Morgunblaðið - 04.12.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1982
21
Jólabasar
Hringsins
í Hafnarfiröi
Kvenfélagið Hringurinn í Hafn-
arfirði heldur sinn árlega basar í
Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu,
sunnudaginn 5. septembe kl. 14.00
e.h. Þar verða margir eiguiegir
munir til sölu, prjónaðir jólasvein-
ar í tugataii, allskonar jólavarn-
ingur og kökur, svo og laufabrauð.
Hringskonur hafa unnið að þessu
öll fimmtudagskvöld í vetur og
ætla að lokum að baka laufabrauð
sem marga fýsir að kaupa á bas-
arnum.
Aðventufagnadur
Stjórn GERMANÍU hefur
ákveðið að taka upp þá nýbreytni
að efna til aðventufagnaðar annan
sunnudag í aðventu 5. des. nk. kl.
16—18 í hliðarsal Hótel Sögu,
gengið inn um hóteldyr. Þar verð-
ur ódýrt púns og piparkökur á
boðstólum. Margir sakna aðventu-
blæsins frá Þýskalandi. Nú er
tækifærið. Hittumst öll fyrir jólin
með gestum. Gerum aðventufagn-
aðinn að skemmtilegum atburði í
góðra vina hópi. Stjórnin.
TJöfóar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
Viö erum starfsfólk hins nýja
útibús lönaöarbankans í Garða-
bæ. Þar veitum við alla almenna
bankaþjónustu í sambandi viö
innlán, útlán og innheimtu.
Ráðgjöf fyrir þá sem ætla aö
ávaxta fé sitt, - og um IB-lánin
vinsælu sem alltaf eru í sam-
ræmi viö kröfurtímans.
Viö bjóöum alla Garöbæinga vel-
komna í nýja Iðnaðarbankann, til
að skoöa staðinn og reyna við-
skiptin.
Iðnaðarbankinn
Garðabæ, sími: 46800
THDMSONt'i
Kærkomin nýjung á Islandi:
THOMSQN
myndbandatæki - litsjónvörp
THDMSDN —TAKMARK HINNA VANDLÁTU
thdmson er eitt virtasta fyrirtæki heims á sviöi
öreinda- ratsjár- og tölvustjórnunartækni.
thoivisom er fyrirtæki sem treyst er fyrir flóknum
og hávísindalegum verkefnum þar sem engu
má skeika í tæknilegri nákvæmni.
thomsoim er fyrirtæki sem ávallt nýtir til fulls
þa tækni sem best reynist hverju sinni
og notar því jVHS myndbandakerfi.
Þaö er því ekki aö ástæöulausu aÖTHOMSOiM sjonvörp
og myndbandatæki hafa vakiö heimsathygli tyrir
tæknilega yfirburöi, fjölbreytm og fallega hönnun.
RAFBÚÐ
SAMBANDSINS
Armula 3-Simi 38900