Morgunblaðið - 03.07.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1982
39
• Zico númer 10 tU vinstri skorar fyrsts mnrk Brasilin gegn Argentinn. Killol í markinu kemnr engnm vörnum við og
boltinn þenur út netið.
V-Þýskaland sigraði 2—1
og á nú góða möguleika á aö komast áfram
Littbarski átti allan heiðurinn
af seinna markinu sem Klaus
Fischer gerði á 75. mínútu. Spán-
verjarnir minnkuðu ekki muninn
fyrr en á 81. mínútu er Jesus Zam-
ora skoraði með skalla.
Þjóðverjarnir voru mun betra
liðið í leiknum og var sigur þeirra
öruggur, og eiga þeir nú góða
möguleika á því að komast í und-
anúrslitin. Það veltur þó allt á leik
Bnglands og Spánar á mánudag-
inn. Vinni England þann leik með
tveggja marka mun komast þeir
' áfram, annars Þjóðverjarnir.
Spánverjarnir eiga ekki mögu-
leika lengur.
Liðin voru þannig í gær: Vest-
ur-Þýskaland: Schumacher, Kaltz,
Förster, Stielike, Förster, Briegel,
Breitner, Dremmler, Littbarski,
Rummenigge, Fischer. Spánn:
Arconada, Camacho, Gordillo, Al-
esanco, Tendillo, Alonso, Zamora,
Urquiaga, Juanito, (Lopez Ufarte
á 46. mínútu), Santillana, Quini,
(Sanches á 65. mínútu).
PIERRE Littbarski og Klaus Fischer
voru vaidir i vestur-þýska landsliðið
aftur í leikinn gegn Spáni í gær-
kveldi og héldu þeir upp á það með
því að skora mörk liðsins. Þjóðverj-
arnir sigruðu í leiknum með tveimur
mörkum gegn einu og var staðan i
hálfleik 0—0.
Leikið var fyrir framan 90.000
áhorfendur á Santiago-vellinum í
Madrid og virkuðu Þjóðverjarnir
taugaóstyrkir til að byrja með.
Síðan hresstust þeir og voru mun
ákveðnari en heimaliðið. Þeir
fengu sæmileg færi en nýttu þau
ekki sem skyldi. Spánverjar áttu
einnig sín færi og eftir hálftíma
leik átti Carlos Santillana gott
skot rétt framhjá.
Fyrsta markið kom á 50. mín-
útu. Wolfgang Dremmler, sem átti
frábæran leik á miðjunni hjá
Þjóðverjum, átti þá hörkuskot af
löngu færi á markið. Arconada
varði en hélt ekki knettinum sem
hrökk til Littbarski og átti hann
ekki í neinum vandræðum með að
pota honum yfir línuna af stuttu
færi.
• Klaua Fischer skoraði annað
mark V-Þýskalands { gærkvöldi
gegn Spáni. Þetta var fyrsta mark
Fischers f keppninni til þessa en
hann hefur lítið leikið með.
„Eigum góðan
möguleika"
„LEIKURINN var drengilega leik-
inn nema síðustu mínúturnar er Arg-
entínumenn höguðu sér eins og villi-
menn,“ sagði Tele Santana, þjálfari
Brasilíumanna, eftir leikinn við Arg-
entínu i gær. „Við eigum mjög góða
möguleika á að hreppa heimsmeist-
aratitilinn, þrátt fyrir að enn eigum
við eftir að leika gegn mjög erfiðum
mótherjum,“ bætti hann við.
„Við vorum betri í síðari hálf-
leiknum, en þeim fyrri því sjálfs-
traust okkar óx stöðugt. Við erum
afskaplega ánægðir með úrslitin þar
sem okkur nægir jafntefli gegn ít-
alíu,“ sagði Santana.
Bins og annars staðar kemur
fram meiddist Zico í leiknum en
talið er öruggt að hann geti leikið
gegn Ítalíu á mánudag. „Hann
meiddist í vöðva, rétt fyrir neðan
hné en hann er ekki- brotinn, og
með réttri meðferð ætti hann að
vera klár í næsta leik,“ sagði þjálf-
arinn.
Argentínsku leikmennirnir yfir-
gáfu leikvanginn fljótlega eftir
leikinn og neituðu að tala við
fréttamenn. Menotti, þjálfari
þeirra, sagði: „Það var enginn
ruddaskapur í leiknum þó hann
hafi verið spilaður kröftuglega.
Þannig leika karlmenn." Hann
bætti við: „Brasilía er með mjög
gott lið, sem getur án nokkurs
vafa orðið heimsmeistari ef það
heldur áfram að spila eins og það
gerir nú.“
Keegan með gegn Spáni?
„ÉG ER búinn að leika tennis á
hörðum velli og kenndi mér einskis
meins. Ég veit ég er orðinn góður af
meiðslunum og vona innilega að ég
geti tekið þátt í leiknum gegn Spán-
verjum,“ sagði Kevin Keegan fyrir-
liði Englands í samtali við frétta-
stofu AP, en hann hefur sem kunn-
ugt er átt við meiðsli í baki að stríða.
Til þess að leita læknis skaust hann
m.a. til Hamborgar og heimsótti þar
lækni nokkurn sem hann þekkir.
Ron Greenwood, þjálfari enska
landsliðsins, hefur ekkert látið hafa
eftir sér um möguleikana á því að
Keegan leiki gegn Spánverjum, á
mánudag. An kappans hefur enska
liðið gert það gott, unnið þrjá leiki
og gert eitt jafntefli. Talið er líklegt
að ef Keegan verður með, verði það
einungis sem varamaður.
EKKERT verður leikið i heimsmeistarakeppninni í dag, en á morgun
verða tveir leikir á dagskrá. Sovétríkin og Pólland leika í A-riðli kl.
19.00 og Norður-írland og Frakkland leika { D-riðli kl. 15.15. Á
mánudaginn verða einnig tveir leikir og eru það þeir siðustu í milli-
riðlunum. Spánn og England spila kl. 19.00 og Brasilia leikur gegn
Ítalíu kl. 15.15.
FIMM leikir fara fram í 1. deildarkeppninni um helgina, og þrír leikir i 2.
deild:
Laugardagur 3. júlí ÍA:Vikingur kl.
1. deild Akranesvöllur — 14.30
1. deild Akureyrarvöllur - - KA:UBK 14.00
1. deild Keflavíkurvöllur - - ÍBK:ÍBÍ 14.00
1. deild Laugardalsvöllur — Fram:ÍBV 16.00
2. deild Kapíakrikavöllur — FH:Þróttur N. 16.00
2. deild Laugardalsvöllur — Fylkir:Völsungur 13.00
2. deild Vopnafjarðarvöllu r — EinherjhSkallagrimur 14.00
Sunnudagur 4. júli
1. deild Laugardalsvöllur - Valur:KR 20.00
Fylkjum liöi Framarar
Stórleikur í dag
á Laugardalsvelll kl. 16.00.
ÍBV