Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 Prófkjör sjálfstæðismanna á Suðurlandi: Árnesingar og Skaft- fellingar hafa til- nefnt frambjóðendur PRÓFKJÖR Sjálfstædisflokksins í Suðurlandskjördæmi fer væntanlega fram dagana 22. og 23. janúar næstkomandi. A fundi í gær samþykkti fulitrúaráö Sjálfstæöisflokksins í Árnessýslu og á Selfossi þrjá frambjóöend- ur í prófkjörið. Þeir eru: Brynleifur H. Steingrímsson, læknir, Óli Þ. Guð- bjartsson, skólastjóri, og Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri. V-Skaftfellingar hafa tilnefnt þrjá menn í prófkjör flokksins. Þeir eru: Björn Þorláksson, Eyj- arhólum, Siggeir Björnsson, Holti, og Tómas Pálsson, Heiði. Rangæingar hafa ekki gengið frá framboði. Á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Rangár- vallasýslu síðastliðinn laugardag var samþykkt að tefla fram þrem- ur mönnum í prófkjörið en fimm menn gefa kost á sér. Þeir eru: Eggert Haukdal, alþingismaður, séra Halldór Gunnarsson, Holti, Jón Þorgilsson, Hellu, Óli Már Ar- onsson, Hellu, og Sigurður Óskarsson, Hellu. A fundi full- trúaráðsins um helgina var sam- þykkt að efna til skoðanakönnun- ar í Rangárþingi um hvaða þrír fulltrúar verði í prófkjörinu. Fimm manns í um gefa kost á Sigurður Hallbjörns- son látinn SIGL'RÐUR Hallbjörnsson, vörzlu- maöur Reykjavíkurborgar, er látinn, 64 ára aö aldri. Hann fæddist á Seyðisfirði 25. desember 1917, sonur hjónanna Hallbjörns Þórarinssonar og Halldóru Þórarinsdóttur. Hann flutti til Reykjavíkur og starfaði um langt árabil hjá Hita- veitu Reykjavíkur, þar til hann gerðist vörzlumaður Reykjavík- urborgar en því starfi gegndi hann um nokkurra ára skeið. Sigurður var í fremstu röð glímukappa um langt skeið. Hann var hestamaður góður. Sigurður lætur eftir sig son, Eð- vald Karl Sigurðsson. Vigfús B. Jóns- son í prófkjör VIGFÚS B. Jónsson, bóndi að Laxamýri, hefur tilkynnt þátt- töku í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Noðurlandskjördæmi eystra. „Ég vil fyrst og fremst kanna hvaða fylgi ég hef, þá hafa og margir hvatt mig til þátttöku. Ég á ýmis áhugamál sem bundin eru við þetta kjör- dæmi, sem ég vil gjarnan vinna að, og þar sem ég er bú- inn að vera í stjórnmálum lengi hefi ég fengið dálitla reynslu sem gæti komið sér vel. Ég tel mig vera að bjóða betri starfskrafta en ég bauð upphaflega. Þá vonast ég til að prófkjörið fari drengilega fram. Það er mín heitasta ósk í þessu sambandi, því okkur sjálfstæðismönnum ríður á að mæta heilir og óskiptir til leiks í alþingiskosningunum," sagði Vigfús B. Jónsson í sam- tali við Mbl. Vestmannaeyj- sér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandi, en á fundi fulltrúaráðsins í Eyjum var fyrir skömmu samþykkt að tefla fram þremur mönnum í prófkjörið. Þeir sem gefa kost á sér eru: Árni Johnsen, Ásmundur Friðriksson, Gísli Geir Guðlaugs- son, Guðmundur Karlsson og Kristján Torfason. Fulltrúaráðið mun væntanlega koma saman í vikunni og taka afstöðu um, hvort Eyjamenn tefli fram þremur full- trúum og þá hverjum eða hvort allir fimm frambjóðendurnir taki þátt í prófkjörinu. Skartgripir fyrir um 100 þús. fundust UNGUR MAÐUR fann á sunnu- dagskvöldiö um 200 skartgripi, einkum hringi, við veginn suður í Nauthólsvík. Hugsanlegt er talið að skartgripirnir séu hluti þýfisins úr skartgripaverzlun Kornelíusar Jónssonar í sumar. Tví- vegis var brotist inn hjá Kornelíusi og skartgripum fyrir liðlega milljón krón- ur stolið. Andvirði skartgripanna sem fund- ust við veginn suður í Nauthólsvík nemur um 100 þúsund krónum. Ungi maðurinn, sem fann skartgripina, var á leið sunnan úr Nauthólsvík þegar hann kom auga á kassa skammt frá veginum, ekki langt frá Hótel Loftleiðum og reyndust skartgripirnir vera í kassanum. Virðist einsýnt, að skartgripirnir hafi nýlega verið skildir þarna eftir. Svo sem kunnugt er, situr nú írskur maður inni vegna fjölda innbrota í skartgripaverzlanir í sumar, þar á meðal hjá Kornelíusi. V & **■** m.U „Leikmennirnir ráða úrslitum ekki yið sem tippum“ — segir Grímur Aðalbjörnsson, sem fékk hæsta vinning Getrauna frá upphafi „ÞAÐ ER nú bara heppnin sem ræður i þessum leik hvort maður vinnur eða ekki. Það er bara hvort lappirnar á ensku leikmönnunum eru snúnar eða beinar, hvort þeir hitta í markið eða ekki. Það eru sem sagt leikmennirnir sem ráða hver vinnur í getraunum, ekki við sem tippum,“ sagði Grímur Aðal- björnsson, sem um helgina fékk hæsta vinning Getrauna frá upp- hafi, rúmar 370.000 krónur, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Ég er víst einn með 12 rétta og svo er ég með 11 rétta á 4 seðlum þannig að þetta gefur mér víst 372.360 krónur, svo þetta er góð búbót fyrir jólin og það kom mér þægilega á óvart, þegar Gunnar Guðmannsson hringdi í mig og sagði mér að ég væri einn með 12 rétta. Ég átti nú ekki von á því. Annars hef ég nokkuð oft unnið í Getraunun- um, en aldrei neitt þessu líkt. Ég vann 1970 man ég 165.000 krón- ur, sem var mjög gott þá. Ég er búinn að spila talsvert lengi í þessu og byrjaði þegar röðin kostaði 75 aura. Nú er ég oft með 20 16-raða seðla og stundum meira, en hef ekki verið með neitt sérstakt kerfi. Ætli ég noti þetta ekki til íbúðaskipta, en annars er ég hálf ruglaður vegna þessa enn svo það er varla að ég geti sagt nokkuð," sagði Grímur. Fimm sækja um stöðu hæsta- réttardómara FIMM sækja um stöðu hæstarétt- ardómara, en Logi Einarsson, for- seti Hæstaréttar, lætur af störf- um um áramót. Umsækjendur eru: Auður Þorbergsdóttir, borgar- dómari, Guðmundur Jónsson, borgardómari og settur hæsta- réttardómari, Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl., Guðmundur Skaptason, hrl. og settur hæsta- réttardómari og Guðrún Erlends- dóttir, hrl. og settur hæstaréttar- dómari. Finnska sendiráðið keypti hús VR: Kaupverðið 5,5 milljónir, sem var staðgreitt Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur hefur selt finnska sendiráöinu húseign sína ad Hagamel 4, en félag- ið mun fiytja starfsemi sína í Hús verzlunarinnar innan tíðar. í VR-blaðinu, sem er málgagn Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur, segir, að á aðalfundi í marz sl. hafi verið tekin ákvörðun um að selja húsið. Þann 23. september sl. var húsið auglýst til sölu. Nokkur tilboð bárust, en hagstæðast þeirra var frá finnska sendiráð- inu, og samþykkti stjórn félagsins að taka tilboði þess, sem hljóðaði upp á 5,5 milljónir króna, sem greitt var að fullu við undirritun samnings þann 1. desember sl. Alþingi í jólaleyfl öðru hvoru megin við helgina: Fjárlög og öldrunarmál líklega einu afgreiðslumálin — Stjórnarliða greinir á um afgreiðslu bráðabirgðalaganna og fylgifrumvarpa FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir ár- ið 1983 og frumvarp um öldrunarmál verða að mati flestra þingmanna sem Mbl. ræddi við í gær einu stjórnarfrumvörpin sem hljóta af- greiðslu löggjafarsamkomunnar úr þessu fyrir áramót. Stefnt var að því í gær að Ijúka afgreiðslu fjárlaga- frumvarpsins í sameinuðu Alþingi nk. laugardag og senda alþingis- menn að því loknu í jólaleyfi, en samkvæmt venju stendur jólaleyfið yfir fram i janúarmánuð. Nokkrir þeirra sem rætt var við á Alþingi í gær voru þó þeirrar skoðunar að ekki reyndist kleift að afgreiða fjár- lagafrumvarpið fyrr en nk. mánudag eða þriðjudag. Menn höfðu á orði í þinghúsinu í gær að líklega væri þetta eitt afkastaminnsta og óstarf- hæfasta Alþingi sem sögur færu af. Fjárlagafrumvarpið kemur til 2. umræðu í sameinuðu þingi í dag, en fjárveitinganefnd á enn ólokið nokkru af reglubundnum störfum sínum, sem nefndin tekur til af- greiðslu á milli annarrar og þriðju umræðu. Frumvörp til fjáröflunar fyrir ríkissjóð sem fylgja venju- lega afgreiðslu fjárlagafrum- varpsins er þó óútséð með hvað af verður, en stjórnarliðar ýmsir töldu nægja að fjárlagafrumvarp- ið eitt sér færi í gegnum þingið. Gera mætti ráð fyrir tekjuöflun- arliðum í fjárlögunum sem sam- þykktir yrðu síðar. Fjáröflunar- frumvörp þessi fara í gegnum deildir Alþingis gagnstætt við fjárlagafrumvarpið sem fer í gegnum sameinað þing, en ríkis- stjórnin hefur ekki meirihluta í neðri deild, eins og kunnugt er. Af öðrum stórum málum ríkis- stjórnarinnar sem liggja fyrir Al- þingi, svo sem bráðabirgðalögun- um og boðuðum fylgifrumvörpum, virðist ljóst að þau ná ekki af- greiðslu á Alþingi fyrir áramótin. Bráðabirgðalögin sjálf koma úr fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar sem þingskjal í dag og verða væntanlega tekin til 2. um- ræðu á morgun, miðvikudag. Hækkanir á bilinu 4,2—15% VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gærdag að heim- ila 4,2% meðaltalshækkun á brauðum og tekur sú hækkun þegar gildi. Þá samþykkti Verðlagsráð að heimila 12,6% hækkun á töxtum leigubíla. Samþykkt var 8,2% hækk- un á farmgjöldum vöruflutn- inga á langleiðum, 9% hækk- un á töxtum vinnuvéla og samþykkt var 15% hækkun á aðgöngumiðum kvikmynda- húsa og fara þeir nú úr 40 krónum í 46 krónur. Þá samþykkti Verðlagsráð að heimila 11,8% hækkun á sementi, sem síðan hefur í för með sér tæplega 6% hækkun á steypu. Sement hefur hækkað um liðlega 88% á árinu, Framsóknarflokk og Alþýðu- bandalag greinir mjög á um af- greiðslu hliðarfrumvarpa bráða- birgðalaganna, sem boðuð voru að fylgja skyldu. Ber þar hæst orlofs- lagafrumvarpið og frumvarp um vísitölumál, sem verið hefur „í salti" í forsætisráðuneytinu allt frá því að vísitölunefnd ríkis- stjórnarinnar klofnaði í afgreiðslu þess. Orlofslagafrumvarpið er til meðferðar í félagsmálanefnd neðri deildar árdegis og reiknað með að skerist þar á ný í odda milli full- trúa stjórnarflokkanna um af- greiðslu þess. Það mál sem legið hefur efst í skjalabunkum flestra þingmanna yfir óafgreidd mál síðustu daga er kjördæmamálið, en þingmenn úr öllum flokkum hafa lýst sig reiðu- búna til að ná samstöðu um af- greiðslu þess hið fyrsta. Formenn stjórnmálaflokkanna funduðu síð- ast í gær um kjördæmamálið, en engin niðurstaða fékkst á þeim fundi. Formennirnir koma saman á ný fljótlega, en þingflokkarnir hafa flestir varið löngum um- ræðutíma í málið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.