Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.12.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 43 i mögnuð portretmynd af þeim ágætu frændum og bræðrungum, séra Kristjáni Eldjárn á Tjörn og Einari Hallgrímssyni föður Hall- gríms ljósmyndara. Þeir feðgar töldust til merkari Akureyringa. Einar var verzlunarstjóri Gránu- félagsins. Hann var móðurbróðir Jóns Stefánssonar listmálara. Það er ættbogi Jónasar Hallgrímsson- ar. Einar er standandi til hægri á myndinni, en séra Kristján sitj- andi. Ef grannt er skoðað má eygja baug á vísifingri vinstri handar séra Kristjáns. Sonarson- ur hans, Kristján forseti, bar einnig hring á sama fingri, kannski sama erfðagripinn? Þannig er næstum líka hægt að tilgreina konjakkstegundina, sem þeir Thorarensenar og Schiöthar dreypa á í skrúðgarði gamla Apót- eksins. Eins ber að sakna á þessari skemmtilegu ljósmynd, að ekki liggi þar fleiri fallegar frænkur fjölskyldunnar á glámbekk til að prýða myndina enn meira. Aðeins tvö af þessum fríða hópi eru meðal lifenda í dag. Þar á ég við Ólivíu Thorarensen og bróður hennar Henrik lækni Thorarensen, sem ráfar enn á meðal vor um Reykja- víkurgötur, hraustur og útiveru- legur, einu ári miður en níræður. Gaman er að sjá þarna þann fyndnasta og fjörugasta af öllum, séra Matthías Jochumsson, í akur- eyrsku garðkaffi hjá Steingrími lækni syni sínum og fjölskyldu, á bls. 27. Það má næstum finna hlýjuna sem þeir feðgar tóku með sér, hvert sem þeir fóru. Myndin er tekin ári áður en séra Matthías dó, hálfníræður að aldri. Á bls. 31 er fádæma skemmtileg mynd af niðurdýfingarskírn í söfnuði séra Gooks í gamla sundpollinum, sem var hálfgerður forarpyttur. Þar niðri mun vart hafa verið sem ákjósanlegast skyggni til að eygja heilagan anda í dúfuliki. Um þess- ar trúarathafnir var þannig ort í æsku minni: Séra Gook á Sjónar- hæð/sálu kann að toga./Það eru skrýtin skírnarlaun,/skólprennan hjá Boga. Á þriðju myndinni, sem mig langar til að fá hér birta ef jóla- annríki á Mogganum leyfir. Hún er á bls. 43, þar má sjá sjálfan myndmeistarann Hallgrím Ein- arsson, ásamt vini sínum, Halldóri Gunnlaugssyni lækni. Halldór var tvímælalaust í hópi fyndnustu húmorista þessa lands. Ég efast um að við Mörlandar séum yfir- leitt nógu næmir á góða gaman- semi til að gera okkur grein fyrir fyndninni í aldamótabrag Hall- dórs. Hann hefst þannig eins og menn vita: „Á Sprengisandi fullvel um mig færi/ef fögur snót og mat- ur hjá mér væri ... o.s.frv. Hall- grímur var og skáldmæltur eins og margir föðurfrændur hans. Þegar horft er á þessa skemmti- legu mynd af þeim vinunum um- vafna trjágróðri og seiðmögnuðu skýjafari með suðrænar skálda- veigar í kristalsstaupum er hægt að skilja ungu skáldin vel sem þráðu að eignast gáfumannamynd af sjálfum sér á öðrum eins skáldabekk ljósmyndalistarinnar. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖOINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI fHor0wifrfnMb MetsöhMad á hverjum degi! Vönduð sófasett frá Víði fyrir viðraðanlegt verð! Við höfum fengið nýja sendingu af bráðfallegum sófasettum til afgreiðslu strax. Napóleon sófasett frá Víói Komiðogskoðið Trésmiðjan Víðir hf. Síðumúla 23, Sími: 39700 Húsgagnaverslun Guðmundar Smiðjuvegi 2, Kópavogi Súni 45100 Sonus Futurae ?e„ir s,etía skyrinu ... tónnstfnnl.^9" tökin á tö,vu- ^toáttar lög. þÍ,,a fy,9ir orðið vitni að unnáb 9etur SWfanerðUf Síðar’ ^ Ólafur Þórðarson ^pilakassinn. fes0o9„r"í,an"'Sk,ö^ft'>Ólaf Wkí9Wn Q,slas°" s,jórnaði upp. ÞeSSan' P,ö“'- |I°rn Thoroddsen SS^Í °9r »«.. StjórnandT fnn^fí Þétta SVeiflu- Jónsson Upptoku Jónas R. Dreifing: Fálkinn. Magnús Kjartansson ÍTFr* læknisrádi erlendif. Vandamanna heim Dreifing; Skffan. Gefum ÍSLENSKA tónlist & hkoðríti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.