Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
Finnskt-
sænskt-grískt
kvöld með Arja
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Kvöldstund með Arja Saijonmaa.
Leikstjóri: Vivica Bandler.
Leikmynd, búningar og lýsing:
Ralf Forsström.
Hljómsveitarstjóri: Berndt Eger-
bladh.
Það var kátt í Þjóðleikhúsinu
á sunnudagskvöld er hópur
finnskra og sænskra listamanna
flutti söngva- og ljóðadagskrá
sem hann hefur verið með und-
anfarnar vikur í Bandaríkjunum
í tilefni Scandinavia Today.
Leikhúsgestir létu hrifningu
sína óspart í ljósi, og er leitt til
þess að vita að hinir ágætu lista-
menn skuli ekki hafa tök á að
endurtaka flutninginn.
Arja Saijonmaa söngkona
hópsins, sem allt stendur og fell-
ur með, er atvinnumanneskja
fram í fingurgóma, hefur af-
skaplega létta og áreynslulausa
sviðsframkomu, heillaði áhorf-
endur upp úr skónum, en hélt þó
ákveðinni fjarlægð milli sín og
þeirra, sem var kannski nokkuð
nauðsynlegt í sumum atriðun-
um. Hún flutti söngva og ljóð af
mikilli kúnst og samspil hennar
og hljómsveitarinnar mjög
vandað, kannski dálítið rútíner-
að, enda ekki að furða, ef þau
hafa flutt þessa löngu dagskrá
nánast upp á hvern dag síðustu
mánuði.
Dagskráin skiptist í þrjá
kafla, sá fyrsti eru aðallega
norræn þjóðlög, Dagbók kýrinn-
ar var prósaljóð sem vakti mik-
inn hlátur og listakonan flutti
vel. I sjálfu sér fyndið en mátti
svo sem spyrja hvaða erindi hug-
renningar kýr ættu þarna inn í
ljóðadagskrá, a.m.k. ef maður er
neikvæður.
Annar kaflinn var upplestur
— á ensku — úr Astarsögu ald-
arinnar eftir Mörtu Tikkanen.
Þar sem Ástarsagan hefur verið
þýdd og gefin hér út og aukin
heldur flutt á leiksviði fannst
mér ekki ýkja mikið til um að
hlusta á þetta á ensku, en flutn-
ingur Arja var öldungis ágætur
engu að síður.
Þriðji hlutinn kom svo ansi
mikið eins og skrattinn úr sauð-
arleggnum, altjent þegar það er
haft í huga að hér eru norrænir
listamenn að koma frá Banda-
ríkjunum með dagskrá sem
væntanlega hefur átt að vera
kynning á léttri tónlist og text-
um úr norðri. Þarna voru sem sé
flutt að megninu til lög eftir
Arja Saijonmaa
gríska tónskáldið Mikis Theo-
dorakis og leikið á búzúkí. Tvö
lög voru að vísu eftir Kurt Weil
úr verkum Brecht. Lög Theodor-
akis standa auðvitað alltaf fyrir
sínu og vel það, svo að óskipt
ánægja er á að hlýða, en þegar
kom fram í þennan kafla var rétt
eins og við værum á grísku
kvöldi stödd og ekki norrænu.
Aukin heldur þótti mér veru-
legur munur á nýrri og eldri lög-
um Theodorakis sem voru flutt
þarna, það er eins og vanti kraft
í þau nýrri, þau eru ansi „komm-
ersíöl“ miðað við mörg eldri laga
hans. Hvað sem þessum útsetn-
ingum líður, breytir það ekki því,
að flutningur listamannanna var
til fyrirmyndar og bráðhress-
andi í skammdeginu og ástæða
til að þakka ágætum gestum
fyrir komuna og góða skemmt-
un.
Jólatónleikar
Tónlist
^Jón Asgeirsson
KAMMERSVEIT Reykjavikur
hélUá sunnudaginn var jólatón-
leika í kirkju Óháða safnaðarins
fyrir troðfullu húsi, bókstaflega
talað. Tónleikarnir hófust á
Adagio fyrir strengi og orgel eft-
ir Albinoni. Vitað er að J.S. Bach
gerði sér títt við tónlist eftir Al-
binoni og notaði meðal annars í
eina fúguna sína tema eftir
hann. Upphafið á bassaferlinu
og ýmislegt annað minnti á
fræga aríu eftir Bach. Annað
verkið var orgelkonsert í F-dúr
eftir Hándel og lék Hörður Ás-
kelsson einleikinn í báðum verk-
unum. Eftir hlé voru flutt verk
eftir Couperin og konsert eftir
Torelli. Gunnar Kvaran selló-
leikari lék einleik í konsert
Couperin. Kammersveitin lék
mjög vel enda er sveitin mönnuð
góðu tónlistarfólki, sem sífellt er
að auka við getu sína og reynslu
í flutningi vandaðrar tónlistar.
Hörður Áskelsson lék af tölu-
verðu öryggi, einmitt þar sem
frekast reyndi á hæfni hans, í
orgelkonsertinum eftir Hándel.
Það er til baga fyrir flutning
orgeltónlistar hversu kirkjur eru
illa settar. Forráðamenn þeirra
hafa látið sér nægja það
minnsta, sem hægt var að kom-
ast af með og þar með komið í
veg fyrir að hægt væri í mörgum
tilfellum að flytja venjulega
kirkjutónlist, hvað þá að stofna
til meiriháttar flutnings kirkju-
tónlistar. Fyrir utan að vera
hljómlítið er hljóðfærið tæplega
í hljómleikahæfu standi. Gunnar
Kvaran lék Konsertlögin eftir
Couperin mjög vel, en þau eru
skrifuð upp úr verkum, er Coup-
erin samdi fyrir viola da gamba.
Síðasta verkið var konsert op. 8,
eftir Torelli. Undirtitill er hjarð-
ljóð fyrir hina helgu nótt. Torelli
er merkilegur fyrir þær breyt-
ingar er hann kom fram með á
hlutverki einleikarans. Hjá hon-
um fær einleikarinn sérstakar
tónhendingar, einleiksstef og
ennfremur lætur hann hljóm-
sveitina leika undir þessa ein-
leiksþætti. Á milli leikur
hljómsveitin sjálfstæða og sér-
stefjaða kafla. Torelli leysir
konsertinn úr viðjum „conserto
grosso“-formsins með op. 8, nr.
1—6 leggur hann grundvöllinn
að einleikskonsertinum, eins og
hann þekkist í dag. Leikur
Kammersveitarinnar var í heild
mjög góður undir stjórn Rutar
Ingólfsdóttur, sem átti nokkra
vel útfærða einleikskafla ásamt
Laufeyju Sigurðardóttur.
Tll tónllstar- og
bókmenntaunnenda
i
iú'S&L
83.61
Metsölubók og nú hljómplata
LÍFSJÁTNING, endurminningar Guð-
mundu Elíasdóttur söngkonu, er nú kom-
in út í þriðju prentun. Bókin hlaut frá-
bcerar móttökur í fyrra og varð ein sölu-
hcesta bók ársins. Ingólfi tekst einstaklega
vel að miðla Guðmundu, lífi hennar,
sorgum og gleði til lesandans. Og nú
hefur IÐUNN gefið út hljómplötu með
söng Guðmundu. Platan heitirþað sama
og bókin: LÍFSJÁTNING. Á plötunni eru
lög úrýmsum áttum, hljóðrituð áýmsum
tímum og syngur Guðmunda íslensk lög,
lög úr óperum og erlend lög.
Viltu hlusta á
Lífsjátnlngu?
Platan fæst i bóka-
og hljómplötu-
verzlunum
Tryggðu þér eintak strax.
Sögur sem brenna sig
í hug lesandans
ANDVÖKUSKÝRSLURNAR eru prjár sög-
ur eftir Birgi Engilberts sem kunnur er
fyrir leikritagerð sína, en kveður sér nú
hljóðs sem sagnaskáld með eftirtektar-
verðum hœtti. Sögurnar eru samfelldar
að stíl og frásagnarhœtti, lýsa atburðum
sem beint hafa sögufólkinu fram á ystu
nöf. Höfundur hefur slíkt vald á stíl sín-
um að hann miðlar afar sterkri tilfinn-
ingu fyrir eyðingaröflum í manneskj-
unni. Ncergöngular sögur sem brenna sig
í hug lesandans.
Bræóraborgarstíg 16 Pósthólf 294
121 Reykjavík Simi 12923-19156