Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 19 „Að heiman Slðari hluti ljóðabókar Þórarins frá Kílakoti NÝLEGA hefur verið gerin út seinni hluti Ijóðabókarinnar „Að heiman“, eftir Þórarin Sveinsson frá Kílakoti. Þar er að finna m.a. nokkra ljóðaflokka um íbúana og mannlíf- ið í Kelduneshreppi á fyrstu ára- tugum 20. aldarinnar. Má þar nefna: Bændavísur, Húsmæðra- Hjónin Ingvddur Björnsdóttir og Þórarinn Sveinsson frá Kílakoti. — Myndin var tekin um síðustu alda- mót kveðju, Kappatal, Kvennaslag, Skáldatal og Tíðavísur að ógleymdu kvæðinu Strokkur, sem mikla athygli vakti á sínum tíma. Um bændavísurnar fórust Karli Kristjánssyni fyrrum alþm. svo orð: „Bændavísur Þórarins flugu víða um nágrannasveitir. Skiptust á í vísunum öfugmæli, sannmæli og margvísleg gamansemi, sem gerði skilning manna á þeim fyrst i stað hálf áttavilltan. Man ég, þegar vísur þessar bárust í mína sveit, þá skemmtu menn sér við þær eins og nokkurs konar felu- myndir eða gátur." „Við lestur þessa ljóðakvers opnast mönnum sýn inn í hugar- heim aldamótakynslóðarinnar í Kelduneshreppi og viðhorfa henn- ar til lífsins, sem að sjálfsögðu mótaðist af harðri lífsbaráttu og margháttuðum erfiðleikum, en einkenndist þó af góðvild til ná- granna og sveitunga, og ekki síst af hjálpsemi við þá, sem stóðu höllum fæti i samkeppninni um þessa heims gæði," segir i frétt frá útgefanda. Bókin er unnin í Prentstofu G. Benediktssonar, en útgefandi er Björn Þórarinsson. Ný bók eftir Denise Robins DENISE Robins hefur skrifað margar bækur og hefur um árabil verið metsöluhöfundur. Margar af hennar bókum hafa komið út á ís- lensku. Pyrsti kossinn fjallar um tvær vinkonur sem ákveða að fara ísum- arfrí og spara ekkert til þess. Þær leigja sér lúxussvítu á virtu hóteli ákveðnar í því að skemmta sér ær- lega. Þær lenda í hinum ótrúlegustu ævintýrum sem ekki var reiknað með í upphafi. En hin eina sanna ást er þó að lokum það sem sigrar. Útgefandi er Ægisútgáfan. Þýðandi er Valgerður Bára Guð- mundsdóttir. Mets&ublad á hverjum degi! „Valkyrjuáætlunin“ er sannkölluð spennusaga, þar sem telft er um líf og dauða. Hún fjallar um glæpi, njósnir, örlög, of- beldi og ástríður. Val- kyrjuáætlunin gerist að mestu leyti á íslandi. Höfundurinn Michael Kilian dvaldi hér á landi um skeið og kynnti sér § aðstæður og er með ólíkindum hve þekking hans á staðháttum og íslensku þjóðlífi er mikil. o HÖRKUSPENNAj ÍSLENSKU UMHVERFI y^y^síÐUMÚLA 29 Simar 32800 32302 ELECTRIC GENERAL Laugavegi 170-172 Símar 21240-11687 PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.