Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1982
17
JíeUrJJorkShnejí
Fyrir skömmu var Zail Singh
kjörinn forseti Indlands. Ýmsum
þótti nóg um húsbóndahollustu
hans, er hann sagði fyrr í þessum
mánuði, að hann myndi glaður
hafa tekið að sér að sópa gólf
fyrir frú Indiru Gandhi forsætis-
ráðherra, hefði hún beðið hann
um það.
Hinn nýi forseti Indlands er 66
ára að aldri. Embætti hans er
umfram allt táknræn tignarstaða.
Hann mun veita viðtöku erlend-
um leiðtogum, heilsa þjóðinni á
hinum árlega þjóðhátíðardegi og
undirrita tilskipanir, sem ríkis-
stjórnin gefur út. Einu sinni á ári
hverju mun hann ávarpa samein-
að þing, en aðstoðarmenn frú
Gandhi skrifa fyrir hann ræðurn-
ar.
Forseti Indlands er mjög
valdalítill í raun, enda þótt
sumir fyrri þjóðhöfðingjar
landsins hafi notið álits og
virðingar fyrir ráðgjöf. Að
nafninu til er forsetinn einnig
yfirmaður herafla landsins.
Samkvæmt stjórnarskránni á
forsetinn að fara að ráðum for-
sætisráðherra.
— Frú Gandhi mun fá hvað
sem er undirritað, jafnvel
Zail Singh eftir kjör hans sem forseta Indlands.
Gandhi greiðir atkvæði um nýjan forseta landsins.
Myndi glaður sópa gólf
fyrir Indiru Gandhi...
punktalínur, segir mikilsmet-
inn stjórnarandstöðuþingmað-
ur, sem þekkt hefur Singh í ald-
arfjórðung. Hann er ekki einn
um að álíta, að frúin hafi kosið
þennan Sikha-leiðtoga umfram
allt vegna þeirrar ósveigjan-
legu hollustu, sem hann hefur
sýnt á löngum ferli.
Þessi maður, sem nú á næst-
unni tekur sér bólfestu í glæstri
forsetahöllinni, sem Sir
Edward Luytens byggði fyrir
brezku varakonungana, er ef til
vill síðasti þátttakandi í frels-
isbaráttu Indverja, sem þar
mun búa. Jafnframt er hann
fyrstur úr hópi Sikha til að
hreppa æðsta embætti lands-
ins, en Sikhar eru sérstakur
trúflokkur á Indlandi.
Singh bar sigurorð af keppi-
naut sínum, Hans Raj Khanna,
og fékk hann rúmlega 470.000
fleiri atkvæði. Hann ætlar að
sverja embættiseið sinn 25. júlí,
en þá mun núverandi forseti,
Neekam Sanjiva Reddy, láta af
embætti eftir að hafa gegnt því
5 ára kjörtímabil.
Singh fæddist í þorpinu
Sandhwan í ríkinu Punjab árið
1916. Hann er kunnur fyrir, að
vera ekki ávallt sjálfum sér
samkvæmur. Er hann gegndi
embætti innanríkisráðherra
reitti hann þingheim til reiði
vegna lofgjörðar um Adolf
Hitler. Hann lét af embætti
innanríkisráðherra, eftir að
ríkisstjórnarflokkarnir höfðu
útnefnt hann sem forsetaefni.
Leiðtogar stjórnar og stjórnar-
andstöðu knúðu hann til að
taka aftur fyrri ummæli sín og
forseti þingsins lét þurrka þau
út af segulbandi.
Singh stærir sig af því, að
vera vandlátur um klæðaburð
sinn. Hann klæðist oft síðum
frökkum og þröngum buxum.
Hann ber einnig túrban og
skegg samkvæmt trúarsiðum
Sikha.
Singh leit dagsins ljós í leir-
kofa. Hann þótti fremur kæru-
laus í skóla, en tókst að ljúka
námi og fékk atvinnu við að
lesa „Sikha-handrit“. Við það
starfaði hann, er frelsishreyf-
ingin undir forystu Mohandas
K. Gandhi barst til heimahaga
hans. Singh tók þá að gefa sig
að stjórnmálabaráttu, og stofn-
aði eins konar útibú frá Kon-
gressflokki Gandhis Faridkot-
héraði. Vakti hann með því
reiði héraðshöfðingjans, sem
lét dæma hann í 5 ára fangelsi.
— Það var hundalíf, — sagði
Singh nýlega.
Þegar hér var komið sögu
beindist athygli hans að Jawa-
harlal Nehru, föður frú Indiru
Gandhi. Nehru varð fyrsti for-
seti Indlands, eftir að landið
hlaut sjálfstæði 1947. Singh
gegndi mörgum ráðherraemb-
ættum í Punjab til ársins 1972,
er hann varð aðalráðherra eða
æðsti kjörinn embættismaður.
Punjab-ríki tók stöðugum
framförum undir forystu hans
bæði í þróun landbúnaöar og
iðnaðar.
Mikil ólga var ríkjandi í Ind-
landi, er efnt var til almennra
kosninga árið 1977. Úrslit urðu
á þá lund, að frú Gandhi og
flokkur hennar hrökkluðust frá
völdum í sambandsstjórn og
allmörgum ríkjum. Singh beið
ósigur, en næstu þrjú árin hélt
hann uppi vörnum fyrir forsæt-
isráðherrann og hinn umdeilda
son hennar, Sanjay.
Rannsóknarnefnd var sett á
laggirnar og átti hún að sanna
ákærur á hendur Singh um
spillingu og gerræðislega
stjórnarhætti. Að mati nefnd-
arinnar reyndist hann aðeins
sekur um nokkur minniháttar
stjórnunarafglöp.
Þegar frú Indira Gandhi
komst aftur til valda árið 1980
eftir þriggja ára stjórnarand-
stöðu launaði hún Singh holl-
ustu við sig með því að skipa
hann í embætti innanríkisráð-
herra Indlands.
Singh er kvæntur og hefur
þeim hjónum orðið fjögurra
barna auðið. Sonur þeirra rek-
ur búgarð fjölskyldunnar í
Fardkot, en dæturnar eru
þrjár, og tvær þeirra læknar.
Eiginkona Singhs heitir Pradh-
an Kaur. Hún býr ekki í Nýju
Delhí, heldur hefur hún haldið
kyrru fyrir á heimaslóðum fjöl-
skyldunnar.
Samkvæmt læknis-
ráði Magga Kjartans
Hljóm-
plotur
Árni Johnsen
„ÞETTA eru lög sem hafa verið í
kring um mig í nokkurn tíma og
standa mér nærri af ýmsum
ástæðum," sagði Magnús Kjart-
ansson hljómlistarmaður um
lagavalið á plötu sinni, Sam-
kvæmt læknisráði og það er ekk-
ert undarlegt að Magga séu þessi
lög hugléikin, þau eru hugleikin
flestum sem njóta og unna tón-
list sem byggist á lagvissu og
hljómfögru tónfalli. Það ber vott
um gamansemi Magga Kjartans
að hann velur plötunni nafnið
Samkvæmt iæknisráði, því ef
mönnum lærist að hlusta á og
meta góða tónlist þýðir það í
raun minna álag á taugakerfi
manna og jafnvel taugadeildir
spítalanna. Upptaka Jónasar R.
Jónssonar færir listamanninn að
áheyrandanum þannig að maður
hefur frekar á tilfinningunni að
Maggi sitji við hljóðfæri sitt í
seilingu fremur en að sótt sé í
föng á hljómplötur.
Það kemur einnig skemmti-
lega í ljós á þessari plötu hvað
mörg kunn dægurlög njóta sín
vel án texta og söngs og má þar
sérstaklega nefna lagið Sölvi
Helgason. Á þessari plötu er það
píanó Magga sem syngur flest
lögin og útsetningar hans eru
gullfallegar.
Auk laga eftir Magnús eru á
plötunni lög eftir Magnús Ei-
ríksson, Jóhann Helgason,
Ragnhildi Gísladóttur, Gunnar
Þórðarson og Gylfa Ægisson,
lagið Elsku hjartans anginn
minn, sem er eitt af hugljúfari
lögum Gylfa. Þá er vert að geta
mjög fallegrar útsetningar á lagi
Magnúsar Kjartanssonar, To be
grateful.
Samkvæmt læknisráði er
óvenjulega fýsilegt til inntöku og
svo bíðum við aðeins eftir nýrri
resept Maggi.
V Vestfrost
FHVSDKISrUR
eru DÖNSKgœðavara
má
éT ,>i
—
LÍTRAR 201 271 396 506
BREIDD cm 72 92 126 156
DÝPT cm án HANDFANGS: 65 65 65 65
HÆÐ cm 85 85 85 85
FRYSTIAFKÖST pr SÓLARHRING kg. 15 23 30 30
ÖRKUNOTKUN pr. SÓLARHRING kWh. 1,2 1,4 1,6 1,9
201. Itr.
271. Itr.
396. Itr.
506. Itr.
kr. 5.824.00
kr. 6.931.00
kr. 7.262.00
kr. 8.469.00
VESTFROST frystikisturnar eru búnar
hinum viðurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1-2 geymslukörfur. Aukakörfur fáan-
legar á hagstæðu verði.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraðfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum. Innrabyrði
er úr rafgalvanhúðuðu stáli meö inn-
brenndu lakki.
VESTFROST verksmiðjurnar i Esbjerg
er ein af stærstu verksmiðjum sinnar
tegundará Norðurlöndum.
- V 'jf (/•'C'S.
Siðumúla 32 Simi 38000
Affsláttarverð vegna útlltsgalla