Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
29
Norræna húsið:
Sembalkynning
og tónleikar
MIÐVIKUDAGINN 15. desember
kl. 12.30 mun Mark Stevenson
sembalsmiður frá Bretlandi flytja
stutt erindi um endurvakningu
sembalsins á 20. öld. Þar verður gef-
ið sögulegt yfirlit um þróun sembals-
ins á þessari öld, með dæmum um
verk hinna ýmsu sembalsmiða.
Fyrirlesturinn verður skreyttur lit-
skyggnum og tóndæmum, sem
Helga Ingólfsdóttir, semballcikari,
flytur. Sem fyrr verður þessi atburð-
ur i Norræna húsinu og hefst kl.
12.30, sem áður sagði.
Um kvöldið kl. 20.30 mun svo
Mitzi Meyerson, semballeikari,
halda tónleika í Norræna húsinu,
þar sem hún leikur á sembal verk
eftir J.S. Bach, Froberger, For-
queray, Louis Couperin o.fl.
Mitzi Meyerson hefur haldið
tónleika víða um heim og unnið til
Mitzi Meyerson
fjölda verðlauna. Hún hefur sem
stendur aðsetur í Boston, Banda-
ríkjunum, þar sem hún leikur að
staðaldri með Tríó Sonnerie og
kammersveitinni Saraband.
Bolungarvíkurprestakall
laust til umsóknar
BISKUP íslands hefur auglýst Bol-
ungarvíkurprestakall laust til um-
sóknar, en séra Gunnar Björnsson
sem þar hefur þjónað síðustu 10 ár-
in, hefur verið ráðinn prestur Frí-
kirkjusafnaðarins i Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar
1983.
Þá segir í frétt frá Biskupsstofu,
að séra Jón Kr. Isfeld þjóni á
Djúpavogi og séra Ingólfur Ást-
marsson á Hólmavík. Næstu þrjá
mánuðina a.m.k. mun séra Jón Kr.
ísfeld gegna prestþjónustu á
Djúpavogi, en þar er nú enginn
prestur eftir að séra Trausti Pét-
ursson prófastur lét af embætti
þar. Séra Jón ísfeld hefur undan-
farið komið til aðstoðar þar sem
prestslaust hefur verið um
skamman tíma, eftir að hann
hætti sjálfur sóknarprestsþjón-
ustu vegna aldurs.
Séra Ingólfur Ástmarsson, sem
nýlega lét af störfum vegna aldurs
í Mosfellsprestakalli í Árnes-
prófastsdæmi, hefur tekið að sér
að þjóna Hólmavíkurprestakalli
næstu mánuðina, en séra Andrés
Ólafsson lét af prestþjónustu þar
nýlega eftir nær 35 ára starf. Séra
Ingólfur vígðist hinsvegar til
Hólmavíkur (Staðarprestakalls í
Steingrímsfirði) fyrir réttum 40
árum og lýkur þannig hringnum
með prestþjónustu á þeim stað er
hann hóf sinn prestskap.
Jólatónleikar Tón-
skóla Sigursveins
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tvenna tónleika í
þessari viku. Hinir fyrri eru kamm-
ertónleikar framhaldsnemenda og
verða í hátíðarsal Menntaskólans í
Reykjavik á miðvikudaginn 15. des-
ember, kl. 20.30. Á þessum tónleik-
um verða fhitt verk eftir m.a. JJS.
Hjartaþjófnaðir
í Nýja bíói
NÝJA BÍÓ hefur hafið sýningar á
bandarísku kvikmyndinni Hjarta-
þjófnaðir.
Myndin segir frá rannsókn
óhuganlegra morðmála í San
Francisco, þar sem hjörtu fórnar-
lambanna voru tekin og sett á
svartan líffæramarkað.
Aðalhlutverk leika Garry Good-
row og Mike Chan.
Bach, Tarrega, Schubert, Mendel-
sohn og Chopin.
Seinni tónleikarnir eru svo ár-
legir jólatónleikar og verða í sal
Hamrahliðarskólans sunnudaginn
19. desember, kl. 14.00. Þar koma
aðallega fram yngri nemendur
skólans bæði í einleik og sam-
spilshópum. T.d. kemur fram
blokkflautukór skipaður forskóla-
nemendum og flytur ásamt
hljómsveit tvö íslensk jólalög í út-
setningu stjórnandans Sigur-
sveins D. Kristinssonar en flytj-
endur þessara laga munu verða
hátt í 100 talsins.
Fyrirlestur
um erfðafræði
ÞRIÐJUDAGINN 14. desember
heldur dr. Olafur S. Andrésson er-
indi á vegum Liffræðifélags íslands
um rannsóknir sínar á „Históngen-
um gersveppsins Saccharomyces
cerevisiae“.
Verkefnið fólst í því að einangra
og raðgreina gen, sem ákvarða tvö
históngen í gersveppum þessum
með því að nota históngen, sem
áður höfðu verið einangruð úr
ígulkerjum og bananaflugum. Að
lokinni einangrun voru bornar
saman basaraðir þeirra gena sem
við sögu komu og verður í fyrir-
lestrinum fjallað um ýmsa þætti
þessa samanburðar. Fyrirlestur-
inn, sem er öllum opinn, verður
haldinn í stofu 101 í Lögbergi og
hefst kl. 20.30.
(KrétUlilkynning)
VINDURINN OG ÉG er saga indíánastúlku sem höfundurinn byggir
að nokkru á atburðum úr eigin lífi. Sagan lýsir baráttu hennar við sjálfa
sig og umhverfi sitt. Lesandinn fær að skyggnast inn í líf og menningu
Indíána og verður vitni að þeirri glímu sem á sér stað þegar indíáni
hrökklast frá heimabyggð sinni til stórborgar. kr. 321,10
HRÍFANDI BÓK SEM ÞÚ GETUR EKKI HÆTT AÐ
LESA EF ÞÚ ERT EINU SINNI BYRJAÐUR
ÍALl
Freyjugötu 27 Sími 18188
Þvottavél og þurrkari
Saga þvottavélanna
5 kg af þurrum þvotti.
900 snúninga vinduhraöi.
12 þvottakerfi og sparnaöarkerfi.
Heimilistækjadeild
Skipholti 19, simi 29800.
1930 1940 1950 1960
Þegar amma Þegar mamma Þegar margir Framhlaðin
var ung var ung fœddust
THOMSON
ÞVOTTAVÉL OG ÞURRKARI
Topphlaöin
Fullkomið
T-5981
At hverju
topphlaðin?
Thomson
er stærsti
framleiðandi
þvottavéla
í Evrópu
• Topphlaðnar þvottavélar endast betur þar sem þvotta-
belgurinn er á legum báðum megin.
• Vinnuaðstaða er betri þar sem ekki þarf §ð bogra fyrir
framan vélina heldur fer þvotturinn ofaní vélina.
• Vélin verður hljóðlátari
og titringur minni.