Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR
280. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaösins
350 farast í jarð-
skjálfta í N-Yemen
Manama, Bahrain, 13. desember. AP.
STJÓRNVÖLD í Norður-Yemen
hafa hafið miklar aðgerðir til björg-
unar fjölda fólks sem lokaðist inni i
heimkynnum sínum af völdum
meiriháttar jarðskjálfta í landinu í
dag. Talið er að um 350 manns hafi
látizt í jarðskjálftanum og mikið
eignatjón varð þegar fjöldi þorpa
jafnaðist við jörðu. Jarðskjálftinn,
sem stóð í 40 sekúndur, var svo
kraftmikill að sprunga myndaðist í
fjalli í nágrenni við höfuðborgina
Sanaa. Forseti landsins hefur hvatt
alla þegna landsins til að hjálpa
hundruðum slasaðra.
Bæjarstjórnarkosningar í Portúgal:
Stjórn Balsemaos situr
áfram þrátt fyrir tap
Lissabon, 13. desember. AP.
PINTO Balsemao, forsætisráðherra
Portúgals, sagði í dag að stjórn sín
myndi sitja áfram þrátt fyrir að
stjórnarflokkarnir hefðu tapað fylgi i
bæjarstjórnakosningum. Balsemao
viðurkenndi að tap stjórnarflokkanna
væru sér vonbrigði en hins vegar
breyttu þau engu um stöðu ríkis-
stjórnarinnar sem hefði þingmeiri-
hluta að baki sér.
Mario Soares, leiðtogi jafnað-
armanna sem sitja í stjórnarand-
stöðu, sagði að úrslitin væru van-
traust á ríkisstjórnina og henni
bæri að fara frá. Flokkur Soaresar
bætti við sig umtalsverðu fylgi og
fékk rúm 30% atkvæða að því er
nýjustu spár bentu til í kvöld.
Stjórnarflokkunum var hins vegar
spáð tæplega 45% atkvæða. Búizt
var við því að kommúnistaflokkur-
inn fengi um 20% atkvæða.
Þessar kosningar eru hinar
fyrstu sem fram fara í Portúgal frá
því Balsemao tók við völdum við
Enn barizt
í Líbanon
Beirút, 13. desember. AP.
BARDAGAR mögnuðust í dag milli
kristinna hægri manna í Líbanon og
vinstri sinnaðra múhameðstrúar-
manna, drúza, í nánd við Beirút. Tal-
ið er að 29 hafi látið lífið í bardögun-
um og 62 særzt. Rúmlega 130 hafa
látizt i bardögum þessara aðila und-
anfarnar sex vikur.
fráfall Sa Carneiros í desember
1980. Ekki er gert ráð fyrir þing-
kosningum í Portúgal fyrr en á ár-
inu 1984.
Jaruzelski hershöfðingi hlýðir á ræðu Jablonskis forseta Póllands við setningu pólska þingsins í gær. (Símamynd ap.»
„Yfirlýsing Jaruzelskis
á aðblekkjaVesturlönd“
Varsjá, Kaupmannahöfn. 13. desember. AP.
LEIÐTOGAR SAMSTÖÐU, samtaka hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Pól-
landi, sögðu í dag, að yfirlýsingar pólsku stjórnarinnar um að slakað yrði á
herlögunum í landinu væru einungis ætlaðar til að slá ryki í augun á fólki á
Vesturlöndum.
Bogdan Lis, einn af framá-
mönnum í Samstöðu í Gdansk,
sagði í viðtali sem útvarpað var á
laun, að fyrir yfirvöldum vekti
eingöngu að fá stjórnir Vestur-
landa til að draga úr efnahagsleg-
um refsiaðgerðum gegn Póllandi
og auðvelda landinu að fá ný er-
lend lán. Lis sagði, að enda þótt
hluta herlaganna yrði að formi til
aflétt, hefðu stjórnvöld náð því
markmiði sínu að banna Sam-
stöðu.
Jaruzelski hershöfðingi, leiðtogi
Póllands, tilkynnti í ræðu i gær,
að herlögum í landinu yrði að
mestu aflétt um áramót. Jafn-
framt yrði ýmsum pólitískum
föngum, sem lítið hefðu af sér
brotið, veitt uppgjöf saka. Hins
vegar yrði við haldið ýmsum ráð-
stöfunum, sem ætlað væri að
tryggja innra öryggi landsins og
hið sósíalíska hagkerfi þess.
Jaruzelski sagði, að pólska þjóð-
in væri komin yfir það versta. Síð-
asta ár hefði verið Pólverjum erfið
prófraun sem þeir hefðu staðist.
Hins vegar lægju óvinir enn í
leyni, innra sem ytra.
Pólska þingið, sem kom saman
til funda í dag, mun á laugardag
fá til lokaafgreiðslu ákvarðanir
stjórnarinnar um þá þætti herlag-
anna, sem fella á úr gildi. í dag er
ár liðið frá því herinn tók völdin í
Póllandi og herlög voru sett.
Margt þykir benda til að Lech
Walesa, leiðtogi Samstöðu, muni í
vikunni fara opinberlega gegn
stjórninni í Póllandi og boða til
útifundar í Gdansk til að minnast
verkamanna, sem létust í mót-
mælaaðgerðum fyrir 12 árum.
Urban, upplýsingamálaráðherra
pólsku stjórnarinnar, sagðist í dag
ekki hafa fengið neina umsókn um
heimild til að halda útifund í
Gdansk ogslíkri umsókn yrði ekki
vel tekið.
Tveir fyrrum leiðtogar Sam-
stöðu, sem nú eru búsettir í Kaup-
mannahöfn, sögðu í dag, að hin
frjálsa verkalýðshreyfing mundi
halda áfram að dafna í Póllandi og
grafa undan einræðisstjórninni
Pólland:
Refsiaðgerðum Banda-
ríkjanna ekki aflétt
Róm, 13. desember. AP.
GEORGE Shultz utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem nú er
Umfangsmikil rannsókn á Ítalíu:
Búlgaría bendluð við tilræðið við
páfa og ýmsa hryðjuverkastarfsemi
Róm, 13. desember. AP.
ÍTÖI.SK YFIRVÖLD vinna nú kappsamlega að því að upplýsa dularfull
tengsl glæpamanna á Ítalíu við Búlgaríu. Ýmislegt þykir benda til þess að
þeir sem hugðust myrða Jóhannes Pál páfa II í maí í fyrra hafi tengst
útsendurum Búlgariustjórnar og sama er að segja um ræningja banda-
ríska hershöfðingjans Dozier. Heimildarmenn herma, að umfangsmikið
eiturlyfja- og vopnasmygl tengist þessu máli.
Stjórnmálasamband Italíu og
Búlgaríu hefur mjög versnað
undanfarið í kjölfar þess að
rannsókn á máli þessu hófst og
hafa ríkisstjórnir beggja land-
anna kvatt heim sendiherra
sína. Hin opinbera fréttastofa í
Búlgaríu hefur lýst því yfir, að
allt tal um tengsl Búlgaríu við
glæpi á Italíu sé „óvinveitt og út
í hött“.
Tveir ítalskir dómarar, sem
fara með rannsókn þeirra mála,
sem hér um ræðir, komu saman í
borginni Trento í dag til að sam-
ræma rannsókn málanna. ítalsk-
ir stjórnmálamenn lýstu í dag
hver af öðrum yfir hneykslun
sinni og undrun yfir fréttum um
að Búlgaríustjórn skuli skipu-
lega og fyrir milligöngu hryðju-
verkamanna hafa unnið að því
að grafa undan stjórnarfarinu í
landinu.
Dozier hershofOingi Jóhannes !,íll II
Tyrki nokkur, sem handtekinn
hefur verið vegna smygls á vopn-
um og eiturlyfjum, hefur stað-
hæft að smyglinu tengist Tyrkir
og Búlgarar og hefur hann boð-
ist til að gefa upp nöfn þeirra
sem við málið eru riðnir.
Þá hefur verið upplýst, að ítal-
inn Luigi Scricciolo, sem lengi
starfaði fyrir verkalýðsfélög á
Ítalíu og var handtekinn nýlega
fyrir njósnir og hryðjuverka-
starfsemi, hefur njósnað fyrir
Búlgaríustjórn í sex ár.
Ríkisstjórn Amintore Fanfan-
is, sem nýlega tók við völdum á
Ítalíu, hefur ákveðið að fram
skuli fara umræður í ítalska
þinginu nk. mánudag.
Einn af leiðtogum kristilegra
demókrata í þinginu, Erminio
Pennacchini, segir í blaðagrein
um helgina, að morðtilraunin á
páfa, ránið á Dozier hershöfð-
ingja og fleiri atburðir af sama
toga eigi rætur að rekja til
ákvarðana sem teknar hafi verið
í æðstu stjórnum annarra landa.
staddur í Róm, sagði í kvöld, að
frá refsiaðgerðum Bandaríkja-
stjórnar gegn pólsku stjórninni
yrði ekki fallið í bráð þrátt fyrir
yfirlýsingar um að herlögum í
Póllandi yrði í meginatriðum af-
létt um áramót.
Shultz sagði á fundi með
fréttamönnum í Róm að ekkert
marktækt hefði enn heyrzt eða
sézt frá pólskum yfirvöldum
vegna þessa máls, sem gerði
það að verkum að Bandaríkja-
stjórn sæi ástæðu til að gera
breytingu á stefnu sinni gagn-
vart Póllandi.
Shultz upplýsti að hann
hefði rætt ástandið í Póllandi
við Jóhannes Pál 2. páfa og
hefðu þeir skipzt á skoðunum
um málið.
Þegar Bandaríkjamenn
ákváðu að beita Pólverja refsi-
aðgerðum fyrir ári voru sett
þrjú skilyrði fyrir því að frá
aðgerðunum yrði fallið. Sleppa
yrði öllum pólitískum föngum í
landinu, aflétta herlögunum og
taka upp raunhæfar viðræður
við kaþólsku kirkjuna í landinu
og verkalýðsfélögin.