Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 23 Myrkir músikdagar nr. 3 Tónlist Jón Ásgeirsson ÞRIÐJU tónleikar myrkra músíkdaga voru haldnir í hálf- byggðri kirkju Langholtssókn- ar. Það verður að segjast eins og er, að ef ekki á að einangra veggi eða með einhverjum hætti að hamla gegn gífurlegri hljómgun hússins, verður kirkj- an að teljast óhæf fyrir meiri- háttar tónflutning. Svo völdug hljómgun, sem hér á sér stað, getur komið fáum hlóðfærum til góða og þeirri tónlist sem er einföld í hljómgerð. Mikil not- kun sterkra málmblásturs- hljóðfæra og slaghljóðfæra hljómkæfir þau hljóðfæri er minna mega sín í tónstyrk. Það má segja að verk Áskels Más- sonar og Magnúsar Blöndal Jó- hannssonar nytu góðs af sterkri hljómgun hússins. Octo nov- ember eftir Áskel Másson naut sín virkilega vel í þessari miklu hljómgun og var auk þess vel leikið af hljómsveitinni undir stjórn Páls P. Pálssonar. Til- einkum eftir Jón Nordal er fal- legt og vel unnið verk, en ein- hverjum hætti ekki gætt hátíð- arblæ, þvert á móti dapurlegt í bestu merkingu orðsins. Þar sem sem verkið reis hæst var það hljómgun hússins við efri mörkin. I verki Hallgríms Helgasonar keyrði um þverbak, því vel má segja, án þess að hallmæla verkinu, að allt hafi runnið saman í graut. Athmos eftir Magnús Blön- dal Jóhannsson, er eitt af þess- um langtónaverkum sem nú eru í tísku, en hjá Magnúsi bregður þó fyrir fallegri rómantík í ein- földum tónhendingum, sem voru vel leiknar bæði af hljómsveit og einleikara, Bernhard Wilkinson. Síðasta verkið, konsert fyrir óbó og hljómsveit eftir Leif Þórarins- son, er varla hægt að kalla kon- sert. Hlutverk óbósins var nærri því eins og hjá óbóunum í hljómsveitinni, nema í seinni hluta verksins, þar sem skipt- ast á stuttar „kadensur" og ósamtengdir „effekta“-kaflar í hljómsveitinni, frekar sundur- laus samsetningur, en á köflum áheyrilegur. Bestu hlutar verksins og sumir hverjir snjall- ir eru hljómsveitarþættirnir um miðbik verksins. Það er orð- ið nokkuð áberandi í tónverk- um hér á landi að byrja tónverk á hugmyndalausu langtóna- stagli. Þetta lang- og eintóna- stagl er einskonar uppþornuð „mónodía", ákaflega viðburða- litil og leiðinleg til lengdar. Knappleiki og sparsemi í notkun tóna er að því leyti til varasöm, að hætt er við að verkin verði svo viðburðalítil að jaðri við að ekkert hafi í raun og veru skeð og hlustandinn uppskeri aðeins leiða og von- brigði. Konsertinn var á marg- an hátt vel leikinn, enda er Páll P. Pálsson drjúgur við að ná því besta fram í nýjum verkum og í rauninni hefur Páll unnið merkilegt starf, því segja má að nær hvert einasta íslenskt hljómsveitarverk hafi verið mótað og uppfært af honum og sum þeirra nokkuð oft. Einleik- arinn í konsert Leifs var Kristján Þ. Stephensen, er lék verið svo vel sem frekast er unnt, enda frábær hljóðfæra- leikari. Leikarinn á bak við ET látinn MICHAEL Patrick Bilon, dvergur- inn, sem lék ET í samnefndri mynd, lést í fyrradag af völdum lungna- bólgu, 35 ára gamall. Bilon hafði leikið í nokkrum kvikmyndum, en átti annars mjög litríkan lífsferil að baki. Hann þótti nokkuð ölkær á árum áður og hávaðamaður hinn mesti og var oft mjög óróasamt f kringum hann á börunum. f eina tíð var hann sendiboði sýslumannsins f Mahoning-sýslu og knattleiksþjálf- ari við kirkjuskóla og aldrei lét hann það aftra sér, að hann var ekki jafnhár í loftinu og fólk er flest. AP Leggur sjálf til peninga fyrir nýjum hempum l/ondon, 28. janúar. AP. ELÍSABET II Bretlandsdrottning, sem er æðsti maður ensku bisk- upakirkjunnar, hefur í hyggju að leggja fram 3.000 pund úr eigin sjóði til kaupa á nýjum hempum fyrir presta fjögurra dómkirkna, sökum þess aö henni er það ekki að skapi, að þeir klæðast purpura- rauðum hempum. Var frá þessu skýrt í brezka kirkjuritinu í gær. Venjulegast eru hempur enskra presta svartar, en vissir menn innan kirkjunnar mega klæðast rauðum hempum, eins og t.d. kon- unglegir hirðprestar. Drottningu mun hafa mislíkað það á síðasta ári, er hún heimsótti eina dóm- kirkjuna, að sjá þar prófastinn og kórbræður klæðast rauðum hemp- um án leyfis, segir kirkjuritið. Nú hefur mál þetta verið leyst með þeim hætti, að drottningin hefur boðizt til þess að leggja sjálf fram fé handa próföstum og kórbræðrum dómkirknanna í Ex- eter, Winchester, Leicester og Ripon til kaupa á hempum, sem ekki eru rauðar. Aðrir prestar, sem klæðast purpurarauðum hempum verða að taka upp hemp- ur öðru vísi að lit en rauðar, er núverandi hempur þeirra eru út- slitnar orðnar. Athygli þeirra lántakenda, sem inna áttu af hendi ársgreíðslur af íbúðalánum sínum í nóvember-mánuði sl., skal vakin á því, að 5% dráttarvextir leggjast á þær í mánuði hverjum sem líður án þess að þær séu greiddar. Eru því samtals 15% dráttarvextir komnir á þær ársgreiðslur, sem verið hafa í vanskilum frá því í nóvember-mánuði sl., og munu þeir hækka í samtals 20% hinn 2. febrúar nk. Þá skal einnig vakin athygli á því, að í febrúar-mánuði nk. verða ársgreiðslur þær, sem verið hafa í vanskilum frá því í nóvember 1982, sendar fógeta til innheimtu. Mun það leíða til enn aukins kostnaðar ÍYrir lántakendur ef ekki verður að gert í tæka tíð. Lántakendur eru því eindregið hvattir til að inna af hendi ársgreiðslur sínar hið allra fyrsta og láta það ekki dragast lengur en orðið er. ^Húsnæðisstofnun ríkisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.