Morgunblaðið - 04.08.1982, Page 17

Morgunblaðið - 04.08.1982, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982 17 Flokkurinn sem kom úr Hjálparsveit skáta í Hafnarflrði til leitar, þeir Bjarni Sigurðsson, Sumarliði Guðbjörnsson, Sigurður Gunnarsson og stolt þeirra hjálparsveitarmanna, Sámur. inn í álteppi og hellt upp í hann kaffi. Hresstist hann von bráðar og var fluttur í Borgarnes til læknis. Af þessu má sjá, að ekki mátti tæpara standa, þar sem þoka var enn uppi á Arnarvatnsheiði, og leitarskilyrði frekar slæm. Ekki var kostur að fljúga vegna þok- unnar. í mesta lagi að þyrian gæti athafnað sig þarna. Því má full- yrða það, að ef ekki hefði notið við sporhunds Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði, þá er óvíst hvort maðurinn hefði fundist á lífi. En því má þakka líka, að strax var haft samband við hjálparsveit- armenn, þar sem ekki var viðlit að leita vegna þoku og því eina úr- ræðið að fá sporhundinn til. í framhaldi af þessu var haft samband við Snorra Magnússon hundatemjara hjá Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði, og hann spurður um það, hvað fólk þyrfti helst að hafa í huga, þegar leita þyrfti til þeirra með að fá spor- hundinn. Hann sagði, að þeir þyrftu sem allra fyrst að fá að vita af því, að hugsanlega gæti komið til leitar. Hundarnir þyrftu hvíld á milli þess, sem þeir væru að leita. Það tæki dálítinn tíma fyrir þá að losna við lykt þá, sem þeir væru síðast með í hausnum. Hundarnir væru þjálfaðir annan hvern dag og því mikilvægt, að æf- ing væri felld niður, ef útkall kynni að vera á næstunni. Þá væri beði með að þjálfa þá þar til ljóst væri, hvort viðkomandi kæmi í leitirnar. Einnig væri mikilvægt, að sporhundur væri kallaður sem fyrst á vettvang, þar sem lyktin væri sterkust af nýjum sporum. Snorri Magnússon sagði einnig, að ekki mætti neinn koma við þau föt, sem viðkomandi ætti. Heldur væri best, að setja nærföt eða náttföt óþvegin í plastpoka með herðatré eða einhverju sem ekki væri komið við og binda fyrir pok- ann. Þannig fengi hundurinn lykt- ina sem óspilltasta og gæti byrjað að leita í framhaldi af því. Snorri sagði, að leitarstarf spor- hundanna færi mest fram í kyrr- þey, þar sem 90% útkalla kæmu hvergi fram í fjölmiðlum. Að með- altali væru 2 útköll í mánuði. Brýnasta verkefnið hjá þeim væri núna að byggja yfir hundana hús, sem stæði á bak við núver- andi hús Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði. Ekkert sérstakt hús væri til handa þeim, sem stæði. Jafnfram þyrfti hjálparsveitin að koma sér upp SSB-talstöð til að ná sambandi við Landsímann, en hún kostar um 60 þúsund. Væri mikið hagræði í þesskonar stöð, þar sem þá væri unnt að láta menn vita fyrr hvort viðkomandi hefði fund- ist. Eins að hafa samband frá leit- arstað til að afturkalla útkall, eins og vel hefði komið sér núna uppi á Arnarvatnsheiði, í stað þess að þurfa að aka á eftir þeim sem fór til byggða að kalla út, og stoppa það útkall. Mikilvægi hundanna hefði oft sannast, og væri þetta í annað skiptið á vikutíma, sem hundarnir hefðu fundið týndan mann. — pþ. Veðrið um verslunarmannahelgina: Hlýjast í innsveit- um norðanlands en góðviðri um land allt SAMKVÆMT upplýsingum VcAurstofunnar var góðviðri um land allt um verslunarmannahclgina. Hiti var víöast hvar í meðallagi eða þetta 10—14 stig. Mjög hlýtt var þó í innsveit- um norðanlands og komst hitinn upp í 21 stig á Akureyri á mánudag. Engin úrkoma mældist á landinu fyrr en aðfaranótt mánudags, en þá byrjaði að súlda upp við Suðausturland og segja má, að á mánudag hafi verið komið þungbúið veður alveg frá Austfjörðum og vestur fyrir Vestmannaeyj- ar, en annars staðar víða léttskýjað og hiti þetta sextán til sautján stig. Klukkan níu á þriðjudagsmorgun mældist hiti sextán stig á Akureyri og sextán stig á Þingvöllum. Búast má við áframhaldandi austanátt næsta sólarhring og tiltölulega góðu veðri suðvest- anlands og norðanlands, en áframhaldandi súld og þoku við suðvesturströndina og á sunnanverðum Austfjörðum. EF ÞAÐERFRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU 250 Wtmyndir Ov\y^° 250 litmyndir af blómstrandi plöntum og blaðgróðri. ít- arlegar upplýsingar um öll vinsælustu stofublómin og fjölmörg afbrigði þeirra. Hvaö getur verið að? Sérstakar litmyndir sýna hvað getur verið að plðntunum og gefin eru ráð til úrbóta. Haldgóðar leiðbeiningar eru gefnar um meðferð, umhirðu og kaup á plöntum og hvaö beri helst að varast. Höfundurinn, David Longman, er heimsþekktur blómamaður og er í stjórn Interflora. Þýðandinn Fríða Björnsdóttir, hefur í mörg ár skrifað vikulega blóma- þætti í heimilistímann. bssssb BkWl o* blom f jarir*A 0RI\l&0RLYCUR*umaa11 sími 84866 % b\6m*fanál msm mm feirri \tar\egar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.