Morgunblaðið - 14.12.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
5
Sjöunda bindi
Veraldarsögu
Fjölva komið út
SJÖUNDA bindi Veraldarsögu Fjölva
eftir Þorstein Thorarensen er komiö
út.
í fréttatilkynningu útgefanda seg-
ir m.a. um efni þessa bindis; að þaö
fjalli um „eitt stórbrotnasta tímabil
mannkynssögunnar, þegar Rómverj-
ar sameinuðu „heiminn" og útskýrt,
hvernig samfellt viöskiptasvæöi með
frjálsum viðskiptum skóp velsæld.
Lýst er silkileiö til Kína og miklum
siglingum Rómverja til Indlands.
einnig vikið aö rómverskri verslun
viö Noröurlönd, þjóöaskipun Germ-
ana og tilraunum Drúsusar og
Germaníkusar til að vinna Germ-
aníu, sem stöövuöust meö orustunni
í Þjóðborgarskógi áriö 9.“
Síðan segir, að „meginbálkur'
bókarinnar fjalli um rómverska
keisara og sé þar m.a. sagt ítar-
lega frá umdeildum atriðum í per-
sónusögu þeirra og aðstandenda
þeirra. Annað meginstef bókar-
innar sé trúarbragðasaga og sé
þar m.a. farið ítarlega í sögu gyð-
inga og gyðingdóm og einnig vikið
að heiðindómi, trúarbragðafrjáls-
lyndi Rómverja, stóuspekinni,
samgyðistrúnni og tilraunum til
að koma á ríkistrú sóldýrkunar.
Þorsteinn Thorarensen er höfundur
Veraldarsögu Fjölva, sem hann vinn-
ur í samstarfi viö Mondadori-
útgáfuna á Ítalíu.
Loks segir svo að ítarlega sé fjall-
að um kristindóminn, tilkomu
hans og útbreiðslu og spurninguna
um tilvist Jesú.
Þetta sjöunda bindi Veraldar-
sögu Fjölva er 160 blaðsíður í
stóru broti, með um 150 myndum,
sögukortum, annálum og listum
um heimildarrit.
Fyrirlestur um samband
læknis og sjúklings
HÉR á landi er staddur prófessor
Páll S. Árdal í boöi heimspekideild-
ar Háskóla íslands, Minningarsjóðs
Níelsar Dungal og Félags áhuga-
manna um heimspeki.
Páll S. Árdal er prófessor í
heimspeki við Queen’s University,
Kingston, Ontario, Kanada. Hann
mun á vegum Minningarsjóðs Ní-
elsar Dungal flytja fyrirlestur
varðandi siðfræði lækna nk. föstu-
dag 17. þ.m. kl. 13.00 í fyrirlestra-
sal Hjúkrunarkvennaskólans við
Eiríksgötu. Páll nefnir fyrirlestur
sinn: „Samúð sem skilningur" og
mun fyrst og fremst fjalla um
samband læknis og sjúklings.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
(Frétt frá ttáskóla fsiands)
Sigmund teiknar I Morgunblaöíö.
Sigmund — með sínu Iagi
SIGMUND — með sínu lagi, heitir
fjórða bindiö af teikningum Sig-
mund, sem Prenthúsið sf. gefur út. í
þessari bók eru 146 myndir eftir Sig-
mund, og fylgir nú skýringartexti
hverri.
í formála, sem Indriði G. Þor-
steinsson ritar, segir svo: „Stíll
Sigmund hefur breyst nokkuð með
árunum. Stjórnmálaforingjarnir
hafa fitnað sumir hverjir, aðrir
orðið illa tenntir, eða þá að þeir
koma fram í kvenmannslíki, þótt
enginn efist um óbreyttan status
undir pilsunum. En auðvitað eru
þessi gervi öll í samræmi við
myndefnið hverju sinni, og verður
hver og einn að taka því. Það má
öllum ljóst vera, að mikið hug-
myndaflug þarf til að skila þess-
um útgáfum af þjóðfélaginu í
daglegri mynd. Sagt er að fisk-
neysla skerpi gáfurnar og eitthvað
mun til af fiski í Eyjum. En við
sem þekkjum til Sigmund höldum
hins vegar að myndgáfa hans sé
meðfædd.
Þegar mikið liggur við stendur
maður með hamar í hendi og lem-
ur honum frá sér um leið og hann
segir í fyrsta, annað og þriðja
sinn. Sigmund er enginn upp-
boðshaldari, enða fer hann ekki að
leikreglum. Núna hefur hann sagt
í fjórða sinn um leið og hann læt-
ur teiknipennann ríða á höfði
samfélagsins. Með þeirri skírnar-
athöfn kveðjum við viðburðaríkt
Sigmund-ár og byrjum að sprella,
okkur og krónunni til gagns á því
fimmta."
Kápnmynd bókar Sigmund.
Old hraðans —
nýútkomin plata kórs Menntaskólans
við Hamrahlíð — plötuumslag eftir ERRÓ
ÖLD HRAÐANS heitir hljómplata
sem kór Menntaskólans við
Hamrahlíð sendir frá sér um þess-
ar mundir. Öll lög plötunnar eru
islensk, flest hver frá síðustu tím-
um, sem skýrir aö vissu leyti nafn
plötunnar. Þetta er önnur platan
sem kór MH syngur inn á, en hin
fyrri var jólaplatan Ljós og hljóm-
ar sem kom út fyrir fjórum árum.
Kór MH var stofnaður árið
1967 og hefur Þorgerður Ing-
ólfsdóttir stjórnað honum frá
upphafi. Blm. Mbl. hafði sam-
band við Þorgerði í gær og rabb-
aði við hana um þessa nýju
plötu.
„Það má segja að platan sé
afrakstur tónleikaferðar sem
kórinn fór í til Þýskalands fyrir
ári síðan. Guðmundur Arn-
laugsson, fyrrverandi rektor
skólans, var með í þessari ferð
og hafði hann orð á því að það
væri synd að varðveita ekki
þennan söng, og hvatti okkur til
að syngja inn á plötu.
Um efnisval plötunnar er það
að segja að á annarri hliðinni
eru eingöngu lög sem sérstak-
lega hafa verið samin fyrir
Hamrahlíðarkórinn. Þetta eru
fimm lög og tónskáldin eru Jón
Norðdal, Atli Heimir Sveinsson,
Páll P. Pálsson, Haukur Tóm-
asson og Þorkell Sigurbjörns-
son. Þessi lög eru tiltölulega ný
af nálinni, það elsta er samið
1974, en hin eru öll frá 1980.
En þar sem við höfðum hugs-
að okkur að platan gæti öðrum
þræði þjónað því hlutverki að
vera kynning á íslenskum lögum
erlendis, þótti okkur við hæfi að
hafa einnig á henni eldri lög.
Þess vegna eru á hinni hliðinni
nokkur gömul og velþekkt lög,
eins og t.d. þjóðlagið Fagurt gal-
aði fuglinn sá, sem Emil Thor-
oddsen raddsetti, og Abba-
Labba-Lá eftir Friðrik Bjarna-
son. Önnur tónskáld sem koma
við sögu á plötunni eru Jón Ás-
geirsson, Jón Norðdal, Jón Leifs
og Róbert A. Ottóson.
Við vonum auðvitað að platan
standi fyrir sínu og seldist jafn-
vel þótt henni væri pakkað inn i
Þannig lítur plötuumslag ERRÓ út á
nýju plötu kór MH, öld hraöans.
hvítan plastpoka, en það spillir
ekki fyrir að listamaðurinn
okkar heimsfrægi, ERRÓ, hefur
gert umslag plötunnar. Þetta er
geysilega skemmtilegt umslag,
svokallað klippimyndaverk, og
eru myndirnar allar úr íslenskri
náttúru eða þjóðlífi."
Þess má geta að Öld hraðans
er^efin út í 3.000 eintökum.
I kvöld syngur kór MH á
minningartónleikum um Strav-
insky, en í ár eru 100 ár frá fæð-
ingu hans. Tónleikarnir eru
haldnir í Félagsstofnun stúd-
enta og hefjast kl. 20.30. Þar
munu ýmsir aðrir tónlistar-
menn einnig koma fram.
Tekið upp
í dag
Mikiö úrval
af telpnablússum
og strákaskyrtum.
,/se