Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 Höfum umboössölu fyrir kanadíska fyrirtækið rvi n FÖOD SEHVICE EQUIPMENT Eldhústæki fyrir hótel, sjúkrahús og aðrar stofn- anir. Höfum einnig samsettar frystigeymslur í ýmsum stæröum sem henta jafnt í heimahús, verzlanir og stofnanir, ásamt ýmsu öðru sem hentar slíkum rekstri. B. Ólafsson & Berndsen hf., Langageröi 114, sími 34207. ITT SJÓNVÖRP GÓÐ? BETRI? BEST? EIGENDUR ITT SJÓNVARPSTÆKJA ERU EKKI í VAFA. VID ERUM ÞAD EKKI HELDUR. VILT PÚ SANN- FÆRAST? nm S J ÓNV ARPSDEILD SKIPHOLTI 7 - SÍMAR 20080 8t 26800 írar fá nýja stjórn í dag Limerick, írlandi, 13. desember. AP. LJÓST er nú, að Garret Fitzgerald, fyrrum leiðtogi stjórnarandstöðunn- ar á írska þinginu, verður næsti for- sætisráðherra íra, en í gær, sunnu- dag, samþykkti Verkamannaflokk- urinn að ganga til samstarfs við flokk Fitzgeralds, Fine Gael. Irska þingið kemur saman á morgun, þriðjudag, og mun þá Fitzgerald verða kjörinn forsæt- isráðherra nema eitthvað óvænt komi upp á. A þingi Verkamanna- flokksins nú um helgina var það samþykkt með 842 atkvæðum gegn 522 að ganga til samvinnu Nicaragua: Olli ofhleðsla þyrluslysinu? Managua, Nicaragua, 13. desember. AP. ÁTTATÍU og fjórir, einkum börn á aldrinum eins til fjögurra ára, fór- ust í þyrluslysi í Niearagua si. fóstudag. Ekki er enn vitað hvað slysinu olli. Julio Ramos, yfirmaður leyni- þjónustu hersins í Nicaragua, sagði á blaðamannafundi, sem efnt var til í Managua, að verið væri að kanna orsakir slyssins og að enn sem komið væri benti ekkert til að þyrlan hefði verið skotin niður. Þegar þyrlan hrap- aði var verið að flytja fólk frá landamærunum við Hondúras en þar hafa geisað átök milli stjórn- arhermanna og uppreisnar- manna. „Utvarp Moskva“, sem sendir út víða um heim, hélt því fram að „byssumenn fá Hondúras" hefðu skotið þyrluna niður en yfirvöld í Nicaragua hafa hins vegar að- eins sakað uppreisnarmenn um að hafa valdið slysinu óbeint með hernaði sínum í landinu. Þyrlan var af gerðinni MI-8, sovésk, og átti að geta borið 2.860 kg farm. Leikur grunur á að um ofhleðslu hafi verið að ræða. við Fine Gael og er búist við, að formaður Verkamannaflokksins, Dick Spring, verði yngsti aðstoð- arforsætisráðherra í sögu lands- ins. Hann er nú 32 ára að aldri. Þetta verður í annað sinn á ár- inu sem Fitzgerald verður for- sætisráðherra. Fyrri stjórn hans með Verkamannaflokknum, sem var minnihlutastjórn og hjarði að- eins í átta mánuði, var felld í janúar sl. þegar til umræðu voru strangar aðgerðir í efnahagsmál- Garret FitzGerald unum en írar eiga við gífurlegan vanda að etja í þeim efnum. Græðið — annars getið þið lokað — segir forsætisráðherra Kína — Allt að 30% tap hjá kínverskum fyrirtækjum Pcking, 13. desember. AP. ZHAD ZIYANG, forsætisráðherra Kína, sagði í ræðu á kínverska þing- inu í dag, að búast mætti við allt að 30% tapi á fyrirtækjum í ríkiseign á þessu ári. Hann bætti því við, að þau fyrirtæki, sem mest tap væri á, ættu um tvo kosti að velja. Annar þeirra væri að byrja strax að græða. Hinn væri einfaldlega að loka. Ziyang sagði, að á því væri enginn vafi, að mikil mótstaða ætti eftir að koma upp við sumar hugmyndir stjórnvalda, en hana yrði að yfirstíga. Þetta væri verk, sem þyrfti að vinna fljótt og sú lausn, sem fundin yrði á vandanum, þyrfti að vera var- anleg. Kínverski forsætisráðherrann sagði ennfremur, að mikið og al- varlegt tjón hefði áður orðið af völdum of mikillar og óhyggi- legrar fjárfestingar í iðnaðinum. Því væri hörmulegt til þess að vita, að slíkt væri enn að endur- taka sig á sumum stöðum í land- inu. Tekjur ríkisins hefðu dreg- izt saman þrjú undanfarin ár, en þess væri samt að vænta, að þær færu vaxandi á næsta ári. Fjölskylda Valla- dares fékk að fara ERLENT París, 13. desember. AP. FJÓRIR úr fjölskyldu kúbanska skáldsins Armando Valladares, sem látinn var laus í október sl. eftir 22 ára vist í fangelsum Kastr- \ ós, fóru nú um helgina til Miami til að vera viðstaddir kirkjulegt brúðkaup Valladares og konu hans. Valladares, sem fékk frelsi sitt eftir að Mitterrand Frakklands- forseti talaði máli hans við Kastró, fór til Miami sl. föstudag ásamt konu sinni, Mörtu. Þau voru gefin saman við borgara- lega vígslu í kúbönsku fangelsi árið 1969 en vilja nú endurtaka hana í guðrækilegum anda. Móðir skáldsins og systir, mágur hans og móðir hans fengu loks að fara frá Kúbu sl. föstu- dag en lengi vel virtist sem kúb- önsk stjórnvöld ætluðu ekki að leyfa þeim að fara. Mary Rose í höfn Ekki er langt síðan Mary Rose, hinu sögufræga flaggskipi Hinriks VIII Bretakonungs, var lyft af hafsbotni. Nú hefur skipið verið flutt í þurrkví í Portsmouth, þar sem þess verður gætt af herskipinu Victory, sem hefur ólíkt gæfuríkari feril að baki. í framtíðinni er ætiunin, að Mary Rose verði gert að safngrip til sýnis öllum almcnningi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.