Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1982
19
París:
PLO-foringi
lætur lífið
l’arís, 23. júlí. AP.
ANNAR helsti leiðtogi PLO í Krakklandi var sprengdur í loft upp fyrir utan
heimili sitt í morgun, en hann hafði nú nýverið hafnaö lögregluvernd, að því
er haft er eftir yfirmanni skrifstofu PLO í París.
Fadel el Dani, 37 ára að aldri,
var næstæðsti yfirmaður PLO-
skrifstofunnar sem opnaði í París
fyrir sjö árum. Hann lést sam-
stundis er bíll hans sprakk, aðeins
örfáum augnablikum eftir að
hann sté einn síns liðs inn í hann.
Japan:
Margir látnir
vegna flóða
Tókýo, 23. júlí. AP.
AÐ MINNSTA kosti 18 manns létu
lífið, 147 grófust undir aurskriðum
og 54 eru enn ófundnir eftir gífurleg-
ar rigningar og flóð i Suður-Naga-
saki í dag, segja fréttir frá lögregl-
unni.
Lögreglan segir að ekki sé enn
vitað hvort þeir 147 sem urðu und-
ir aurskriðunum séu lífs eða liðn-
ir.
Regnið mældist 448 millimetrar
á miðnætti í nótt í bænum Naga-
saki, sem er u.þ.b. 900 kílómetra
suð-vestur af Tókíó og enn eru
sem fyrr segir ekki öll kurl komin
til grafar varðandi tölu látinna.
Enginn annar slasaðist í
sprengingunni, sem er ein af
mörgum sem hafa ógnað yfir-
mönnum PLO í Frakklandi á und-
anförnum tíu árum.
Ekki hefur verið unnt að fá
nákvæmar upplýsingar um
sprenginguna, þar sem sjónarvott-
um ber ekki saman um það hvort
sprengjan var til staðar í bílnum
er hann ók af stað eða henni hafi
verið kastað úr bíl sem keyrði
framhjá.
Yfirmaður skrifstofu PLO í
París sagði, að Dani hefði nýlega
tilkynnt lögreglunni að hann
kærði sig ekki framar um gæslu
hennar, en hann vildi ekki segja
hvenær þeirri gæslu hefði verið
hætt.
PLO telur að Israelar standi að
baki þessu morði sem og því er
PLO-yfirmaður í Róm var drepinn
17. júní síðastliðinn.
Enginn hefur lýst sig ábyrgan
fyrir tilræðinu, en það átti sér
stað árla í morgun í 13. hverfi
Parísarborgar.
Þessi sprenging í morgun veldur
mörgum ugg, þar sem einungis
þrír dagar eru liðnir síðan 16
manns slösuðust í sprengingu við
Notre Dame-kirkjuna í París og
óttast menn nú að ný sprengju-
alda sé ef til vill að ganga yfir
Frakkland.
Veður
víða um heim
Akureyri 15 skýjaö
Amsterdam 21 skýjaö
Aþena 35 heióskírt
Barcelona vantar
Berlín 26 skýjaó
BrUssel 22 skýjaö
Chicago 26 heióskírt
Dyftinni 22 heiösklrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 21 akýjaó
Genf 26 heiöskiri
Helsinki 19 skýjaö
Hong Kong 31 heiðskirt
Jerúsalem 26 heiöskirt
Jóhannesarborg 19 heióskírt
Kairó 35 heiðsklrt
Kaupmannahöfn 24 heiðskfrt
Laa Palmaa vantar
Ussabon vantar
London 19 akýjað
Lo* Angeles 32 heiöskirt
Madrid 31 heíóskírt
Malaga 37 heiöskírt
Mallorca 34 lóttskýjað
Miami 31 skýjaö
Mexíkóborg 25 akýjað
Moakva 26 skýjað
Nýja Delhi 33 skýjaö
New York 32 heiöskírt
Osló 24 heiöskfrt
Paris 21 skýjaö
Perth 18 heiðskírt
Rio de Janeiro 31 heiöskírt
Reykjavík 10 súld
Rómaborg 33 heiðskírt
San Francisco 16 heiðskírt
Stokkhólmur 19 heiöskírt
Sydney 17 rigning
Tel Aviv 30 heiöskírt
Tókýó 28 heiöskirt
Vancouver 17 skýjaö
Vínarborg 29 heiöskírt
Þórshöfn 13 alakýjaó
Bandaríkin:
Flugvél snú-
ið til Kúbu
Miami, 23. júlí. AP.
FLUGVÉL frá flugfélaginu Air Florida sem var í áætlunarfhigi milli Key
West og Miami var rænt í gærkvöldi og snúið til Kúbu. Ræningjarnir voru
tveir, en um borð í flugvélinni voru 12 manns, samkvæmt heimildum frá
bandarískum flugmálayfirvöldum.
Vélin sneri aftur til Key West í
morgun með öllum um borð nema
ræningjunum tveimur sem voru í
haldi í Kúbu hjá þarlendum yfir-
völdum. Enginn mun hafa særst.
Þetta er í annað skipti á þessu
ári sem flugvél frá Air Florida er
rænt í áætlunarflugi milli Key
West og Miami. Hið fyrra var 2.
febrúar síðastliðinn er 72-manna
vél var snúið til Havana, en hún
kom til Key West fjórum klukku-
stundum síðar með alla innan-
borðs nema ræningjann, sem kúb-
önsk yfirvöld tilkynntu að þau
myndu sækja ti) saka.
Ekki er enn ljóst hvernig flug-
ræningjunum tókst að ógna
áhöfninni, en talið er að það hafi
verið með einhvers konar gastækj-
um. Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, kannar nú málið, og ekkert
verður upp gefið fyrr en að skýrslu
hennar fenginni.
ERLENT
Gyðingaskólum
í Teheran lokað
Tel Aviv, fsrael, 23. júli. AP.
SKÓLABÖRN af gyðingaættum í
Teheran hafa verið neydd til að
ganga í gulum búningum til að þau
séu auðþekkjanleg frá öðrum,
samkvæmt heimildum frá leiðtoga
iranskra innflytjenda af gyðinga-
ættum í ísrael.
Hann segir að írönsk yfirvöld
hafi lokað skólum og samkundu-
húsum gyðinga í Teheran og
skipað nemendunum að skrá sig
í skóla múhameðstrúarmanna.
Þessar upplýsingar kveðst
hann hafa fengið símieiðis frá
íran, en hann neitaði að gefa upp
heimildarmann sinn.
Stórviðburður
hestamanna
Færustu knapar landsins leiða saman hesta sína á Víöivöllum (Fáksvelli), kl. 2 í dag.
Nú gefst öllum kostur á aö sjá beztu hesta landsins, sérstaklega þá sem ekki komust á
Vindheimamela. w
Keppt verður í hestaíþróttum,
150 og 200 m skeiöi.
Von á Islandsmeti
íþróttadeild Fáks og Haröar
ASKUR
sér um veítingarnar
á staðnum.
Ásfune
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Sími: 84240.
Hestaleigan
LAXNESI