Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1982
3
Geithellnahreppur:
Kosninga-
kæru vísað
frá í hrepps-
nefndinni
HREPPSNEFND Geithellnahrepps
hefur nú vísað frá kosningakæru, sem
fram kom frá fjórum aðilum innan
hreppsins, vegna síðustu hreppsnefnd-
arkosninga. Á hinn bóginn telur
hreppsnefndin eðlilegt að atkvæði
verði talin að nýju vegna þess hve jafnt
atkvæði féllu. Verður það ventanlega
gert mjög fljótlega og undir umsjón
sýslumanns Suður-Múlasýslu.
Að sögn Ragnars Eiðssonar,
oddvita hreppsnefndarinnar, var
kæran í tvennu lagi. Annars vegar
var kært vegna þess, aö atkvæði
voru talin fyrir lokuðum dyrum og
þar skírskotað til 103. greinar kosn-
ingalaga um alþingiskosningar.
Taldi hreppsnefndin að sú grein
kæmi ekki hreppsnefndarkosningum
við, þar sem þær væru óhlutbundn-
ar, en alþingiskosningar ekki. Taldi
hreppsnefndin að 12. grein laganna
ætti við þessar kosningar, en þar er
ekkert tekið fram um það hvort talið
skuli fyrir lokuðum dyrum eða ekki.
Þá tók hreppsnefndin til greina
skýrslu kjörstjórnar, þar sem þess
var getið, að þegar talning hefði haf-
izt, hefði ekki þótt fært annað en að
telja atkvæði fyrir luktum dyrum
vegna óláta úti fyrir. Þá gat Ragnar
þess, að frá því 1962 hefði ætíð verið
talið fyrir luktum dyrum.
Hins vegar var einnig kært vegna
þess hvernig dregið var um röð
manna, sem hlutu jafnmörg at-
kvæði. Hreppsnefnd taldi ekkert at-
hugavert við þann hátt, sem hafður
var á og vísaði því báðum atriðum
kærunnar frá.
Brugðið var á leik í vinnuskóla Hafnarfjarðar í gær. Keppt var í ýmsum
reinum, þar á meðal kassabílaakstri. Hér má sjá sigurvegarann, Jón
lafsson, bruna í mark, en í 2. og 3. sæti urðu Ríkharður Magnússon og
Jón Kr. Kristjánsson. Hverjum ökumanni var heimilt að hafa „hjálpar-
vél“, sem ýta mátti bílnum 5 skref. „Vél“ sigurvegarans var Halldóra
Olafsdóttir. MorcunhlaAió KÖE
Ráðning vitavarða við Galtarvita:
Samgönguráðherra réð aðra umsækj-
endur en Vitamálastjórn mælti með
Athugasemd
í FRÉTTAFRÁSÖGN í Morgun
hlaöinu í ger var með óviðeig-
andi hetti fjallað um þaö, hvað
kynni að hafa gerzt við stjórn vél-
arinnar, sem fórst í Esjunni á
dögunum. Þær vangaveltur áttu
hvorki heima í þessari frétta-
frásögn né annars staðar í
blaðinu og biður Morgunblaðið
afsökunar á þeim mistökum.
„Við mæltum með Stefáni Stef-
ánssyni, vélstjóra, og konu hans
Sólveigu H. Jónsdóttur, hjúkrun-
arfræðingi. Ástæður þess að við
mæltum með þeim eru þær, að
þetta starf er fyrst og fremst vél-
gæsla og hann virtist hafa mjög
góða þekkingu i þá áttina, hefur
unnið hjá Landhelgisgæslunni og
fengið mjög góð meðmæli. Einnig
er erfitt um alla læknisþjónustu
þarna og þar af leiðandi töldum
við að kostur væri að hjúkrunar-
kona væri á staðnum líka og hún
hafði einnig fengið mjög góð með-
mæli.“
V es tmanney ingar
í sumarfríi í ágúst
Síðasti löndunardagur er 29. júlí
ÖLL frystihús og fiskvinnslustöðvar
í Vestmannaeyjum verða lokuð tím-
abilið 9. til 29. agúst næstkomandi.
Þcnnan tíma verða Vestmannaey-
ingar almcnnt i sumarfríi og er þetta
þriðja árið í röð, sem öllum vinnslu-
stöðvunum í Eyjum er lokað í ákveð-
inn tíma yfir sumariö á meðan
starfsfólk fer í sumarfrí.
Arnar Sigmundsson hjá Sam-
frosti hf. í Vestmannaeyjum sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
komin væri góð reynsla á þetta
fyrirkomulag og í sama streng tók
Jón Kjartansson, formaður verka-
lýðsfélagsins.
Arnar sagði þegar rætt var við
hann, að síðasti löndunardagur í
Eyjum fyrir þjóðhátið væri 29. júlí
næstkomandi og síðan yrði ekki
tekið á móti neinum fiski fyrr en
mánudaginn 30. ágúst.
Á meðan sumarfrí Vestmanney-
inga stendur, verða margir Eyja-
bátar teknir í slipp, en þeir sem
ekki þarf að mála eða lagfæra á
annan hátt verða annaðhvort
bundnir við bryggju eða þeir
munu fiska fyrir erlendan mark-
að. Þá verður unnið að viðhaldi og
ýmsum breytingum í fiskvinnslu-
stöðvunum í sumarfríinu.
Jón Kjartansson sagði, að hann
teldi það mjög gott fyrir almenn-
ing að fyrirtækin lokuðu öll í einu
vegna sumarfría og ýtti þetta
fyrirkomulag undir fólk í þá veru
að það tæki sér frí.
Þetta var svar Aðalsteins
Júlíussonar, vita- og hafna-
málastjóra, þegar hann var
spurður um afgreiðslu vita-
málastjórnar á umsóknum um
störf tveggja vitavarða við
Galtarvita. Umsóknir um þessi
störf voru 17 og mælti vita-
málastjóri með Stefáni og Sól-
veigu, en Steingrímur Her-
mannsson, samgöngumálaráð-
herra tók þá ákvörðun að ráða
Kjartan G. Karlsson, skipstjóra
úr Súðavík og konu hans Sal-
björgu Þorbergsdóttur, handa-
vinnukennara.
Stefán og Sólveig rita grein
sem birtist á bls. 8 í Morgun-
blaðinu í gær, þar sem þau
segja frá reynslu sinni af þess-
ari starfsumsókn. í greininni
segja Stefán og Sólveig meðal
annars: „Eftir athugun vita-
málastjórnar á umsóknum,
mælti hún með okkur til sam-
gönguráðuneytisins sem gefur
„lokastimpil" á ráðningu til
slíkra starfa. Undir eðlilegum
kringumstæðum skilst okkur að
ráðuneytið samþykki slíka
pappíra tilfæringalítið, þeir eru
jú komnir frá þeim embættis-
mönnum, sem kunnugastir eru
viðkomandi málefnum. En slík
varð ekki raunin á í þessu til-
viki. Okkur var vikið til hliðar
og störfin fengu skipstjórahjón
að vestan." Seinna í greininni
segja þau: „En eins og starfs-
greinum og kröfum í þeim er
varið í dag, héldum við þó, að í
heiðri væru haldnar aðrar og
fastari reglur heillavænlegri á
jafnaðargrundvelli. Við nefnum
þetta því að á umræddum vita
er talsverður véla- og tækja-
búnaður sem lýtur að öryggi
sæfarenda með meiru. Staður-
inn er mjög afskekktur og erfitt
um samgöngur í misjöfnum
veðrum. Því mætti ætla að áríð-
andi væri að hafa á staðnum
sem hæfasta aðila til úrlausnar
á því sem úrskeiðis gæti farið.
Ekki aðeins öryggisins vegna
heldur og pyngju skattborgar-
anna vegna. Það er kostnaðar-
samt að gera út viðgerðarmenn
á slíka staði og ekki síður lækna
ef þarf. Það er okkar álit að yf-
irvöldum beri að sýna fordæmi í
svona vali fremur en hið gagn-
stæða. Það eru nú einu sinni
þeir, sem setja reglugerðirnar."
Mbl. reyndi að ná í samgöngu-
ráðherra í gær en án árangurs.
RockaU-deilan:
Viðræður fóru fram í London
GUÐMUNDUR Eiríksson, þjóðrétt-
arfræðingur utanríkisráðuneytisins,
átti nýlega fund með Berman, þjéð-
réttarfræðingi bresku ríkisstjórnar-
innar, um Rockall-svæðið.
Guðmundur sagði, að í apríl síð-
astliðnum hefði Olafur Jóhannes-
son, utanríkisráðherra, skýrt frá
því í skýrslu sinni til Alþingis að
hann hefði á fundi með þáverandi
utanríkisráðherra Breta lagt til,
að tveir þjóðréttarfræðingar sett-
ust niður og könnuðu öll efnisat-
riði Rockall-deilunnar og undir-
byggju frekari viðræður. Bretar
féllust á þessa tillögu og fundur-
inn sem Guðmundur sat, og var
haldinn í London 9. júlí síðastlið-
inn, var haldinn í framhaldi af
þessu samkomulagi á milli land-
anna sem fyrsta skrefið í að kanna
þessi mál. Guðmundur sagði, að
það hefði orðið að samkomulagi að
skýra ekki frá efnisatriðum fyrr
en að þessum viðræðum loknum
eða ríkisstjórnirnar kæmu sér
saman um annað.
Stjórn SH:
Lýsir stuðningi við
sovézka samninginn
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun, sem gerð var
á stjórnarfundi SH hinn 21. júlí sl.:
Vegna þeirrar umræðu sem
orðið hefur í tilefni undirritunar
efnahagssamnings milli Sovét-
ríkjanna og Islands vill stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna taka fram:
Allt frá árinu 1953 hefur SH
átt umfangsmestu viðskipti allra
íslenskra fyrirtækja við Sovét-
ríkin.
Stjórn SH:
Viðskipti þessi hafa reynst
traust og hagkvæm fyrir Islend-
inga og þótt við höfum sótt á um
að úr þessum viðskiptum yrði,
hafa þau ávallt verið gerð án
pólitískra skilyrða, enda aldrei
upp á slíku bryddað af hálfu við-
semjenda okkar.
Að fenginni Þ 'ssari reynslu
lýsir stjórn Si .umiðstöðvarinnar
fullum stuðningi við þá ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að undir-
rita nýgerðan efnahagssamning
við Sovétríkin.
Vill sjálfstætt við-
skiptaráðuneyti
Lýsir trausti á Þórhall Ásgeirson
MORGUNBLAÐINU hefur enn-
fremur borizt svofelld ályktun,
sem gerð var á sama stjórnarfundi:
Að gefnu tilefni telur stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna að íslendingar, sem eiga
afkomu sína svo mjög undir út-
flutningsverslun, hljóti að hafa
sitt sjálfstæða viðskiptaráðu-
neyti, sem rætt geti við erlend
viðskiptaráðuneyti á jafnræðis-
grundvelli. Því verður að telja
óheppilegt að sameina viðskipta-
ráðuneyti og utanríkisráðuneyti.
Þá vill SH lýsa fullum stuðn-
ingi sínum við störf Þórhalls
Ásgeirssonar, ráðuneytisstjóra,
sem á löngum starfsferli hefir
leyst, á erlendum vettvangi,
fjölda erfiðra verkefna til hags-
bóta fyrir íslenska útflutnings-
atvinnuvegi.