Morgunblaðið - 03.07.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1982
7
Innilegt þakklœti fcerum við bömum okkar, ættingjum
og vinum,fyrir ánægjulega heimsókn, og góðar gjafir og
skeyti á 60 ára hjúskaparafmæli okkar, 26. sl.
Kær kveöja,
Guöný og Guöbjarni.
Lokað vegna sumarleyfa
frá og meö 5. júlí til 4. ágúst.
Nýja Blikksmiðjan,
Ármúla 30,105 Reykjavík.
LOKAÐ
Vegna sumarleyfa veröur efnagerö okkar og heild-
verslun lokuð frá 11. júlí til 8. ágúst.
Agnar Ludvigsson hf.,
Nýlendugötu 21. Sími 12134.
Innritun í 3ja mánaöa sumar-
námskeiö fer fram í íþrótta-
húsinu Ásgaröi, þriöjudaginn
6. júlí og fimmtudaginn 8. júlí
kl. 20.00—22.00.
Upþlýsingar í síma 53066 á
innritunartímum.
VERIÐ MEÐ FRÁ BYRJUN
Karatedeild Stjörnunnar Garöabæ.
SUMAR
MATSEÐILL
TOURISTMENU
VIÐ BJÓÐUM SUMARMATSEÐILINN:
REYKJAVÍK:
Árberg, Ármúla 21
Brauðbær, Þórsgötu 1
Hótel Borg, Pósthússtræti 11
Hótel Esja, Suðurlandsbraut 2
Hótel Hekla, Rauðarárstíg 18
Hótel Loftleiðir, Reykjavíkurflugvelli
Hressingarskálinn, Austurstræti 20
Kráin, v/Hlemmtorg
LANDSBYGGÐIN:
Hótel Borgarnes, Borgarnesi
Hótel Stykkishólmur, Stykkishólmi
Hótel Hamrabær, (safirði
Hótel ísafjörður, ísafirði
Staðarskáli, Hrútafirði
Hótel Varmahlíð, Skagafirði
Hótel Mælifell, Sauðárkróki
Hótel Höfn, Siglufirði
Hótel Ólafsfjörður, Ólafsfirði
Hótel KEA, Akureyri
Hótel Varðborg, Akureyri
Hótel Reykjahlíð, v/Mývatn
Hótel Reynihlíð, v/Mývatn
Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum
Hótel Höfn, Hornafirði
Hvoll, Hvolsvelli
Hótel Selfoss, Selfossi
Börn 6-12 ára Vi verð, 5 ára og yngri frítt.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
ÞU ALGLYSIR l.M AI.LT
LAND ÞEGAR Þl AL'G-
LÝSIR I MORGINBLAÐINT
Framsóknar-
menn fjöl-
menntu
Það vakti sérstaka at-
hyjjli, þegar skálað var í
kampavíni fyrir samningn-
um um efnahagssamvinnu
við Sovétmenn í bústað
sovéska sendiherrans við
Túngötu um hádegisbilið í
gær, hve framsóknarmenn
settu mikinn svip á hópinn.
Eins og lesendum Stak-
steina er kunnugt hafa
framsóknarmenn hingað
til einkum ræktað vináttu-
tengsl við kommúnistafor-
ingja í Búlgaríu í þeirri trú,
að þar sé ennþá starfandi
bændaflokkur. Var Ingvar
Gíslason, menntamálaráð-
herra, nær allt síðasta ár
heiðursforseti í nefnd, sem
minntist 1300 ára afmælis
Búlgaríu. En nú mega
Búlgarar fara að vara sig,
því að samhliða gerð samn-
ingsins um efnahagssam-
vinnu, sem Olafur Jóhann-
esson, utanríkisráðherra,
ritaði undir í gær hafa
tengsl framsóknarmanna
viö sovéska kommúnista
eflst og dafnað.
Þessi tengsl hafa þó
ekki tekið á sig flokkspóli-
tískan blæ, enda enginn
bændaflokkur starfandi í
Sovétríkjunum. Hins vegar
er til sovésk samvinnu-
hreyfing og á grundvelli
samvinnuhugsjónarinnar
telja framsóknarmenn sér
bæði Ijúft og skylt að vin-
mælast við Sovétmenn.
Eins og kommúnistar cru í
forsvari fyrir bændaflokkn-
um í Búlgaríu, eru embætt-
ismenn sovéska ríkisins í
forsvari fyrir sovésku sam-
vinnuhreyfingunni, enda á
ríkið þessa hreyfingu eins
og búlgarski bændaflokk-
urinn er deild i kommún-
istaflokknum þar. Þetta
láta framsóknarmenn ekk-
ert á sig fá, hugsjónir vin-
áttu og sameiginlegra
hagsmuna eru ofar öllu.
Þögn Þjóð-
viljans
Oftar en einu sinni hefur
Þjóðviljinn ráðist að Ólafi
Jóhannessyni vegna emb-
ættisverka hans og alþýðu-
Getum nú boðið þessa vinsælu fiskibáta meö mjög stuttum fyrirvara. Verö mjög
hagstætt. Fást bæöi fullbúnir og óinnréttaðir..
BENC0
Bolholti 4.
Sími 21945 og 84077.
Nýtt skref stigiö
í gær var stigið nýtt skref í samskiptum íslands og Sovétríkjanna,
þegar samningurinn um efnahagssamvinnu var undirritaður viö
„leiðarljós“ lokasamþykktarinnar um öryggi og samvinnu í Evrópu,
sem kennd er viö Helsinki. Síðan 1975 þegar lokasamþykktin var
undirrituö hafa Kremlverjar látið handtaka alla þá í landi sínu og
leppríkjunum, sem krafist hafa réttinda samkvæmt Helsinki-sam-
þykktinni.
bandalagsmenn hafa al-
mennt lýst hann óhæfan til
allra verka. Ilm nýja samn-
inginn við Sovétríkin hefur
Þjóðviljinn ekki sagt eitt
einasta orð og raunar eng-
inn forystumaður Alþýðu-
bandalagsins nema Óuð-
rún llelgadóttir. Henni
fannst með öllu óþarft að
ræða samninginn í utanrík-
ismálanefnd og bað menn
að vera „huggulega" við
Sovétmenn. Þögn Þjóðvilj-
ans um Sovétsamninginn
er í samræmi við afstöðu
ráðherra Alþýöubandalags-
ins, þeir sátu glottandi á
ríkisstjórnarfundinum 22.
júní, þegar Ounnar Thor-
oddsen, Olafur Jóhannes-
son og Tómas Arnason létu
gamminn geisa um það,
hve nauðsynlegt væri að
treysta tengslin við Sovét-
menn og taka upp við þá
samvinnu á nýju sviði með
almcnnt orðuðum og opn-
um samningi, sem sovéska
embættisvaldið og skrif-
ra'ðið getur túlkað að eigin
vild og síðan stefnt full-
trúum íslensku ríkisstjórn-
arinnar til viðræðna við sig
um iðnað, vísindi, tækni,
búnað og hráefni.
I>ögn Þjóðviljans á sér
tvær meginskýringar: I
fyrsta lagi vilja alþýðu-
bandalagsmenn láta líta
svo út sem samningurinn
við Sovétríkin sé þeim
óviðkomandi. í öðru lagi
telja þeir sig ekki geta tek-
ið upp hanskann fyrir
framsóknarmenn og þar
með Olaf Jóhannesson í
þessu máli, því aö það geti
litiö illa út, að þeir styðji
utanrikisráðherra aðeins,
þegar hann leitast við að
treysta vináttuna við Sovét-
ríkin en bregöi jafnan fæti
fyrir hann endranær.
Haldlaus rök
Kök framsóknarmanna
fyrir gerð þessa samnings
cru furðuleg, svo að ekki
sé meira sagt. I stuttu máli
eru þau þessi: Norðurlönd-
in hafa gert svona samn-
ing. I samningnum „felast
engar nýjar skuldbindingar
af hálfu Islands," eins og
segir í forystugrein Timans
í gær. /Eskilegt væri, að
framsóknarmenn beittu
sér fyrir því, að birt væri
skrá yfir samninga, sem
Noröurlöndin hafa gert en
Islendingar ekki, svo að
menn viti, hvað sé næst á
dagskrá í samningagerð
við önnur ríki. Til hvers er
verið að gera samning um
ekki neitt? Eða var samn-
ingurinn bara gerður til að
sovéski sendiherrann gæti
boðið til „huggulegrar"
vináttuveislu?
Lengd 6,40 breidd 2,60 Lengd 8,15 breidd 2,95
FISKIBÁTAR