Morgunblaðið - 14.12.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
45
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Akureyrar.
Undankeppni Akureyrarmóts-
ins í sveitakeppni lauk um helg-
ina. Tóku 18 sveitir þátt í keppn-
inni og var spilað í þremur riðl-
um. Tvær efstu sveitirnar í
hverjum riðli í undankeppninni
spila um 1,—6. sætið í Akureyr-
armótinu. Sveitirnar í 3.-4. sæti
spila um 7,—12. sætið og neðstu
sveitirnar um 13.—18. sætið.
Röðin í riðlunum varð þessi:
A-riðill:
Júlíus Thorarensen 85
Perðaskrifstofa Akureyrar 63
Stefán Vilhjálmsson 57
B-riðill:
Jón Stefánsson 79
Stefán Ragnarsson 76
Örn Einarsson 71
C-riðill:
Páll Pálsson 95
Hörður Steinbergsson 82
Stefán Sveinbjörnsson 38
Úrslitakeppnin hefst í kvöld í
Félagsborg kl. 20. Spilaðir verða
32 spila leikir. Keppnisstjóri BA
er Albert Sigurðsson.
Brigdefélag
Hafnarfjarðar.
Þegar aðeins er eftir að spila
eina umferð í sveitakeppni fé-
lagsins er staða efstu sveita
þessi:
Sævar Magnússon 202
Aðalsteinn Jörgensen 195
Kristófer Magnússon 167
Jón Gíslason 157
Eins og sjá má eiga aðeins
tvær sveitir möguleika á að
hreppa hinn eftirsótta meistara-
titil og það skemmtilega við
þetta er að í síðustu umferð eig-
ast þær innbyrðis við á græna
borðinu. Það verður því um
hreinan úrslitaleik að ræða og
nægja Sævari og félögum sjö
stig úr þeirri viðureign til að
hljóta meistaratitilinn í ár.
Þeim, sem áhuga hafa á að
fylgjast með leikjunum í síðustu
umferð, er velkomið að mæta og
spilað verður í íþróttahúsinu nk.
mánudagskvöld 13. desember kl.
19.30.
Bridgefélag V-Hún.
Hvammstanga
Nýlokið er 5 kvölda aðaltví-
menningskeppni félagsins. Úr-
slit:
Aðalbjörn Benediktsson og
Bragi Arason 606
Karl Sigurðsson og
Kristján Björnsson 596
Eyjólfur Magnússon og
Guðjón Pálsson 585
Björn Friðriksson og
Jóhannes Guðmannsson 584
Eggert Karlsson og
Flemming Jessen 568
Meðalskor 540.
3. desember sl. var spiluð fyrri
umferð þessa vetrar í sveita-
keppni við Blöndósinga. Spilað
var á 4 borðum og urðu úrslit
þau, að Hvammstangi hlaut 41
stig en Blönduós 39.
Togarasaga Guðmundar Halldórs
er
sannkölluð
sjómannabók
og
brimsölt
Guðm. J.
Guömundsson
Jónas
Guðmundsson
Saga
Guðmundar
Halldórs togaramanns nær
yfir langa ævi, allt frá að búa
í steinbyrgjum og róa áraskipum
fyrir aldamót, til hnoðaðra járnskipa.
Jónas Guðmundsson nær ótrúlega
góðu sambandi við þennan tröllvaxna
karakter. Viðtal Jónasar við Guðmund
J. Guðmundsson son hans, er hreint
gull. Þar lýsir Guðmundur heimilis-
föðurnum Guðmundi Halldóri, Verka-
mannabústöðunum gömlu, kjörum
alþýðumannsins og daglegu lífi hans.
TÖGARAiWAOURIAíN
GUÖIWUSíOUR HALtOÓB
QKiommtnm >
Bókaútgáfan Hildur
Skemmuvegi 36 Kópavogi
Símar: 76700 - 43880
Karlakórínn Hreim-
ur gefur út hljómplötu
Karlakórinn Hreimur í Suður-
Þingeyjarsýslu hefur sent frá sér
sína fyrstu hljómplötu. Kórinn er
eini starfandi karlakórinn í Þing-
eyjarsýslum, og eru söngmenn úr
Aðaldal, Reykjahverfi, Kinn og frá
Húsavík.
Söngstjóri kórsins er nú Guð-
mundur Norðdahl.
Allt frá því að kórinn var stofn-
aður árið 1975 hefur hann lagt
áherzlu á að flytja lög cftir þing-
eyska höfunda, og hefur verið lögð
talsverð vinna í að safna þeirri
tónlist.
i Á annarri plötusíðunni eru ein-
göngu lög eftir þingeyska höf-
unda.
Platan verður til sölu í Fálk-
anum, Hljóðfærahúsi Reykjavíkur
og hjá KEA og Tónabúðinni á Ak-
ureyri. Auk þess verður hún til á
nokkrum öðrum stöðum úti um
land, og svo hjá kórfélögum sjálf-
um.
Ætti ég hörpu
Ljóð eftir Friðrik Hansen
IÐIINN hefur gefið út Ijóðasafnið
Ætti ég hörpu eftir Friðrik Hansen.
Hannes Pétursson annaðist útgáf-
una og ritar formála um höfundinn
og ljóð hans; hann hefur ennfremur
tekið saman skýringaratriði við
nokkur Ijóðanna. — Friðrik Hansen
á Sauðárkróki (1891—1952) varð
víða kunnur fyrir skáldskap sinn, og
eru sum kvæði hans raunar land-
fleyg. „Skáldgáfa hans var ljóðræns
eðlis. Hann var söngvari, eins og
vant er að skilja það orð í bók-
menntum, kaus að syngja í þeirri
merkingu sem Guðmundur Guð-
mundsson fékk orðinu þegar hann
skilgreindi í ljóði hverju hann sækt-
ist eftir í skáldskap sínum. Og ljóð-
söngur Friðriks var nýrómantískur,
í takt við tímann þegar hann var
ungur,“ segir í formála Hannesar
Péturssonar.
Ætti ég hörpu hefur að geyma úr-
val úr ljóðum Friðriks Hansen, lið-
lega fjörtíu ljóð, allt frá æskuárum
höfundar til æviloka. Er ljóðunum
raðað eftir aldri þeirra „samkvæmt
líkum, að nokkru leyti, sumum all-
traustum, öðrum lauslegri svo nálg-
ast ágiskun; mun þó hvergi skeika
um ýkja mörg ár aftur eða fram,“
segir í formála. — Aftast í bókinni
eru talin sönglög við ljóð Friðriks,
en kunnast þeirra er lagið við ljóð
það sem bókin dregur nafn af. —
Kápumynd bókarinnar er af mál-
verki eftir Jóhannes Kjarval. Hún
er 80 bls., prentuð í Odda.
VIÐ GEFUM ÚT GOÐAR
ÍSLENSKAR BARNABÆKUR
ÁFRAM FJÖRULALLI
eftir JónViðarGuölaugsson
Ný sprenghlægileg
i.ll
bók um
Fjörulalla. I þessari bók heldur
hann áfram hvers kyns ærsl-
um og uppátækjum með
dyggri aðstoð bróður síns og
félaga þeirra.
ÁFRAM FJÖRULALLI ersaga
um saklaust grín og gaman
sem öll fjölskyldan skemmtir
sér yfir.
Teikn: Búi Kristjánsson
Kr. 197,60
TRÖLLIN í TILVERUNNI
eftir Hreiðar Stefánsson
Jennu og Hreiðar Stefánsson
þarf ekki að kynna. TRÖLLIN
I TILVERUNNI er ný bók eftir
Hreiðar. Hér segir hann börn-
unum sögur sem honum ein-
um er lagið. Frásögnin er svo
lifandi og skemmtileg að börn-
in verða sjálf þátttakendur í
atburðunum. Bók fyrir unga
sem aldna.
Teikn: Ragnar Lár
Kr. 197,60
Freyjugötu 27, s. 18188
:gefið börnunum góðar íslenskar bækur