn
mikill."
Þá kemur fram að Póstgíróstof-
an varð að greiða um 10 millj. kr.
vegna síðasta orlofsárs, án þess að
hafa fengið greiðslur frá viðkom-
andi fyrirtækjum. Orlofshafar fá
orlofið greitt frá Póstgíróstofunni
með vöxtum á sama hátt og
starfsmenn þeirra fyrirtækja sem
stóðu í skilum reglulega. Þessar
orlofsfjárgreiðslur eru vegna 16
fyrirtækja, sem ekki hafa staðið í
skilum og eru þau flest í sjávar-
útvegi, segir í Póst- og símafrétt-
um. Þar segir einnig, að undanfar-
in ár hafi alltaf verið um að ræða
Feröaþjónusta
fyrir fatlaða
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
staðfesti í gærkvöldi samþykkt borg-
arráðs frá 15. júní á fyrirkomulagi
ferðaþjónustu fyrir fatlaða.
Samkvæmt samþykktinni verð-
ur ferðaþjónusta fatlaðra rekin í
tengslum við Strætisvagna
Reykjavíkur, og yfirstjórn hennar
verður í höndum forstjóra SVR að
höfðu samráði við borgarstjóra.
Dagleg stjórn ferðaþjónustunn-
ar verður hins vegar í höndum eft-
irlitsmanns, sem skipaður verður
af borgarráði, að fenginni tillögu
forstjóra SVR. Eftirlitsmaður ek-
ur flutningabifreiðum þjónust-
unnar eftir því sem tími leyfir frá
daglegri stjórn.
Eftir því sem ástæður þykja til
að mati yfirstjórnar ferðaþjón-
ustu fatlaðra, verður haft samráð
við forsvarsmenn samtaka ör-
yrkja í Reykjavík varðandi breyt-
ingar á ferðaþjónustunni.
Breytingartillaga Öddu Báru
Sigfúsdóttur um að eftirlitsmaður
skyldi skipaður að fenginni tillögu
stjórnar SVR en ekki forstjóra, og
um að yfirstjórn ferðaþjónustunn-
ar yrði skylduð til að hafa samráð
við samtök öryrkja varðandi
breytingar á ferðaþjónustunni
fékk aðeins níu atkvæði og náði
því ekki fram að ganga.
nokkur vanskil fyrirtækja. Síðan
segir: „Nú hefur þetta aukist veru-
lega eða um 230% frá sl. ári. Þótt
Póstgíróstofunni sé skylt að
greiða út orlofsfé, þótt því hafi
ekki verið skilað til hennar,
því takmörk sett, hve mikið fjár-
magn er fyrir hendi í orlofssjóði,
þegar vanskil fara að verða eins
gífurleg og hér er um að ræða.“
tveim ballettum eftir Hlíf Svavars-
dóttur sem hún stjórnaði sjálf, og
rómaða sýningu á Giselle þar sem
Helgi Tómasson, María Gísladóttir og
Per Arthur Segerström dönsuðu sem
gestir, en Anton Dolin og John Gilpin
stjórnuðu uppsetningunni. í íslenska
dansflokknum eru nú 10 dansarar.
32 leikarar eru fastráðnir við Þjóð-
leikhúsiö, en auk þeirra tóku 23 aðrir
leikarar þátt í sýningum leikhússins á
leikárinu og 15 söngvarar. Eftirtaldir
leikstjórar stýrðu sýningum leikhúss-
ins í vetur: Benedikt Árnason, Brynja
Benediktsdóttir, Eyvindur Erlends-
son, Haukur J. Gunnarsson, Helgi
Skúlason, Kristbjörg Kjeld, Lárus
Ymir Oskarsson, Sigmundur Örn
Arngrímsson, Sveinn Einarsson,
Wilfried Steiner og Þórhallur Sig-
urðsson. Leikmyndir hönnuðu Birgir
Engilberts, Björn G. Björnsson, Willi-
am Chappell, Robin Don, Guðrún
Svava Svavarsdóttir, Sigurjón Jó-
hannsson og Þórunn S. Þorgrímsdótt-
ir.
Nú í vor hafa staðið yfir æfingar á
nýjasta leikriti Guðmundar Steins-
sonar og ber það hcitið Garðveisla, en
leikstjóri er María Kristjánsdóttir og
Þórunn S. Þorgrímsdóttir gerir leik-
mynd og búninga. Verður Garðveisla
f.vrsta frumsýningin á Stóra sviðinu í
haust. Þá var í vor fullæft fyrsta verk
haustsins á Litla sviðinu og heitir það
Tvíleikur (Duet for one), breskt verð-
launaleikrit eftir Tom Kempinski;
leikstjóri er Jill Brooke Árnason, en
leikmyndin er eftir Birgi Engilberts.
Ix>ks koma fljótlega upp að nýju sýn-
ingar leikhússins á Gosa og Amade-
usi, en í haust er einnig von á gesta-
leikjum og strax í september hefjast
æfingar á þeim verkum sem frumsýnd
verða í október og nóvember.
Sambyggt
hleöslu- og
rafsuðutæki
Rafkapals-
tromlur
Verkfæra-
kassar
Súlu-
borvélar
Málningar-
sprautur
Þráölaus
borvél meö
hleöslutæki
Loftpressur Smerglar Hleöslutæki
inhell
vandaöar vörur
Skeljungsbúðin
Síðumúla 33
símar 81722 og 38125