Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 17
MORtíUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
17
Jones færa okkur að málverkum
viktoríanska meistarans. Ég ætla
ekki að reyna að kanna orðræður
Kjarvals hér, en ég verð að gefa
lesandanum góðan hluta úr sam-
tali til að glíma við af eigin ramm-
leik. Eftirtektarvert dæmi af
hugflæði Kjarvals, stíl og snúnum
vísdómi, kom upp á yfirborðið
þegar Matthías spyr hann um ljóð,
en meistarinn er greinilega hrif-
inn af þeim, og um listina: „Hvort
heldurðu að þú sért meira ljóð-
skáld eða málari?“ Og gamli
meistarinn svarar eftirfarandi
orðum:
„Þetta litla sem ég yrki er in-
spírerað frá málverkinu. Þegar ég
kem heim finn ég að ég á afgang,
og svo á ég eitthvað gaman í mér
lika, þó það sé klaki í náttúrunni
og fólk láti hann ráða. Hugsaðu
þér bara íþróttamennina. Maður
eins og ég er undanþeginn þessu,
því ég get ekki synt á hvalvöðu og
sett á þá beizli eða utanborðsmót-
or. Þeir leika sér ekki nóg að hvöl-
unum, en þetta er í listinni. Þetta
er alltof billegt hjá þeim, alltof
alvarlegt. Þeir eiga að komast í
samband við aðrar verur. Hugsaðu
þér hvað lífið yrði miklu skemmti-
legra, ef þeir settu beizli á
grindhvalina, þetta er til í listinni.
Þegar þeir þurftu að frðast í
gamla daga, fóru þeir upp í hval-
ina, það var leikur í þessu hjá
þeim, einhver trúnaður þarna.
Hvers vegna er öll þessi grimmd
gegn smáhvölum sem af einhverri
fýsiskri nauðsyn þurfa að komast
á grynnra vatn? Þeir koma að
heimsækja okkur og við tökum á
móti þeim, eins og það hafi aldrei
verið til nein menning. Það kalla
ég að tapa skóla, þegar menn sjá
ekki í gegnum fingur við aðrar
tegundir í dýraríkinu. Það ætti að
vera sport hjá sumum íþrótta-
mönnum að setja á hvalina beizli
og flotholt og svo gætu þeir fengið
sér í soðið. Hvers vegna alltaf að
flýja til frummannsins í sjálfum
sér, óskaplegt. Þeir mega vara sig
á þessu, klakinn getur bráðnað og
hvar standa þeir þá.“ (bls. 22.)
Burne-Jones hefði ekki sagt
þetta alveg á þennan hátt, en hann
bjó einnig yfir visku og mann-
kærleika og það var einnig leikur í
honum og ég held að hann hefði
verið Kjarval sammála. Þegar öllu
er á botninn hvolft þá er vandinn í
sambandi við listina ósköp ein-
faldur: „Þeir leika sér ekki nóg að
hvölunum." Þakkir tii útgefand-
ans, Iceland Review, fyrir að færa
okkur yndi þessa manns. Og þið
þarna norðurfrá: Kjarval kann að
vera ástsælasti málari Islendinga,
en frá sjónarhóli okkar hérna, er
hann einfaldlega írskasti útlend-
ingur sem uppi hefur verið.
Bækurnar sem fjallað er um í
greininni eru:
Burne-Jones Talking. His Con-
versations 1895—1898. Preserved
by His Studio Assistant Thomas
Rooke. Ritstýrt af Mary Lago.
Gefin út hjá John Murray, Lond-
on, 1982.
Kjarval. A Painter of Iceland.
Eftir Aðalstein Ingólfsson og
Matthías Johannessen. Gefin út af
Iceland Review, Box 93, 121
Reykjavík. Blaðsíðutölin í grein-
inni eru miðuð við þessa útgáfu.
Þýtt. SKJ
Viktors Korchnoi, skákkeppni
verkalýðsfélaga, skólaskák
1980-82, boðsmót TR 1981, Ungl-
ingameistaramót íslands 1981,
Haustmót TR 1981, för ungra ís-
lenzkra skákmanna til Bandaríkj-
anna og viðureign við Collins-
krakkana, vígslu útitaflsins, Norð-
urlandamót grunnskóla 1981,
Norðurlandamót framhaldsskóla
1981, íslandsmót kvenna 1981, Bik-
armót TR 1981, aðalfund TR 1981,
Skákþing Reykjavíkur 1982,
skákkeppni stofnana 1982, sveita-
keppni grunnskóia í Reykjavík
1982 og skákkeppni framhalds-
skóla 1982.
Ritstjórar eru Ólafur H. Ólafs-
son og Þráinn Guðmundsson. Á
forsíðu blaðsins er mynd af Karli
Þorsteins, skákmeistara Taflfélags
Reykjavíkur 1982.
ÍSLENSKAR BÆKUR
EKLENDAR BÆKUR
MYNDBÖND
Bókaversltm Snæbjamar ,
Hafnarstræti
„ ELECTROLUX
ÖRBYLGJUOFNINN
Það þarf ekki að hita upp örbylgjuofninn. Fullur styrkur næst á
broti úr sekúndu. Hinn eiginlegi hiti myndast í matnum sjálfum og
ekkert brennur í örbylgjuofni.
Örbylgjuofninn eyðir rafmagni á við eina meðal ljósaperu. Öll
venjuleg matreiðsla tekur skemmri tíma og þú uppgötvar nýjar víddir
í matreiðslu möguleikum.
Ef þú villt vita enn meira pantarðu þér upplýsingablað í
síma 32107 milli 10—12.
Já, þessi örbylgjuofn er alveg ótrúlegur hvað verður það næst...!
Sælkermatur á
nýju bragð-
og hraðameti
RAFTÆKJADEILD - SIMI 86117