Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
7
Hugheilar þakkirfæri ég öllum þeim sem minntust min
á 80 ára afmælisdegi mínum 30. desember 1982.
Viggó K.Ó. Jóhannesson.
Nú fer öll fjölskyldan saman í helgarinn-
kaupin — verzlar í rólegheitum í helgarmat-
inn í Kjötmiðstööinni.
Sest svo niður og borðar og hefur það gott
— og á ánægjulega kvöldstund.
Og maturinn er auövitaö frá Kjötmiðstöö-
inni — því þessi fjölskylda veit — hvar
hagkvæmustu kaupin eru.
Opiö í dag
frá kl. 7—4.
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.$. 86SII
FORMOSA
TÖLVAN ER KOMIN
Sýning laugardag og sunnudag
Kl. 13.00 til 16.00 í Ármúla 46,
(Selmúlamegln).
Þessi glæsilega samstæöa samanstendur af:
Formosa tölvu með 48K notendaminni, 53 lykla takkb., stór-
um og litlum stöfum, möguleiki á tengingu viö
ýmsa aukahluti.
Super 5 diskadrif meö stýrispjaldi fyrir diskettur 5V«“ meö 143
KB geymslurými.
Intra tölvuskjár Hann er 12 tommu meö grænu letri.
KYNNINGARVERÐ AÐEINS KR. 31.
000.-.
hff.
Verkalýðs-
flokkur?
Frjálst.óháð dagblað
« tm -Tl.s.f. ARO -FIMMTUO^OUW»JANÚAWW
Verkamannaflokkur?
i|| iNi iil|‘ |"*
Liöur í átökunum
Átökin í Alþýöubandalaginu hafa tekiö á sig margvíslegar
myndir undanfarna daga og vikur. Haröast er barist í
Reykjavík þar sem fylkingarnar sækja hver gegn annarri og
þeir skiptast á stórskotahríö Svavar Gestsson, flokksfor-
maöur, og ÓI& jr R. Grímsson, þingflokksformaöur. Eitt
dæmiö um sviptingarnar voru fréttirnar í síðustu viku um
verkamanna- eöa verkalýösflokk.
I>að vakti athygli í sí<V
ustu viku, að nokkrir al-
kunnir alþvöubandalags-
menn voru bornir fyrir
þeirri hugmynd á opinber-
um vettvangi, að til þess
kynni að koma, að stofnaö-
ur yrði verkalýðsflokkur.
Meðal þeirra, sem nefndir
voru í þessu samhengi, var
Skúli Thoroddsen, lögfræð-
ingur hjá Guðmundi J.
Guðmundssyni þingmanni
Alþýðubandalagsins og
verkalýðsforingja. Frétt
um þetta efni kom meðal
annars í hljóðvarpinu og
hún hafði ekki fyrr verið
lesin en Skúli Thoroddsen
hringdi og bar af sér alla
aðild að málinu, að
minnsta kosti við svo búið,
ef efni leiðréttingarinnar í
lok kvöldfrétta er rétt
munað.
Þetta flokksbrölt hefur
ekki verið f fréttum síðan
og telja sumir, að þarna
hafi nýir jónsteinar byrjað
að velt um fjölmiðlana
með alkunnum gaura-
gangi. En hvað bjó að baki
þessum fréttum um verka-
lýðsflokkinn? Svarsins er
að leita í forvalsbaráttunni
innan Alþýðubandalagsins.
Verkalýðsarmurinn í
flokknum var að minna á
tilvlst sína og koma því
milliliðalaust til skila, að
hann sætti sig illa við að fá
ekki stuðning í forvalinu,
svo illa að nýr flokkur
kæmi til álita ef Guðmund-
ur J. og Grétar Þorsteins-
son hlytu ekki það brautar-
gengi í forvalinu nú um
þessa helgi, sem verkalýðs-
aðallinn telur viðunandi.
Svar „gáfumannahópsins"
í Alþýðubandalaginu við
þessari hótun Guðmundar
J. mun vera þetta: „Farið
hefur fé betra. Ólaf Ragnar
á þing!“
GG-listi
Þegar konunum í AF
þýðubandalaginu varð Ijóst
hvað bjó að baki fréttunum
um verkalýðsflokkinn,
töldu þær sér þann kost
vænstan í baráttunni við
verkalýðsarminn að láta
krók koma á móti bragði.
Kvenframbjóðendur í for-
vali Alþýðuhandalagsins
munu nú láta það berast til
þess fámenna hóps, sem
þátt tekur í forvalinu, að
Ijái menn konum ekki at-
kvæði við skipan fram-
boðslistans muni þær grípa
til þess ráðs eftir talningu
atkvæða og hugsanlegt af-
hroð að bjóða fram
Gtl-lista í Reykjavík þar
sem konur sitji í öllum sæt-
um. Svar „gáfumannahóps-
ins“ í Alþýðubandalaginu
við þessari hótun kvenna
mun vera þotta: „Kjósum
fulltrúa jafnréttis og
kvenna. Ólaf Ragnar á
þing!“
Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalags-
ins, hefur ekki lagt sig
fram um að leita sátta milli
kvennanna, verkalýðs-
armsins og Ólafs R.
Grímssonar. Svavar vill
deila og drottna og væntir
stuðnings frá öllum fylk-
ingum við sig í fyrsta sætið,
sem hann telur öruggt tií
að ná inn á þing þótt
verkalýðsflokkur yrði
stofnaður og konur byðu
fram GG-lista.
Seinheppnir
leiöara-
höfundar
í leiðara Tímans í gær
stóð þetta meðal annars:
„Þá var farið að ræða um
svonefnda meðaltalsreglu
sem Halldór Elíasson pró-
fessor hafði skrifað um í
Mbl. Morgunblaðið fag-
naði þessari reglu ákaft,
því að hana var ekki að
flnna í skýrslu stjórnar-
skrárnefndar, sem Gunnar
Thoroddsen stóð að. Blaðið
kallaði hana reglu Hall-
dórs Elíassonar. en síðar
var upplýst að hún væri
meira en 100 ára gömul.
Henni mun yflrleitt ekki
fylgt við útreikninga á
kosningaúrslitum."
Höfundur hinna tilvitn-
uðu orða er Þórarinn Þór-
arinsson en á síðasta
flokksþingi framsóknar-
manna var ályktað á þann
veg, að hann væri „besti
leiðarahöfundur landsins".
í orðunum hér að ofan
staðfestir Þórarínn vænt-
anlega þessa ályktun að
mati framsóknarmanna,
því að þar eru allar for-
sendur rangar. Það vakti
athygli í Tímanum á
flmmtudag að Steingrímur,
flokksformaður, sagði
Tómas samráðherra sinn
og flokksbróður misskilja
hugmyndirnar í kjördæma-
málinu. Þórarinn Þórar-
insson hefur greinilega
skilið orð Steingríms á
þann veg að misskilningur-
inn værí besta forsendan
fyrír stefnu Framsóknar í
þessu máli eins og svo
mörgum öðrum. Morgun-
blaöið hefur ekki sagt eitt
aukatekið orð um „reglu
Halldórs Elíassonar" í rit-
stjórnargreinum.
Þessi misskilningur Þór-
aríns lórarinssonar er
sama merki brenndur og
leiðari Jónasar Kristjáns-
sonar dagblaðsritstjóra á
flmmtudaginn, þar sem
hann gerir því skóna að
Morgunblaðið muni fjalla
með öðrum hætti ura úrslit
prófkjörs sjálfstæðismanna
á Suðurlandi en á Vestur-
landi eða Norðurlandi
vestra. Þessi lciöari Jónas-
ar er skrífaður gegn betri
vitund, því að daginn áður
en hann birtist hafði Morg-
unblaðið sagt álit sitt á
prófkjörinu á Suðurlandi
auðvitað án þess að hvika
frá fyrri skoðunum. Er
greinilegt að ályktun fram-
sóknarþingsins um „besta
leiðarahöfund landsins"
hefur haft áhrif á Jónas
Kristjánsson og er hann
þegar byrjaöur að feta í
fótspor Þórarins Þórarins-
sonar.
Sambandið langstærst ís-
lenzkra fyrirtækja 1981
RM (i svlgum roð 1980) Fynrtsoki Voiiai mlllj. kr. Brayting veltu l.t.á. Slyutr. vlkur Meðal- l|öidl •tartam Beinar launa- grelðalur aamt Meðal éralaun — i þua. kr. Magn- aður ( tap)
1 c D ;Samb. ís! samvirnufél. 2 363 4 45°é 79 785 1534 177.5 116 3.1
2 C 2) Soíjmiöst. hraðfrystih 1.392.0 280/o 4.108 79 9.6 121
2 i' 3) Landsbanki islands 1.166.0 66 °ö 70 075 1348 107.0 81 83.3
4 ( 5) So'usamb. isl. fiskframl. 1.173.0 89% 2 607 50 5.7 113
5 ( 6) Oliufélagið hf 940.0 52% 14.742 282 34.3 121 4.4
6 ( 7) Kaupfél Eyfirðinga 792.4 56% 53.115 1021 105.8 104 0.8
7 ( 8) Flugleiöir hf 789.6 61% 53.228 1024 152.0 148 -2 1
8 ( 10) Oiíufel Skeljungur hf 741 4 58% 13 958 268 29.8 111 8.5
9 ( 9) Afengis & tóoaksv rikisins 735 6 51%
10 ( 4) ísl. alfélagið hf 725.9 1ó-ó 37 804 727 117.5 162 - 208.0
'1 ( 13) Eimsk:pafé« is! í)f «51 0 ;6% 47.796 919 124.1 135 19 C
12 ( 11) M|OlkjrsamsO!on. Rvk. 690 1 61% 13 1S6 254 27.9 110 0.3
13 ( 12) Gliuverslun isl hf OLÍS 537.8 44% 12 381 238 26.5 111 -0 6
14 ( 14) Postur & simi 464 5 55% - 28 6
15 ( 16) Bunaöarbanki ísiands 428.3 76% 27.940 537 42.5 79 25.2
16 ( 19) Sláturfel Suóurlands 426.9 52% 28 879 555 56.3 102 5.1
17 ( 25) Sarnl. skreiöarframleiðenda 324.0 119% 255 5 1.2 230
18 ( 18) Kaupfel Borgfirómgo 306.2 51% 13 774 265 27 0 102 0.4
19 ( 20) Útvegsbank' Islands 295 8 67% 23.468 451 37.4 83 24.2
20 ( *) ísl. umboðssalan hf 295.3 474%
21 I -) Rafmagnsveitur ríkiS'OS 287 8 423 24.0
22 ( •) Raf^agnsveita Reykjavikur 279 9 -24.9
23 í 17) Siidarverksmj 'ik'sms 276.8 30'.. 9.388 181 26 0 144
24 ( -) Landsvirkjun 276.5 15 676 301 55.7 185 5.3
25 ( 24) Hagkaup hf Rvk 265.0 79': 14 264 274 27« 101
SAMBAND íslenzkra samvinnufé-
laga var stærst íslenzkra fyrirtækja
árið 1981 samkvæmt samantekt
tímaritsins Frjálsrar verzlunar.
I skrá yfir stærstu fyrirtækin er
velta fyrirtækjanna lögð til
grundvallar við uppröðunina. Skrá
yfir 25 stærstu fyrirtækin, sam-
kvæmt athugun Frjálsrar verzlun-
ar, fer hér á eftir. Innan sviga er
greint frá því hvar viðkomandi
fyrirtæki var í röðinni í úttekt
tímaritsins fyrir árið 1980.
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í fyrirsögn á
forsíðu í gær, að þar sagði að
SALT-viðræður væru hafnar á ný
í Genf. Hið rétta er að sjálfsögðu
að viðræðurnar snúast um fækkun
meðaldrægra eldflauga í Evrópu.
SALT-viðræðunum lauk fyrir
nokkrum misserum með sam-
komulagi milli Rússa og Banda-
rikjanna sem nefnist SALT II. Það
samkomulag hefur Bandaríkja-
þing hins vegar ekki staðfest.