Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1982 „Pr6fessorinn“! Sjallanum: „Leiðindapúki er sá, sem hefur ekkért að segja, en segir það“ „l'ETTA er eiginlega stæröfræðileg ævisaga prófessors í gamansomum tón, fjallar um samskipti prófessorsins við eiginkonu sína, dóttur og vinnukonu og eru þau mestmegnis á stærðfræði- sviðinu. Prófesorinn hefur komið viða við, en hann ætlaði sér alltaf að verða töframaður og þvi ber ævi hans nokk- urn keim af því. Hann hefur ýmis spakmæli á reiðum höndum, aðallega sem svar við málflaumi konu sinnar og má þar nefna: „Aðalorsök hjónaskiln- aða eru hjónabönd", eða: „Leiðinda- púki er sá, sem hefur ekkert að segja, en segir það.“ Dóttur hans er einnig margt til lista lagt og hefur hún mikinn áhuga á gjörningum," segja hjónin Lilja (luðrún Þorvaldsdóttir og Aðal- steinn Bergdal, sem nú eru að hefja sýningar á skemmtiþættinum „Próf- essorinn" eftir Baldur Georgs, sem betur er þekktur sem „Baldur og Konni". Þau Lilja og Aðalsteinn hefja sýn- ingar á „Prófessornum" í Sjallanum á Akureyri næstkomandi sunnudag, þann 25. þessa mánaðar, og verða tvær sýningar á viku, fimmtudaga og sunnudaga. Verður sýningunum þannig háttað, að efnisskránni er skipt í tvennt, þannig að ekki verður sama efnið bæði kvöldin. Sýningar í Sjálfstæðishúsinu verða út ágúst- mánuð, en einnig hyggjast þau hjón- in ferðast með „Prófessorinn" víða um Norðuríand og gefa síðan öðrum landsmönnum kost á að sjá verkið síðar. „Þetta er eins og hálfs tíma sýn- ing, en þannig byggð upp að henni má auðveldlega skipta niður ! marga stutta þætti. Leikmyndin er mjög einföld, ein tafla og eitt blóm og er því mjög fyrirferðarlítil og auðveld í uppsetningu. Vegna þessa er mögu- legt að fara með „Prófessorinn" nán- ast hvert sem er og sýna hann hvar sem er, enda höfum við ákveðið að sýna þetta þeim, sem áhuga hafa á því. Baldur Georgs hefur gengið með þetta verk í maganum um árabil og meðal annars verið með það í ritvél- inni í hálft ár. Þetta small svo sam- an hjá honum eftir að hann samdi „Galdraland", en þar lék Aðalsteinn trúðinn „Skralla". Baldur sá þá ým- islegt í fari hans, sem hann taldi falla vel að „Prófessornum" og þó hann hefði ætlað sjálfum sér hlut- verkið yfirfærði hann það á okkur Aðalstein. Þetta hefur verið mjög erfitt hjá okkur að undanförnu, við höfum æft þetta heima i stofu og aðallega á nóttunni og þá hefur það komið sér vel að við erum hjón. Með þessu ætl- um við að reyna að lífga upp á skemmtanalífið fyrir norðan og von- um að Akureyringar og nágrannar kunni vel að meta þetta framtak for- ráðamanna Sjallans," sagði Lilja. Þau Lilja og Aðalsteinn eru tví- mælalaust kunn flestu áhugafólki um leiklist. Aðalsteinn hóf leikferil sinn á Akureyri með þátttöku í revíusýningu í Sjálfstæðishúsinu 1968. Nokkru síðar lá leiðin til Reykjavíkur og þar hefur hann leik- ið hjá öllum atvinnuleikhúsunum siðan. Lilja útskrifaðist úr leiklist- arskólanum 1978 og hefur leikið víða síðan og í vetur var hún hjá Þjóð- leikhúsinu. Aðalsteinn leikur prófessorinn, en Lilja leikur alla kvenmennina, eig- inkonuna, dótturina og vinnukon- una. Guðrún Þorvarðardóttir hjá Leikfélagi Reykjavíkur hefur veitt þeim ráðleggingar varðandi búninga og hárkollur. „Okkar á milli“ frumsýnd 14. ágúst NYJASTA kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, „Okkar á milli — í hita og þunga dagsins", verður frumsýnd samtímis í Háskólabíó og Laugar- ásbió, laugardaginn 14. ágúst næst- komandi. Hrafn Gunnlaugsson er hvort tveggja leikstjóri og höfundur efn- is. Með aðalhlutverk fer Benedikt Árnason, en með önnur aðalhlut- verk fara Sirrý Geirs, Júlíus Hjörleifsson, Andrea Oddsteins- dóttir, María Ellingsen, Margrét Gunnlaugsdóttir, Valgarður Guð- jónsson og Þorvaldur S. Þor- valdsson. Egill Ólafsson stjórnar tónlist, en höfundar hennar eru Jóhann Helgason, Magnús Ei- ríksson og Fræbbblarnir. Kvik- myndataka er í umsjá Karls Óskarssonar og Jóns Axels Egils- sonar. Hljóðstjóri er Gunnar Smári Helgason. Sýning myndarinnar tekur hálf- an annan tíma. Sýning á sumar- bústöðum TRÉSMIÐJA Magnúsar og Tryggva sýnir í dag, á morgun og mánudag frá klukkan 13—17 45 fermetra sumarbústaði að Melabraut 24, Hvaleyrarholti, Hafnarfirði. Bústaðirnir eru íslenzk smíði og hönnun, teiknaðir af Gunnari G. Einarssyni, arkitekt. Líknarstörf gegn gjaldi Richard Gere sem hinn bandaríski blíðusali, í örmum laganna varða Kvíkmyndír Sæbjörn Valdimarsson ■ Háskólabíó: Atvinnumaður í ást- um — Ameriran Gigolo. Leikstjórn og handrit: Paul Schrader. Kvikmyndataka: John Baily. Tónlist: Giorgio Moroder. Aðalhlutverk: Richard Gere, Lauren Hutton, Hector Eliz- ondo, Nina Van Pallandt, Bill Duke. Bandari.sk, frá Para- mount, gerð 1980. Paul Schrader hefur vakið á sér nokkra athylgi á siðustu ár- um sem frumlegur handritahöf- undur og leikstjóri. í myndum eins og TAXI DRIVER, (hand- rit), BLUE COLLAR og HARD- CORE, (handr. og leikstj.), og nú í AMERICAN GIGOLO, dregur hann fram í dagsbirtuna sívax- andi andlega hnignun i banda- rísku þjóðlífi. Aðalsöguhetjan er að þessu sinni Julian Kay (-R. Gere), karl- hóra í lúxusklassa. í anda há- stéttargleðikvenna austrænnar menningar, leggur hann mjög hart að sér að standa sig sem best í stykkinu. Heldur sér í strangri, líkamlegri þjálfun, neytir vart áfengis, klæðir sig smekklega og kann fjölda tungu- mála. Þorri viðskiptavinanna eru stútungskerlingar, sem ekki hafa notið samfarablossa (þetta er eitt af þeim ömurlegu orð- skrípum sem maður tæpast hvergi heyrir né sér utan kvik- myndatexta — sem betur fer) í áravís. Lítur Julian á það sem markmið sitt að fullnægja kerl- ingaröngunum. Álítur sjálfan sig einskonar líknarengil — á hálaunum. En Adam er ekki lengi í Para- dís. Tvennt bar við sem gjör- breytir vanaföstu lífsmunstri vændismannsins. Hann er bendlaður við morð með hjálp falssannanna og verður auk þess ástfanginn af einum viðskipta- vininum, hinni ungu og fögru Michelle, þingmannsfrú. Nú eru góð ráð dýr. Julian ger- ir allt sem hann getur til að hreinsa af sér gruninn, en allt kemur fyrir ekki. Hann á í höggi við ofjarla sina og það er aðeins á færi einnar manneskju að bjarga honum úr fanglesinu ... í ATVINNUMAÐUR í ÁST- UM, er tekið fyrir óvenjulegt efni, óneitanlega forvit.nílegt. Persóna Lauren Hutton nýtur sín einkar vel í Atvinnumaóur í ástum Schrader bendir örvum sínum að spillingu þjóðfélagsins sem fyrr. Þar sem jafnt háir sem lágir eiga þátt i rotnuninni sem á sér stað undir yfirborðinu. Og ekki síst þar sem það er hvað fágað- ast. Dæmigert er að morði er komið á söguhetjuna sem hann á engan möguleika að hreinsa sig af af sjálfsdáðum, hinsvegar vænir hann enginn um morð sem hann fremur með köldu blóði. Mannlífið er ljótt og rotið. Julian álítur sig einskonar frels- ara, en geldur fyrir það. Og í siðferðispredikun Schraders er aðeins að finna eina trúa og hjartahreina sál, en hún fær líka „réttlætinu" framgengt. Þessi nýjasta þjóðfélagsádeila Schraders er fallega unnin og hittir ágætlega í mark i skástu köflunum. Hún færir áhorfand- ann inni fjarræna veröld sem er honum forvitnileg í hnignun sinni. AíÁ er dálagleg afþreying en boðskapurinn hefur skolast mikið til niður, ekki síst sökum óhóflegrar lengdar — á köflum er myndin slítandi langdregin. Frásagnarstíll Schraders í máli og myndum virkar fjarri raunveruleikanum. Atburðirnir og persónurnar snerta mann nánast. Áhrif AíÁ eru ekki nægilega jarðnesk, hér gerist flest, a.m.k. framan af, sem ofar skýjum. Stíllinn er bland draums og veruleika. AíÁ er ásjáleg mynd, tækni- lega. Laglega tekin og klippt og hin vinsæla tónlist Moroders, sem m.a. er flutt af Blondie, fell- ur vel að framandi „glamour"- veröld kvikmyndaborgarinnar. Leikurinn er upp og ofan en leikaravalið gott. Það er helst að Hector Elizondo sýni umtalsverð tilþrif. Gere er á köflum stirður en er vel á sig kominn likamlega, í hlutverkið ... Þessi vasklegi náungi er á mörkum þess að „slá í gegn“, framtíðin ærið tvísýn. Ninu van Pallandt bregður fyrir í hlutverki mellumömmu og ferst það einkar vel. Þá er ónefnd fyrrum ein vinsælasta tískusýningarstúlka vestur- heims, Lauren Hutton. Hún er ein örfárra starfssystra sinna sem getið hafa sér orðstírs í kvikmyndum. Heillandi jarð- bundin fegurð hennar og fram- koma er ómissandi fastur punkt- ur í annars reikulli myndgerð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.