Morgunblaðið - 04.08.1982, Side 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
\ '
VESTURGOTU 16 - SÍMA* 14630 - 21480
WIKA
Þrýstimælar
Allar stáerðir og gerðH<
5Öyif(lacuigj(ui(r
Vesturgötu 16, sími 13280
Á ferð með verslunarmönnum
Á undanfornum árum hcfur það
færst í vöxt, að íslenzkir verslunar-
menn hafi farið til útlanda i þeim
tilgangi að kynna sér framleiðslu-
hætti og skoða verksmiðjur. Síðan
hafa þeir snúið heim reynslunni rík-
ari og færari um að leiðbeina við-
skiptavinum hér heima um vörur
þær, sem á boðstólum eru.
I vor gekkst býzk-íslenska versl-
unarfélagið hf. fyrir kynnisferð til
nokkurra umbjóðenda sinna í Sví-
þjóð og Þýzkalandi. Þátttakendur
voru frá ýmsum íslenzkum fyrir-
taekjum, alls 23. Verksmiðjur
IFÖ-Sanitar í Svíþjóð og Meta-
bowerke og Hansgrohe í Þýzka-
landi voru sóttar heim. Þýzk-
íslenska hefur áður staðið fyrir
sams konar ferðum til Evrópu og
víðar, m.a. til Bandaríkjanna og
allt austur til Japans.
Blaðamaður slóst í förina til Sví-
þjóðar og Þýzkalands og komst að
raun um, að íslenzku þátttakend-
urnir höfðu í nógu að snúast. Þeir
voru í raun í hörkuvinnu frá
morgni til kvölds við að skoða
verksmiðjur, á námskeiðum og
kynningarfundum enda var dag-
skráin mjög ströng.
Fyrst var haldið til Svíþjóðar, í
verksmiðjur IFÖ við IFÖ-vatn á
Skáni. Þær eru í Bromölla, fimm
þúsund manna bæ skammt frá
Kristianstad.
Áhersla lögA á útlit og gæði
IFÖ-Sanitar leggur megin-
áherzlu á gæði, gott útlit og hag-
stætt verð, enda hafa verksmiðj-
urnar verið í fylkingarbrjósti um
langt skeið og brautryðjendur á
ýmsum sviðum. Til að mynda urðu
þeir einna fyrstir framleiðenda til
að láta listamenn hanna útlit
framleiðsluvara sinna. Á síðast-
liðnu ári nam innflutningur frá
IFÖ 47,5% af heildarinnflutningi
hreinlætistækja frá Svíþjóð til ís-
lands.
Næst var haldið til V-Þýska-
lands og verksmiðjur Metabo
skoðaðar, en þær eru í'Nurtingen,
skammt frá stórborginni Stutt-
gart. Fyrirtækið Metabowerke
sérhæfir sig algerlega í fram-
leiðslu rafmagnshandverkfæra og
er meðal stærstu framleiðenda í
heimi á því sviði.
Metabo-vélar á lægra verði
á íslandi en í Þýzkalandi
Metabo nýtur virðingar um all-
an heim fyrir góða framleiðslu og
á tiltölulega skömmum tíma hefur
merkið tekið forustu á markaði
hérlendis. Ótrúlegt en satt, þá eru
Metabo-verkfæri seld á lægra
verði á íslandi en í Þýzkalandi,
enda er verð þeirra hagstæðast
hér og á Italíu af löndum Evrópu.
Ástæðan er sú, að vörur þessar
eru tollfrjálsar hér á landi. „Meg-
inskýringar eru, að álagning er
skömmtuð og auk þess höfum við
náð mjög hagstæðu innkaups-
verði," sagði Ómar Kristjánssson,
forstjóri Þýzk-íslenska.
Hansgrohe notar
íslenzkt vatn til aö reyna
blöndunartæki sín
Eftir heimsóknina hjá Metabo
var haldið til Svartaskógar og
verksmiðjur Hans Grohe í Schilt-
ach skoðaðar. Framleiðsla er haf-
in á nýjum blöndunartækjum hjá
Hansgrohe og í undirbúnings-
prófunum sínum notaði fyrirtækið
íslenzkt vatn, bæði kalt vatn og
hitaveituvatn. „Ástæðan er
óhreinindi í kalda vatninu og
sandur, smásteinar og brenni-
steinn í hitaveituvatninu. Þetta
veldur erfiðleikum og miklu álagi
á tækin, og til að mynda hefur
iðulega komið fyrir að úðarar
stíflist. Hansgrohe hefur nú kom-
ið fram með nýtt efni, sem ekki
hefur viðloðun við brennistein og
hefur íslenzkt vatn verið notað í
tilraunum með þetta efni. Þessar
tilraunir hafa bæði farið fram
hérlendis og í Þýskalandi. Ef ný
hitaveita er tekin í notkun á ís-
landi, þá sendum við sýni út,“
sagði Ómar Kristjánsson.
H. Halls.
Bráöabirgðalög um sölu gamalla verkamannabústaöa:
Kaupskylda afnumin, en
forkaupsréttur í staðinn
„FORSETI íslands hefur gefið út
bráðabirgðalög að tillögu félags-
málaráðherra. Fjalla bráðabirgða-
lögin um húsnæðismál og eru gefin
út af brýnni nauösyn í samræmi við
28. gr. stjórnarskrárinnar. Breyt-
ingarnar varða einvörðungu eldri
íbúðir í verkamannabústöðum, þ.e.
íbúðir byggðar fyrir gildistöku nú-
gildandi laga nr. 51/1980, sem
tóku gildi 1. júlí 1980. Með lögun-
um er kaupskylda afnumin og for-
kaupsréttur ákveðinn i staðinn."
Frá þessu er skýrt í fréttatil-
kynningu, sem Morgunblaðinu
barst í gær frá Félagsmálaráðu-
neytinu. Þar segir ennfremur:
„Þar sem erfitt er að selja
íbúðir, er talið að jafnvel hafi
borið á misnotkun kaupskyld-
unnar. Hér er einkum um að
ræða staði utan Reykjavíkur-
svæðisins. Þar hefur verið unnt
að selja íbúðir í verkamannabú-
stöðum fyrir hærra verð og gegn
meiri útborgun en almennur
fasteignamarkaður í byggðarlag-
inu segir til um. Þá hafi kaup-
skyldan haft í för með sér fjár-
hagslegar kvaðir, sem ýmis sveit-
arfélög ráði ekki við. Með for-
kaupsrétti verður sveitarfélög-
um, er það vilja, hins vegar
tryggð full heimild til að kaupa
íbúðir, þegar þær eru boðnar til
sölu og þá við því verði sem al-
mennt tíðkast í byggðarlaginu.
Samband íslenskra sveitarfé-
laga hefur sótt fast á um það að
kaupskylda verði afnumin en for-
kaupsréttur látinn gilda. Álykt-
aði 36. fundur fulltrúaráðs sam-
bandsins sérstaklega um þetta
mál.
Meðákvæðum laganna um rétt
íbúðareiganda að verkamanna-
Lúxuswka-flMSTERDflM
Marriott, Hilton
Dvaliö á einum glæsilegustu hótelum Evrópu, Amsterdam Marriott, eöa Hilton. eöa í Ijómandi góöu fjölskylduhóteli á eftirsóttum staö
miósvæóis i Amsterdam
Efnt til fjölbreyttra skoóunarferóa um hina ævintýralegu Amsterdamborg. Siglingaferóir um borgarskuróina aö degi til og viö kertaljós á
kvöldin. Söfn og gimsteinaverksmiójur. Amsterdam er sælkeraborg. Feneyjar Noröur-Evrópu. Einnig flug og bfll.
8 dagar. Brottför alla föatudaga. Verð frá kr. 3.400,-.
Amatardam og Paría ásamt ökuferó um Holland, Frakkland og Belgiu 15 daga feröir kr. 8.450. Brottför alla föstudaga.
Pantió snemma því plássiö er takmarkaó
Aórar feröir okkar Grikkland — Aþenu-strendur alla þriójudaga. Franska Rivieran, flesta laugardaga. Landiö helga og Egyptaland, október
Brasilíuferöir, okt Malta laugardaga, Tenerife alla þriójudaga. Frítt fyrir börn.
/^ÍrtOUr (Flugferðir)
Aðalstræti 9, Miðbæjarmarkaðnum 2h.
Símar 10661 og 15331.
bústað, sem hann vill selja, til
aukinna verðbóta eftir 10 ára og
20 ára eignarhald, var leitast við
að finna sanngjarna verðbóta-
reglu, sem átti allvel við þegar
hún var sett á sjöunda áratugn-
um. Með vaxandi verðbólgu hefur
þessi regla valdið slíkum stökk-
breytingum á verðlagningunni
við umrædd tímamörk, að ekki
verður lengur við unað. Fólk
heldur að sér höndum með sölu
og bíður eftir því að ná 10 ára eða
20 ára eignarhaldstíma.
Því markmiði, að veita sann-
gjarnar verðbætur, er unnt að ná
á annan hátt með því að láta hin-
ar sérstöku verðbætur fara
smátt og smátt vaxandi (4% á
ári) með auknum eignarhalds-
tíma, en forðast snöggar breyt-
ingar. Þessi breyting mun örugg-
Iega auka framboðið af söluíbúð-
um, en á því er nú mikil þörf. Er
þetta önnur aðalbreyting bráða-
birgðalaganna.
Samkvæmt lögunum skal
reikna 1% fyrningu á ári þegar
íbúð í verkamannabústað er
keypt inn eða endurseld. í fram-
kvæmd hefur þessi regla reynst
of stíf. Nauðsynlegt er að taka
upp sveigjanlegri reglu þar sem
fyrning yrði sett 0,5% —1% á ári,
en þá ber matsmönnum að
ákveða fyrningu innan þessa
ramma. Bráðabirgðalögin gera
ráð fyrir þessari breytingu.
Með þessum breytingum á hús-
næðislögunum er endursölukerfi
verkamannabústaða í öruggari
farvegi en ella.“
Útvegum þessar heims-
þekktu pappírsskuröar-
vélar beint frá verk-
smiöju.
Jfe-jLr
Sö(yif1]a(ui§)(yiir
Vesturgötu 16, sími 13280
Hópurinn fyrir framan aðalstöðvar Hansgrohe í Schiltach í Þýskalandi. Fremri
röð talið frí vinstri: Agnar Kárason, Byko — Kópavogi, Björn Jónsson, Reyðar-
firði, Birgir Bernhöft og Sigríður Bernhöft, BB-byggingavörur Reykjavík, Hilmar
Friðriksson, Parma Hafnarfirði, Halldór Vilhjálmsson, Hornafirði, Sigurður
Sturluson, Keflavík, Birgir Pétursson, Málmi Hafnarfirði, Reynir Hjaltason,
Akureyri, Ómar Kristjánsson forstjóri. Aftari röð frá vinstri: Aer frá Hansgrohe,
Jón Steingrímsson, Reykjavík, Bárður Guðmundsson, Selfossi, Kristján Reim-
arson, ísafirði, Hörður Guðlaugsson, Byko — Kópavogi, Mikael Jóhannesson,
Akureyri, Pétur Pétursson, Sauðárkróki, Eggert Jónsson, Keflavík. Haukur
Ólafsson, Noðrfirði, Björn Sæmundsson, Vopnafirði, Sigurður Ágústsson, Egils-
stöðum, Hallur Hallsson, Morgunblaðinu, Sæmundur Bjarnason, Börgarnesi, og
Matthias Krebs útfiutningssölustjóri Hansgrohe.
Polar-Mohr
Borgarnesi og Pétur Pétursson frá Sauðár-
Þeir Sæmundur Bjarnason frá
króki reyna tæki Metabo.