Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1982
Knattspyrnan um helgina:
Heil umferð í 1. deildinni
og fjoldi annarra leikja
HEIL IIMFERÐ verður leikin í 1.
deildinni í knalLspyrnu um helgina
og þar af eru fjórir leikir í dag. Þrir
leikir fara fram í 2. deild í dag, og
einn verður í þeirri deild á morgun.
Fjöldi leikja verður einnig í 3. og 4.
deild um helgina.
Leikir 1. deildar í dag eru þessir:
KR-ÍBV, ÍBÍ—Víkingur, ÍA-KA
og ÍBK—UBK. Hefjast allir þessi
leikir kl. 14.00, nema leikurinn á
Akranesi sem hefst hálftíma síð-
ar. Annaö kvöld leika síðan Fram
og Valur í Laugardalnum og hefst
sá leikur kl. 20.00.
Allir þessir leikir ættu að geta
orðið spennandi. KR-ingar sigruðu
Vestmannaeyinga í Eyjum fyrr á
þessu keppnistímabili, og verður
fróðlegt að sjá hvort þeir ná að
leggja þá aftur að velli, eða hvort
leikmönnum ÍBV tekst að hefna
ófaranna.
Ekki er leikurinn á ísafirði síð-
ur spennandi. ísfirðingar komu
vægast verulega á óvart er þeir
sigruðu Islandsmeistarana í fyrri
leiknum með þremur mörkum
gegn tveimur í Reykjavík. Vík-
ingar eru örugglega staðráðnir í
að tapa ekki öðrum 2 stigum til
Isfirðinga, og þeir sjálfir væntan-
lega jafn ákveðnir í að taka bæði
stigin aftur. Verður því um hörku-
viðureign að ræða.
Á Akranesi leika heimamenn
við KA frá Akureyri. Fyrri leikur
þeirra endaði með markalausu
jafntefli í vor. Akurnesingar slóu
Breiöablik út úr bikarnum í síð-
asta leik sínum en KA tapaði aft-
ur á móti bikarleiknum við Víking
fyrir norðan. Skagamenn eru með
níu stig eftir 11 leiki í deildinni og
KA þremur stigum meira þar sem
þeir sigruðu í kærumálinu á hend-
ur Val, sem dæmt var í í fyrra-
kvöld.
Leikmenn ÍBK voru í banastuði
í síðasta leik er þeir slógu Fram-
ara örugglega út úr bikarnum.
Sigruðu þeir í þeim leik 3—0, og
nú fá þeir Breiðablik í heimsókn.
Blikarnir eru úr leik í bikarnum
eftir tapið gegn ÍA, en eru í þriðja
sæti deildarinnar. ÍBK aftur á
móti í því næstneðsta, en allt get-
ur samt sem áður gerst.
Leikurinn á morgun er, eins og
allir hinir, mjög þýðingarmikill.
Valsarar hafa nú tapað fjórum
stigum á síðustu dögum vegna Al-
bertsmálsins, og því komnir í
neðsta sæti deildarinnar með átta
stig. Deildin er þó mjög jöfn og
spennandi, og öll lið eiga enn
fræðilega möguleika á toppsæti.
2. deild. Leikirnir í 2. deild í dag
hefjast allir kl. 14.00. Þór Akur-
eyri fær Þrótt Neskaupstað í
heimsókn, Skallagrímur og Fylkir
leika í Borgarnesi og Völsungur
fer til Vopnafjarðar og leikur þar
við Einherja. Á sama tíma á
morgun leika síðan Reynir og FH í
Sandgerði. Eins og áður sagði
verða einnig margir leikir í 3. og 4.
deild og þá er mikill fjöldi ieikja á
dagskrá í yngri flokkunum.
— SH.
• Skagamennirnir Július P. Ingólfsson, Árni Sveinsson og Sigþór Ómarsson
stilla sér hér upp í varnarvegg í bikarleiknum gegn UBK í Kópavogi á
miðvikudaginn. I dag mæta þeir KA frá Akureyri í 1. deiidinni á Skaganum.
IITCmini
r
Allan Simonsen frá Barcelona?
ALLT bendir nú til þess að danski
landsliðsmaöurinn Allan Simonsen
muni yfirgefa spánska stórliðið
Barrelona áður en langt um líður.
Liðið keypti nýlega Diego Maradona
sem kunnugt er og aðeins er leyfi-
legt að nota tvo erlenda leikmenn á
Spáni. Fyrir voru Simonsen og Þjóð-
verjinn Bernd Schuster.
Schuster hefur átt við meiðsli að
stríða nokkuð lengi, og lék ekki
með landsliðinu í HM-keppninni á
Spáni. Fyrir nokkrum dögum gáfu
læknar Barcelona út þá yfirlýs-
ingu, að Schuster væri það mikið
meiddur að hann kæmi ekki til
með leika næsta hálfa árið. Var
ekki reiknað með að hann yrði til-
Allt um knatt-
spyrnu komiö út
2. tölublað tímaritsins Allt um
knatLspyrnu er komið út. Meðal efn-
is er viðtal við Arnór Guðjohnsen,
spádóm'ar leikmanna 2. deildar,
punktar um knattspyrnu í Suður—
Ameríku teknir saman af Heimi
Bergssyni, myndir og frásögn frá
knattspyrnuskólum félaganna og frá
HM á Spáni.
Einnig eru birt úrslit leikja í öll-
um flokkum frá íslandsmótinu og
í opnu eru litmyndir af 1. deildar-
liðum ÍBV og KR Aðalljósmyndari
blaðsins er Guðbjartur Krist-
jánsson og á hann meðal annars
heiðurinn af forsíðumyndinni.
Blaðið er 32 síður og kostar 25
krónur í lausasölu. Áskrifendur
blaðsins eru nú að nálgast eitt
þúsund.
búinn að spila fyrr en seinni hluti
keppnistímabilsins á Spáni hefst, í
janúar.
Nú er hins vegar komið upp úr
dúrnum að Schuster hefur farið
geysilega fram undanfarið og síð-
ustu yfirlýsingar lækna félagsins
benda til þess að hann verði jafn-
vel leikfær strax í sumar, áður en
keppnistímabilið hefst 5. septem-
ber.
Aðeins er rúmlega einn og hálf-
ur mánuður síðan Simonsen skrif-
aði undir nýjan samning við
Barcelona og í honum kemur fram
að Simonsen verði laus allra mála
við félagið, nái það ekki fram vilja
sínum í sambandi við það að leyfa
þrjá erlenda leikmenn hjá hverju
liði á komandi keppnistímabili,
eða að hann verði tvisvar látinn
sitja á varamannabekknum.
Vitað er að lið í Frakklandi hafa
áhuga á Simonsen en ekkert er
sem sagt ákveðið um framtíð þótt
flest bendi til þess að hann muni
fara.
• Allan Simonsen (t.v.) og Bernd Schuster eru hér í búningi Barcelona. Allt
bendir nú til þess að Daninn yfírgefi félagið á næstunni.
Valur tapaði
kærunni líka
á Akurevri
I G/ER var loksins dæmt i Alberts-
málinu á Akureyri, þ.e. kæru KA-
manna á hendur Val fyrír að nota
Albert Guðmundsson í leik gegn
þeim 16. júni í vor.
Eins og við var að búist féll dómur
þannig að Valur tapaði kærunni,
eins og fór um kæru ísfirðinga
vegna þessa máls á dögunum.
Er blm. spjallaði við Björn Jós-
ep Arnviðarson, formann dóm-
stóls KRA, í gærkvöldi kom það
fram að úrskurður dómsins var
ekki byggður á nákvæmlega sömu
forsendum og um daginn.
„Við rökstyðjum okkar niður-
stöðu á örlítið annan hátt en
dómstóll KRR gerði," sagði Björn
Jósep. „Við byggjum okkar niður-
stöðu fyrst og fremst á því að
• Albert GuAnnmdason
ákvæði 2. greinar knattspyrnulaga
KSÍ um félagaskipti hefur ekki
verið uppfyllt. í 12. grein, 1. máls-
grein þessara laga segir, að ekkert
samband megi gefa út keppnis-
leyfi til leikmanns, án þess að vera
með félagaskipti í höndunum frá
hinu knattspyrnusambandinu.
KSI fékk þau gögn frá bandaríska
sambandinu ekki í hendurnar fyrr
en 21. júní.“
—SH.
Lopez
öruggur
FRANSKI varnarmaðurinn (’hristi-
an Lopez, leikmaður með St. Eti-
enne í heimalandi sínu, var mjög
öruggur um að franska landsliðið
kæmist í undanúrslit heimsmeistara-
keppninnar.
Leikmönnum liðsins hafði verið
lofað rúmlega einni milljón ís-
lenskra króna ef þeir næðu þeim
áfanga, og fyrir leikinn gegn
Norður-írum í milliriðlinum
keypti Lopez sér nýjan og glæsi-
legan Porsche-bíl fyrir peningana.
Frakkarnir sigruðu örugglega í
leiknum og komust í undanúrslit-
in, eins og menn muna, og var það
eins gott fyrir Lopez.
• Franski landsliðsmaðurínn
Christian Lopez.
Knattspyrnufélagið Fram:
Fyrsta skóflustungan
að nýju félagsheimili
Fyrsta skóflustungan að nýju félags-
heimili knattspyrnufélagsins Fram
við Safamýri var tekin á FRAM-
daginn 18. júlí sl.
Skóflustunguna tók formaður fé-
lagsins, Hilmar Guðlaugsson, ásamt
þremur drengjum úr yngsta keppnis-
flokki félagsins í knattpyrnu. Þeir
heita Guðmundur Gíslason, Sævar
Guðjónsson og Ómar Sigtryggsson.
Félagsheimilið verður rúmlega
600 fermetrar, sem verður á 2 hæð-
um. Vonir standa til, að fram-
kvæmdir hefjist fíjótlega, enda full
þörf á að mati Framara.
• Hilmar Guð-
laugsson sést hér
taka fyrstu skófíu-
stunguna að nýja
Framheimilinu í
Safamýri. Með hon-
um eru þrír strákar
úr yngsta
knattspyrnuflokki
félagsins. Skóflu-
stungan var tekin á
FRAM-daginn 18.
júlí síðastliðinn.
I