Morgunblaðið - 14.12.1982, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
35
hefur haft nokkra stefnu í þeim
efnum, svo að enn sé orðrétt vitn-
að í þessa merku grein hans. Að-
eins vildi ég setja orðið ógerlegt í
staðinn fyrir erfitt. Ráðherrarnir
sitja valdalausir, áhrifalausir og
stefnulausir í illa fengnum stól-
um. Enn eru þeir líka ábyrgðar-
lausir, en hindra samt aðra í því
að axla ábyrgðina og bjarga því
sem bjargað verður. En þjóðin
mun draga þá til ábyrgðar í fyll-
ingu tímans. Annars er sjaldgæft í
þeirra lágkúru, sem pólitískum
poturum hefur tekist að innleiða í
íslensk stjórnmál, að maður sem
að forminu til a.m.k. styður þessi
öfl, skuli segja sannleikann um
þau. í því er í öllu falli fólginn
vonarneisti. Á meðan fleiri eða
færri aðstandendur stjórnarinnar
gera sér grein fyrir því eitraða
andrúmslofti, sem stafar frá þess-
ari stjórn og þeim skaðvænlegu
áhrifum, sem það hefur á heil-
brigð samskipti manna á meðal, er
von til þess að af braut óheilind-
anna verði snúið. Atlögunni var
beint að Sjálfstæðisflokknum,
kjölfestu íslensks þjóðfélags. Enn
hefur aðförin ekki tekist og eitrið
situr fast í þeim sem henni stjórn-
uðu og við því tóku til millifærslu.
Enn reyna þeir að auka glundroð-
ann og skjóta sér undan dómi
kjósenda. Á meðan eykst mengun-
in í þjóðlífinu og stjórnmálaflokk-
unum öllum nema Sjálfstæðis-
flokknum sem þegar hefur gengið
í gegnum sína eldskírn. Þar er
mannvígum lokið, enda nóg að
gert.
Bráðabirgðalögin
bjarga engu
Óeirðirnar í Alþýðubandalaginu
mega mér að meinalausu magn-
ast. En það er ekkert gleðiefni,
þegar lýðræðissinnar berast á
banaspjótum í samtökum sínum
hvort heldur er í Alþýðuflokknum
eða Framsóknarflokknum. Á
stjórnleysið og stefnuleysið er svo
sannarlega ekki bætandi og þó er
alltaf verið að því. Einingartáknið
óttast ekkert, það bíður reiðubúið
til áframhaldandi björgunar-
starfa, ástsælt eins og Þórarinn
Þórarinsson segir.
Öllum er nú ljóst orðið, að
bráðabirgðalögin bjarga engu. Það
er að vísu rétt, að raunveruleg
verðbólga verður kannske ekki
meiri en 70—80% næstu vikurnar
í stað 100% eða svo, en það skiptir
sáralitlu máli. Hvort tveggja er jafn
vonlaust. Eg sagði raunveruleg
verðbólga, því að þær tölur sem
fólkinu eru upp gefnar eru alltaf
falsaðar vísitölur. Vörur þær sem
inn í þá útreikninga ekki ganga,
eru ætíð hækkaðar miklu meira en
annað. Þetta gera stjórnarherr-
arnir vísvitandi, m.a. með þessum
bráðabirgðalögum, þar sem hið
svokallaða trhabundna vörugjald
er stórlega hækkað, því að þar eru
tíndar til þær vörutegundir, sem
yfirleitt falla ekki inn í gamla
vísitöluútreikninginn. Vinstri
stefnunni, sem mörkuð var haust-
ið 1978 er nákvæmlega framfylgt
og stöðugt hert á svindlinu.
Ásælni er aukin í vasa skattborg-
aranna samhliða kjaraskerðing-
um, blekkingum og fölsunum.
Kjörorð stjórnarherranna er:
Fjármagnið frá fólkinu.
Alveg er ljóst, að ríkisstjórnin
ætlast ekki til þess að bráða-
birgðalögin fái venjulega þinglega
meðferð. Þau eru nú fyrst rædd
þegar aðeins lifir vika nóvem-
bermánaðar og kjaraskerðingin
tekur gildi 1. des. Lofað hafði ver-
ið, að þessi umræða færi fram sl.
miðvikudag, en það var auðvitað
svikið. Raunar vissu allir frá upp-
hafi að þessi myndu verða vinnu-
brögð stjórnar Gunnars Thor-
oddsens, eða gátu vitað. Hann hef-
ur í nærfellt hálfa öld verið með
stjórnarskrána á samviskunni og
nauðsynina á að breyta henni.
Þess vegna túlkar hann orðin
brýna nauðsyn enn sem áður
þannig, að óþarft sé að leita álits
Alþingis þó að rúmlega hálfur
annar mánuður sé til þess á reglu-
legu Alþingi. Hann hefur sérstaka
nautn af því að niðast á stjórn-
arskránni. í því sést stjórnviskan
og manndómurinn best.
þ*s*> Utimri og þ«IU W- 1»75 -
eftt. gel» att við a& *tr<6* mfndir eru I bdkhwl.
Ný bók frá Skjaldborg:
Frá konu
til konu
KOMIN er út hjá bókaútgáfunni
Skjaldborg bókin „Frá konu til
konu“ eftir Lucienne Lanson, en
hún er þekkt í Bandaríkjunum sem
kvensjúkdómalæknir og lauk hún
prófí með hæstu einkunn frá lækna-
háskólanum í Pennslylvaníu. Bókin
var fyrst gefin út árið 1975.
I bókinni er fjallað um kvenlegt
eðli og kvenlega sjúkdóma og veitt
er fræðsla um ýmislegt er það
varðar. Bókin er í sjö hlutum sem
bera heitin: Starfsemi hinna innri
kvenlegu líffæra; Konur eru
kynjaverur; Margt er kvenna
meinið; Kyneðli kvenna; Kvenleg
forréttindi; Eðlilegar breytingar
hverrar heilbrigðrar konu og
Hvað bíður konunnar.
Bókin hefur verið endurbætt frá
fyrstu útgáfu. Hún er 412 blaðsíð-
ur, unnin í Prentsmiðju Björns
Jónssonar á Akureyri. Gissur Ó.
Erlingsson íslenskaði.
„Vélráð á
báða bóga“
ÚT ER komin hjá Iðunni ný saga
eftir breska spennusagnahöfundinn
Brian ('allison. Nefnist hún Vélráð á
báða bóga. Andrés Kristjánsson
þýddi. Þetta er sjötta bók höfundar-
ins sem út kemur á íslensku.
Aðalpersóna sögunnar er Trapp
skipstjóri sem frá var sagt í bók-
inni Einkastríð Trapps sem út
kom í fyrra. Efni sögunnar er
kynnt á þessa leið á kápubaki:
„Trapp skipstjóri er maður sem
hefur marga hildi háð á sjó og víl-
ar ekki fyrir sér að stíga út fyrir
mörk venjulegs siðgæðis þegar
hagnaðarvonin er annars vegar. Á
hinum gamla dalli sínum, Karon,
með skuggalega áhöfn skúrka og
þrjóta um borð hefur hann sloppið
lifandi úr ótrúlegum háska og
svaðilförum. Nú tekst hann á
hendur mikið hættuspil, í þetta
sinn þarf hann að smygla lifandi
fólki yfir Ermarsund. En spurn-
ingin er: hverjum vill Trapp þjóna
þegar vel er boðið. Brátt er Trapp
svo flæktur í eigin vélráð og ann-
arra að vandséð er hvernig hann
muni sleppa heill á húfi.“
Vélráð á báða bóga er 183 blað-
síður. Prentrún prentaði.
Samhjálparplatan
verður til sölu í kaffistofu Samhjálpar á Hverfisgötu 42
kl. 14—18 alla virka daga til jóla.
Sendum í póstkröfum um allt land. Sími 11000.
Samhjálp.
GARÐAR ANNE ÁGÚSTA
PHILIPS
litsjónvörp
Þeir hjá Philips eru í fararbroddi í framleiðslu lit-
sjónvarpstækja. Við hjá Heimilistækjum
reynum svo að bjóða sem flestar
gerðir þessarar frábæru framleiðslu til þess að allir
fái eitthvað við sitt hæfi;
Steríó tæki
10“ CX 1130 26“ CS 3390 16“ CT 3418
staðgreiðsluverð kr. 28.710.00 staðgreiðsluverð kr 35.195.00 staðgreiðsluverð kr. 27.740.00
14“ CT 3005
staðgreiðsluverð
kr. 14.130.00
16“ CT 3015
staðgreiðsluverð
kr. 15.350.00
16“ fjarstýrt,
staðgreiðsluverð
kr. 17.440.00
20“ C1 3010
staðgreiðsluverð kr. 17.855.00
20“ 3430 fjarstýrt,
staðgreiðsluverð kr. 21.435.00
22“ CS 1001
staðgreiðsluverð kr. 23.170.00
22“ fjarstýrt,
staðgreiðsluverð kr. 25.810.00
26“ CS 1006
staðgreiðsluverð kr. 23.725.00
26“ 3270 fjarstýrt,
staðgreiðsluverð kr 26.625.00
26“ CP 2102 „de luxe“
staðgreiðsluverð kr. 31.272.00
VIÐ ERUM SVEIGJANLEGIR I SAMNINGUM
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655