Morgunblaðið - 03.07.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1982
17
Flugræninginn
sem þjóðhetja
('olombo, Sri Lanka, 2. júlí. AP.
MAÐURINN frá Sri Lanka, sem
ra-ndi ítalskri þotu á leið til Bang-
kok, gekk laus í dag, en stjórnvöld
athuga nú þá skilmála sem hann lét
þotuna og farþegana lausa út á í
Bangkok.
Ekanayaka, 33 ára að aldri, gisti
Bignone lofar
bættu ástandi
Buenos Aircs, Argentínu, 2. júlí. AP.
REYNALDO Bignone, fyrrverandi
hershöfðingi, tók við völdum í Arg-
entínu í gær og bað þjóð sína um
aðstoð við það erfiða verkefni að
koma stjórn landsins að nýju í hend-
ur óbreyttra borgara. Hann lofaöi
grundvallarbreytingum i efnahags-
málum þjóðarinnar.
Bignone sagði á fundi sínum með
fréttamönnum að hann hefði völd
til að gera þýðingarmiklar breyt-
ingar á hinum frjálsa markaði og
þeirri stefnu sem hershöfðingjar
fyrri stjórnar hefðu fylgt í aðgerð-
um sínum gegn verðbólgu. Sú
stefna var einnig mikið gagnrýnd
af leiðtogum hinna óbreyttu borg-
ara sakir hins hrikalega efnahags-
ástands sem ríkir í landinu.
Hann lofaði í ræðu sinni að
endurreisa hið bágborna efnahags-
ástand og koma atvinnumálum í
betra horf jafnframt aukinni fram-
leiðslu í landinu.
Atvinnuleysi í Argentínu er 10
til 12%, samkvæmt sjálfstæðum
skýrslum, og þjóðarframleiðslan
minnkaði í fyrra um 6% og heldur
enn áfram að minnka.
aðfaranótt föstudags í lúxushóteli
þar sem stjórnvöld höfðu auga
með honum og hinni ítölsku konu
hans og syni.
Honum var tekið sem þjóðhetju,
er hann fór um götur borgarinnar
Colombo í Sri Lanka, til að koma
því fé sem hann hefur haft upp úr
krafsinu í banka, en hann fékk
300.000 dollara í lausnargjald
fyrir farþegana, ásamt fríu fari
heim til Sri lanka. Bankinn neit-
aði hins vegar að taka við þeim
öllum að óvörum.
í Bangkok er haft eftir yfirvöld-
um að „vopnin" sem hann hafði
með höndum hefðu einungis verið
þrjár meinlausar pípur með vírum
út úr, sem reyndust innantómar.
Lögreglan í Colombo segir að
hann verði látinn svara til saka
hjá fíniefnalögreglunni þar sem
skýrslur geti þess að hann hafi
verið undir áhrifum eiturlyfja, en
að öðru leyti virðist hann munu
koma til með að verða frjáls ferða
sinna í Sri Lanka. Getgátur eru
hins vegar á lofti þess eðlis að ít-
alia eða eitthvert annað ríki, sem
átti hagsmuna að gæta, muni
jafnvel fara fram á framsal hans.
Það var sendiráð Ítalíu í Bangkok
sem greiddi lausnargjaldið að
upphæð 300.000 dollara.
Yfirvöldum í Sri Lanka mun
fullkunnugt um, að Ekanayaka
tókst, með vopnum sem ekki voru
annað en innantómar dósir, að
plata áhöfn ítölsku þotunnar
ásamt yfirvöldum á flugvellinum í
Bangkok, en engra aðgerða er
samt að vænta í málinu frá hendi
stjórnvalda.
Kólumbía mætir
óvæntum hlutum
( 'anavcral HöfAi, Flórída, 2. júlí. AP.
BANDARÍSKA geimskutlan Kól-
umbía, mætti i dag óvænt leifum af
geimþrepi sovéskrar geimskutlu en
á milli þeirra voru einungis 12,3
kílómetrar.
Geimþrep þetta er aðeins einn
hlutur af mörgum sem svífa um í
geimnum og geta orðið geimskutl-
um hættulegir í framtíðinni, en í
þetta skipti var ekki um neina
hættu að ræða.
Aðvörunarkerfi gerði geimför-
Veður
víða um heim
Akureyri 8 skýjaó
Amaterdam 18 skýjaó
Aþena 32 heióskírt
Barcelona 24 skýjaó
Berlin 22 heióskírt
BrUssel 25 heióskírt
Chicago 25 skýjað
Dyflinni 18 heióskírt
Feneyjar Franklurt 22 vantar skýjaó
Qenf 25 heíðskírt
Helsinki 12 rigning
Hong Kong 27 skýjaó
Jerúsalem 28 heiðakfrt
Jóhanneaarborg 17 rígning
Kairó 38 heióskírt
Kaupmannahöfn 18 skýjaó
Laa Palmas 24 léttskýjaó
Lisaabon 30 heiðskirt
London 23 skýjaó
Loa Angetea 28 heiðskírt
Madrid 37 skýjaó
Malaga Mallorca 31 vantar heióskirt
Mexíkóborg 24 heióskírt
Miami 31 skýjaó
Moakva 22 rigning
Nýja Delhí 38 skýjaó
New York 28 heiðskírt
Osló 18 skýjaó
París 28 heióskírt
Perth 13 heióakírt
Rio de Janeiro 29 skýjaó
Reykjavík 15 lóttskýjaó
Rómaborg 31 heióekirt
unum Ken Mattingly og Henry
Hartsfield viðvart um að athuga
hlutinn um leið og geimskutlan
fór framhjá honum, en þeim tókst
ekki að greina hlutinn þar sem
hann fór fljótt hjá og þeir voru
bundnir yfir öðru þegar kallið
kom.
Geimskutlan mun lenda í Kali-
forníu á sunnudag og í dag hefst
fjórða og síðasta athugn á henni,
sem felst í því að kanna nánar
hvernig kerfi hennar bregst við
köldum skuggahliðum geimsins
ásamt athugun á stjórnkerfi
hennar.
Hlutur þessi sem geimskutlan
fór hjá í morgun er aðeins einn af
að minnsta kosti 10.000 hlutum
sem stundum eru kallaðir „geim-
rusl“ og valda geimferðastofnun-
um sífellt meiri áhyggjum vegna
vaxandi geimferða og hættu a
árekstrum. Engin hætta var hins
vegar á ferðum fyrir Kolumbíu í
morgun þar sem búið var að koma
auga á hlutinn fimm tímum áður
en hann nálgaðist geimskutluna
og því hefði verið auðvelt að
breyta stefnu hennar.
Heimsmeistara-
mótið yfirskin
Pólverjanna
Madríd, 2. júlí. AP.
SPÆNSKA lögreglan yfirheyrði í dag
25 pólska rikisborgara sem hafa beðið
þarlend yfirvöld um pólitískt hæli, en
þeir komu til Spánar með heimsmeist-
arakeppnina i fótbolta að yfirskyni.
Talsmaður í innanríkisráðuneyt-
inu segir aö verið sé að kanna beiðn-
ir Pólverjanna um pólitískt hæli og
að ákvarðanir í málum þeirra lægju
að öllu líkindum fyrir innan fárra
daga, en málið verður trúlega ekki
leyst áður en Pólland keppir við Sov-
étríkin í öðrum riðli heimsmeistara-
mótsins á sunnudag.
Meira en 40 Pólverjar hafa sótt
um pólitískt hæli á Spáni eftir að
herlög gengu í gildi í Póllandi í des-
ember sl.
ísraelskir herlæknar hlúa að tveimur börnum Drúza, sem særðust í átökum kristinna hægrimanna og vopnaðra sveita
Drúza í Líbanon á miðvikudag. Fregnir herma að 17 manns hafi fallið í þessum átökum, sem áttu sér stað skammt frá
Bhamdoun. Sjmamynd — AP.
Útlendum fridarhreyf-
ingum hampað í Kreml
meðan sú sovézka er ofsótt
„MIR“ er rússneskt orð sem þýðir
„friður“, en önnur merking hins
rússneska orðs er „veröld“. í frið-
arumræðunni sem staðið hefur að
undanförnu hafa Rússar fundið
upp slagorðið „Miru“, sem þýðir
„Friður á jörðu". En þrátt fyrir
fjálglegar yfirlýsingar um friðar-
vilja er langt í frá að stjórnin í
Kreml sé hrifin af hinni frjálsu og
óháðu friðarhreyfingu sem komin
er af stað i Sovétríkjunum.
Sovétstjórninni og málgögn-
um hennar verður tíðrætt um
erlendar friðarhreyfingar og
mótmælaaðgerðir á Vesturlönd-
um að undanförnu, og eftir því
sem mótmælaaðgerðir eru fjöl-
mennari er þeim ljáð meira rúm
í sovézkum fjölmiðlum. Það
þurfti ekki mikla spásagnargáfu
til að sjá fyrir að afleiðing þess-
ara frásagna sovézku fjölmiðl-
anna af fjöldahreyfingu fyrir
friði yrði sú að þar færu af stað
samskonar hreyfingar. Það er nú
komið á daginn, en eins og við
var að búast hefur Sovétstjórnin
bannað starfsemi þeirra í Sovét-
ríkjunum. Bannið er grundvallað
á því að í Sovétríkjunum sé þeg-
ar starfandi friðarhreyfing, — á
vegum kommúnistaflokksins —
og það sýni bezt afl og burði
þeirrar hreyfingar að í henni séu
80 milljónir Sovétborgara. Til-
raun til að stofna friðarhreyf-
ingu til hliðar við hina viður-
kenndu væri ekki annað en
barnaleg skyssa og jafnvel út-
hugsuð ögrun frá hendi vest-
rænna fjölmiðla og andsovézkra
áróðursmeistara.
Hinn 4. júní boðuðu ellefu for-
ystumenn hinnar óháðu frið-
arhreyfingar í Sovétríkjunum
blaðamenn á sinn fund í íbúð
einni í Moskvu. Sergei Batovrin,
25 ára listamaður, hafði orð
fyrir hópnum og las upp áskorun
til „stjórna og þjóða Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna," en í
áskoruninni kom fram sú af-
dráttarlausa skoðun að spurn-
ingin um stríð og frið og afvopn-
un væri of mikilvæg til þess að
um hana fjölluðu ekki aðrir en
ríkisstjórnir. Venjulegir borgar-
ar ættu rétt á þátttöku í friðar-
umleitunum, ásamt stjórnvöld-
um, og að nauðsynlegt væri að
efla traust og trúnað milli þjóða
og ríkisstjórna. „Friður getur
ekki grundvallast á ótta, heldur
verður hann að grundvallast á
trausti," segir í áskoruninni, en í
framhaldi af þessum orðum er
rakið hvernig efla má þetta
traust. Krafizt er útgáfu órit-
skoðaðs fréttabréfs, sem út
kæmi í báðum ríkjunum, en þar
ættu að vera aðgengilegar upp-
lýsingar um gang afvopnunar-
umræðna og tillögur sem miðast
að því að tryggja frið, hvort sem
um væri að ræða tillögur stjórn-
valda ellegar óbreyttra borgara.
Á blaðamannafundinum var
tilkynnt að helgina sem fór í
hönd yrði símavakt allun sól-
arhringinn hjá fjórum úr hópn-
um, Sergei Batovrin, Sergei Ros-
enauer og Vladimir og Maríu
Fleishgakker og þá gætu menn
komið á framfæri hugmyndum
um efnið og látið skrá sig sem
stuðningsmenn hinnar nýju
hreyfingar, hvort sem um væri
að ræða fólk innan Sovétríkj-
anna eða utan.
Meðan á símavaktinni stóð var
síma Sergei Batovrins lokað á
meðan hann var í miðju símtali
við Boston og skömmu síðar voru
símar hinna líka teknir úr sam-
bandi. Síðan hafa karlmennirnir
þrír verið í stofufangelsi. Þeir og
aðrir stofnfélagar hinnar óháðu
friðarhreyfingar hafa verið kall-
aðir til yfirheyrslu hjá öryggis-
lögreglunni og síðan verið látnir
koma fyrir rétt þar sem þeir
hafa verið sakaðir um ólöglegt,
ögrandi og and-sovézkt athæfi.
Röksemdir í þá átt að þeir hafi
einungis verið að stuðla að fram-
kvæmd yfirlýstrar stefnu Sovét-
stjórnarinnar hefur verið snar-
lega hafnað sem barnahjali.
Bæling sovézku friðarhreyf-
ingarinnar er að mörgu leyti sí-
gilt dæmi um aðferðir Sovét-
stjórnarinnar til að koma í veg
fyrir að losni um þau stjórn-
málalegu og þjóðfélagslegu tök
sem hún hefur á öllu því sem
fram fer. Fyrsta stigið er að
hirða og einangra meinta for-
sprakka, en síðan er kallað á
óbreytta stuðningsmenn til yfir-
heyrslu og þeim svo boðið að
segja sig úr samtökunum gegn
því að engin eftirmál verði.
Listi stuðningsmanna var
kominn upp í 65 manns þegar
farið var að taka hina óbreyttu
til bæna. Áhugi stjórnvalda virt-
ist fyrst og fremst beinast að
þeim sem auðvelt virtist að beita
þrýstingi. Þannig var Oleg Radz-
inski, 23 ára háskólanema í
Moskvu, tilkynnt að hann gæti
ekki haldið áfram námi sínu
nema hann segði sig úr hreyfing-
unni. Elena Vakarchuk, fráskilin
kona frá Odessa sem búsett er í
Moskvu, var látin vita að hún
yrði send aftur til Odessa nema
hún sendi inn úrsögn.
Erlendir fréttamenn í Moskvu
reyna að fylgjast með þessum
málum á sama tíma og viðræður
um afvopnun fara fram á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna og
vestrænar rikisstjórnir fylgjast
af athygli með sívaxandi þrýst-
ingi frá friðarhreyfingum í lönd-
um þeirra. Um leið og Sovét-
stjórnin flytur stöðugt fréttir af
friðarhreyfingunum vestan-
tjalds reynir hún allt sem hægt
er til að útiloka samskipti hinna
erlendu fréttamanna við þá sem
vilja koma af stað friðarhreyf-
ingu í Sovétríkjunum.
Hingað til hefur hinni óháðu
sovézku friðarhreyfingu ekki
verið sýndur mikill áhugi á Vest-
urlöndum. Það mun láta nærri
að á opinberum vettvangi hafi
enginn tekið málstað hennar
nema Reagan Bandaríkjaforseti
sem sagði í ræðu sinni á afvopn-
unarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna á dögunum: „Á sama tíma
og Sovétstjórnin reynir að hafa
áhrif innan vestrænna friðar-
hreyfinga er hún að reyna að
bæla niður vaxtarbrodd frið-
arhreyfingarinnar heima fyrir.“
(Financial Times og
The New York Times.)