Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 33 málara skömmu síðar og mjög greinilega á sýningu Eiríks Smith vorið 1976 — hvort samband hafi verið þar á milli, er næsta líklegt, þótt ekkert skuli fullyrt. Þrátt fyrir áhrif frá Andrew Wyeth, sem Eiríkur afneitar ekki, þá eru þeir listamenn af gjörólíku upplagi — litirnir hjá Wyeth eru mildir og yfirvegaðir og myndir hans einkennast af dularfullri ró og tærleika. Hann á ekki til í sír hvatir til að ná fram glæsilegum áhrifum með yfirdrifnum hraða, hvellum litahljómum né aðskálda hulduverur inn í myndimar. Allt, sem hann málar, er það, sem hann hefur í næsta sjónmáli hverju sinni, og ekki agnarögn þar fram yfir. Ahrif frá þessum listamanni hafa einnig komisc inn í íslenska myndlist eftir krókaleiðum en þau eru annars eðlis. Allar götur frá fyrrnefndri sýn- ingu hefur Eiríkur verið bergnum- inn af þeim möguleikum, sem hann hefur uppgötvað í þessu nýja raunsæi sínu, og hann hefur lifað sig svo inn í myndir sínar, að hann er farinn að trúa stíft á yfirskil- vitlega hluti, endurholdgun, fram- þróun, tröppugang þróunarinnar og að menn séu fæddir með ákveð- inn farangur í lífsmalnum. Við gerð þessara mynda kann hann mjög vel að hagnýta sér reynslu sína frá árunum í auglýs- ingahönnun og prentmyndagerð- inni. Hann er vafalaust vélvædd- asti myndlistarmaður þjóðarinn- ar, kann manna best að notfæra sér hvers konar hjálpartæki og þekkir vel þau efni, sem hann hef- ur á milli handanna. Hér er sem sagt á ferð maður, er kann að hag- nýta sér menntun sína og reynslu út í ystu æsar í myndgerð sinni. Um bókina sjálfa er það að segja, að hún er til fyrirmyndar að allri gerð, stærðin hæfileg fyrir meiri háttar listaverkabók, lit- greining mynda hefur tekist vel, þótt vatnslitamyndirnar séu sumar ívið daufari í bókinni eftir því, sem ég hef samanburð. Upp- setningin er góð, en fullmikið af smárissum samfara ritmálinu, sem ekki eru í samræmi við text- ann. Dæmi um góða lausn er t.d. þurrnálsmyndin „Höfnin" (1962), sem er ein albesta teikningin í bókinni, sterk og einföld í út- færslu. En í lok bókar vantar til- finnanlega skipulega efnisskrá yf- ir lífsferil listamannsins. Hvað þurrnálsmyndina áhrærir þykir mér skaði, að Eiríkur skuli ekki hafa ráðist í frjálsa grafíska myndgerð eftir alla stöðluðu vinn- una í prentmyndagerðinni. Hefði ekki verið ómældur léttir að því, að beita hér frjálsum listrænum vinnubrögðum í stað þreytandi kerfisbundinnar nákvæmnis- vinnu? Að öllu samanlögðu er mikill fengur að þessari bók, sem af sjálfu sér eykur ris íslenzkrar myndlistar. Einstaka myndum hefði þó mátt sleppa — þær koma eins og þruma úr heiðskíru lofti, svo sem portrettmyndin af séra Garðari Þorsteinssyni. Þar spurði ég sjálfan mig: „Hvort er betra, að málari reyni að líkja eftir ljós- mynd eða ljósmyndari eftir mál- verki?“ Hér komst ég að þeirri niðurstöðu, að Jón Jónsson Kaldal væri máski besti portrettmynda- smiður þjóðarinnar á þessari öld. Þá tel ég að fjórar hrifmestu myndirnar úr þjóðsögunum á heil- síðu hefðu verið betri lausn en nítján myndir á fjórum síðum. Það er ofhleðsla, ekki síst vegna þess að myndirnar eru áberandi misgóðar. Æskilegt hefði verið, að hin stórskemmtilega frásögn Eiríks af sjálfum sér og lífsferli sínum hefði notið nákvæmari yfirlestrar. Óþarfa villur og rangfærslur hafa slæðst með, t.d. var hin fræga Rómarsýning haldin vorið 1955 en ekki 1956. Rangfærslur varðandi ummæli gagnrýnenda er engum til sóma í listaverkabók, þær hitta fyrr eða síðar viðkomandi sjálfan. Dregið saman í hnotskurn þá er Eiríkur Smith vel að þessari bók kominn, hún er útgefendum til sóma og ómissandi öllum þeim, er fylgjast vilja með íslenzkri mynd- list. HEIMILISTÖLVAN FJÖLDI FYLGIHLUTA OG FORRITA: Minnisaukar — Sebulbandstæki — Diskettustöö — Prent- ari — Super Expander — Programmers Aid — Alien — Mole Attack — Jelly Monster — Skák — Super Slot — Road Race — Rat Race — Super Lander — Vic Graf — Vic Stat — Vic Rel — Forth — Pirate Cover — Mission Impossible — Raid on Fort Knox — Omega Race — Woodoo Castle — The Count o.fl o.fl. Leiöbeiningabækur. ★ 24 LITIR ★ RITVÉLALYKLABORÐ ★ MIKLIR STÆKKUNARMÖGULEIKAR ★ BYRJENDANÁMSKEIÐ ^“JÓLATILBOÐ ÞÓRf SÍMI 81500 'ÁRMÚLA11 ■J Sófasett í úrvali. Leöur og tauáklæði Gullverðlaun fyrir hönnun og stíl símar 37010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.