Morgunblaðið - 04.08.1982, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
167. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Síberíuleiðslan:
Bretar ganga
í berhögg við
stefnu Reagans
l.undunum, 3. ágú.st. AP.
ÁKV()RÐIIN brezku stjórnarinnar
um að beina því tii fjögurra
brezkra fyrirtækja að hafa að engu
bann Keagans Bandaríkjaforseta
við því að bandarískri tækni sé
beitt við lagningu gasleiðslunnar
miklu frá Síberíu til V-Evrópu hef-
ur verið illa tekið í Washington.
Stundu eftir yfirlýsingu brezku
stjórnarinnar lýsti stærsta brezka
fyrirtækið sem í hlut á, John
Brown, því yfir, að í lok ágúst yrðu,
eins og upphaflega var ráðgert, af-
greiddar sex gasdælur í þetta
mikla mannvirki sem byrjar að
dæla sovézku jarðgasi til V-Evrópu
árið 1984.
Með þessari ráðstöfun hefur
brezka stjórnin gengið í lið með
Frökkum gegn Reagan og þeirri
stefnu hans að stöðva fram-
kvaemdir við gasleiðsluna í því
skyni að refsa Sovétmönnum
fyrir kúgun þeirra á Pólverjum.
V-Þýzk og ítölsk fyrirtæki hafa
látið á sér skilja að þau muni
halda áfram að afgreiða dælur
og annan útbúnað í gasleiðsluna.
Afganistan:
Hart gengið
fram í því að
efla stjórn-
arherinn
Verzlunarmannahelgin fór hið bezta fram
Landsmenn allir nutu
náðar veðurguðanna um
helgina. Umferð var meiri
um þessa mestu ferða-
helgi ársins en dæmi eru
um áður, og var hún að
mestu án óhappa. Þá þótti
framkoma gesta á stærstu
mótsstöðunum með al-
bezta móti. Þessar hressu
stúlkur voru að Úlfljots-
vatni um helgina og
skemmtu sér hið bezta.
Helgarfréttirnar eru á
bls. 16, 17, 18 og 19.
Morgunblaðið/fatinnlaugur.
Beirút:
Nýju Delhi. 3. ágúst. AP.
LEPPSTJÓRN Sovétmanna í
Kabúl hcfur framlengt herskyldu
flestra hermanna í stjórnarhern-
um, og kallað út aukalið, að því er
segir í fregnum frá höfuðborg Af-
ganistans. Ganga sendiboðar
stjórnarinnar hart fram í því aö
afla nýrra liðsmanna, m.a. með því
að ganga hús úr húsi og velja úr
mannsöfnuði á torgum og gatna-
mótum.
Kabúl-útvarpið tilkynnti í dag
að stjórnin hefði ákveðið að
lengja herskyldu úr tveimur ár-
um í þrjú, auk þess sem allir
hermenn, sem hefðu verið leyst-
ir undan herþjónustu síðustu
fjögur ár og væru undir 35 ára
aldri, skyldu nú koma til starfa
að nýju og gegna herþjónustu
næstu tvö árin.
Þótt þessar aðferðir stjórnar-
innar séu ekki nýnæmi telja
kunnugir að aðgerðir hennar nú
séu óvenju harkalegar, og hefur
komið til blóðsúthellinga þegar
reynt hefur verið að neyða menn
til innlimunar í stjórnarherinn.
Áður en innrás Sovétmanna í
Afganistan hófst í árslok 1979
er talið að um 90 þúsund manns
hafi verið í afganska hernum, en
þar sem mjög hefur saxazt á lið-
ið vegna liðhlaups og átaka við
frelsissveitirnar í landinu er tal-
ið að í hernum séu vart yfir 35
þúsund manns.
Palestínumenn reiðubúnir
til brottfarar undir vernd
Beirúl, 3. águst. AP.
MEÐ 35 þúsund ísraelska hermenn
og 300 skriðdreka í árásarstöðu við
herkvi Palestínumanna í Beirút lýsti
yfirstjórn PLO því formlega yfir í
dag, að samtökin væru reiðubúin að
yfirgefa borgina undir vernd alþjóð-
legs gæzluliðs. Stóraukinn vígbúnað-
ur ísraela í miöborginni síðasta sól-
arhring hefur aukið á ótta manna
um að lokaárásin á vígið sé skammt
undan, en áætlað er að Palestínu-
mennirnir þar séu um 8 þúsund að
tölu. Þrátt fyrir vopnaskipti og
sprengjuárásir á vixl hefur níunda
vopnahléinu í borginni á átta vikum
ekki verið aflýst.
Leiðtogar PLO og vinstri sinn-
aðra Líbana höfnuðu í dag mála-
miðlunartillögu Habibs, hins
bandaríska sáttasemjara, um að
Palestínumennirnir yrðu fluttir á
brott í tveimur áföngum, um leið
og fjölþjóðlegu gæzluliði yrði
komið fyrir í V-Beirút, þar sem
þeir töldu tillöguna gloppótta og
m.a. fela í sér hættu á því að ísra-
elar geri atlögu að liði Palestínu-
manna á leið út úr Beirút áður en
gæzluliðinu hafi gefizt tími til að
taka sér stöðu.
1 dag hafa Palestínumenn gert
ítrekaðar árásir á ísraela á Beir-
út-flugvelli, en vellinum náðu
ísraelar á sitt vald að loknum
miklum átökum á sunnudaginn
var.
Öryggisráð SÞ hefur setið á
rökstólum um Líbanonsmálið í
dag en sl. sunnudag samþykkti
það einróma áskorun um að
vopnahlé yrði virt, um leið og
framkvæmdastjóra samtakanna
væri heimilt að senda eftirlits-
menn á vegum Sameinuðu þjóð-
anna til að fylgjast með því að
vopnahlé yrði haldið.
Áframhaldandi árásir
á Samstöðu í Póllandi
Varsjá, 3. ágúat. AP.
TRYBUNA Ludu, málgagn pólska kommúni.staflokksins, hélt í dag áfram
árásum sínum á Samstöðu, en ýmislegt bendir til þess að leiðtogar hinna
óháðu vcrkalýssamtaka greini í vaxandi mæli á um hvernig haga skuli starf-
semi þeirra á meðan herlög eru í gildi
Samstöðumenn í Gdansk-skipa-
smíðastöðinni birtu í dag orðsend-
ingu, þar sem skorað var á menn
að forðast „mótmæli og aðgerðir
sem gætu orsakað ólgu“, en þessi
yfirlýsing stangast algjörlega á við
áskorun helztu leiðtoga hreyf-
ingarinnar um að hefja skyldi
skipulögð mótmæli, sem næðu há-
í landinu.
marki með fjöldaaðgerðum hinn
31. ágúst, en þá eru liðin tvö ár
síðan verkföllin miklu í skipa-
smíðastöðinni hófust.
í greininni i Trybuna Ludu er
því spáð að dagar Samstöðu verði
senn taldir, enda þótt öfgamenn í
hreyfingunni haldi áfram „fjand-
samlegaum aðgerðum" og virðist
enga lærdóma hafa dregið af setn-
ingu herlaganna sem hafi orðið til
að leysa upp hreyfinguna hinn 13.
desember sl. Blaðið segir að hver
svo sem verði endalok Samstöðu
beri nauðsyn til þess að koma á fót
öfftigum samtökum sem geti barizt
fyrir og varið hagsmuni verkalýðs-
ins, en slík samtök verða því að-
eins raunhæf ef þau viðurkpnni
forystuhlutverk kommúnista-
flokksins.