Morgunblaðið - 14.12.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
15
Aðstandendur sýningar Stúdentaleikhússins.
Eru nú fordóm-
arnir horfnir?
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
BENT eftir Martin Sherman.
Leikstjóri: Inga Bjarnason.
Aðst.leikstj. og þýðandi: Rúnar
Guðbrandsson.
Leikmynd og búningar: Karl Asp-
enlund.
Ég las í leikskrá að Stúdenta-
leikhúsið hafi formlega verið
stofnað í janúar 1981. Ekki
minnist ég þess í fljótu bragði,
að það hafi verið með aðrar sýn-
ingar en þá sem hér verður rætt
um, BENT eftir Martin Sher-
man, og verður að teljast allmik-
ið í ráðist hjá óþjálfuðum leikur-
um að taka svo vandmeðfarið
verk til sýninga. Verk af þessu
tagi, sem fjallar um hómósexú-
alista í ríki Hitlers og þó í breið-
ari skilningi: kannski afstöðu
manna til kynvillinga almennt.
Því að skyldu þessir fordómar
hafa verið upprættir, þó svo að
nazisminn hafi ekki orðið sú
stefna sem tók við að ríkja yfir
heiminum, eins og Hitlers-
draumurinn var. Það er óhjá-
kvæmilegt að það sé vandaverk
að túlka hómósexúalistana og
baráttu þeirra, sýna tilfinningar
þeirra og sveiflur — koma því til
skila að þetta er fólk eins og við
en ekki furðuverur með græn
eyru. Og umfram allt er flókið að
túlka „samfarasenurnar" í leik-
ritinu. Sú kúnst heppnaðist, sér-
staklega sú fyrri og ég held að ég
geri ekki lítið úr frammistöðu
leikaranna þó að ég Ieyfi mér að
þakka leikstjóra að það tókst.
Leikrit Shermans um þetta
viðkvæma og vandmeðfarna efni
er býsna mergjað og þó fallegt,
en síðari hlutinn þótti mér lang-
dreginn um of, þegar borið var
grjót og meira grjót. Þar hefði
leikstjórinn þurft að ná upp
betra „tempói".
Leikendur fóru með hlutverk
sín af mikilli alvöru, vandvirkni
og leikgleði, Andrés Sigurvins-
son var mjög svo hommalegur í
fasi og framgöngu, manngerðin
sem sagt mjög sannfærandi að
hinu ytra. Ekki fannst mér hann
þó sérlega aðlaðandi persóna
framan af og mesta furða hvað
hann naut mikillar hylli kyn-
bræðra sinna; í síðari hlutanum
var hann ögn manneskjulegri og
viðfelldnari á allan hátt. Þeir
Árni Pétursson og Magnús
Ragnarsson stóðu vel fyrir sínu,
hvor á sinn hátt, og aðrir leikar-
ar sem komu við sögu gerðu það
sömuleiðis og má kannski eink-
um nefna Þorvald Þorsteinsson í
hlutverki Grétu. Eins og áður er
vikið að fannst mér leikstjórn
Ingu Bjarnason vel unnin og
hugmyndadk að mörgu leyti, að
öðru leyti en ákveðnum hæga-
gangi í seinni hlutanum. Leik-
mynd og búningar Karls Aspen-
lund voru sömuleiðis til hins
mesta sóma. Að öllu samanlögðu
mjög svo áhugaverð sýning — og
verður fróðlegt að fylgjast með
áframhaldandi störfum Stúd-
entaleikhússins á næstunni. Það
er öldungis rétt sem segir í
leikskrá eftir leikstjóranum að
leikhús á borð við Stúdentaleik-
húsið getur leyft sér að eksperi-
mentera miklu meira en at-
vinnuleikhús. Vonandi að þær
tilraunir verði jafn áhugaverðar
og takist jafnvel og þessi sem
hér er að vikið.
Viltu byrja með mér?
Bókmenntir
Siguröur Haukur Guðjónsson
VILTU BYRJA MEÐ MÉR?
Höfundur: Andrés Indriðason.
Kápumynd og teikningar: Anna
Cynthia Leplar.
Prentverk: Prentsmiöjan Hólar hf.
Útgefandi: Mál og menning.
Það er gaman að fá slíka bók í
hendur, því hér er alit sem prýðir
góða unglingabók: efni, úrvinnsla,
búningur.
Höfundur leggur útaf ótta
þrettán ára drengs, óttanum við
sjálfan sig, óttanum við þetta sem
er að brjótast fram í sál hans,
hann finnur að hann er að breyt-
ast, en í hvað, það veit hann ekki,
og það fyllir hann öryggisleysi.
Á táknrænan hátt velur höfund-
ur stráknum sæti í skólanum
fremst í bekknum. Hann situr þar
einn, leiðin til þess að hverfa inní
hópinn er lokuð, fyrir framan alla
— í augsýn allra mætir hann
sjálfum sér, og þetta skelfir hann.
Inná sviðið leiðir höfundur stelpu-
gopa með brún og heit augu og
ágengni sem vekur drengnum þrá,
sem hann heldur ekki þekkir. Það
er erfitt að vera táningur, ham-
skipti bernsku og manndóms oft
eins og leikvöllur, þar sem leik-
endum er það eitt uppálagt að ná
taktstigi við sjálfa sig. Sumir ná
þvi aldrei, breytast ekki úr barni í
mann, heldur verða — allt sitt líf,
eins og spriklandi fjölfætlur í
dansi við tálmyndir volæðis.
Andrés lýsir þessu á meistara-
legan hátt. Stíll hans og tilþrif eru
seiðmögnuð list, sem gaman er að
sjá á unglingabók. Hér þarf engar
Andrés
Indriðason
hækjur — hér þarf ekkert klám —
hér þarf ekkert barnamál, nei, hér
er á för höfundur sem af virðingu
nálgast verkefni sitt. Hann hefir
eitthvað að segja, af því að hann
ann mannlífinu, og er að reyna að
skilja það. Elías Þór Árnason
verður að manni. Teikningar önnu
eru bráðvel gerðar, fyndnar og
falla vel að efni. Ef útlendingur
bæði mig að benda á bók, frá 1982,
sem hæf væri til kynningar er-
lendis, þá myndi ég stoltur rétta
fram þessa. Hafið þökk fyrir frá-
bæra bók.
Glæsílegur
jólamarkaðu
í KJALLARA KJÖRGARÐS
I^SSáaSSSSÍ
W'. X 1
I
V?
B
..
ATH.:
Nýjar vörur bætast við daglega.
GERIÐ SVO VEL AÐ LÍTA INN
Gífurlegt úrval af leikföngum.
Mikiö úrval af styttum.
Skartgripir á hlægilegu veröi.
Sængurfatnaöur — vefnaöarvörur.
Fatnaður og skór á alla fjölskylduna
og margt margt fleira.
JÓLAMARKAÐURINN
í KJALLARA KJÖRGARÐS