Morgunblaðið - 14.12.1982, Page 48
Denianiur 4®
æðstur eðaistei 1 ía
<£>Ull Sc é’llfttf
Laugaveui 35
^skriftar-
síminn er 830 33
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
Ólafur Jóhannesson á fundi í gærkvöldi:
Framkoma Alþýðubanda-
lags í kjördæmamálinu er
nægt tilefni stjórnarslita
„ÞAÐ liggur í augum uppi, að ef
þessir flokkar koma sér saman um
lausn í þessu máli þá er kominn
grundvöllur að stjórnarmyndun
65 ára maður í
gæzluvarðhaldi:
Grunaður um
kynferðisafbrot
gegn 13—14
ára stúlkum
FULLORÐINN maður situr nú í
gæzluvarðhaldi grunaður um að hafa
haft samræði við ungar stúlkur,
13—14 ára gamlar, í sumurn tilvik-
um að minnsta kosti gegn greiðslu.
Samkvæmt 1. málsgrein 200. greinar
hegningarlaganna getur það varðað
12 ára fangelsi að hafa samræði við
stúlkur yngri en 14 ára.
Grunur leikur á, að maðurinn
sem er 65 ára gamall hafi um ára-
bil haft samfarir við stúlkur allt
niður í 13 ára gamlar. Maðurinn
var úrskurðaður í síðustu viku i
gæzluvarðhald til 22. desember
eftir að foreldrar ungrar stúlku
höfðu komist að sambandi dóttur
sinnar við manninn.
hjá þeim og þá er kominn grund-
völlur að nýrri ríkisstjórn, sem
auðvitað á þá að taka við og leiða
málin, ef það er meiningin að
skilja okkur framsóknarmenn eftir
og hafa ekki nein samráð við
okkur,“ sagði Olafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra m. a. á fundi
Framsóknarfélags Reykajvíkur í
gærkvöldi í umfjöllun sinni um
meðferð kjördæmamálsins á AI-
þingi, en í ræðunni vék hann að
viðræðum Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks
um nýskipan kjördæmamálsins og
taldi hann að framkoma Alþýðu-
bandalagsins í því nægð ein sér til
stjórnarslita.
Kvað Ólafur kjördæmamálið
mikið framfararmál fyrir fram-
sóknarmenn í Reykjavík og taldi
að það flokkaðist undir andvara-
leysi ef þeir létu það liggja á
milli hluta. Þá sagðiÓlafur: „Það
gæti verið erfitt fyrir framsókn-
arþingmenn í þessu kjördæmi,
að snúast gegn hóflegum lagfær-
ingum, þótt það kostaði nokkra
fjölgun þingmanna og að mínu
mati getur það jafngilt pólitísku
sjálfsmorði fyrir þá menn að
neita fjölgun þingmanna.“ Hann
sagði síðar í ræðu sinni: „Þrí-
flokkarnir, aðrir en Framsókn-
arflokkurinn, hafa haldið fundi
um skeið og rætt kjördæmamál-
iðr>^n þess að hafa Framsóknar-
flökkinn nokkuð með í ráðum. Á
þessum fundi hafa tekið þátt
formenn þingflokka og þar eru
þeir að ræða þetta mál og reyna
að koma sér saman um lausn í
því.
Þá sagði Ólafur: „Það er auð-
vitað ákaflega einkennilegt að
samstarfsflokkur okkar í ríkis-
stjórn taki þannig upp samstarf
við stjórnarandstöðuflokka um
lausn þessa máls. Eg held að
slíkt hefði nú einhvern tíma ver-
ið talið til stjórnarslitaástæðu."
Hjörleifur Guttormsson í skeyti til Alusuisse:
Jf. Stærsta
íslenzka
*|| jolatréð
•fsjú;'
V.Vvjp-
Á fostudag var kveikt i stærsta islenska jólatrénu. Það er 10 m á hæð,
höggvið í Hallormsstaðarskógi og stendur framan við kjörbúð Kaupfé-
lags Héraðsbúa á Egilsstöðum. Morgunbiaðia/óiafur.
Iðnaðarráðherra hefur ekki
hafiiað samningaleiðinni
SAMKVÆMT heimildum sem
Morgunblaðið telur áreiðanlegar,
lýsir iðnaðarráðherra því yfir í svar-
skeyti sínu til Alusuisse, sem hann
sendi á föstudag, að sá skilningur á
afstöðu sinni sé rangur, að hann
hafni hugmynd Alusuisse um við-
fangsefni frekari samningaviðræðna
en krefjist í staðinn tafarlausrar
upphafshækkunar á orkuverði til ál-
versins í Straumsvík. Afstaða Hjör-
leifs Guttormssonar i skeytinu til
Alusuisse virðist því ekki samrýmast
yfirlýsingum hans um að hann ætli í
þessari viku að gera tillögur um ein-
hliða aðgerðir gegn Aluisuis.se, en
þeim áformum lýsti ráðherrann eftir
að Guðmundur G. Þórarinsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
hafði sagt sig úr álviðræðunefnd.
I fyrrgreindu skeyti Alusuisse,
en meginefni þess var birt á bak-
síðu Morgunblaðsins sl. sunnudag,
lýsir dr. Paul Muller, aðalsamn-
ingamaður Alusuisse, sig reiðubú-
inn til að mæla með upphafs-
hækkun á raforkuverði að tveimur
skilyrðum uppfylltum. 1) Ríkis-
stjórn íslands samþykki að
stækka megi álverið enda náist
samkomulag um orkusölu til hinn-
ar nýju framleiðslueiningar. 2)
Ríkisstjórn íslands samþykki þá
Hlutu 1,2 milljónir í Háskólahappdrættinu:
„Skemmtileg tilbreyting
að vera ekki blankur“
HJÓNIN Haukur Gíslason næt-
urvörður og Helga Karlsdóttir eru
heldur betur í sjöunda himni þessa
dagana. Og þarf engan að undra,
þau unnu nefnilega 1,2 milljónir
króna í Happdrætti Háskólans í
síðasta drætti sem var á Töstudag-
inn sl. Blaðamaður Mbl. hafði
samband við Hauk í gær og spurði
hann auðvitað fyrst að því hvernig
þeim hjónum liði.
„Dásamlega, í einu orði sagt.
Það verður skemmtileg tilbreyt-
ing að vera ekki blankur! Og svo
eykur það á gleðina að vinning-
urinn kom upp á miða sem er
jafngamall hjónabandi okkar,
eða 35 ára. Konan valdi miðann
á sínum tíma, stuttu eftir að við
gengum í hjónaband og við höf-
um haldið honum alla tíð. Sem
betur fer.“
— Hver voru fyrstu viðbrögð
ykkar þegar þið fréttuð að þið
hefðuð fengið þann stóra?
„Við tókum þessu nú ósköp
rólega svo sem. Reyndar ætlaði
ég ekki að fást til að trúa því
fyrst að við hefðum unnið, því ég
hafði heyrt í kvöldfréttunum á
föstudaginn að hæsti vinningur
hefði komið upp á miða 2-14-13
Ég hafði einmitt orð á því við
konuna að þetta væri sniðugt
númer, en það hvarflaði ekki að
mér að þetta væri okkar miði.
Ég man nefnilega miðann sem
21-413! Þegar maður frá happ-
drættinu hringdi stuttu síðar og
sagði mér tíðindin var ég því
heldur tregur til að trúa fyrst í
stað.“
— Kemur þetta til með að
breyta lífi ykkar?
„Að sumu leyti og sumu leyti'
ekki. Maður getur náttúrlega
ieyft sér meira, en það verða
engar stórbreytingar á okkar
lifnaðarháttum."
Hjónin lukkulega sem unnu stóra
vinninginn í Happdrætti Háskól-
ans á föstudaginn. Þau heita
Haukur Gíslason og Helga Karls-
dóttir.
breytingu á aðalsamningnum um
íslenska álfélagið (ÍSAL) að Alu-
suisse sé heimilt að selja allt að
50% af eignarhluta sínum til ann-
arra í stað 49% eins og nú er.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins minnist Hjörleifur Gutt-
ormsson ekki á þessi tvö skilyrði í
svarskeyti sínu til Alusuisse, en
segist reiðubúinn að halda viðræð-
um áfram sé gengið að þessum
skilyrðum: 1) íslendingar gangi að
hugmyndum Alusuisse um úr-
lausn eldri deilumála (súrálsverð
o.fl.) með breytingum. 2) Alu-
suisse samþykki að leiðrétting á
orkuverði sé réttlætanleg og fall-
ist á umtalsverða upphafshækkun.
3) Báðir aðilar lýsi sig fúsa til að
ræða og semja um öll framtíðar-
samskipti. Ekki mun liggja fyrir
hvaða „breytingar" iðnaðarráð-
herra vill undir lið 1) eða hvað er
„umtalsverð" hækkun undir lið 2)
en eins og kunnugt er lagði Guð-
múndur Gr Þórarinsson til að
þessi hækkun væri 20%, iðnaðar-
ráðherra lagði hinn 6. maí sl. til að
hún væri 47%. Haft var eftir
Ragnari Halldórssyni, forstjóra
ÍSAL, í sjónvarpi á föstudag, að
hann teldi að dr. Miiller væri til
þess búinn að mæla með 20% upp-
hafshækkun að öðrum skilyrðum
fullnægðum.
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, sagði um helgina, að
hann biði nú eftir svari Alusuisse
við því skeyti, sem hann sendi á
föstudag.