Morgunblaðið - 03.07.1982, Page 40
Gt'xVm daginn!
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
Sovétríkin — ísland:
Samningurinn
genginn í gildi
ÓLAFL’R JÓHANNESSON, utanríki.sráðherra, og A.N. Manzhulo, aðstoðar-
utanríkisviðskiptaráðherra Sovétríkjanna, undirrituðu i gær samning milli
Islands og Sovétrikjanna um efnahagssamvinnu.
Samkvæmt samningnum munu
aðilar hans stefna að því að efla
efnahagssamvinnu milli landanna
og að skapa hagstæð skilyrði fyrir
þróun slíkrar samvinnu. Fulltrúar
sem sjá um framkvæmd gildandi
viðskiptasamninga milli land-
anna, munu einnig fylgjast með
framkvæmd þessa samnings og
getur hvor aðili um sig krafist við-
ræðna á grundvelli samningsins
„hvenær sem það telst nauðsyn-
legt“.
Samningurinn tók gildi við und-
irritun og gildir í fimm ár. Samn-
ingurinn gildir þó áfram að þeim
tíma liðnum, en hvor aðili um sig
getur þá sagt honum upp með sex
mánaða fyrirvara. Uppsögn samn-
ingsins hefur ekki áhrif á gildi
samninga, sem gerðir hafa verið
með stoð í honum.
Geir Hallgrímsson, formaður
utanríkismálanefndar, beitti sér
fyrir því að samningurinn var tek-
inn til umræðu í nefndinni og
mótmæltu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gerð samningsins, bæði
aðdraganda og efnisatriðum í
samningnum sjálfum. Þegar málið
var rætt í utanríkismálanefnd sl.
mánudag, áréttaði Albert Guð-
mundsson, alþingismaður, and-
stöðu sína með því að ganga af
nefndarfundinum í mótmæla-
skyni.
Sjá nánar á miðopnu.
Mynd um Viðey
UNNIÐ er að tveim verk-
efnum á vegum Frétta- og
fræðsludeildar sjónvarps-
ins, meðan sumarleyfi þess
stendur yfir. Núna í byrjun
júlí, verður unnið að þætti
um sögu Viðeyjar. Það er
Maríanna Friðjónsdóttir,
sem umsjón hefur með gerð
þáttarins. Þá verður seinni
partinn í júlí unnið að
þætti um merka staði í
nágrenni Reykjavíkur og á
Reykjanesskaganum. Það
er einnig Maríanna Frið-
jónsdóttir, sem umsjón hef-
ur með gerð þess þáttar.
Ekki verður unnið að
neinum verkefnum á veg-
um Lista- og skemmtideild-
ar í júlí.
Kalt bað eftir heitan dag
Trausti Jónsson veðurfræðingur spáir því, að veður um helgina jafnist um landið. Það hlýni heldur fyrir norðan
og verði jafnframt léttskýjað. Sunnanlands spáði Trausti því að þykkna myndi upp er líða færi á daginn og
kólnaði lítillega og væntanlega myndi rigna lítillega á sunnudag. Ljósmynd Mbi. köe
BHM óskar eftir endur-
skoðun samninga sinna
410 sviptir
fyrir ölvun
ÞAí) SEM AF er árinu hafa 569
ökumenn verið stöðvaðir í Reykja-
vík vegna gruns um ölvun við akst-
ur og af þeim hafa 410 verið sviptir
ökuleyfi til bráðabirgða í mislang-
an tíma og mál þeirra send til
Sakadóms.
Þetta þýðir að tæplega 100
ökumenn hafa verið teknir fyrir
meinta ölvun við akstur að jafn-
aði á hverjum mánuði. Ekki eru
þetta allt saman Reykvíkingar,
heldur einnig fólk utan af landi
ökuleyfi
við akstur
og úr nágrannabæjum Reykja-
víkur og hafa mál þeirra verið
send viðkomandi embættum.
„Þetta eru anzi háar tölur og
virðist sem ölvun við akstur fari
vaxandi. Þá er áberandi, að rétt-
indalausum ökumönnum hefur
farið fjölgandi og hraði í um-
ferðinni hefur farið vaxandi og
er orðið brýnt að spyrna við fót-
um,“ sagði Gylfi Jónsson, full-
trúi í almennu rannsóknardeild-
inni í lögreglunni í Reykjavík, í
samtali við Mbl.
BANDALAG háskólamanna hefur óskað eftir endurskoðun á samn-
ingi sínum við fjármálaráöherra í kjölfar á nýgerðum kjarasamning-
um ASÍ og VSÍ, en samkvæmt kjarasamningi BHM og fjármálaráð-
herra hefur BHM rétt til aö óska eftir viðræðum um endurskoðun
samningsins, verði umtalsverðar breytingar á launakjörum á al-
mennum vinnumarkaði.
Ásthildur Erlingsdóttir, for-
maður Launamálaráðs BHM,
sagði í samtali við Mbl., að sam-
þykkt hefði verið í Launamálaráð-
inu, að óska eftir viðræðum við
fjármálaráðherra í næstu viku.
Aðspurð sagði Ásthildur, að fé-
lagar í BHM hefðu dregizt mjög
aftur úr í launum í samanburði
við hinn almenna vinnumarkað.
— Við teljum, að 30—40% vanti
upp á, að við náum sambærilegum
launum við starfsmenn í sambæri-
legum störfum á almennum
vinnumarkaði. Það er því mikill
kurr í okkar félagsmönnum af
eðlilegum ástæðum.
Kjaradómur komst að þeirri
niðurstöðu á dögunum, að okkur
bæru engar grunnkaupshækkanir
og þar á undan, eða á árinu 1980
var okkur ákveðin 6% hækkun á
sama tíma og aðrir launþegar í
landinu fengu 12—15% hækkun
svo það sér hver maður hversu
mikið ósamræmi er í þessu, sagði
Ásthildur Erlingsdóttir ennfrem-
ur.
Aðspurð sagði Ásthildur enn-
fremur, að engin efnisleg afstaða
hefði verið tekin til nýgerðra sam-
ninga ASÍ og VSÍ. Hins vegar
væri ljóst, að BHM-menn gætu
mjög illa fallizt á 2,9% vísitölu-
skerðingu 1. september nk.
Eggert Haukdal varaði við
undirritun samningsins
— segir ríkisstjórn-
ina ekki geta treyst
á stuðning sinn
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
mun Eggert Haukdal alþm. hafa
sent Gunnari Thoroddsen for-
sætisráðherra bréf í fyrradag,
fimmtudag, þar sem alþingis-
maðurinn varar við undirritun
samningsins við Sovétríkin um
efnahagssamvinnu. Eggert
Haukdal mun láta það koma
fram í bréfinu til forsætisráð-
herra, að ríkisstjórnin geti ekki
treyst á stuðning hans, ef af
undirritun verði.