Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
Að prófkjöri
— eftir Þóri H.
Óskarsson
Margt kemur í huga manna
þessa dagana, þegar lokið er
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Eitt af því, sem vakti athygli
mína strax á fyrsta degi, sem
Morgunblaðið haföi minnsta
möguleika á því að koma efni sínu
á framfæri var grein eftir Helga
Ólafsson, hagfræðing.
Það sáu allir, sem grein þessa
lásu, að Helgi var sár útaf sigri
ýmissa annarra en formannsins
Geirs Hallgrímssonar.
Ummæli Jóns Magnússonar tel
ég vera mjög svo réttmæt og tel ég
meira að segja að ýmsir „góðir"
vinir Geirs Hallgrímssonar hafi
dregið hann í villu vegar út í það,
sem nú blasir við honum.
Það fer ekkert á milli mála,
hvort sem mönnum líkar betur
eða verr, að ýmsir stuðningsmenn
Geirs Hallgrímssonar og þar á
meöal blað allra landsmanna eins
og það kallar sig, Morgunblaðið, á
sína sök á því hvernig komið er.
Ég hefði aldrei ímyndað mér, að
prófkjörið færi svona og meira að
segja hélt ég að Albert Guð-
mundsson, sem ég studdi með ráði
og dáð myndi ekki ná meira en 3.
til 4. sæti eftir þau átök, sem orðið
hafa í flokknum. Úrslitin sýna
hinsvegar hug hins almenna kjós-
anda, það fer ekkert á milli mála
og ég hreinlega hef meðaumkun
með formanni flokksins eftir aðra
eins útreið og tel, að hann hafi
lokast inni í þröngum „vinahópi",
samansettum af allskyns sérvitr-
ingum, sem hafa haft vond áhrif á
formanninn m.a. með einstöku
hatri á Gunnari Thoroddsen.
Það er að koma í ljós núna með
prófkjörunum hvar hugur fólksins
stendur, en Morgunblaðsmenn
berja höfðinu við steininn og tala
jafnvel um svindl og söfnun
manna úr öðrum flokkum á kjör-
stað.
Prestur nokkur norður í landi
talar um að verið sé að skemmta
skrattanum með því að viðhafa
prófkjör.
Ég held, að Morgunblaðið ætti
loknu
„Formaður flokksins
hefur nú gefið sína yfirlýs-
ingu og met ég hann mik-
ils fyrir og tel það stór-
mannlegt af honum að
taka slíka stefnu, sem
hann nú hefur tekið og ég
er sannfærður um að kjós-
endur munu flykkjast um
hahn og sjá til þess að
hann nái kosningu.“
að hafa það í huga, að þrátt fyrir
stanzlausan áróður sinn fyrir Geir
Hallgrímsson og jafnframt gegn
Gunnari Thoroddsen þá hafa
vopnin svo gjörsamlega snúist í
höndum þeirra og þarf ekki frekar
vitnanna við en nýafstaðin próf-
kjör.
Formaður flokksins hefur nú
gefið sína yfirlýsingu og met ég
hann mikils fyrir og tel það
stórmannlegt af honum að taka
slíka stefnu, sem hann nú hefur
tekið og ég er sannfærður um að
kjósendur munu flykkjast um
hann og sjá til þess að hann nái
kosningu.
Til þess að slíkt megi verða þarf
stefnubreytingu á „Mogga". Ef
þeir, sem þar ráða skilja ekki sinn
vitjunartíma þá mun úlfúðin
halda áfram og gæti svo sannar-
lega endað með algjörum klofn-
ingi en nú er tækifæri til að sam-
eina flokkinn og gera hann að
breiðum, víðsýnum og frjálslynd-
um flokki, flokki allra stétta „stétt
með stétt“. Það er draumur
margra sjálfstæðismanna, að
flokkurinn megi aftur verða slík
fylking, sem hann var undir for-
ystu Olafs Thors. Flokkur, sem
sannarlega styður við dug og þor
en elur ekki upp í fólki öfund og
aumingjaskap en hjálpar aftur á
móti þeim, sem virkilega eru
hjálparþurfi.
Sumir hallmæla prófkjörum og
tala um þau sem eitur í flokks-
starfinu en hvað um lýðræðið,
þora slíkir menn ekki að leita eftir
áliti fólksins í landinu? Ef svo er,
þá hafa þeir sem þannig hugsa
ekki mikið álit á einstaklingnum
og talandi um það vil ég nota
Sólar-
rafhlöður
sem endast
ævilanfft
Q O O O O
DDS6B
O O Ð Ð B
□ OSQO
onan
Jólatilboðsverð
kr. 380.-
_________f
tækifærið og segja mína skoðun á
því hvernig mér finnst margir
hugsa varðandi skoðanir hvers og
eins þegar um prófkjör er að ræða.
Ég er einn þeirra, sem hafa látið
hafa sig í það, að hringja út í hina
og þessa og þó aðallega í vini og
kunningja.
Ég hef nú tekið þá ákvörðun að
láta ekki hafa mig í það oftar og
vil hérmeð beina því til annarra,
að þeir láti kjósandann I friði og
treysti fullkomlega á dómgreind
hans og frambjóðendur og flokkar
láti fólk í friði, auglýsi aðeins með
því að hvetja fólk til að nota þenn-
an helga rétt sinn, sem er að fara
á kjörstað til að hafa áhrif á lýð-
ræðið.
Frá bernsku hefur mér fundist
eitthvað annarlegt við það, að
smala mönnum saman til að
hringja í fólk og reyna að hafa
áhrif á það jafnvel í þeim tón að
breyta skoðunum þess og eins og
áður sagði mun ég ekki láta hafa
mig oftar í slíkt. Mér finnst þvílík
ólykt að slíku að ég vil helzt biðja
þá afsökunar, sem ég fram að
þessu hef hringt í og lofa þeim hér
með að láta þá í friði framvegis.
Aftur á móti vil ég hvetja alla
landsmenn til að neyta atkvæðis-
réttar síns og íhuga málin vel og
gaumgæfilega áður en þeir kjosa
og þá hræðist ég ekki dóm fólks-
ins.
Það verða allir að sætta sig við
úrslit kosninga og í alla staði fjar-
stæða að gera fjölda fólks upp
annarlegar skoðanir og óheiðar-
leik í kosningum.
Það sem Sjálfstæðisflokkurinn
á að gera nú er að hlýta þeim
dómi, sem fram kemur í prófkjör-
unum og spila síðan eftir því. Eg
man þá tíð, að margir töluðu um
það, að ekki væri lengur hægt að
styðja Sjálfstæðisflokkinn vegna
þess, að það væru bara lögfræð-
ingar í framboði, vilja menn held-
ur fá það aftur. Mér finnst tími til
kominn, að menn láti verkin tala.
Oft heyrir maður að þessi eða
hinn stjórnmálamaðurinn sé svo
lyginn, slóttugur og falskur og þar
fram eftir götunum. Ég held að ef
fólk tryði slíku þá myndi það hik-
laust sýna þeim stjórnmála-
mönnum í tvo heimana. Einn átti
til dæmis að vera síljúgandi þegar
hann tæki ofan gleraugun og sum-
ir héldu því fram hér fyrir nokkr-
um árum, að einn ágætis ráðherra
væri alltaf ljúgandi.
Prófkjör eru til góðs ef rétt er
með farið, það er til dæmis ekkert
óeðlilegt við það, að þeir sem áður
hafa verið framarlega á lista og
setið á Alþingi eða í borgarstjórn
nái aftur góðu kjöri. Ef svo væri
ekki þá væri það bara dómur, sem
viðkomandi fambjóðandi verður
að sætta sig við, það er þá eitthvað
í fari hans, sem fólki ekki líkar við
eða að hann hefur eitthvað að-
hafst, sem fólkið mótmælir með
því að kjósa hann ekki aftur, svo
einfalt er það.
Aftur á móti tel ég, að tíminn
hafi leitt það í ljós, að fullkomin
ástæða er til að setja ákveðnar
reglur í sambandi við prófkjör og
vera ekki sífellt að hringla með
það hvernig á að kjósa o.s.frv.
Eins tel ég að setja eigi reglur um
það, að láta fólk í friði eins og
áður sagði og stöðva þessar miklu
sérauglýsingar einstakra fram-
bjóðenda. Ég er ekki mikið fyrir
boð og bönn, en þegar samkeppnin
er orðin eins og raun ber vitni
milli frambjóðenda innan sama
flokksins, þá finnst mér að
skammt muni vera í það að ein-
ungis efnaðir menn geti farið í
framboð og það held ég, að sé ekki
vilji almennings.
Það á að halda prófkjörum
áfram og finna þeim þann heiðar-
legasta grundvöll, sem völ er á og
þá er lýðræðinu borgið.
Flokkur, sem ekki vill hlýta
dómi stuðningsmanna sinna er
dæmdur til að einangrast og verða
smátt og smátt að engu.
Það er von mín, að prófkjör
verði áfram afl fólksins til að
segja sínar skoðanir og þeim verði
beint í þann farveg, að enginn
þurfi að efast um að skoðanir
komi fram eftir heiðarlega og ít-
arlega íhugun.
Þórir H. Óskarsson.
9646—1364
Skypant er liður í þjónustu Jöfurs h.f. við Chrysler, Dodge
og Plymouth eigendur á íslandi. Með nútímalegu skipulagi,
hraðvirkri tækni og góðri samvinnu við Chrysler verksmiðjurn-
ar í Bandaríkjunum og Flugleiðir hefur okkur tekist að stytta
stórlega afgreiðslutíma sérpantaðra varahluta og koma á fót
þjónustu sem brýn þörf var fyrir; Skypant.
Hvernig vinnur
Þig vantar sérpantaðan varáhlut í Chryslerinn þinn og hefur
því samband við Skypant sérfræðing okkar, Jóel Jóelsson.
Hann sér um að telex-skeyti með nauðsynlegum upplýsing-
um sendist umsvifalaust til varahlutamiðstöðvar Chrysler,
skammt frá Kennedyflugvelli. Þar sér talva um að koma
boðum til sérhæfðra starfsmanna á varahlutalager. Þeir
senda varahlutinn með hraðboða í vöruafgreiðslu Flugleiða
á Kennedyflugvelli þar sem vörunni er tryggð fyrsta ferð heim
og Chryslerinn þinn er kominn á götuna fyrr en varir.
Hress
irarn
\tegt
JÖFUR
HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600