Morgunblaðið - 03.07.1982, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
yt
Ég ger\ \jlllur fcil ab Inalda f>ér
vak&ndi
ást er...
IvvNO
... að finna til
unaðar yfir móð-
ureðlinu.
TM Reg U.S Pat Off — all rigfíts reserved
®1982 Los Angeíes Tímes Syndicate
17. dagur. Hungrið sverfur æ
meira að mér og ég er farinn ad sjá
ofsjónir. Siggi breyttist í morgun í
svínslæri...
Ileppinn eöa hitt þó heldur að úr
öllum þessum mikla fjölda lög-
fræðinga skulir þú einmitt hitta á
mig!
HÖGNI HREKKVÍSI
Bréfritari segir, að siðasta ioðnutorfan hafi verið sett í bræðslupottinn.
„Margt er það sem miður fer“
Ágæti Velvakandi!
„Margt er það sem miður fer,“
er upphafið að gamalli vísu, og var
hún talin allgóð á sínum tíma,
enda til hennar vandað á flesta
lund. Reyndar er nú þetta atriði
lítil nýlunda hér á landi og sjálf-
sagt víðar, en sennilega er það
hreint einsdæmi, að þjóðarskútan
sé látin reka á reiðanum svo árum
skiptir, og verðbólgan sömuleiðis,
öllum þegnum þjóðfélagsins til
bölvunar og niðurlægingar — inn-
anlands og utan-. Verðhækkanir
dynja á svo til daglega og hið
opinbera gengur á undan með
pálmaviðargrein í hendi. Jafnvel
eitt lítið frímerki heldur ekki gildi
sínu nema viku í senn og bætt er á
skattþunga almennings nýjum og
nýjum skammarstrikum mánað-
arlega eða svo, án þess að nokkur
maður viti með hverju fólkið á að
borga. Hins vegar gengur enginn
þess dulinn, að mikið þurfi til að
standa straum af hinum miklu út-
gjöldum ríkisins, ekki síst fólks-
haldinu, sem er helmingi meira en
nokkurt vit er í — og alltaf er
fleirum og fleirum bætt á jötuna,
til þess að skaffa þeim „bita“, sem
ekki nenna að vinna. Fast er ruðst
um í launastiganum og keppst um
þrepin, sem eru á milli 20 og 30 í
staðinn fyrir 2 eða 3 — og harð-
svíraðir fjárkúgarar heimta stöð-
ugt meiri peninga af gjaldþrota
atvinnufyrirtækjum, er borga að
vísu með lántökum alla háðungina
svo vitlaust, sem það er, og öllum
mikillar bölvunar, því ekkert er
hægt að gera við allt þetta öng-
þveiti nema hleypa því út í verð-
lagið. Svo eru fíflalætin hafin að
nýju, æ ofan í æ. Gjaldeyri virðist
sóað í hreint gegndarleysi — nýj-
um togurum lagt við bryggju og
gljáandi bifreiðum kastað á rusla-
haugana eftir 2ja ára notkun, eða
stundum tæplega það. Erlendum
vörum af mörgu tagi er hrúgað
inn í landið á kostnað innlendra,
án þess að gæðamat sé uppkveðið
og veikbyggðar atvinnugreinar
þar að lútandi jafnaðar við jörðu
— af ráðnum hug. Síðasta loðnu-
torfan hefur þegar verið sett í
bræðslupottinn og þeir fáu þorsk-
ar, sem þvælast hungraðir um
Strandagrunn og flotamið hafa
ekki einu sinni frið til að auka kyn
sitt á Selvogsbanka, vegna harðr-
ar atlögu þeirra, sem vita ekki
hvað þeir eru að gera. En „fátt er
svo með öllu illt að ekki fylgi
nokkuð gott“, segir gamalt mál-
tæki, og það er sannanlega ekki út
í hött í þessu tilfelli, eftir því sem
best verður séð, því allt flýtur á
meðan það ekki sekkur. Þó er það
nú samt svo, að fólkið er síður en
svo ánægðara nú en það var fyrir
60 árum, að því er virðist a.m.k.
Hér fjölgar drykkjusjúkum jafnt
og þétt, sömuleiðis eiturlyfja-
neytendum hvers konar, svo og af-
brotafólki, sem eigi kann fótum
sínum forráð á neinn hátt og læt-
ur sér fá óhæfuverk fyrir brjósti
brenna, oft á tíðum. Þessu fólki
öllu er sjálfsagt erfitt að koma til
hjálpar, því miður, nema með guðs
hjálp og góðra vætta.
Valtýr Guðmundsson
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur
til að skrifa þættinum um
hvaðeina sem þeim liggur á
hjarta — eða hringja milli kl.
10 og 12 mánudaga til föstu-
daga. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð. Þeir, sem ekki koma
því við að skrifa, slá þá bara á
þráðinn og Velvakandi kemur
orðum þeirra áleiðis. Nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng
þurfa að fylgja öllu efni til
þáttarins, þó að höfundur óski
nafnleyndar.
Kynnið unglinga-
hljómsveitirnar
Kæri Velvakandi!
Þessar línur eru m.a. skrifaðar
til þeirra háu herra sem sitja í
Útvarpsráði. Ég spyr: Er ekki
hægt að skjóta tíu til fimmtán
mínútna þætti inn í dagskrá Út-
varpsins eða Sjónvarpsins, sem
kynnti allar þær unglinga-
hljómsveitir, sem hér spretta upp
eins og gorkúlur út um hvippinn
og hvappinn. I Kópavogi eru t.d.
unglingahljómsveitir algengar og
að mínu mati skipaðar mjög góð-
um tónlistarmönnum, svo sem
„Útrás“ og „Te fyrir tvo“, sem
fram kom í Stundinni okkar ekki
alls fyrir löngu. Einnig má hér
nefna „Presto", „Nautn“, „Nast“
og „Óli madda“, „Neskamess" og
kvennahljómsveitina „Toffies".
Allt eru þetta mjög hressir krakk-
ar sem þurfa á góðri kynningu að
halda. En þetta voru aðeins
hljómsveitir í Kópavogi. Miklu
fleiri eru til í Reykjavík og víðar.
Ef hvergi finnst tími til þess að
skjóta áðurnefndu inn, finnst mér
það sýna brýna þörf á frjálsu út-
varpi.
J.K.S., ungur tónlistaráhugamaður
Þessir þurfa varla kynningar við, en bréfritara finnst íslenskar unglinga-
hljómsveitir fá litla kynningu i ríkisfjölmiðlum.