Morgunblaðið - 14.12.1982, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
Akureyri 1895-1930
Ljósmyndir
Hallgríms
Einarssonar
eftir Örlyg
Sigurðsson
Að ógleymdum virðulegum
myndatökum skólaspjaldanna
margrómuðu var hápunktur
frægðarferils skólaskáldanna í
Akureyrarskóla í gamla daga að
labba sig til Hallgríms Einarsson-
ar ljósmyndara og fá tekna af sér
gáfumannamynd. Þá brakaði oft
og brast í viðarstiganum upp í
myndastofuna, því að skáld af
þessari skemmtilegu gerð báru
jafnan blýþung höfuð troðfull af
mannviti, menntun og heimspeki-
legum vangaveltum. Síðan brugðu
menn hönd undir kinn áður en fír-
að var af í fókus og stellingin
minnti á póstkort af danska skáld-
inu Holgeiri sáluga Drackmann,
eða þá að menn laumuðu hendinni
í boðunginn að klassískum hætti
Naflajóns Frakkakeisara. Þá
sáust sjaldan skólaskáld brosa eða
hlæja. Hressilegur hlátur þótti þá
næstum ímynd sjálfrar heims-
kunnar. A norðurvegg á húsi
myndmeistarans stóð stóru
skartletri upp á frönsku: „Atelier
H. Einarsson". Sýningarkössum
með úrvals mannamyndum var
komið fyrir á húshliðinni, sem
snéri út að Hafnarstræti, vegfar-
endum til augnayndis og skemmt-
unar.
Þá varð þeim óendanlega kóm-
íska skemmtimanni, Brynleifi
adjunkt Tobíassyni að orði, eitt-
hvað á þessa leið: „Nah, hann er
obbo glúrinn fótógraf hann Hall-
grímur Einarsson. Nú er hann bú-
inn að hengja okkur upp í sama
glerkassann við Hafnarstrasse,
okkur helztu spíssborgarana og
oddborgarana eins og Odd Vatns-
dæla-Hofverja (Odd prentsmiðju-
stjóra Björnsson), Odd apa (O.C.
Thorarensen apótekara), Steina
Matth. (Steingrím Matthíasson,
lækni), Lord Grey (Sigurð skóla-
meistara gráa) og svo auðvitað
mig, sjálfan æðstatemplarann.“
Fyrir nokkrum dögum barst
mér fögur og heillandi gjöf frá
gamalii vinkonu minni að norðan,
Olgu dóttur Hallgríms Einarsson-
ar ljósmyndara. Þessi kærkomna
gjöf er nýútkomin myndabók, sem
ber heitið: Akureyri 1895—1930.
Bókin hefir að geyma gullfallegt
úrval af ljósmyndum föður henn-
ar, sem hefir varðveitzt. Þar blasir
við á hverri síðu myndrænt og
merkilegt tímabil í liðinni sögu
Akureyrar, þeirrar gömlu Akur-
eyrar, sem aldrei kemur aftur.
Jafnframt að bjarga þessu mynd-
ríka umhverfi og fólki frá
gleymsku hefir þessum myndræna
og magnaða fótógraf tekizt að
skapa ný og sjálfstæð listaverk
með linsukassa sínum og næmu,
sjáandi auga.
Af því, að ég hefi jafnan haft
meira gaman af fólki en húsum
ætla ég að reyna að fá tvær eða
þrjár myndir úr bókinni birtar
með þessari grein, sem gefa mér
strax tilefni til einhverrar um-
fjöllunar, sem gömlum og góðum
Akureyringi, eins og reyndar allar
myndirnar gera við nánari skoðun
á þessu einstæða perlusafni.
Minningarnar streyma bókstaf-
lega hömlulaust fram, því verð ég
að hafa hemil á sjálfum mér til að
forðast að verða langorður og leið-
inlegur. Tökum til dæmis gamla
meðfylgjandi hópmynd á bls. 54.
Margur gæti ætlað, við fyrsta
augnakast, að myndin væri tekin í
lávarðadeildinni brezku eða á að-
alfundi Bilderbergsklúbbsins
fræga. Þessi skemmtilega og
skartlega mynd er af glæsimenn-
inu og snyrtimenninu Stefáni
skólameistara ásamt kennaraliði
sínu. Allir virðast þeir klæddir í
hefðbundin kennaraföt síns tíma,
sem tíðkaðist þá við Akureyrar-
skóla. Þá var stíll og elegans yfir
mannskapnum og fyrirmönnum
staðarins, ólíkt þeim ruslarabrag
og betlilúkuúthaldi í klæðaburði,
sem einkennir mjög prolitara-
mennsku og allsráðandi, niður-
snobbandi plebbasmekk nútímans
á svo mörgum sviðum. Því varð
Brynjólfi gamla i Þverárdal að
orði er hann mætti Stefáni skóla-
meistara norður á Akureyri upp-
skveruðum og glerfínum í miðri
viku: „Með leyfi að spyrja, hverju
klæðist skólameistarinn á sunnu-
dögurn". Menn hafa eflaust gaman
af að sjá hér nöfn viðkomandi
greifa á umræddri mynd. Fremri
röð sitjandi: Brynleifur Tobíasson,
Árni Þorvaldsson, Stefán skóla-
meistari, Lárus Bjarnason og Jón-
as Snæbjörnsson. Aftari röð
standandi: Lárus Rist, Sigurður E.
Hlíðar, Júlíus Havsteen og Áskell
Snorrason.
Vafalítið voru þeir snjöllu lista-
menn, Hallgrímur Einarsson og
Jón Kaldal, fremstir andlits-
myndasköpuða landsins um sína
daga. Á bls. 44 í þessari bók er
©RAUMA
RAÐNINGA
BÓKINÞÍN
♦ ÞESSI BÓK HEFUR EKKI FYRR KOMIO UT Á ISLENSKU
Hvað dreymdi þig i nótt?
Svartan hest eða epli. Þá
þarftu aö vita hvaö draum-
arnir merkja. Flettu upp i
DRAUMARAÐNINGABOKIN
ÞÍN, um 3000 uppsiáttarorð
og tilvisun til skildra orða svo
ná megi meiri nákvæmni i
ráðningunni.
Hafðu þessa bók á náttborð-
inu og lestu úr draumum þin-
um strax meðan þú sérð þá
fyrír þér Ijóslifandi.
Utgefandi: INGOLFSPRENT
simi: 38780