Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 39 fólk í fréttum Hjúskaparheit endurnýjuð ... Sænski tennisleikarinn Björn Borg og eiginkona hans Maríanna sjást hér þar sem þau liggja og endurnýja húskaparheit sín að Thailenskum sið í Bangkok í síðastliðinni viku. Björn Borg er í Thailandi um þessar raundir til að sýna og kenna tennisíþróttina. Hann tilkynnti sem kunnugt er í síðastliðinni viku að hann hygðist hætta þátttöku í meiri háttar mótum. Hann lét þess ekki getið hvað við tæki, en kunnugir telja að ekki ætti að vera sulturinn og seyran á þeim bænum ... E.T. íSvíþjóð: Aldurstakmarkið veldur óánægju + Börn í Svíþjóð hafa mótmælt kröftuglega að undanförnu og ástæð- an er sú, að þau sem eru undir ellefu ára aldri fá ekki aðgang að sýningum á kvikmyndinni E.T., sem víða um heim er nú auglýst sem barnamynd og hlýtur metaðsókn sem slík. Oll börn virðist langa að berja þessa ein- mana geimveru augum, en kvik- myndaeftirlitið í Svíþjóð telur ekki ráðlegt að þau sem ekki hafa náð ellefu ára aldri sjái hana á þeim for- sendum að fullorðnum sé stefnt gegn börnum í myndinni. Bandaríkjamenn virðast hafa haft mesta skemmtun af þessari ákvörðun sænska kvikmyndaeftir- litsins og sagt er að Svíþjóð hafi ekki verið þar meira til umræðu í langan tíma ... „Heillandi lélegir" — segir Ingmar Bergman um Dallas-þættina Ingmar Bergman sem nú ný- lega hefur hlotið frábæra dóma hjá gagnrýnendum fyrir mynd sína „Fanny og Alexander“ lýsti því yfir fyrir skömmu að honum fyndist þættirnir „Dallas" svo heillandi lélegir að hann reyndi umfram allt að sjá hvern einasta þátt. „Þættirnir eru illa kvik- myndaðir, þeim er illa leik- stýrt og þeir eru hræðilega illa leiknir af gjörsamlega hæfi- leikalausu fólki,“ sagði hann brosandi og kvaðst hafa fengið andsvör úr ýmsum áttum ... — Þetta er ekki þvottaskál, Róbert, þetta er súpudiskurinn. Játvarðurí Cambridge + Játvarður prins, yngsti sonur El- ísabetar drottningar og sá bók- hneigðasti að því er sagt er, mun hefja nám í Cambridge á hausti komanda, samkvæmt fregnum frá yfirmönnum innan Buckingham- hallar. Prinsinn, sem er átján ára gam- all, kennir um þessar mundir í gagnfræðaskóla í Wanganui á Nýja Sjálandi, en hann mun leggja fyrir sig nám í sagnfræði, mannfræði og fornfræði. Þarftu aöstoö? Minnum á, aö auk almennrar blikksmíöi, smíöi og uppsetningar á loftræsti- og lofthitakerfum, erum viö — vegna tæknideildar okkar og góöra fagmanna — vel í stakk búnir til aö leysa fjölda annarra verkefna, svo sem: Útsogskerfi fyrir mengun af ýmsu tagi Kælingu fyrir tölvubúnaö Ýmsa þjónustu fyrir fiskvinnslu og landbúnað t.d. fiskþurrkun og hitara fyrir súgþurrkun. VERKFRÆÐIÞJÓNUSTA Tökum mál, hönnum, teiknum, gerum tilboð sam- kvæmt aösendum teikningum. Lagersala. ALLT Á EINNI HENDI Antik 10—20 prósent afsláttur þessa viku. Útskorin eikar- húsgögn, mahonihúsgögn, málverk. Húsgagnasýning laugardag og sunnudag kl. 1—6. Antik-munir, Laufásvegi 6, Týsgötu 3. sími 20290. Já nú er hann byrjaður blessaður þorrinn eina ferðina enn. Að sjálfsögðu bjóðum við okkar landsþekkta þorrabakka.^^^^ sem flestir þekkja að góðu ^ einu. w] 1 S 111 Nú bjóöum viö heimsendingarþjónustu Já viö sendum þorramatinn í heimahús. Tilvalið í velzluna hvort sem hún er af stærri eöa smærri gerðinni og hægt er aö fá matinn í trogunum okkar góöu. Verðiö er ótrúlega lágt þaö er aö segja aaa sem er hlægilegt verö Z&U Kl ■ miöaö viö gæöi. Á bökkunum okkar eru; allir vinsælu þorraréttirnlr s.s. rúgbrauð, flatkökur, hanglkjöt, rófustappa, sviöasulta, haröfiskur, lundabaggar, bringukollar og hrútspungar. Aö sjálfsögðu 'veröur þorramaturinn á boðstólum hjá okkur í Naustinu, og þaö er ekki I amalegt umhverfi til að snseöa öll herlegheitin í Pantiö nú timanlega í sima 17758

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.