Morgunblaðið - 03.07.1982, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
Pjetur Stefáns-
son opnar sýn-
ingu í Djúpinu
í DAG kl. 16.00 opnar Pjetur Stef-
ánsson myndlistarsýningu í Djúp-
inu, Hafnarstræti 15. A sýning-
unni verða málverk og grafík-
myndir. Upp á síðkastið hefur
Pjetur einnig unnið nokkuð í
þurrnál og má sjá árangur þeirrar
vinnu á sýningunni.
Sýningunni lýkur þann 16. nk.
Gamla bíó sýnir
Litlu hrossaþjófana
GAMLA bíó er nú að hefja sýn-
ingar á kvikmyndinni „Litlu
hrossaþjófarnir" (The Little
Horsethieves). Myndin, sem er
framleidd af Disney-fyrirtækinu,
gerist í byrjun aldarinnar og fjall-
ar um örlög hesta, sem notaðir
voru í kolanámum í Englandi.
Leikstjóri er Charles Jarrott, en
handrit samdi Rosemary Anne Sis-
son, sem m.a. gerði handritið að
sjónvarpsþáttunum „Húsbændur
og hjú“, og „Eiginkonum Hinriks
áttunda“. Með aðalhlutverk fara
Aiistair Sim, Peter Barkworth og
Susan Tebbs.
Hjörleifur Hilmarason á Chevrolet Nova sigraði i sínum flokki. Veður var fremur drungalegt eins og sjá má á
þe-ssari mynd og tafði rigningarúði keppnina nokkuð á tímabili. Ljóxm. Gvmur.
Islandsmeistaramót í Kvartmílu:
Eiginkonan lagði
eiginmanninn léttilega
Þessi gullfallega stúlka sigraði í
„modified standard“-f1okki í
kvartmílunni. Guðbjörg Jónsdóttir
heitir hún.
Kvartmílukeppni fór fram um
síðustu helgi á kvartmílubrautinni
í Straumsvík. Var það liður í ís-
landsmeistaramótinu i kvartmílu.
Keppni skiptist í fimm flokka, en
mest var þátttakan i svokölluðum
götubílaflokki, þar sigraði Hjör-
leifur Hilmarsson á Chevrolet
Nova og setti jafnframt nýtt ís-
landsmet í þessum flokki.
í standard-flokki sigraði Ing-
ólfur Arnarsson á Pontiac Trans
Am. Aðeins tveir keppendur
voru í mótorhjólaflokki og sigr-
aði þar Oddgeir Úraníusson á
Suzuki G 1000 S nokkuð auð-
veldlega. “Street altered"-
flokkurinn vekur jafnan mesta
spennu í kvartmílunni, en aðeins
tveir keppendur mættu til leiks.
Benedikt Eyjólfsson á stórglæsi-
legum Pontiac Firebird atti
kappi við Finnbjörn Kristjáns-
son á Volvo „kryppu". Hafði
Benedikt betur og setti ís-
landsmet í leiðinni. Einn kven-
keppandi var í kvartmílunni.
Guðbjörg Jónsdóttir á Camaro
sigraði eiginmann sinn, Ágúst
Hinriksson, sem ók Chevrolet
Chevelle. Voru þau einu kepp-
endurnir í „modified standard“-
flokki. Má með sanni segja að
jafnrétti ráði ríkjum i kvartmíl-
unni.
Byssurnar frá Navar-
one I Stjörnubíó
STJÖRNUBÍÓ er að hefja endursýn-
ingu á verðlaunakvikmyndinni Byss-
unum frá Navarone (The Guns of Nav-
arone), sem gerð er eftir samnefndri
sögu Alistair MacLeans. Framleiðandi
er Carl Foreman, sem jafnframt samdi
handritið. Leikstjóri er J. Lee Thomp-
son, en með aðalhlutverk fara Gregory
Peck, David Niven, Anthony Quinn,
Stanley Baker, Anthony Quayle og Ir-
ene Papas.
Byssurnar í Navarone varna því að
sund nokkurt í Grikklandshafi sé
notað af Bandamönnum í seinni
heimsstyrjöldinni. Þær eru grafnar
djúpt inn í kletta og ómögulegt er að
gera árás á þær úr lofti eða sjó.
Fékk aðal-
vinninginn
hjá SVFÍ
ANTONÍA Antonsdóttir, Bjargi,
Árskógsströnd, hafði heppnina með
sér er dregið var í happdrætti Slysa-
varnafélags íslands.
Hún átti miða númer 17415 og
hlaut aðalvinninginn í happdrætt-
inu. Vinningurinn var afhentur í
gær og auk Antoníu eru Guðjón
Jónatansson, formaður happ-
drættisins, og Hörður Friðberts-
son.
85 ára í dag:
Guðrún Ólafsdóttir
frá Unaðsdal
í gærkvöldi lögðu nokkrir lang-
ferðabílar upp frá Reykjavík og
stefndu eins og leið liggur vestur á
firði um Þorskafjarðarheiði að
Djúpi í áfangastað í Unaðsdal á
Snæfjallaströnd. Þarna eru sam-
ankomnir nokkrir afkomendur
einhverrar kynsælustu ættmóður,
sem nú er uppi á íslandi, Guðrún-
ar Olafsdóttur frá Unaðsdal. Þeir
eru samankomnir á ættarsetrinu
til þess að fagna og hylla Guð-
rúnu, sem nú í dag, 3. júlí, fagnar
sínu 85. aldursári.
Unaðsdalur á Snæfjallaströnd
— þetta er eitthvert fegursta bæj-
arheiti á íslenska tungu. Nafnið
býr yfir kliðmýkt og mildi og tign
og hrikaleik í senn. í Unaðsdal
bjuggu þau búi sínu Guðrún og
bóndi hennar Helgi Guðmundsson
á öðrum fjórðungi þessarar aldar.
Helgi féll frá árið 1945, en Guðrún
bjó þar áfram með börnum sínum
fram til 1950. Þá tók núverandi
bóndi í Unaðsdal, Kjartan, við búi.
Guðrún ól bónda sínum 16 börn.
Barnabörn hennar munu vera 57
talsins, en barnabarnabðrn fleiri
en tölu verður á komið nema við
ýtarlegar ættfræðirannsóknir. Má
af því sjá að það vefst fyrir fleir-
um en Kínverjum að hafa rétt
manntal. Seinustu rannsóknir
leiddu í ljós að alls væru afkom-
endur Guðrúnar í Unaðsdal um
130 talsins, þó er sú tala birt án
ábyrgðar.
Nú þegar þetta fólk er saman
komið á ættarsetrinu, eða allir
þeir sem heimangengt áttu, skart-
aði Djúpið sínu fegursta, svo sem
vera ber á merkum hátíðisdegi
allra Djúpmanna.
Guðrún er fædd á Hjöllum í
Skötufriði 1897, elst sjö barna
þeirra Guðríðar Hafliðadóttur og
Ólafs Þórðarsonar og ólst upp í
foreldrahúsum að Strandseljum í
Ögursveit. Guðrún var elst sjö
systkina og eru afkomendur þessa
fólks gjarnan kenndir við Strand-
sel, sagðir af Strandseljaætt.
Móðir Guðrúnar var Guðríður
Hafliðadóttir, smiðs, Jóhannes-
sonar frá Kleifum í Skötufirði og
konu hans Þóru Rósinkransdóttur
frá Hesti, Hafliðasonar frá Kálfa-
vík, Guðmundssonar sterka frá
Kleifum.
Foreldrar Ólafs voru Sigurborg
Bjarnadóttir frá Bakkaseli,
Bjarnasonar frá Fremri-Bakka í
Langadal og Þórður Gíslason,
bónda í Gjövudal, Jónssonar
bónda í Málshúsum í Reykjafjarð-
arhreppi. Kona Þórðar var Guð-
rún Ólafsdóttir frá Skjaldfönn í
Skjaldfannardal í Nauteyrar-
hreppi.
Guðrún er elst þeirra Strand-
selja-systkina, sem fyrr segir en
þau eru Hafliði bóndi í Ögri, sem
er látinn, Þórður kenndur við
Odda í Ögurvík, nú starfsmaður
Slippstöðvarinnar, Árni fyrrum
bóndi að Strandseljum, Kjartan
starfsmaður Samvinnubankans í
Reykjavík, Sólveig kona Hanni-
bals Valdimarssonar fyrrum for-
seta ASÍ og Friðfinnur forstjóri
Háskólabiós, sem var landsins
mesti húmoristi og fjörkálfur á
sinni tíð.
Allt er þetta fólk kynsælt í
besta lagi, þótt ekki komist það í
hálfkvisti við Guðrúnu.
Þann 25. janúar 1919 giftist
Guðrún Helga Guðmundssyni
bónda og formanni, Jónssonar
bónda á Berjadalsá og síðar Un-
aðsdal og konu hans Matthildar
Guðmundsdóttur frá Hamri. Þau
Guðrún og Helgi byrjuðu búskap í
Unaðsdal 1922. Helgi var annálað-
ur sjósóknari, dugnaðarforkur og
skytta. Það segir sig líka sjálft að
þau hjón urðu að vera vakin og
sofin við búsaðdrætti til þess að
sjá farborða börnum sínum 16 að
tölu. öllum komu þau til þroska og
er það gjörvilegur hópur sem er
samankominn í dag til þess að
samfagna Guðrúnu á afmælisdegi
hennar.
Börn Guðrúnar og Helga eru
þessi: Guðmundur búsettur á Sel-
fossi, kona hans er Margrét Guð-
mundsdóttir og eiga þau 5 börn,
Guðbjörn einhleypur, Ólafur er
kvæntur Sigríði Guðmundsdóttur
og eiga þau tvö börn. Steingrímur
er kvæntur Eyvöru Hólmgeirs-
dóttur og eiga þau 4 börn. Guðríð-
ur er gift Gesti Kristjánssyni,
Borgarnesi og eiga þau 5 börn,
Kjartan bóndi í Unaðsdal er giftur
Stefaníu Ingólfsdóttur og eiga þau
4 börn. Sigurborg er gift Sigfúsi
Halldórssyni og eiga þau 4 börn,
Jón formaður Einingar á Akureyri
er kvæntur Snjólaugu Þorsteins-
dóttur og eiga þau 4 börn, Guð-
björg er ógift og býr að Arnar-
holti, Hannibal er kvæntur Sjöfn
Helgadóttur og eiga þau 5 börn,
Haukur er kvæntur Ester Sigur-
jónsdóttur og eiga þau 4 börn.
Matthías er kvæntur Elínu Ragn-
arsdóttur og eiga þau 5 börn. Sig-
urlína er ógift en á tvö börn, Lilja
var gift Jóni Valdimarssyni á
Akranesi og eiga þau 5 börn. Hún
er nú gift og búsett í Noregi. Auð-
unn er kvæntur Kristínu Gísla-
dóttur og eiga þau 5 börn og
yngsta barnið, Lára, er búsett á
Isafirði, gift Vigni Jónssyni og
eiga þau 3 börn.
Á efri árum Guðrúnar hefur
hún gengt virðulegasta sendi-
herraembætti á íslandi, sem er í
því fólgið að sækja heim og halda
saman þessari fjölmennu ætt af-
komenda þeirra Unaðsdalshjóna,
en þau hafa dreifst víðsvegar um
þetta stóra land.
Það má vera Guðrúnu sérstakt
gleðiefni að ættarsetrið, Unaðs-
dalur, er vel setið, eitt myndarleg-
asta býlið við Djúp.
Við frændur, vinir og aðdáendur
Guðrúnar, sem ekki gátum slegist
í hóp langferðamanna vestur að
Djúpi í dag, sendum henni heilla-
óskir-á þessum heiðursdegi.
Jón Baldvin