Morgunblaðið - 29.01.1983, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
23. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hvetja til
undirbúnings
verkfalls
Varsjá, 28. janúar. AP.
LEIÐTOGAR neðanjarðaranga Sam-
■stöðu í Póllandi hafa hvatt verkafólk
í landinu til að fara að huga að undir-
búningi allsherjarverkfalls í landinu.
Áskorun þessi kom fram í plaggi, sem
vestrænum fréttamanni var afhent f
Varsjá í dag. Ekki er tekið fram
hvaða dag leiðtogarnir hafa í huga.
Áskorun þessi er hið fyrsta, sem
heyrist frá leiðtogum neðanjarðar-
anga samtakanna um langt skeið.
Umrætt plagg var upp á átta síður
og það stærsta, sem sést hefur frá
fimmmenningunum frá þvl sl.
sumar. Leiðtogarnir fimm hafa
verið í felum allt frá því herlög
voru sett í landinu í desember 1981.
Þeir hafa hins vegar ekki þorað að
koma fram í dagsljósið eftir að
herlögum var aflétt.
í áskoruninni var þeim tilmælum
einnig beint til alþjóðasamtaka,
m.a. Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar og Ámnesty-samtakanna, að
þau sendu fulltrúa sína að réttar-
höldum yfir sjö meðlimum Sam-
stöðu, sem sakaðir eru um að hafa
brotið gegn ríkinu.
Áskorun leiðtoganna um undir-
búning allsherjarverkfalls virðist
fyrst og fremst vera tilraun af
þeirra hálfu til að kanna styrk sinn
og undirtektir á meðal verkafólks.
Jóhannes Páll páfi II hitti Jozef
Glemp, erkibiskup í Póllandi, að
máli í dag í Vatikaninu. Ekki hafa
verið gefnar út neinar yfirlýsingar
um hvað þeim fór á milli á hálfrar
klukkustundar löngum fundi
þeirra. Hins vegar sagði Glemp
fréttamönnum-í gær, að hann teldi
öruggt að páfi heimsækti Pólland á
áður ákveðnum tíma.
Atti þriðja
barnið og
var rekinn
úr flokknum
l'eking, 28. janúar. AP.
DAGBLAÐ alþýóunnar skýrói frá
því í dag að félagi I kínverska
kommúnistaflokknum hefði verið
rekinn úr honum fyrir að eignast
sitt þriðja barn.
Að sögn blaðsins var Zhao
Wenru, sem býr í borginni
Shenyang í norðausturhluta
landsins, aðvaraður af flokksyf-
irvöldum fyrir tveimur árum, er
hann og kona hans eignuðust
annað barn sitt. Yfirvöld í land-
inu berjast nú mjög gegn þvi, að
hjón eignist fleiri en eitt barn til
þess að stemma stigu við fólks-
fjölguninni.
Kona Wenru varð síðan ólétt
þriðja sinni og Zhao skeytti því
engu þótt flokksyfirvöld legðu
hart að honum að láta konu sína
gangast undir fóstureyðingarað-
gerð. Sagðist hann meta þriðja
barn sitt meira en aðild að
kommúnistaflokknum.
Ekki var skýrt frá því í Dag-
blaði alþýðunnar hvort fyrri
börn þeirra hjóna voru drengir
eða stúlkur, en allt bendir til
þess að þriðja barn þeirra hafi
verið drengur, því fæðingunni
var fagnað með miklum veislu-
höldum.
Þeir, sem létu lífið, voru aðal-
lega úr röðum PLO og sýr-
lenskra hermanna. Talið er að
sprengjan hafi verið a.m.k. 150
kíló að þyngd. Hús þetta var
einnig notað sem vopnabirgða-
geymsla PLO-manna, og urðu
áhrif sprengingarinnar því enn
meiri en ella.
Að sögn Nazim Chamoun, yf-
BANDARIKJASTJÓRN hafnaði í
dag tillögu Sovétmanna um kjarn-
orkuvopnalaust svæði í Mið-
Evrópu á þeim forsendum, að hún
væri „óraunhæP* og „yki ekki á
öryggi og jafnvægi í Evrópu.“
John Hughes, aðaltalsmaður
varnarmálaráðuneytisins, sagði
í dag, að Bandaríkjamenn hefðu
áhyggjur af því, að tillaga á
irmanns almannavarna í land-
inu, höfðu í kvöld rúmlega 30 lík
þegar verið grafin úr rústum
hússins og taldar voru líkur á,
að enn fleiri kynnu að finnast
látnir undir þeim. Húsið, sem
um ræðir, var þrjár hæðir og
stendur nú ekki steinn yir steini
þar.
Tekist hafði að bjarga fjórum
borð við þessa gegndi ekki öðru
hlutverki en því að beina at-
hyglinni frá viðræðum ríkjanna
í Genf og Vínarborg.
Sovétstjórnin lagði í gær til,
að a.m.k. 500 km breitt svæði,
sitt hvoru megin við landamæri
ríkja Austur- og Vestur-
Evrópu, yrði laust við öll kjarn-
orkuvopn. Það svæði, sem Sov-
étmenn hafa í huga, tekur til
lifandi úr rústunum og talið var
að nokkrir til viðbótar leyndust
lifandi undir rústunum, þar á
meðal armensk fjölskylda.
Heyrðust neyðaróp hennar stöð-
ugt er björgunarmenn unnu við
að grafa sig í gegnum stein-
steypubrot og járnbita. Engin
skýring hefur fengist á því
hvaða erindi armönsk fjölskylda
gat átt í hús, þar sem bæði
PLO-menn og sýrlenskir her-
menn héldu til.
Samningamenn fsraela og
Bandaríkjamanna náðu í dag að
sögn umtalsverðum árangri í
stórs hluta A- og V-Þýskalands,
svo og Tékkóslóvakíu.
f opinberri tilkynningu frá
varnarmálaráðuneytinu sagði
m.a., að Bandaríkin og banda-
menn þeirra í NATO hefðu farið
gaumgæfilega yfir tillögur Sov-
étmanna um kjarnorkuvopna-
laust svæði í Mið-Evrópu, en
ekki getað séð, að þær væru til
viðræðum sínum, sem miðuðu
að því að binda endi á síendur-
teknar skærur á milli hermanna
í Beirút og næsta nágrenni. Á
fundi þessum var samþykkt að
koma á síma- og talstöðvarsam-
bandi til þess að afstýra yfirvof-
andi átökum.
Shafik Wazzan, forsætisráð-
herra Líbanon, tilkynnti í dag,
að hann myndi fara í heimsókn
til Túnis í næstu viku og eiga
þar viðræður við Yasser Arafat,
leiðtoga PLO, um brottflutning
herliðs PLO frá Líbanon.
bóta fyrir öryggi og jafnvægi í
Evrópu.
Að sögn Hughes eru Banda-
ríkjamenn enn sannfærðir um,
að auka megi öryggi Evrópu
með því að samþykkja fyrri til-
lögur þeirra um verulega fækk-
un kjarnorkuvopna og með því
að útiloka allar meðaldrægar
kjarnaeldflaugar, sem beint er
að skotmörkum í Evrópu.
Geysiöflug sprenging við bækistöðvar PLO í Chataura:
Yfír 30 létust er þriggja
hæða hús hrundi til grunna
Beirút og Tel Aviv, 28. janúar. AP.
MEIRA EN 30 manns létu lífið og tæplega 20 slösuðust,
sumir mjög alvarlega, þegar sprengja, sem komið hafði verið
fyrir í bifreið í bifreiðageymslu undir bækistöövum öryggis-
gæslu PLO í líbanska bænum Chataura, sprakk í loft upp um
hádegisbilið í dag.
Tillagan stuðlar ekki að
auknu öryggi og jaftivægi
— segja Bandaríkjamenn og hafna tillögu Sovétmanna um kjarnorkuvopnalaust svæði í Evrópu
YVashington, 28. janúar. AP.