Morgunblaðið - 04.08.1982, Qupperneq 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
Hringvegur-
inn opnaðist
á sunnudag
HRINGVEGURINN var opnad-
ur a ný á sunnudai', samkvKmt
upplýsingum sem Morgunblaðiö
(ekk hjá Jóni Birgi Jónssyni yfir-
verkrræðingi hjá Vegagerðinni,
en Austurlandsvegur skemmdist
í vatnavöxtunum á dögunum frá
Kvíá að Skartafellsá, svo sem
kunnugt er.
Enn er unnið að frambúð-
arviðgerð vegarins, en fyrst
miðaðist viðgerðin við það að
koma umferð á að nýju. Jón
Birgir sagði að ekki væri enn
ljóst hve mikið viðgerðin kost-
aði, en það lægi að líkindum
ljóst fyrir undir helgina.
Þokkalegar
sölur í Hull
og Grimsby
l>KJ(I íslensk skip seldu afla á
mörkuðunum í llull og (írimsby
í gær og fyrradag og fengu öll
þokkalegt verð fyrir aflann.
Gaukur GK seldi 58,3 tonn í
Grimsby á mánudag fyrir
589,3 þúsund krónur og var
meðalverð á kíló krónur 10,12.
Sama daga seldi Helga Jó. 49,1
tonn í Hull fyrir 926,5 þúsund
krónur og þar var meðalverð á
kíló kr. 10,73.
Skuttogarinn Vestmannaey
seldi síðan 141,3 tonn í Hull í
gærmorgun fyrir 1.689,9 þús.
kr. og meðalverð á kíló var kr.
11,96.
Skartgrip-
um stolið
HKOTIST var inn í íbúð við
Kjólugötu um helgina og stolið
þaðan skartgripum, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá Kannsóknarlögreglu
ríkisins.
Tilkynnt var um innbrotið
um klukkan 17 á sunnudag.
Var mikið rótað í íbúðinni og
talsverðar skemmdir unnar.
Málið er í rannsókn, og er
óupplýst.
I>jóðhátíó Vestmannaeyja verður
haldin um næstu helgi, en hátiðin
er löngu landskunn fyrir sérstöðu
sína en heill bær ris í litlum dal,
Ijósum skrýddur, með sérstakri
þjóðhátíðarbrennu, flugelda-
sýningu og fjölbreyttri skemmti-
dagskrá fyrir unga sem aldna. Há-
tíðin í ár bregst ekki að þessu
leyti. Gert er ráð fyrir 60 atriða
skemmtidagskrá, þar sem lögð er
áhersla á að hafa eitthvað fyrir
alla, að margt smátt geri eitt
stórt, svo að allir skemmti sér vel,
að sögn þjóðhátíðarnefndarinnar
sem sér um undirbúning hátíðar-
innar.
Að þessu sinni verður lögð
áhersla á að byggja dagskrána upp á
kröftum heimamanna og hafa
margir eldri Eyjamenn verið ræstir
út af því tilefni og þeirri málaleitan
verið vel tekið. Þá mun annað veit-
ingatjaldið vera upp á gamla móð-
inn, með dekkuðum borðum, kaffi,
kleinum, jólakökum og fleiru, en það
Séð yfir hátíöarsvæðið í Herjólfsdal.
LjÓHmjnd Mbl. KÖE.
Þjóðhátíðin í Eyj-
um verður um næstu helgi
er Kirkjukór Vestmannaeyja sem
sér um rekstur tjaldsins. Blaða-
mönnum var boðiö til Eyja í síðustu
viku til að kynna sér undirbúning
hátíðarinnar.
Byrjað var á að fara út í Herj-
ólfsdal, þar sem hátíðarsvæðið var
skoðað og kynnt það helsta sem þar
átti að gerast. Herjólfsdalur er,
fyrir þá sem ekki hafa séð hann,
nær því að vera kvos inn á milli
hárra slútandi fjallanna, en að vera
raunverulegur dalur. En hann er
mjög tignarlegur með fjöllin svona
gnæfandi yfir. Það er alls ekki
ótrúlegt, það sem sagt var um að
stangarstökkvurum gengi vel að
setja met í Herjólfsdal, vegna
bakgrunnsins.
A þjóðhátíð flytja Eyjamenn sig
úr bænum og inn í dalinn og búa þar
í þá þrjá daga sem þjóðhátíðin
stendur yfir, eins og allir vita sem
einhverja nasasjón hafa af þjóðhá-
tíðarhöldum Eyjaskeggja. Þá rísa
hvít stór tjöld í dalnum, sem búið er
í meðan á hátíðinni stendur. Þau
eru sérkennileg í útliti, 9—12 fer-
metrar að stærð og strengd á grind,
sem gefur þeim þetta útlit, að þau
séu lítil hús, matador-hús eins og
það var orðað. Alltaf hvít. Tjöldin
rísa við beinar götur, sem allar bera
ákveðin nöfn, eins og til dæmis Ást-
arbraut, Veltusund, eða nöfn gatna í
eyjum sem hurfu undir hraun, eins
og til dæmis Landagata og Urðar-
vegur. Á þjóðhátíð er því eins og
risið sé nýtt þorp í Eyjum í dalnum,
alla vega var sú reynsla undirritaðs,
þegar hann ungur að árum upplifði
þjóðhátíð og það að heimsækja vini
og kunningja í fjölskyldutjöldin og
þitíRja góðgerðir, þótt undirritaður
væri þá of ungur til að þiggja allt
sem þar var á boðstólum.
Hvað um það, á þjóðhátíðinni
verður mikið um dýrðir, eins og
undanfarin ár, sögðu þeir okkur þeir
mætu menn sem í þjóðhátíðar-
nefndinni hafa starfað, þegar þeir
sýndu okkur hátíðarsvæðið í Herj-
ólfsdal. Við gengum upp að ræðu-
púltinu, þar sem hátíðin verður sett,
en það er stór steinhnullungur, sem
settur var upp í fyrra vegna þess að
menn gáfust upp á því að endurreisa
púltin á hverju ári. Þar sér yfir há-
tíðarsvæðið og okkur var bent á það
helsta. Það var búið að reisa brúna
yfir tjörnina, sem er merki Þórs, því
það er Þór sem heldur hátíðina
þetta árið, en eins og kunnugt er
skiptast íþróttafélögin í Eyjum á
um að standa fyrir hátíðarhöldun-
um. Þá mátti sjá gamla burstabæ-
inn, þar sem veitingar eru seldar, og
danspallana, fyrir gömlu og nýju
dansana. Fjósakletturinn, þar sem
brennan verður, gnæfir yfir svæðið,
en brennan er einn hefðbundinn
þáttur hátíðarhaldanna, og það eng-
in smá brenna, á stærð við þriggja
hæða hús er okkur sagt. Samræð-
urnar beinast aö því hvernig safnað
er til brennunnar og okkur eru sagð-
ar nokkrar sögur í tilefni af því, um
sára reynslu sumra í þeim efnum.
Það er einmitt ein af minningum
undirritaðs; um menn á vörubílum
sem fóru um bæinn eins og eldur í
sinu og hirtu allt sem hönd á festi.
Að venju verður flugeldasýning,
sem ekkert hefur verið til sparað að
verði sem tilkomumest, því verslað
verður við sama fyrirtæki og sér
Tívolí í Kaupmannahöfn fyrir hrá-
efni. Þá verður bjargsig að venju og
Fiskhellarnir klifnir. Strengdur
verður strengur þvert yfir dalinn,
með ljósaskreytingu, sem gert er
ráð fyrir að 12—1400 perur þurfi í.
Þetta er einungis fátt eitt af því,
sem til skemmtunar verður á þjóð-
hátíðinni, samkvæmt þeim drögum
að dagskrá sem okkur voru afhent,
að lokinni skoðunarferðinni um há-
tíðarsvæðið í Herjólfsdal, en þá var
farið inní bæinn, þar sem þjóðhátíð-
arnefndin bauð blaðamönnum til
hádegisverðar. í ljós kom að þrjár
hljómsveitir hafa verið fengnar til
að sjá um danstónlistina á hátíð-
inni, en ýmsir aðrir munu taka lagið
og láta í sér heyra. Þá verða íþrótta-
viðburðir og skemmtiatriði ólíkustu
tegundar, en það má segja að um
samfellda dagskrá sé að ræða, frá
því hátíðin er sett klukkan 14.00 á
föstudaginn og þangað til henni er
slitið, nema yfir blánóttina. Einkan-
lega á þetta við um föstudaginn og
laugardaginn, en heldur hægist um
á sunnudeginum, enda þá farið að
líða að lokum þjóðhátíðar. en henni
lýkur á sunnudagskvöldinu.
í tilefni af þjóðhátíðinni er gefið
út sérstakt þjóðhátíðarblað. Það
verður 80 síður að stærð að þessu
sinni, með efni úr sögu eyjanna og
um ýmislegt sem snertir Eyjamenn
sérstaklega. Ritstjórn blaðsins ann-
ast Árni Johnsen, en hann er einnig
þjóðhátíðarþulur. Þá var að venju
haldin samkeppni um þjóðhátíðar-
lag. 12 tillögur bárust, en það lag,
sem var valið, heitir „Það er hátíð í
Herjólfsdal" og er eftir Sigurjón
Ingólfsson og Snorra Jónsson. Fugl
hátíðarinnar núna er rita, en sú
venja hefur skapast, þegar Þór held-
ur hátíðina, að velja sérstakan fugl
sem einkennisfugl hennar.
Eins og áður sagði, skiptast
íþróttafélögin í Eyjum á um að
standa fyrir þjóðhátíðinni, og hefur
hátíðin með tímanum orðið ríkur
þáttur í því hvernig þau fjármagna
starfsemi sína. Aðgangseyri á hátíð-
ina er mjög, stillt í hóf, að sögn for-
ráðamanna hennar, miðað við fjölda
þeirra skemmtiatriða sem boðið er
upp á. Hann er 500 krónur á alla
hátíðina og hækkar hann aðeins um
eitt hundrað krónur frá því í fyrra,
sem er töluvert minna en verðbólg-
an hefur verið á sama tíma. Þessari
kostnaðarlækkun er náð fram með
auknu starfi sjálfboðaliða, sem og
minni skattheimtu ríkisins. Flug-
leiðir og Herjólfur verða með ferðir
milli Eyja og lands, Herjólfur tvisv-
ar á dag og flogið verður eins og
þurfa þykir.
Húsgagnaland er nú flutt
úr Síðumúla 2 og mun
\ framvegis verða til húsa
r f Skeifunni 6 undir sama
* þaki og Stálhúsgagna-
gerð Steinars.
f Húsgagnalandi færðu
eftir sem áður stálslegin
stálhúsgögn í miklu
úrvali, s.s. skrifstofu-
og eldhúshúsgögn, borð
og stóla fyrir samkomu-
hús, skólahúsgögn
o.m.fl.
Við látum heyra betur
frá okkur þegar sýning-
araðstaðan verður full-
frágengin.