Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 TEIKNARI óskast tíl starfa Þarf- aö hafa starfsreynslu og geta unnið sjálfstætt aö verkefnum. Góö aöstaða Laun eftir samkomulagi. Upplýsingar i síma 22866. eb Auglýsingastofa Lagerinn Smíðjuveg 54 Kópavogi brýtur blað í sögu íslenskra verslunarhátta. Nú þarft þú ekki lengur aö hlaupa á út- sölur einu sinni á ári til að fá vörur á útsöluveröi. Lagerinn er opinn allt árið. Dæmi um verð: frá kr. Herraflauelsbuxur 295 Herragallabuxur 345 Herraúlpur 490 Vinnujakkar 295 Dömuflauelsbuxur 155 Dömugallabuxur 345 Peysur 195 Barnabuxur 195 Barnaúlpur 295 Barnaföt, regngallar, blússur, sokkar, hanskar, nærföt, gjafavörur, hljómplötur, allt á óvenju lágu veröi. Borgaðu ekki meira Opið mánudaga, þriðjudaga, miðviku- daga og laugardaga frá 12—19. Fimmtu- daga og föstudaga frá 12—22. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Spjall um útvarp og sjónvarp Hvað um íslenskan gaman- leik í stað draugagangs? Fréttir fjölmiðla í lok janú- armánaðar af ótíð til lands og sjávar, af mannskaða í snjóflóði á Patreksfirði minna okkur á þá staðreynd að við búum í landi þar sem náttúruöflin hafa hvað eftir annað leikið landsmenn grátt. Sem betur fer eru þó ekki allar fréttir slæmar fréttir, við fáum einnig fréttir af prófkjör- um stjórnmálaflokkanna og fréttir af innlendum og erlend- um íþróttaafrekum, sem verið er að segja frá allan daginn frá morgni til kvölds. Á fréttastofu útvarps og sjónvarps starfar ein- vala lið. Eg er þeirrar skoðunar að það leysi sín verkefni vel af hendi miðað við þröng húsa- kynni og að mörgu leyti erfiða vinnuaðstöðu. í kvöldfréttum útvarps sagði Kristján Guðlaugsson, fréttarit- ari í Peking, höfuðborg Kín- verska alþýðulýðveldisins, frá vaxandi áfengisneyslu og sið- ferðisupplausn í ríki sósíalism- ans og er þá fokið í flest skjól. Kínverskir borgarar undir þrúg- andi miðstýringu marxismans vilja sem sagt komast í vímu- ástand. Ja hérna. Mao látinn og menningarbyltingin að engu orð- in. Hvað er nú til varnar vorum sóma, félagi Karl Marx? í síð- asta spjalli sagði ég að þáttur þeirra Eddu Björgvinsdóttur og Helgu Thorberg í útvarpi, „A tali", væri saklaust grín, skop um náungann í næsta húsi. Eftir að hafa hlustað á fleiri þætti tel ég að þátturinn sé dulbúinn áróður fyrir kvennaframboðið. I þessum þætti fer mest fyrir háði og lítilsvirðingu um íslenska karlmenn, og ég sem hélt að þeir ættu nú annað skilið. Fimmtudagur 20. janúar: Eftir kvöldfréttir hófst í út- varpi þátturinn „Duggugrautur". Umsjónarmaður Stefán Jóhann Stefánsson, fréttamaður. Hann taldi þáttinn ekkert eiga skylt við orðin dugga eða grautur. Víða var komið við í þessum þætti, fjallað um það merkilega fyrirbæri ástina og vitnað í skáldin og ljóð þeirra. 94 ára gömul kona sagði í viðtali það vera skoðun sína að ástin sé kærleikur, vinátta manna á milli og geta líklega flestir tekið undir þá skoðun gömlu konunnar. Spjallað var um fyrirhugaðar al- þingiskosningar, áfengismál, tunglferð og margt fleira. „Duggugrautur" er hvorki betri né verri en tugir þátta á liðnum árum sem fjallað hafa um ekki óskyld efni. Fyrir miðnætti þegar tunglið óð í skýjum var flutt í útvarpi leikritið „Drakúla", eftir ein- hvern Bram Stoker sem ég veit engin deili á. 1. þáttur af þrem. „Þeir dauðu fara hratt", leik- stjóri Jill Brook Árnason. Nei takk. Frásagnir af blóðsugunni Drakúla greifa eru ekki fyrir minn smekk. Ég hlustaði þó á leikritið og var lítið hrifinn. Hvað um íslenskan gamanleik í stað draugagangs? Nóg er myrkrið í mannheimi og ekki á bætandi. Drakúla greifi kann að æra viðkvæmar sálir. Eitthvað er til hjá útvarpinu á segulbandi með Haraldi Á. Sigurðssyni, Al- freð Andréssyni og Brynjólfi eða öðrum meisturum skopsins. Upp með húmorinn í skammdegi og veðraham. Föstudagur 21. janúar: Prúðuleikararnir skemmtu þjóðinni í sjónvarpi í tæpan hálftíma með ærslagangi, að loknum fréttum og veðurfregn- um. Heiðursmennirnir, Statler og Waldorf stjórnuðu sýning- unni í þetta sinn á meðan frosk- urinn sat í stúku og leit yfir svið- ið. Hlúnkur, Svínka, Gunnsi, Bósi og aðrir snillingar fóru á kostum. Gestur þáttarins, Hal Linden, bandarisk sjónvarps- stjarna, gleymdist. Var þó leyst- ur út með blómum og húrra- hrópum í lok sýningar. í áhyggjulausri veröld Prúðuleik- aranna er léttleiki og gleði ríkj- andi, þar er engin verðbólga, Lilja Þórisdóttir engin skuldasöfnun eða önnur vandamál er hrjá mannfólkið. „Kastljós", þáttur um innlend og erlend málefni kom á skjáinn strax á eftir Prúðuleikurunum. Guðjón Einarsson og ögmundur Jónasson stjórnuðu þættinum. Ögmundur beindi kastljósinu að Póllandi og fjallaði um herlög stjórnvalda, afnám alls þess er við íslendingar teljum almenn mannréttindi. Bann við starf- semi Samstöðu sett í haust stendur enn óbreytt. Hringnum hefur verið lokað. Andófsmaður- inn er ofurseldur duttlungum hins sósíaliska kerfis. Ögmundur sagði einnig frá starfsemi bresku útvarpsstöðvarinnar BBC World service, fréttaflutningi hennar í dag og í siðari heims- styrjöld og spjallaði við Pétur Guðjónsson, stórkaupmann, sem hlustar að staðaldri á útvarps- stöðina. Guðjón Einarsson sá um innlenda vettvanginn og þar var fyrst fjallað um húsbyggingar á íslandi. Guðjón tók tali ungan mann sem er að eignast sína fyrstu íbúð og margt var ófagurt er hann sagði um reynslu sína af húsbyggingu og lánastofnunum. Davíð Oddsson og Svavar Gests- son ræddu hækkun fargjalda Strætisvagna Reykjavíkur og voru mikið ósammála. í heild var þátturinn mjög góður. Laugardagur 22. janúar: Fyrsti þáttur af tíu í dönsku- kennslu sjónvarpsins hófst klukkan sex síðdegis. Skömmu fyrir hádegi í rigningu og roki skaust ég út í bókabúð og náði í eintak af kennslubókinni „Hild- ur“. Síðan leit ég á þáttinn þegar hann var sendur út, fletti bók- inni og fylgdist með Lilju Þór- isdóttur á danskri grund. Ekki þarf að hafa mörg orð um gagn- semi slíkra þátta. Ég hvet fólk til þess að notfæra sér dönsku- kennslu sjónvarpsins. „Tígur í veiðihug", heitir bandarist bíómynd frá árinu 1967 sem var á dagskrá sjón- varpsins þetta laugardagskvöld klukkan níu. Einhleypur póst- útburðarmaður, miðaldra, Ben Harris að nafni, gerir nokkrar örvæntingarfullar tilraunir til að ræna kvenmanni í von um að lífga upp á ömurlega tilveru sína. Loks tekst það, hann rænir miðaldra konu á götu úti og flyt- ur í greni sitt í kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi. Mannkertið er ein- staklega leiðinlegt og á við geð- Vilmundur Gylfason ræn vandamál að striða. Fyrir framleiðanda vakir sennilega að sýna í kvikmynd þessari fram á einmanaleika i stórborg nútím- ans og er það virðingarvert, en það tekst engan veginn. Myndin er misheppnuð og þeim tíma illa varið sem fór i að horfa á raunir þessa póstútburðarmanns. Sunnudagur 23. janúar: „Listbyltingin mikla." Annar þáttur. Valdatafl. Breskur myndaflokkur í átta þáttum um nútímalist var á dagskrá sjón- varps klukkan fimm. Breskur þulur í myndinni sagði frá Dada- ismanum og helstu áhrifa- mönnum þeirrar stefnu sem var fyrirrennari súrrealismans. Sagt var frá list Weimar-lýðveldisins og nýjungum í málaralist á þeim tíma. Einræðisöfl sósíalismans og fasismans misnotuðu lista- menn í þágu markmiða sinna. í sjónvarpsþættinum var það rakið hvernig Stalín drap frjálsa listræna túlkun eftir að hann komst til valda og skipaði síðan myndlistarmönnum að mála sjálfan sig í dýrðarljóma og um- fram allt að hafa nú skeggið nógu glæsilegt. Mussólíní virkj- aði einnig myndlistarmenn í þágu fasismans. Þá var viðtal við Albert Speer, skipulagsmála- ráðherra Hitlers-Þýskalands um byggingarlist á dögum þriðja ríkisins. Þátturinn var afar fróð- legur og vel unninn af breska sjónvarpinu. Frá Akureyri kom í útvarp klukkan hálf átta spurn- ingaleikurinn „Veistu svarið". Stjórnandi var Guðmundur Heiðar Frímannsson. Þessi þátt- ur hefur verið á dagskrá síðan í haust og mér finnst hann vera orðinn þreyttur og lúinn. Þá tel ég að þáttur þessi sé ekki svipur hjá sjón miðað við það sem var þegar Ólafur heitinn Hansson samdi spurningar í samskonar þátt er Jónas Jónasson stjórnaði um árið. Mánudagur 24. janúar: Það var fátt á dagskrá útvarps og sjónvarps þennan dag sem ástæða sem til að geta. Einhver doði yfir dagskránni og svo fast- ir liðir eins og venjulega, Dag- legt mál, Um daginn og veginn, og íþróttaþáttur í sjónvarpi und- ir stjórn manns er sigraði í for- vali Alþýðubandalagsins í Norð- urlandskjördæmi eystra. „Tommi og Jenni", kötturinn og músin héldu áfram að hrekkja hvort annað í sjónvarpi. Oft er búið að berja köttinn illa á með- an músin sleppur þolanlega. Ég held með kettinum, hann hefur orðið að þola miklar kvalir og ofsóknir. Þriðjudagur 25. janúar: „Við köllum hann róna“, heitir þáttur sem Ásgeir Hannes Ei- ríksson stjórnaði í útvarpi seint um kvöldið. Var það annar þátt- ur af þremur um utangarðsfólk. Ásgeir Hannes ræddi við lög- regluvarðstjóra sem sagði þau tíðindi að i dag sæust varla utangarðsmenn á götum úti, þeim hefði verið komið fyrir á stofnunum. Það sem vakti mesta athygli mína í þessum þætti voru viðtöl við tvo unga menn, fyrrverandi eiturlyfjasjúklinga, og þær fullyrðingar þeirra að enginn skortur sé á eiturlyfjum hér á landi og að útbreiðsla fari vaxandi. Hér er mikið alvörumál á ferð og lögregluyfirvöldum ber skylda til þess að stöðva þennan óhugnað í tíma. Ásgeir Hannes Eiríksson á þakkir skyldar fyrir að vekja athygli þjóðarinnar á áfengis- og eiturlyfjavandamál- um. Miðvikudagur 26. janúar: „Líf og heilsa." Þáttur um meltingarsjúkdóma, umsjón og stjórn Maríanna Friðjónsdóttir, var á dagskrá sjónvarpsins klukkan hálf níu á miðvikudags- kvöld. Þriðji sjónvarpsþátturinn um heilbrigðismál, áður voru á dagskrá þáttur um krabbamein og þáttur um hjartasjúkdóma. í þessum þriðja þætti var spjallað við læknana Bjarna Þjóðleifs- son, Hjalta Þórarinsson og Tóm- as Á. Jónasson og farið í heim- sókn á Landspítalann og Landa- kotsspítala. Þessir þættir um heilbrigðismál eru með því at- hyglisverðasta sem hefur verið á dagskrá sjónvarpsins í vetur. Þeir eru fróðlegir og veita fólki innsýn í ýmsa erfiða sjúkdóma. Vilmundur Gylfason, formað- ur miðstjórnar hins nýstofnaða Bandalags jafnaðarmanna, sat fyrir svörum í þætti Ingva Hrafns Jónssonar „Á hraðbergi" síðar um kvöldið. Spyrjandi ásamt Ingva var Guðmundur Árni Stefánsson, ritstjóri. Vil- mundur komst vel frá þeim þætti, var yfirvegaðri en oftast áður og er kominn með svipmót roskins stjórnmálamanns. Olafur Orms.son Hvaö eru Schwarzkopf f hárgreiösluvörur? Aöeins fagfólkiö á stofunni getur svaraö því — en því mátt þú líka treysta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.