Morgunblaðið - 14.12.1982, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
Geir Hallgrímsson um Alusuisse-málið:
Alþingi taki málið
í sínar hendur
Hvarvetna annars staðar myndi atburður af því tagi, sem
hér hefur komið fram (úrsögn Guðmundar G. I»órarinssonar,
þingmanns Framsóknar, úr álviðræðunefnd og ummæli hans
um iðnaðarráðherra), hafa þýtt það, að til stjórnarskipta hefði
dregið — eða a.m.k. ráðherraskipta, sagði Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, efnislega í framhaldsumræðu
um tillögu tíu sjálfstæðismanna um þingkjörna nefnd til að
leiða viðræður við Alusuisse.
Ríkisstjórnin ber pólitíska
ábyrgð á störfum iðnaðarráðherra
og hann hlýtur að taka afleiðing-
um af því þegar stuðningsmenn
hans lýsa því yfir, að þeir beri ekki
lengur traust til hans og draga í
efa hæfni hans til þess að halda á
málum framvegis. Þetta kom ber-
lega í Ijós í máli Guðmundar G.
Þórarinssonar (F) sem og í máli
Birgis ísleifs Gunnarssonar (S), er
hann mælti fyrir þeirri tillögu er
hér er rædd.
í byrjun júlí sl. varaði ég iðnað-
arráðherra við því í samtali, að ef
hann héldi fram þeirri stefnu í
málinu er hann þá rak, hlyti hann
að stefna því í strand. Þá var ætl-
unin að ráðherra hefði samráð við
okkur í ágústmánuði. Það samráð
var að vísu ekki haft fyrr en komið
var fram í nóvember, rétt áður en
viðræðufundur við fulltrúa Alu-
suisse fór fram. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins lögðu þá áherzlu á
það, að í viðræðum sem í hönd
færu, yrði haft fullt samráð við
þingflokka og lögðu til, að þing-
flokkar tilnefndu hver sinn full-
trúa til samráðs við iðnaðarráð-
herra. Með þeim hætti væru sköp-
uð skilyrði til að ná þjóðarsam-
stöðu í málinu og leggja grundvöll
að því að við næðum fram hags-
munamálum okkar í samningavið-
ræðum. En það er skemmst frá að
segja að iðnaðarráðherra sinnti í
engu þessum tilmælum. Hann hélt
áfram þann veg á málum, að hann
hefur ekki einungis glatað trausti
I>ingfréttir í stuttu máli
Lög um málefni aldr-
aðra — fyrir áramót
PÉTUR SIGURÐSSON (S) mælti
fyrir sameiginlegu áliti allra nefnd-
armanna heilbrigðis- og tryggingar-
nefndar neðri deildar, sem leggur til
að stjórnarfrumvarp um málefni
aldraðra verði samþykkt með 15
breytingartillögum, sem nefndin
flytur sameiginlega. Pétur lagði
áherzlu á nauðsyn þess að frumvarp-
ið yrði að lögum áður en ári aldraðra
lýkur. Frumvarpið sigldi hraðbyri
gegn um aðra og þriðju umræðu í
þingdeildinni og kemur væntanlega
til umfjöllunar í efri deild nk. mið-
vikudag.
Þrjú landbúnaðarmál
í efri deild
EGILL JÓNSSON (S) tók til máls í
gær í umræðum um þrjú frumvörp,
sem hann flytur ásamt Salome Þor-
kelsdóttur (S): 1) til breytinga á lög-
um um stofnlánadeild landbúnaðar-
ins, 2) til breytinga á Lögum um jarð-
rækt og 3) um framleiðnisjóð land-
búnaðarins.
EgiII sagði m.a. að samtals skorti
45,35 m. kr. til að fjárveitingar til
Stofnlánadeildar landbúnaðarins
verði í samræmi við lagaákvæði þar
um.
Hann vitnaði til ályktunar Búnað-
arþings til rökstuðnings því að með
frumvarpi sínu leggur hann til að
„að þessu sinni færist einungis
helmingur búvörugjalds til Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins, þótt
hinsvegar liggi fyrir að ekkert sam-
band var á milli álagningar þess i
upphafi og þeirrar ákvörðunar, að
Stofnlánadeild landbúnaðarins
greiddi hluta af ellilífeyri bænda".
Frumvarp til breytinga á jarð-
ræktarlögum felur í sér að breyta
þeim til þess horfs sem var áður en
þeim var breytt 1979, en þá vóru
heimiiaðar skerðingar á framlögum
vegna framkvæmda í jarðrækt. Egill
sagði m.a. að upphæð þess fjár, sem
verðtrygging jarðræktarlaga átti að
gefa, hefði farið stöðugt minnkandi
og nú er svo komið, sagði hann, ef
miðað er við frumvarp til fjárlaga
1983, að ekki vantar einungis allt
það fé, heldur einnig skerðingarféð
og að auki 3,48 m. kr., svo unnt sé að
standa skil á lögboðnum framlögum
til bænda.
Þriðja frumvarpið fjallar um
Stofnlánadeild landbúnaðarins og
hefur áður verið frá því sagt.
Fræðsla um ávanaefni
í grunnskólum
SIGURLAUG BJARNADÓTTIR (S)
mælti í gær fyrir frumvarpi sem hún
flytur ásamt þingmönnum úr öllum
þingflokkum, þess efnis, að • taka
skuli upp fræðslu um áhrif á neyzlu
áfengis og annarra ávana- og fíkni-
efna í öllum grunnskólum landsins.
Hún taldi hér um mjög brýnt ákvæði
að ræða enda ekki ofmælt að hver
einasta fjölskylda í landinu sé nú í
meira eða minna mæli tengd eða
ofurseld erfiðleikum og hörmungum
vegna neyzlu áfengis og annarra
fíkniefna.
Tónskáldasjóður íslands
HALLDÓR BLÖNDAL (S) mælti í
gær fyrir frumvarpi sem hann flytur
ásamt þingmönnum úr öllum þing-
flokkum og einum utan flokka (Vil-
mundi Gylfasyni) um Tónskáldasjóð
íslands, sem vera skal hliðstæða
launasjóðs rithöfunda og efla tón-
smíðar, útgáfu tónlistar og kynningu
á íslenzkri tónlist.
Jarðstrengur til
sjónvarpssendinga
PÉTUR SIGURÐSSON (S) hefur
lagt fram tillögu til þingsályktunar
þar sem Landsíma Íslands er falið að
kanna kostnað af hagkvæmni þess
að leggja fjölrása jarðstreng til sjón-
varpssendinga og annarra fjarskipta
um þéttbýli og síðar milli lands-
hluta. Skal Landsíminn kanna sér-
staklega þá áætlun um jarð-
strengjavæðingu sem unnið er að í
Englandi, hvernig þarlendir hyggj-
ast fjármagna framkvæmdir og um
kvaðir á slíkri starfsemi.
Nýting aukaafurða
í fiskiðnaði
ALEXANDER STEFÁNSSON og
fleiri framsóknarmenn flytja tillögu
um skipan nefndar til að „gera út-
tekt og tillögur um hvernig hægt sé
á sem fljótvirkastan hátt að stór-
auka og fullnýta aukaafurðir í fisk-
iðnaði hér á landi. Nefndin geri m.a.
tillögur um tæknibúnað og tækni um
borð í íslenzkum veiðiskipum svo og
nauðsynlegar breytingar á fiskverk-
unarstöðvum 1 landi til að ná þessu
markmiði, enn fremur tillögur um
nýjar vinnslustöðvar ef með þarf,
t.d. í lífefnaiðnaði. Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins og Fiskifélag
Islands skulu vera nefndinni til
ráðuneytis".
í greinargerð segir að togari sem
komi með 150 tonn af fiski að landi
hafi fengið 180—190 tonn upp úr sjó.
Hafi því 30—40 tonnum verið kastað
fyrir borð sem innyflum og úr-
gangsfiski í einni veiðiferð.
stjórnarandstöðu heldur og
stærsta stjórnarflokksins. Þing-
flokkur Framsóknar hefur í
svarbréfi til Alþýðubandalagsins
tekið undir vantraustsorð Guð-
mundar G. Þórarinssonar, fv. full-
trúa síns í álviðræðunefnd. Það er
því ljóst, að ráðherra hefur haldið
á málum með svipuðum hætti
gagnvart samstarfsflokki og gagn-
vart stjórnarandstöðu.
Ég hygg því að ljóst sé að tími
er til kominn að Alþingi taki mál
þetta í sínar hendur, eins og lagt
er til í þingsályktunartillögu
sjálfstæðismanna.
Það er fram komið, að hæstvirt
ríkisstjórn hefur ekki starfhæfan
þingmeirihluta. Það hefur og kom-
ið fram að háttvirtur ráðherra
nýtur ekki stuðnings þingmanna
er hingað til hafa veitt ríkis-
stjórninni stuðning og því er ekki
um annað að ræða en Alþingi taki
málið í sínar hendur. Á það má og
minna, að í samningaviðræðum
við Alusuisse er rætt um efnisat-
riði sem eðli málsins samkvæmt
hljóta að koma til kasta Alþingis.
Þar er um löggjafaratriði að ræða,
endurskoðun á samningum við
Alusuisse og starfrækslu ál-
bræðslunnar í Straumsvík. Um
það er löggjöf sem Alþingi þess
vegna þarf að fjalla um.
Þingmenn Alþýöuflokks:
Myndbönd í
sama eftirlit
og kvikmyndir
Eiður Guðnason og Kjartan Jó-
hannsson, þingmenn Alþýðuflokks,
hafa flutt frumvarp til breytinga á
lögum um vernd barna og unglinga
þess efnis m.a., að skoðunarmenn
skuli meta hvort myndbönd sem og
kvikmyndir „séu óhæf til sýningar
börnum innan 16 ára aldurs“. Um
myndbönd segir m.a. í frumvarpinu:
„Seljendum eða leigjendum
kvikmynda á myndböndum eða
myndplötum er óheimilt að leigja
börnum innan 16 ára aldurs
myndefni, sem haft getur skaðleg
áhrif á börn skv. framanskráðu.
Jafnframt er óheimilt að selja eða
leigja slíkt myndefni til fullorð-
inna, nema þeir undirriti yfirlýs-
ingu um að þeir ábyrgist að mynd-
efnið verði ekki til sýningar fyrir
börn.
Sé myndefni þannig flokkað er-
lendis, að það teljist þar varhuga-
vert til sýningar börnum eða svo
megi ætla af öðrum ástæðum, er
seljendum eða leigjendum mynd-
banda og myndplatna skylt að fá
fyrirfram úrskurð skoðunar-
manna kvikmynda um sýningar-
hæfni myndefnisins gagnvart
börnum. Ríkisútvarpið annast
skoðun kvikmynda sem það sjón-
varpar."
Tilgangur frumvarpsins er m.a.
sagður:
• 1. Að marka þá stefnu í lögum,
að ekki megi sýna börnum inn-
an 16 ára kvikmyndir er ætla
má að haft geti skaðleg áhrif á
siðferði eða sálarlíf þeirra.
• 2. Að slá því föstu, að kvik-
myndir á myndböndum og
myndplötum skuli háðar
kvikmyndaeftirliti eins og aðr-
ar kvikmyndir ætlaðar almenn-
ingi.
• 3. Að kveða skýrt á um að
óheimilt sé að leigja eða sýna
börnum innan 16 ára myndefni,
sem þeim er talið skaðlegt.
Fjárlög til annarrar itmræðu í dag:
Lánsfjárlög
„söltuö“ fram
yfir áramót
— sem og bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
Gert var ráð fyrir því í gær að frumvarp til fjárlaga
kæmi til annarrar umræðu í Sameinuðu þingi í dag,
þriðjudag. Þetta var þó háð því aö tækizt að prenta
nefndarálit og breytingartillögur, sem verða fjölmargar,
bæði frá fjárveitinganefnd sameiginlega og einstökum
nefndarmönnum, fyrir þann tíma. Geir Gunnarsson
(Abl.), formaöur fjárveitinganefndar, mun væntanlega
gera grein fyrir sameiginlegum breytingartillögum sem
og breytingartillögum stjórnarliða en Lárus Jónsson (S)
og Sighvatur Björgvinsson (A) fyrir nefndarálitum og
hugsanlegum breytingartillögum stjórnarandstöðu-
flokka.
Fjárfestingar- og lánsfjár-
áætlun og frumvarp að láns-
fjárlögum 1983, sem fylgja
eiga fjárlagafrumvarpi skv.
ákvæðum í „Ólafslögum" frá
1979 vóru ekki komin fram í
gær, en fjármálaráðherra
sagði fyrir skemmstu, að óvíst
væri hvort lögð yrðu fram
fyrir áramót og útilokað að af-
greiða fyrir þann tíma.
Bráðabirgðalög ríkisstjórn-
arinnar vóru ekki komin úr
umfjöllunarnefnd fyrri þing-
deildar í gær, en þau hafa m.a.
að geyma framlengingu ým-
issa tímabundinna tekju-
stofna fram til mánaðarloka
febrúar nk. Hinsvegar rnuri
ætlun fjármálaráðherra að
leita eftir framlengingu
sjúkratryggingargjalds og
verðjöfnunargjalds á olíu
samhliða fjárlögum. Stefnt
mun að því að bráðabirgðalög-
in komi til annarrar umræðu í
efri deild á morgun, miðviku-
dag, en sýnt þykir, að ekki sé
stefnt að afgreiðslu þeirra fyr-
ir áramót.
Ekki mun búið að dagsetja
þinghlé fyrir jól. Kunnugir
telja þó að síðasti starfsdagur
þingsins á árinu verði 22. eða
23. desember nk.