Morgunblaðið - 04.12.1982, Side 48
y\skriftar-
síminn er 830 33
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1982
Geir Hallgrímsson á flokksráðsfundi í gær:
Reiðubúinn að skipa sjöunda
sætið og berjast til sigurs
— Mun einbeita mér að því að
Sjálfstæðisflokkurinn gangi
sameinaður til næstu kosninga
GEIR Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir í ræðu við
upphaf flokksráðs- og formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins í gær, að
• hann væri reiðubúinn að skipa sjöunda sætið á framhoðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík við næstu alþingiskosningar.
• Að hann myndi leiða kosningabaráttu flokksins úr því sæti.
• Að hann vildi stuðla að því, að flokkurinn tæki ákvörðun um framtíð sína
og forystu í rólegu andrúmslofti að kosningum afstöðnum, þegar
ágreiningur stjórnarsinna og stjórnarandstöðu væri úr sögunni.
fækkun kjördæmakjörinna þing-
manna um einn í hverju kjör-
dæmi, en síðan verði þeim sætum
sem þannig losna úthlutað eftir
atkvæðatölu, en þriðji uppbótar-
maður hvers lista komi inn eftir
prósentuhlutfalli. Það er álit
nefndarinnar að með þessari leið
megi draga verulega úr misvægi
eftir búsetu, miðað við óbreyttan
þingmannafjölda. Þar sem þriðji
uppbótarmaður hvers lista kemur
inn á hlutfalli er sá möguleiki
fyrir hendi að Iitlir flokkar fái
uppbótarmann úr fámenniskjör-
dæmunum, og hægt er að tryggja
að a.m.k. hvert kjördæmi hljóti
uppbótarsæti, en þannig yrði
fjöldi þingmanna úr hverju kjör-
dæmi í engu tilviki minni en nú
eru kjördæmakosnir. Miðað við
óbreyttar úthlutunarreglur upp-
bótarsæta mundi þetta fyrirkomu-
lag þýða að þingmenn Reykjavík-
ur yrðu 19 og þingmenn Reykja-
ness 10, og þingmannafjöldi
beggja kjördæma því 29 af 60.
Annar möguleiki, sem mikið
hefur verið til umfjöllunar, er að
fjölga þingmönnum í 63, þannig að
uppbótarþingmönnum yrði fjölgað
um þrjá. Uthlutun uppbótarsæta
yrði eftir atkvæðatölu nema hvað
þriðji uppbótarmaður hvers lista
kæmi inn á hlutfalli. Miöað við
þetta fyrirkomuiag fengi Reykja-
vík væntanlega 20 þingmenn og
Reykjanes 11, en samkvæmt út-
reikningum stjórnarskrárnefnd-
arinnar kæmi þetta fyrirkomulag
verr út fyrir þéttbýlissvæðið en
það fyrirkomulag sem á undan er
nefnt.
Flugleiðir:
Ferskfisk-
flutningar til
Frakklands
Kersfiskflutningar Flugleiða hafa
aukizt verulega á síðustu misserum,
en aðallega hefur verið um að ræða
flutning á ferskum fiski frá íslandi
til Bandaríkjanna. Flugleiðir hafa nú
hafið flutning á ferskum fiski fyrir
íslenzku umboðssöluna til Frakk-
lands og var fyrsta ferðin farin í vik-
unni, að sögn Sæmundar Guðvins-
sonar, fréttafulltrúa Flugleiða.
„Það er síðan stefnt að því, að
fljúga aðra ferð til Frakklands í
næstu viku, en ekki er ljóst ennþá
með framhaldið," sagði Sæmund-
ur ennfremur.
Sæmundur Guðvinsson sagði
ennfremur, að flug félagsins með
ferskan fisk til Bandaríkjanna
gengi mjög vel, en það er aðallega
fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. Farmar hafa verið með vél-
um félagsins vestur um haf í
hverri viku og stundum oftar.
í ræðu sinni sagði Geir Hall-
grímsson, að úrslit prófkjörs
sjálfstæðismanna í Reykjavík um
síðustu helgi hefðu orðið áfall
fyrir sig og hlytu að hafa áhrif á
stöðu hans og skilyrði til þess að
gegna skyldum formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Hann kvaðst hafa staðið
frammi fyrir tvíþættu vali í kjölf-
ar prófkjörsins: Annars vegar að
standa upp af framboðslistanum
og verða ekki í framboði í næstu
kosningum og kalla jafnframt
saman landsfund til þess að kjósa
nýja forystu.
Hins vegar að taka sæti á fram-
boðslistanum, berjast fyrir því að
ná kjöri úr því sæti og gegna
áfram formennsku í Sjálfstæðis-
flokknum.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
kvaðst hafa fengið hollráð frá fjöl-
mörgum aðilum er hann hefði
staðið frammi fyrir þessu vali, og
þau mæti hann mikils. Geir Hall-
grímsson sagði það ekkert laun-
STJÓRNARSKRARNEFND hefur lokið við endurskóðun kjördæmamálsins
og sent formönnum þingflokkanna skýrslu um leiðir og valkosti, sem nefnd-
in telur bezta að þeim tveimur markmiðum, sem henni voru sett í upphafi,
þ.e. að lagfæra misvægi atkvæða milli kjördæma og misvægi milli flokka.
Tillögur nefndarinnar eru nú til meðferðar hjá þingflokkunum, sem taka
munu ákvörðun í málinu.
„Þetta er ánægjulegur áfangi,
og ég held að svona ýtarleg úttekt,
svona miklar upplýsingar, eins og
fram koma í skýrslunni, auðveldi
flokkunum að ná saman. Og ég
vona að samkomulag sé á næsta
leiti og að þetta framlag nefndar-
innar muni auðvelda það,“ sagði
Gunnar G. Schram, ráðgjafi
stjórnarskrárnefndar, í samtali
við Mbl. í gær.
Tillögur nefndarinnar byggja
ýmist á óbreyttri þingmannatölu
eða fjölgun þingmanna frá þrem-
ur og upp í níu. I báðum tilvikum
hefur svo verið reiknað út hvernig
vægi eftir búsetu eða atkvæða-
magni breytist eftir fjölda kjör-
dæmakjörinna þingmanna og
breytingum á úthlutun uppbótar-
sæta.
Þannig er að finna tillögu um
Happdrætti Háskóla íslands 1983:
Hæsti vinningur 4,5 millj.
HAPPDRÆTTI Háskóla íslands
hefur gefið út vinningaskrá sína
fyrir næsta ár, 1983, en samkvæmt
hcnni mun happdrættið greiða vinn-
ingshöfum tæplega 277 milljónir
króna. Hækkunin nemur um tveim-
ur þriðju af vinningsupphæð fyrra
árs. í vinningaskránni segir, að
happdrættið bjóði hæstu vinninga
hérlendis og á næsta ári verði hægt
að vinna 4,5 milljónir króna á eitt
númer.
Vinningar í happdrættinu á
næsta ári verða 135.000, en þess
má geta að Happdrætti Háskóla
Islands greiðir um 70% veltunnar
í vinninga.
í boði eru níu 500.000 króna
vinningar og eigi viðkomandi ní-
faldan trompmiða getur hann
unnið 4,5 milljónir króna eins og
áður sagði. Síðan eru níu 100.000
króna vinningar, níu 50.000 króna
vinningar, 198 vinningar að upp-
hæð 30.000 krónur, 2.700 vinn-
ingar að upphæð 10.000 krónur
hver, 28.305 vinningar að upphæð
2.000 krónur og 103.320 vinningar
að upphæð 1.250 krónur. Síðan eru
450 vinningar að upphæð 5.000
krónur.
Hagnaðinum af happdrættinu
er varið til eflingar Háskóla ís-
lands. „Nú kreppir alvarlega að í
húsnæðismálum og erfitt er að
fullnægja þörfum þeirra sem hafa
aflað sér réttinda til framhalds-
náms,“ segir í vinningaskrá happ-
drættisins.
ungarmál, að hann hefði ekki talið
það eftirsóknarvert persónulega
að gegna formennsku í Sjálfstæð-
isflokknum hin síðari ár, en að-
stæður í flokknum hefðu verið
með þeim hætti, að hann hefði tal-
ið það skyldu sína að gefa áfram
kost á sér til endurkjörs. Hann
kvað sér metnaðarmál að skilja
við Sjálfstæðisflokkinn sterkan og
samhentan. Þess vegna hefði hann
tekið þá ákvörðun sem að framan
greinir. Geir Hallgrímsson kvaðst
mundu einbeita sér að því, að
Sjálfstæðisflokkurinn gæti gengið
óklofinn og sameinaður til næstu
kosninga.
Sjá rædu Geirs Hallgrímssonar
í heild á miðopnu. Frá flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem hófst á Hótel Sögu í gær.
Morgunblaðið/ Ól.K. Mag.
Stjórnarskrárnefnd skilar tillögum 1 kjördæmamálinu:
Byggja á óbreyttri þingmannatölu
eða fjölgun þingmanna um 3 til 9