Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 47 Keppt í bruni í Sarajevo í gær: Pfaffenbichler óvæntur sigurvegari • Steve Podborski frá Kanada (t.h.) varð annar í bruninu í gær, en til vinstri er Bruno Kernen frá Sviss, sem sigraði mjög óvænt í bruni í Kitzbúhl fyrir skömmu. GERHARD Pfaffenbichler frá Austurríki varð óvæntur sigur- vegari {gær á brunmótinu í Sara- jevo í Júgóslavíu. Mótinu var frestað í fyrradag, þar sem braut- in var orðin mjög lóleg vegna þess hve hlýtt var og haföi mik- inn snjó tekið úr henni. Hundruð hermanna og sjólfboðaliöa unnu viö þaö aö laga brautina og tókst þaö þokkalega, þannig aö ákveöiö aö keppnin færi fram. Franz Klammer haföi besta millitímann, en bæöi Pfaffenblchler og Steve Podborski keyröu siöarí hluta brautarinnar betur og fengu betri tíma en Klammer. Pfaffen- bichler var reyndar aðeins meö fimmta besta millitímann, en fór síöari hlutann nær óaöfinnanlega og tryggöi sér mjög óvæntan sig- ur. Svissnesku skíðakapparnir, sem hingaö til hafa veriö svo til einráöir í bruninu, náöu sér ekki á strik og munaði mestu um fjarveru Peter Miiller, sem slasaöist illa á æfingu á miövikudaginn, eins og við höf- um sagt frá. Landar hans voru eitthvaö miöur sín og Peter Lúsch- er náöi bestum árangri þeirra, lenti í 6. sæti. Efstu menn uröu þessir: Landsliösmenn í knattspyrnu ekki tryggöir: Ætla að skril fa KSI bréf og fá| jeirra á ilit á málinu Gerhard Pfaffenbichler, Austurr. 1:48,81 Steve Podborski, Kanada 1:49,02 Franz Klammer, Austurr. 1:49,07 Michaelk Mair, Ítalíu 1:49,66 Ken Read, Kanada 1:49,76 Peter Lúscher, Sviss 1:50,03 Urs Raeber, Sviss 1:50,07 Sepp Wildgrúber, V-Þýskal. 1:50,27 Helmut Höflehner, Austurr. 1:50,30 Silvano Meli, Sviss 1:50,31 Harti Weirather, Austurr. 1:50,58 Stefan Niederseer, Austurr. 1:50,83 Erwin Resch, Austurr. 1:50,88 Todd Brooker, Kanada 1:50,94 Bruno Kernen, Sviss 1:51.21 Peter Muller er enn efstur í stigakeppninni um heimsbikarinri, þrátt fyrir aö hann hafi ekki verið meö, en ekki er vitað hvort hann getur keppt meira í vetur vegna meiöslanna. Flestir keppenda kvörtuöu yfir því hve mjúk brautin var lokakafl- ann. Pfaffenbichler, sem var 19. í rásrööinni, sagöi í samtali viö AP, aö allt of mikiö af holum væri neöst í brautinni. „Þetta er mjög erfitt," sagöi hann. Franz Klammer sagöi aö snjór- inn heföi verið of mjúkur. „Ég er ánægöur meö aö hafa komist alla leið. Brautin var þannig aö mér fannst jaöra viö aö of hættulegt væri aö láta keppnina fara fram,“ sagði Austurríkismaöurinn. Keppt verður í þessari braut á Vetrar- ólympíuleikunum á næsta ári, og var þessi keppni fyrsta opinbera tilraunin meö brautina. Knattapyrnuaamband falands hefur hingað til ekki tryggt leik- menn þá sem spila í landsliðinu. Frá þessu eru aö vísu einstaka undantekningar, en yfirleitt tíö- kast það ekki. Meiöist atvinnu- menn okkar { landsleikjum, fá þeir því engar skaöabætur, og getur þaö kostað þá töluverðan tekjumissi. Mbl. hefur fregnað aö atvlnnu- mennirnir á meginlandinu hafi ákveöiö aö skrifa KSi bréf þar sem fariö verður fram á álit samband- sins á þessu máli, og telja leik- mennirnir mjög nauösynlegt aö þetta breytist og þeir veröi tryggöir í landslelkjunum. Gott dæmi um þetta vandamál • Pétur og Dooley verða í sviös- Ijósinu á morgun er ÍR mætir KR. er, að Pétur Ormslev meiddist í leiknum gegn frum i Dublin, en er nú reyndar oröinn góöur af þeim meiöslum. Áöur en hann meiddist var hann fastur maöur á vara- mannabekk Fortuna Dússeldorf og farinn aö fá tækifæri f llöinu. Meö- an aö hann átti viö sin meiösli aö stríöa var gamli þjálfarinn hjá For- tuna rekinn og sá nýi hefur ekki breytt sextán manna hóp sínum eftir aö hann tók viö liðinu. Aö sumu leyti er þaö skiljanlegt, þar sem liöinu hefur gengiö vel og hal- aö inn stig undanfariö. Pétur hefur ekki enn komist i hópinn og hefur hann því misst af talsveröum tekj- um sem leikmenn fá greitt í bónus fyrir unnin stig. Hann fékk ekki neinar skaöa- bætur vegna meiöslanna, þar sem hann meiddist í landsleik, en heföi hann meiöst í leik meö liöi sínu heföi hann auövitaö fengiö bætur, KARL Heinz Rummenigge, knattspyrnumaður Evrópu, sagði i gær í spjalli við ítalska íþrótta- blaöiö Gazzetta Dello Sport, að hann geröi upp hug sinn á næstu dögum um það hvort hann yrði áfram hjá Bayern Múnchen næsta vetur eöa hann færi til ein- hvers liðs á Ítalíu. Rummenigge sagöi í viötali viö blaðiö, aö hann heföi aö undan- förnu staöiö í viðræöum viö for- TVEIR leikir eru á dagskrá i úr- valsdeildinni i körfuknattleik um helgina. Báðir eru þeir annað kvöld í íþróttahúsi Hagaskóla. Kl. 14.00 spila ÍR og KR og um kvöld- ið kl. 19.00 Fram og ÍBK. Báöir gætu þessir leikir oröiö skemmtilegir, enda mikiö í húfi fyrir öll liöin. ÍR-ingar töpuöu meö aöeins einu stigi fyrir Val í fyrra- kvöld, og er liöiö nú til alls líklegt. Pétur Guömundsson átti frábæran leik og skoraöi 44 stig, og hefur • Pétur Ormslev meiddist í leiknum gegn írum. ráöamenn Fiorentina, um hugsan- leg félagaskipti til liösins. „Ég hef mikinn áhuga á því aö kynnast ít- alskri knattspyrnu, knattspyrnunni sem sigraöi í HM í sumar,“ haföi blaðiö eftir Rummenigge, aö sögn AP. Blaðið sagöi hins vegar aö Bay- ern og ýmis vestur-þýsk fyrirtæki heföu gert Rummenigge mjög freistandi tilboö í þeirri von aö halda honum í heimalandi hans. örugglega aldrei leikiö betur en þá. Hann reynist KR-ingum sennilega erfiöur Ijár í þúfu leiki hann af sama krafti og gegn Val. Keflvíkingar mega ekki tapa fyrir Fram ef þeir eiga aö fylgja Val eftir í toppbaráttunni um meistaratitil- inn, og Framarar eru í bullandi fall- hættu, þannig aö þeir mega ekki tapa heldur. Allt bendir þvi til þess aö leikurinn veröi spennandi, og hvorugt lið mun gefa þumlung eftir fyrr en flautaö veröur til leiksloka. — SH. enda allir atvinnumenn tryggöir, og sennilega allir landsliösmenn t heimi nema hér á landi. Mbl. ræddi viö einn atvinnu- mann í gær, og sagöi hann aö ekki væri einungis viö KSf aö sakast aö tryggja ekki — heldur værl þetta hugsunarleysi leikmannanna sjálfra aö kynna sér ekki þessi mál. „En menn læra aldrei fyrr en skaöinn er skeöur,“ sagöi hann og átti þá viö meiðsli Péturs Ormslev. Nokkrir þeirra leikmanna sem leika á meginlandinu hittust heima hjá einum þeirra á dögunum og var þá ákveöið aö senda KSi bréf, eins og áöur kom fram. Sagöi heimild- armaöur Mbl. aö fyrir næsta lands- leik, sem væri í maí, yröu þessi mál vonandi komin á hreint, og leik- menn tryggöir. Aö sjálfsögðu er sú hætta alltaf fyrir hendi að leikmenn meiðist, en hafa veröur í huga aö atvinnu- mennirnir koma í landsleiki án þess aö fá nokkuð fyrir þaö, nema heiðurinn af aö leika fyrir hönd is- lands, og meiösli geta reynst þeim dýrkeypt. Annað gott dæmi um það er Teitur Þórðarson. Hann var aöalmarkaskorari Lens í Frakk- landi á síöasta keppnistímabili, en meiddist síöan. Sá sem tók sæti hans í liöinu greip þaö auövitaö fegins hendi og hefur skoraö mikiö af mörkum aö undanförnu. Teitur átti viö sín meiðsli aö striöa i nokkra mánuði, en þegar hann var orðinn góöur komst hann ekki í liöið. Svona er hinn haröi heimur atvinnuknattspyrnunnar, og fólk veröur aö hafa þaö í huga þegar það segir: „Þessir strákar geta al- veg komið heim í landsleiki. Þeir hafa ekki annaö að gera.“ Þetta sjónarmiö heyrist því miöur alltof oft. — SH. Klammer stiga- hæstur í bruninu FRANZ Klammer, Austurríki, er nú efstur i stigakeppni brun- manna á skíðum eftir keppnina i gær. Tiu efstu menn eru þessir: Franz Klammer, Austurríki 86 Conradin Cathomen, Sviaa 84 Urs Raeber, Sviee 72 Peter MUIIer, Sviee 71 Ken Read, Kanada 69 Harti Weirather, Aueturr. 67 Bruno Kernen, Sviee 52 Steven Podboreki, Kanada 51 Erwin Reech, Aueturríki 50 Peter LUecher, Sviee 47 Borg mætir Tanner BJÖRN Borg, sænski tennisleik- arinn, sem nú hefur dregið sig í hlé hvað alvörukeppnir varöar, mun í framtíðinni aöeins taka þátt í sýningar- og góðgeröar- leikjum. Tilkynnt var í gær, aö Borg, fimmfaldur Wimbledon-meistari, muni leika gegn Roscoe Tanner, sem hann mætti í úrslitaleik Wimbledon 1979, í Kansas í næsta mánuöi. Veröur þaö mánudaginn 14. febrúar og rennnur allur ágóði af leiknum til sjúkrahúss fyrir fötl- uö börn. • Björn Borg hefur nú snúið baki við alvörukeppnum í tennis, en þess í stað hyggst hann leika í sýningar- og ágóðaleikjum, og mætir hann Roscoe Tanner nú á næstunni. Fer Rummenigge til Ítalíu? Hörkuleikir í körfunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.